Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 9

Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 9
NORÐURSLOÐ - 9 Kveðskapur Jóns Sælors Norðurslóð barst í hendur bókar- korn, þar serti Unnur í Svæði hef- ur skrifað niður nokkrar vísur eftir Jón heitinn „Sælor“. Þessar vísur lærði hún þegar hún stelpa innan við fermingu var honum samtíða við heyskap á Upsum sumarið 1922. Jón var þá kominn undir sjötugt (fæddur á Upsum 1855) og tekinn að lýjast við brauðstritið. Hins vegar var hann óþreytandi að yrkja vísur um hvað eina, sem fyrir bar og þurfti ekki mikið til sem yrkisefni. Þessar vísur eru flestar í þynnra lagi og standa ekki undir sér án skýringa. En þar sem okk- ur þykir ólíklegt að nokkur kunni þær, nema eina eða tvær þeirra, annar en Unnur, þykir okkur rétt að halda þeim til haga. Sagt er að Snorri heitinn Sigfússon hafi safnað saman öllum vísum Sælors, sem hann kom höndum yfir, og það mun hafa verið tölu- vert safn. En því miður hefur þetta safn glatast, að því að sagt er, og er það skaði. En nú snúum við okkur að bók Unnar og tilfærum orðrétt. Jón var við heyskap á Upsum og var ég honum þá samtíða og lét hann oft vísur fjúka. Eitt sinn vorum við að taka saman þurrt hey og saxa og áttu piltar að bera söxuðu föngin, en Jón var farinn að þreytast. Varð þá til þessi vísa: Góði Benni legðu lið, ég ligg hér nærri fallinn. Pær ætla að gera út af við ævagamla karlinn. Á Upsum bjuggu þá hjóiiin Þorsteinn og Anna og koma hér viö sögu börn þeirra Benedikt og Jón Jónsson „Sælor“. Helgi og tvíburarnir Rósa og Fríða. Annað sinn beit nú ljárinn illa hjá karli og mælti hann þá til Benna. Leggðu högg í Ijáinn minn, laufa knái þundurinn svo bíti á stráin brandurinn, batna mun þá slátturinn. Einu sinni vorum við að taka saman þurrt hey og áttum von á regnskúr. Anna var þar með okk- ur og þótti heldur seint ganga og segir: „Þú ferð með eitt fang, Helgi, meðan Fríða fer með tvö.“ Þá gegnir Jón: Hún er ung og óslitin, eikin steina linna. En Helgi er orðinn hálfdrepinn, hann hlýtur að gera minna. Einu sinni þvoði Rósa buxur af karli og geröi viö þær og þótti honum mjög vænt um. Orti þá þessa vt'su. Gátur Vinur Norðurslóðar, Ingvar Gíslason fyrrverandi þingmaður og ráðherra sendir blaðinu enn skemmtiefni til jólanna. 1 bréfi, sem fylgir, segir hann, að þetta sé samið í New York þar sem hann sat allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna „enda oft vitlegra að reyna að hnoða saman vísu á fundi S.Þ. en ætla að grilla í skynsamlegar meiningar í því, sem þar er sagt í ræðum“. Fyrst eru 7 stökur þar sem sama orð með mismunandi merkingu felst í hverri hendingu og 8. vísan þar sem samrímd orð eru fólgin í hverri línu. Sýndarskraut með gervigljá, gisin, mögur engjastrá, á mjólkurtrogum menn þess gá, í mannvirðingum einnig sjá. Trú og menning tengd er við, takmark svœðisbundið, mörgum gefið mannsnafnið, milli vikna fundið. Möndull, bjálki, bœjarheiti, ber af grund sem hœð og leiti, tölugildi á teningunum, talið eitt af goðmögnunum. Skipum jafnan skaðrœði, skemmdir lands er varnir bresta, bundins loforðs brigðmœli, buxnaprýðin talin mesta. Purrkun fisks á fyrri tíð, og fœrikvíum tengd var smíð, meiðajór og marsvínsger, máttarstofn er húsið ber. Verðlaun. í öfgunum leið allra leiða, leturröð, gagnsöm til veiða, fjórar svo bundnar í bögu, barnhetjan frœgri í sögu. Frœgt af sögu, Flóabýli, lögum lands lokka prýðir, kóróna á karlfygli. Vetrar tengist veðrunum — Veður á landi í hafáttum. -— Lýsir gerla letingjum -— Léttir göngu mannsfótum —— Rósa verður lífs á leið lánsöm, það er hugboð mitt. Dugleg verður hringa heið og hugsar vel um búið sitt. Það var oft skammtaður mjólkurgrautur til miðdagsmatar sem Jóni þótti mjög góður. En Benna var farið að leiðast graut- urinn. Segir þá Jón: Sálin yrði ekki fýld, er hún hverfur lífs frá þraut, fengi ég tóbak, salta síld og svolítið af mjólkureraut. Júltus í Sunnuhvoli gaf Jóni munntóbak, sem honum þótti mjög vænt um, og varð þá þessi vísa til: Fylgi þér ætíð gæfan góð, góðra drengja jafni. „Fram" þinn renni um fiskaslóð í frelsarans Jesú nafni. Um Jónínu í Sunnuhvoli geröi hann eitt sinn þessa vísu: í skapi stór en skörungur, af skötnum dável metin. Pú ert önnur Porgerður. sem þá var Agli getin. Jón var vinnumaður á Felli hjá Ágústi og Rósu er þar bjuggu, en var vistráðinn fram í Velli um vorið. Vatnsburður var mjög erf- iöur í Felli og kom það mikið í hlut Jóns að sækja það. Ein- hverju sinni er hann var orðinn þreyttur á vatnsburöinum kvað hann vísu þessa: Hamingjan mér leggi lið að labba fram í Velli. Pað tekur ekki verra við en vantsdólið í Felli. Eitt haustið fékk Jón að róa nokkra róðra til að leggja sér fisk til vetrarins. Hann var þá á Bjarnastöðum hérna fyrir utan ána. Hann hengdi fiskinn upp í hjall, en þegar frá leið fannst honum ódrýgjast hjá sér í hjallin- um, tók allan fiskinn og bar í hús. Þetta varð honum efni í vísu: Pjófarnir þeir þola tjón, það er leiði gallinn. „Fisk sinn allan faldi Jón, fjandann gerði karlinn. “ Jóhann bróðir minn (Unnar) var smali á Böggustöðum, þegar hann var unglingur. Þá var Jón þar líka. Eitt sinn fór Jói á færi með Baldvini heitnum og dró þá fleiri fiska en hann. Þá orti Jón: Jóhann knáan meta má mjög þó lítill væri. Karlinn Baldvin kúgdrap sá og kúskaði á færi. Um Þorstein Jónsson kaup- mann orti hann þessa: Pú ert hreinn og frír við fals, framkvæmdir margar hraður. Sómi bænda Svarfardals sístarfandi maður. Og í vegavinnu var hann í mikilli rigningu og var þá beðinn að kveða rigninguna niður. Þá fæddist þessi kröftuga vísa: Rigningin er röm og stæk, rekka gerir vota. Ef hún rynni öll læk í hana skyldi ég pota. Ekki fer sögum af því, hvort þetta hafði tilætluð áhrif á rign- inguna. Látum við þetta nægja að sinna. En gaman væri ef einhver gæti bent á hvar er að finna sam- safn vísna Jóns Sælors Jónssonar þess skemmtilega hagyrðings. Svarfaðardalur - Hátíðarljóð 1974 - Yst við Eyjafjörðinn yfir kunmtm dal haldid heiðursvörðintt hefur fjallaval, líka blessað himiim hár. Mörg hafa ttm þau fjöllin flœtt fögur inorgunsár. Síðan hér uin hattður hófst t dalnum byggð hestur, himdur. sauður honttm sóru tryggð nmnið Itafa rakta braut eitt þúsund og eitt hundrað átr i tímans skaut. Vörðu vaskir garpar Velli, Hof og Grimd urðtir erjur snarpar oft á marga lund inni í dal og út með sjó. Pá á Karlsá kappinn snjall Karl liinnn rauði bjó. Sitmir löngitm saman silfur eltu grátt, eins og eitthvert gaman tvfðu brandaslátt. Brytjuðu grísi Grundarmenn. Seinfyllt skarð i Skíða vör. Skyldi svo ei enn? Klaufabrekkna-Klaufi krafta í initndimi bar, lífs í þjarki og þaufi þolinmóður var. Vel hann þoldi banabað: Með höfuðið í hendinni hann fór eftir það. Hrundtt deyjð og dnmga drósir margar þar. Ingvildur hin ttnga öðritm siuni af bar. Vel hún heiður varði sinii. Vidumefnið vífið fékk, var það „fögurkinn“. Ár og ttldir liðtt út á tímans flóð, örlög yfir riðtt ill - og líka góð. Menn og skepnur hímda í höin. Teflt var oft við ógnir lífs yst á lieljarþröm. Par á móti mönnitm miðlad gleði var lífs í leik og önnuin, Ijós á veginit bar. Skuggi og birta skiptast á alls staðar á œvileið, öllum mönnmn hjá. Gaman er að eygja terið kostavœn samantengd sig teygja túnin iðjagrœn. Sókn og frumför sí og te. Hrein og björt og liá og glœst liús á hverjum bcc. Breiði byggðahringur blessist allt þitt rád. Sérhver Svarfdœlingur sýni fremd og dáð. Þjóðinni komi úr þessitm dal hér eftir sem hingað til heilsteypt mannaval. Sviphrein sveitaprýði Svarfaðarbyggðin kær, lánið þína lýði leiði fjær og nœr. Aldrei neitt þér ógni grand, meðan bántr brotna við Böggvisslaðasand. ,, ., ... ,. . 00 Haraldur Zophoniasson.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.