Morgunblaðið - 30.10.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.10.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1975 Stefnum að sigri sagði Birgir Örn Birgirs LEIKREYNDASTI madur Ármannsliðsins sem leikur gegn Playboys í kvöld er Birgir Örn Birgirs. Birgir hefur leikið I m.fl. I 17 ár, og hefur þvf gífurlega reynslu að baki. Þrátt fyrir að Birgir sé kominn á fertugsaldur- J Birgir örn Birgirs inn er álit manna að hann hafi ekki f langan tfma verið betri en einmitt nú, enda æft mjög vel f vetur. „Undirbúningur okkar fyrir þessa leiki hefur verið mjög góður, við höfum æft mjög vel, og það eina sem betur hefði mátt fara er að við höfum aðeins getað æft þrlvegis í Laugardalshöll. Mér þykir leitt að segja það, að samskipti okkar við stjórn Ármanns hafa ekki verið nógu góð hvað þetta snertír, við skilj- um það ekki að félagið geti ekki útvegað okkur æfingar í Laugar- dalshöll þegar við undirbúum okkur fyrir svona stórt verkefni eins og Evrópukeppni er, á sama tíma og knattspyrnudeild félags- ins hefur æfingar í höllinni. Ég býst við spennandí viður- eign í kvöld, við erum þó á heima- velli og það ætti að koma okkur til góða. Annars vil ég nota tæki- færið og þakka þeim fjölmörgu sem hafa styrkt okkur í sambandi við þetta mikla fyrirtæki sem þátttaka f Evrópukeppni óneitan- lega er, og við höfum á þvi fullan hug að þakka fyrir okkur á verð- ugan hátt — með sigri yfir Play- boys í kvöld.“ Ætla að sjá nm Canon — sagði Jimmy Rogers „MÉR er ljóst, að ein af aðal- ástæðum fyrir komu minni hingað til Ármanns var fyrir- huguð þátttaka liðsins f Evrópu- keppninni. Þess vegna, sem og hingað til, mun ég gera allt hvað ég get til að við vinnum þennan leik. Aðalhlutverk mitt í Ieiknum verður að ég bezt veit að fást við hinn hávaxna landa minn Ronnie Canon (2,06m) en ég er hvergi smeykur. Ég veit að ég fæ góðan stuðning félaga minna í liðinu. Mig langar til að biðja alla sem tök hafa á að koma Og hvetja Armenninga til sigurs f þessum leik. Ármann hefur sýnt það í leikjum Reykjavfkurmótsins að liðið leikur bezt þegar áhorfendur eru með á nótunum og hvetja.“ Jimmy Rogers Verðum að stöðva Mahalamaaki — sagði Jón Sigurðsson „PLAYBOYS eru engir viðvan- ingar í körfuboltanum. fremur enn finnsk lið yfirleitt, það hef ég sjálfur reynt í leikjum mínum með landsliðinu, sagði Jón Sig- urðsson. Samt sem áður tel ég sigurmöguleika okkar allmikla ef okkur tekst að ná vel saman eins og við höfum gert í haust f Reykjavíkurmótinu. Eitt stærsta hlutverk mitt verður að fást við hinn snjalla bakvörð Mahala- maaki sem er einn bezti bak- vörður Finnlands. Ég ætla svo sannarlega að reyna að halda honum í skefjum í leiknum, og ef það tekst þá er mikið unnið. Mig langar að geta þess í leiðinni að síðan ég hóf að iðka körfubolta fyrir allmörgum árum hefur mér aldrei fundizt eins mikil samstaða innan Ármanns eins og við undir- búning fyrir þessa leiki, og ég er bjartsýnn á leikinn í kvöld.“ Jón Sigurðsson Færeyska landsliðið f badminton sem keppir vlð tslendinga I Laugardalshöllinni á föstudaginn: Frá vinstri: Jan Joensen, Gudmund Niclasen, H. Steenberg, Per Andersen, landsliðsþjálfari, Svend Steens- borg, Egil Lyngsöe, Poul Niclasen og Petur Hansen. Landsleikor við Færeyinga í Höllinni á föstndagskvöld tSLENDINGAR leika sinn þriðja landsleik I bad- 1 einliðaleiknum leikur Haraldur við Poul Mic- minton n.k. föstudag, 31. október og verða andstæð- ingarnir nú frá Færeyjum. Hefst landskeppnin kl. 20.00 f Laugardalshöllinni og fara fram fimm leik- ir, 3 f einliðaleik og 2 f tvfliðaleik. Tveir fyrri badmintonlandsleikir lslendinga hafa verið við Norðmenn og fór sá leikur fram f Laugardalshöllinni og við Finna og var þá keppt f Helsinki. Báðum þessum landsleikjum töpuðu Is- lendingar, en veittu þó Norðmönnum töluverða keppni. Búast má hins vegar við þvf, að tslendingar vinni sigur f landskeppninni við Færeyjar á föstu- dagskvöldið, en Iftið er þó vitað um getu Færeying- anna og framfarir þeirra, en að undanförnu hefur danskur þjálfari starfað f Færeyjum, og hefur það örugglega komið Færeyingum mjög til góða. Landslið Islands verður skipað eftirtöldum mönnum: Haraldur Kornelfusson, TBR, Friðleifur Stefánsson, KR, Óskar Guðmundsson, Sigfús Ægir Árnason, TBR, og Ottó Guðjónsson, TBR. helsen, Friðleifur við Hans D. Steenberg, og Oskar við Petur Hansen. I tvfliðaleiknum keppa þeir Haraldur og Steinar við Poul Michelsen og Petur Hansen en Sigfús Ægir Arnason og Ottó Guðjóns- son leika við Egil Lyngsöe og Svend Steensborg. Auk landsleiksins munu Færeyingarnir svo taka þátt f opnu badmintonmóti sem fram fer f iþrótta- húsi Garðahrepps laugardaginn 1. nóvember. 1 þvf móti munu einnig keppa allir beztu badminton- menn landsins og nokkrir A-flokks menn. Þetta mót hefst kl. 13.30 og verður keppt bæði f einliöa- og tvfliðaleik. Færeyingarnir koma hingað með veglegan bikar sem keppt verður um f landskeppninni á föstudags- kvöldið og er hann gefinn af Föroya Fiskasölu f Þórshöfn. Er þetta farandbikar sem keppa á um árlega næstu fimm árin, og er þar með tryggt að landskeppni f badminton mun fara fram árlega milli þessara þjóða. _ S Tekst Armenningum að sigra Playboys? Kl. 20,30 f kvöld hefst í Laugar- dalshöllinni fyrri leikur Ár- manns og Playboys f Evrópu- bikarkeppni bikarmeistara. Greinilega hefur orðið vart við mikinn áhuga á þessum leik meðal fólks, enda má segja að nú sé f fyrsta skipti að einhverju leyti jafnræði með fslenzku liði sem þátt tekur í Evrópukeppni f körfubolta og mótherjanum. Hér er að sjálfsögðu átt við það, að Ármenningar leika nú með Bandaríkjamann í liði sínu, en þeir hafa nær alltaf leikið í liðum andstæðinga okkar f Evrópu- keppni og leikið okkar menn grátt. Koma Jimmy Rogers f lið Dómaranámskeið FRJÁLSfÞRÓTTASAMBAND ís- lands hefur ákveðið að efna til dómaranámskeiðs I kastgreinum. Námskeiðið fer fram I IR-húsinu við Túngötu og hefst n.k. mánu- dagskvöld 3. nóvember ki. 20.30. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig á skrifstofu ÍSÍ, slmi 83377, fyrir mánudags- kvöld. (Fréttfrá FRl). Ármanns hefur haft góð áhrif á Ármannsliðið í haust, og liðið er eins vel undir þessa leiki gegn Playboys búið og frekast er hægt á þessum tfma árs. Ármenningar taka nú í fyrsta skipti þátt í Evrópukeppni og í fyrsta skipti gefst íslenzkum áhorfendum tækifæri til að sjá hér á landi viðureign tveggja blökkumanna. Jimmy Rogers verður ekki eini Bandaríkja- maðurinn á fjölum Laugardals- hallarinnar í kvöld, því Finnar eru með einn slíkan í liði sfnu, Ronnie Canon, sem er 2,06 m á hæð. Þá eru f finnska liðinu nokkrir landsliðsmenn, og eru þeirra frægastir Kaari Liimo, sem er jafnframt þjálfari liðsins, og bakvörðurinn Klaus Mahalam- aaki, sem lék hér á Polar Cup 1968 og vakti mikla athygli. Armenningar treysta á að fólk mæti á leikinn í kvöld og hvetji liðið, ekki mun af veita gegn Finnunum, og stuðningur áhorf- enda í kvöld gerir möguleika Ár- manns f leiknum vissulega tals- verða. Eins og fyrr sagði hefst leikur- inn kl. 20,30. Björn Magnússon Sigurmöguleikar fgrir hendi Björn Magnússon hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli með liði Armanns I vetur fyrir mjög góða leiki og er mjög vax- andi leikmaður. Björn hefur fengið það erfiða hlutverk að fylla skarð Sfmonar Ólafssonar miðherja sem hélt til Bandarfkjanna til náms I haust. Er víð spurðum Björn um álit hans á leiknum f kvöld sagði hann: „Ég bfð spenntur eftir að leikurinn hefjist, og mitt álit er að við eigum sigurmöguleika. Ef við náum upp baráttu f liðinu og allir leggja sig fram getur allt gerzt en það verður ekki auðvelt að fást við þessa risa,“ sagði Björn að lokum. Sjálfur er hann enginn dvergur, 1,99 ni á hæð, og hefur leikið fjölda unglinga- landsleiki fyrir Island.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.