Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 6

Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 6
á fót, hefur þó allur tölvu- og netrekstur margfaldast að umfangi, bæði vegna fjölgunar og kröfuharðari viðfangsefna. Hlutverk og markmið Eins og fram hefur komið á Menntasmiðjan sér fyrir- myndir erlendis en er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Hugmyndafræðin byggist á þeirri sýn að nám eigi sér ekki síst stað í félagslegum samskiptum og gott umhverfi hvetji til náms. Einstaklingurinn stundar nám sitt út frá eigin forsendum og ber ábyrgð á því að nýta þá aðstöðu og aðstoð sem honum býðst. í samskiptunum nýtur hann hins vegar hvatningar og getur vænst þess að ná betri árangri. Þess vegna er mikið lagt upp úr því að skapa bæði áþreifanlegt og netlægt námsumhverfi til að mæta ólíkum þörfum ólíkra einstaklinga en styðja jafnframt allt námsferlið frá upplýsingaöflun til miðlunar og framsetningar á nýrri þekkingu. í Reglum fyrir Kennaraháskóla ís- lands segir svo um hlutverkið: Meginhlutverk Menntasmiðju Kennaraháskólans er að veita nemendum og starfsfólki þjónustu vegna náms, kennslu og rannsókna. Hún er jafnframt opin öðrum sem sérhæfð þjónustumiðstöð á sviði kennslu, uppeldis, umönnunar og þjálfunar. f Menntasmiðju er veittur aðgangur að heimild- um, sérhæfðum tækjakosti og hugbúnaði og höfð umsjón með tölvukerfi skólans. Þar er einnig veitt leiðsögn og aðstoð á sviði kennslutækni, gagnagerð- ar og upplýsinga- og samskiptatækni og við heim- ildaöflun. Menntasmiðjan á að skapa sveigjanlegt og hvetjandi námsumhverfi og starfa í nánu sambandi við deildir og aðrar starfseiningar skólans. Markmiðið er að þróa og samhæfa þjónustu sem örvar nemendur til náms og eykur faglega hæfni kennara. í því skyni er unnið með kennurum skólans að því að taka upp nýjungar í náms- og kennsluháttum og lagt kapp á að þróa góða þjónustu sem tekur mið af þörfum notenda og er veitt af traustu og vel þjálfuðu starfsfólki. Smiðjan tekur þátt í og á frumkvæði að samstarfi bæði innan Kennaraháskólans, ekki síst við kennsluskrifstofu og Rannsóknarstofnun, og út fyrir hann. Þetta víðtæka hlutverk helgast af því hve miklar kröfur eru gerðar um að allir séu læsir á upplýsingar og geti sett fram þekkingu sína með nýjum aðferðum og miðlum. Upplýsingalæsi og tölvufærni eru orðin að meginmarkmiðum í námi. Háskólar eru farnir að leggja mun meiri áherslu en áður á námsumhverfið og það verður keppikefli að þróa stofnanabrag þar sem stúdentar og starfsfólk eru stöðugt að leita nýrr- ar þekkingar, hver að læra af annars reynslu og auka við hæfni sína. Gerjunarkerið — sem getur heitið hvort heldur sem er menntasmiðja eða þekkingar- þorp - verður tákn um þessa nýju háskólamenningu. Viðfangsefni og skipulag í Menntasmiðju er fengist við upplýsingaöflun, úr- vinnslu og miðlun þekkingar. Öll tölvu- og tækjaþjón- usta ásamt vef skólans er nú innan Menntasmiðju og er sívaxandi áhersla lögð á miðlun og framsetningu þekkingar með rafrænum hætti. Veitt er margs konar þjónusta við starfsfólk og nemendur nær og fjær, s.s. útlán gagna og tækja, millisafnalán, aðstoð og ráðgjöf við upplýsingaleit, ráðgjöf um kennslutækni og notk- un upplýsinga- og samskiptatækni. Eins og áður segir fer starfsemin fram í tveimur deildum, safni og smiðju. Forstöðumenn þeirra mynda ásamt framkvæmdastjóra menntasmiðjuráð sem heldur reglulega fundi, mótar stefnu, gerir fram- kvæmda- og fjárhagsáætlanir og fylgist með árangri. í smiðjunni er opið verkstæði þar sem nemendur og kennarar geta fengið kennslufræðilega leiðsögn og aðstoð við notkun almenns hugbúnaðar og fjar- kennslubúnaðar, hönnun prentgagna, hljóð- og myndvinnslu, vefsíðugerð og margmiðlun. Þar er vefstjórn og umsjón með smærri tækjum skólans eins og fartölvum, skjávörpum, myndavélum og upp- tökutækjum en einnig með fjarfundabúnaði og tækni- búnaði í fyrirlestrasölum. Ráðgjöf er veitt starfsfólki skólans og námskeið haldin um ýmsa þætti upplýs- inga- og samskiptatækni í námi og kennslu, s.s. vef- síðugerð, notkun gagnagrunna og WebCT fjar- kennslubúnaðarins sem notaður er í mjög mörgum fjarnámskeiðum. Þá er leitað þangað eftir tæknilegri aðstoð vegna rannsóknar- og þróunarverkefna. Safnið hefur umsjón með allri bókasafnsstarfsemi á vegum skólans. Það er sérfræðisafn á sviði uppeldis, kennslu, umönnunar og þjálfunar og kennslugagna- safn þar sem veitt er ráðgjöf um kennslugögn og kennsluaðferðir. Mikil áhersla er lögð á að rækta góð tengsl við kennara og kynna bæði þeim og nemend- um þá fjölbreyttu möguleika sem bjóðast við öflun upplýsinga á þessum sviðum. Húsnæði og búnaður Öll starfsemi Menntasmiðju var flutt í nýtt húsnæði á haustmisseri 2002. Húsið sem heitir Hamar er á þremur hæðum, 3.600 m2 að stærð, og innangengt úr því í eldri byggingar skólans við Stakkahlíð. Gengið er inn í Hamar frá Háteigsvegi og komið inn á miðhæð sem er á sama fleti og neðsta hæð elsta hússins. Komið er inn í rúmgott miðrými, eins konar gjá sem er opin á milli hæða og þakgluggar veita birtu alla leið niður á neðstu hæð. í gjánni eru á hægri hönd þrír fyrirlestrasalir sem taka 70, 200 og 300 manns í sæti. Á efstu hæð eru misstórar kennslustofur ásamt sér- búnum stofum til tölvukennslu, upptöku og fjar- kennslu. Netsamband er um allt hús og getur fólk því sest hvar sem er og unnið verkefni sín á fartölvur en hefur um leið aðgang að öllum upplýsingaveitum sem í boði eru. Batteríið ehf— arfeitefetar annaðist hönn- 4 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.