Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 14

Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 14
14 - NORÐURSLÓÐ Annálabrot frá 1711-1717 - Saman tekið með hliðsjón af Yallaannál í jólablaði Norðursióðar 1984 tók Páll Kristjánsson saman útdrátt úr Vallaannál Eyjólfs Jónssonar „Iærða“ fyrir árin 1701-1710 með ættfræðilcgu ívafi. Nú heldur Páll áfram í svipuðum dúr með árin 1711-1717 og væntir blaðið þess að ýmsir lesi þetta sér til fróðleiks og skemmtunar. -Ritstj. síöustu viku góu. Fyrsta sumar- og síðasta vetrarvika voru og stirðar. Vor kalt mjög, allt fram á sólstöður, heyjaðist þó sæmilega, helst þegar á leið sumarið. Sumar og haustveðrátta hin æskileg- asta.“ Anno 1713 „Fagurt veður með hægu frosti nýársdag. Veturinn upp þaðan allgóður hvarvetna og mjög frosta- hægur. Vorið frá sumarmálum til fardaga kalt og næðingasamt, svo mjög lítt gréri, en frá fardögum afbragðsgott, með hitum og hlýindum sífelldum, svo að vel spratt hvarvetna. Sumarið frá Alþingi afbragðsgott með mikl- um heyskap og merkilega góðri nýtingu, ásamt fiskiföngum f lík- ara lagi við norðurlandið. Haust- ið afbragðsgott, engu síður en sumarið, svo færri þóttust slíkt muna. Veturinn til jóla afbragðs- góður, svo trautt mundu menn slíkan. Dýrðarveður heiðríkt með hægu frosti og birtu af hálf- vöxnu tungli jólanóttina, og gott upp þaðan til nýárs.“ Anno 1714 „Hálka sunnan með regni nýárs- dag. Vetur góður á norðurlandi og afli mikill. VALLA- OG MÆLIFELLS- ANNÁLL. „Vorið frá sumarmálum hart og kuldasamt nteð gróðurleysi lengstum. Kom hafís nálega alstaðar við norðurland, með sumarmálum og lá fram urn frá- færur. Sumarið fyrir og um alþing heitt og votsamt mjög, spratt því víðast vonum framar. Haustið áþekkt sumrinu til veðráttu og gangs á landi og sjó. Vetur til jóla góður og hlákusamur hvar- vetna.“ Þá drukknuðu aðfangakveld jóla, í Ólafsfjarðará, Jón Styr- — Höfum fengið fallegar leiðaluktir ásamt kertum sem lifir á í 30-40 klukkustundir. VERSLUOTN SOGN Auglýsing Staöa forstöðumanns á barnaheimilinu Kríla- koti er laus til umsóknar frá 1. mars 1989. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1989. Nánari upplýsingar gefa Helen Ármannsdóttir í síma 61372 og Eyvör Stefánsdóttir í síma 61196. Félagsmálaráð Dalvíkur Anno 1711 „Þýðviðri kyrt nýársdag. Vetur upp þaðan víðast góður án hríða og harðra frosta. Sumarið frá Alþingi gott. Heyskapur í meðal- lagi víðar, en nýttist vel. Góðfisþi norðanlands um sumarið og haustið. Haustið allt vott og hrakviðrasamt, svo lítt bættist við sumarheyin og skemmdust þau hjá sumum.“ Pá dó á Hólum í Hjaltadal, Halldór Þorbergsson, annálarit- ari á Seylu í Skagafirði. Eftir hann er Seyluannáll. Fæddur 1623. Þorbergur faðir hans var sýslum. í Þingeyjarþingi, f. 1573, Hrólfssonar sterka og lögréttum. á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, f. um 1530 (frá honum Hrólfsætt). Seinni kona Halldórs um 1698 : Ingiríður Ingimundardóttir. f. 1676. Mikill aldursmunur var á þeim hjónum. 53 ár. Sonur þeirra var Jón prestur á Völlum í Svarf- aðardal 1746 til æviloka 6. apríl 1779, faðir Bjargar, f. 1730 konu Jóns b. í Reykjahlíð við Mývatn, d. 1808, Einarssonar (frá Björgu og Jóni, er komin Reykjahlíð- arætt, hin eldri). Þeirra dóttir : Helga, f. 1761, kona Jóns prests Þorvarðarsonar, f. 1763. Meðal barna þeirra : Jón Reykjalín prestur á Ríp, f. 4. apríl 17í?7 í Reykjahlíð, faðir Jóns Reykja- líns prests á Þönglabakka í Fjörðum, f. 4. febr. 1811, frábær söngmaður, föður Jóhannesar b. á Þönglabakka, d. 1915, forföður margra Dalvíkinga. „Vetur til jóla harður og jarð- bannasamur allvíða. Fjúkhríð landnorðan jólanótt og íllviðri öll jólin upp þaðan til nýársdags." Anno 1712 „Veðrið batnaði með nýárinu, gengu þá góðviðri uns 3 vikur voru af þorra. Kom þá skorpa til Páll Kristjánsson. björnsson, f. 1688, b. á Hóli í Olafsfirði og kona hans, er Þor- gerður hét. Þau voru foreldrar Ólafs b. á Þrasastöðum í Stíflu 1762, f. um 1708, faðir Sigurðar b. s.st., f. 1750, föður Jóns b. á hluta Syrði-Másstaða í Skíðadal, f. 1774, föður Guðntundar b. í Ytra-Holti 1855 til æviloka 1860, föður Guðrúnar Margrétar, f. 1852, konu Jóns b. í Hrappsstaða- koti, f. 1849, Jónsson b. í Grund- arkoti í Blönduhlíð, Jónassonar b. í Brekkukoti í Blönduhlíð, f. 1791, Björnssonar b. á Hillum við Eyjafjörð, f. 1738 b. s. st., 1711, Björnssonar b. á Hillum 1703, f. 1671, Andórsson b. í Skagaf., Björnss., Hallssonar, Magnússonar lögréttum. úr Hegra- nesþingi, f. um 1490, Björnsson- ar b. á Jörfa í Haukadal, Árna- sonar. Meðal barna Guðrúanr Mar- grétar og Jóns b. í Hrappsstaða- koti: Kristinn Jónss., f. 1895, d. 1973. Sundkennari og fleira varð hann á Dalvík, faðir Heimis kennara á Dalvík og systkina hans. „Stórviðri vestan með tungl- skini jólanótt og óstöðugt með stormum upp þaðan til nýárs- dags.“ Anno 1715 „Kyrrviðri þykkt nýársdag. Vet- urinn upp þaðan stopull ntjög til veðráttu og stórviðrasamur víð- ast með vindum og ógæftum til lands og sjávar og hrakningi úti- gangskinda, jarðlaust.“ Sumarið vott og íllt til heyskapar um allt noröurland, með fiskifangi í minna lagi. Haustið vott og íll- viðrasamt fyrir norðan og það því meir er á ieið. Vetur til jóla á lík- an hátt og haustið með snjóum og jarðbönnum víða norður um allt undir jólin. Kom þá góður bati og líkt þaðan af til enda ársins.“ Dýrðarveður heiðríkt með hægu frosti án tunglsbirtu jólanótt og svo upp þaðan allt til nýársdags.“ var. Fiskihægt víðast fyrir norðurlandi. Haustið votsamt og. óstöðugt til veðuráttu framan- vert, en betra þá á leið. Vetur til jóla allgóður hvarvetna með snjóleysum og hægviðrum. Gæskuveður fagurt með hægu frosti og tunglskini jólanóttina, en upp þaðan kaldara og óstöð- ugra til nýársins.“ Anno 1717 „Kuldaveður vestan með snjó nýársdag. Veturinn upp þaðan þvf harðari og grimmari hvar- vetna, sem meir leið fram, með snjónum, stórviðrum og jarð- bönnum allt til sumarmála. Vorið frá sumarmálum líkast vetrinum með snjóum og jarðbönnum, til þess mánuður var af sumri. Kom þá hláka, svo upp tók nokkurn veginn, en brá þó brátt aftur til kulda og stórviðra, sem héldust allt vorið, svo lítt varð um grasvöxt, og skipti ekki um fyr en í miðsumarsviku." Þá brotnaði dugga Eyvindar Jónssonar smiðs (Duggu-Eyvindur) í stórviðri við Hofsós. „Skipkvæmt að venju syðra og vestra og síðar um sumarið á hverja höfn norðan- lands." Sumarið frá Alþingi all- stirt og báglegt til veðuráttu með vætum og vindum oftast nær. Varð því heyskapur í minnsta lagi víðast og eigi betri nýtingin." Fiskifengur misjafn norðanlands, sumstaðar nær hæfi, en víðar all- lítill." Haustið líkt sumrinu og engu betra til veðuráttu, með stórviðrum og snjóaföllum, allt til veturnátta." Vetur til jóla góð- ur víðast með hægri veðuráttu. Hart frost með snjó jólanóttina og birtu af tungli hálfskerðu, og stopult upp þaðan með fjúkhríð- um til nýársdags.“ Páll Kristjánsson. Föndrað og dansað Í|j| " ^ Lionessur á Dalvík komu saman og gerðu aðventukransa. jju * ' % föSBLir C' Anno 1716 Dansað í kringuni „jólatré". Heiinir Kristinsson leikur undir á harmóniku. „Kyrrt veður með heiðfrosti nýársdag. Vetur upp þaðan hvar- vetna góður til veðuráttu, en vindasamur að öðru leiti. Vorið frá sumarmálum og allt til enda afbragðsgott, svo trautt þóttust menn minnast slíkt. en þó varð eigi alstaðar grasvöxtur slíkur sent von var, fyrir því að brá til náttfrosta, er á leið. Sumarið frá Alþingi misjafnt til veðuráttu og votsamt öðru hverju. Varð því víða íll nýting á heyskap og hann því eigi slíkur alstaðar, sem von Yerðlaun Á bls. 7 er hin hefðbundna Ijóða- getraun Norðurslóðar. Þar hefur láðst að geta þess að auðvitað verða veitt bókaverðlaun fyrir besta úrlausn en hlutkesti látið ráða, ef fleiri en ein eru jafngóð- ar. Lausnir skulu hafa borist fyrir 20. janúar 1989. Ragnheiður Valdimarsdóttir og Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir tóku þátt í sýningu dansskóla sem var um síðustu helgi á Hótel Islandi í Reykjavík.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.