Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 17 tvö stór málverk, sem bæði eru af þeirri gerð, sem gert hafa veg hans hvað mestan. Valtýr Pét- ursson er einnig með í þessum félagsskap. Vönduð sýningarskrá fylgir þessari sýningu. Þar er stutt grein um Þorvald Skúlason eftir Braga Ásgeirsson bæði á ís- lensku og ensku ásamt tveim málverkum litprentuðum eftir Þorvald. Og myndir eftir alla sýnendur í svart/hvítu eru þar einnig. Það er auðvitað ekki viðeig- andi, að einn af sýnendum skuli rita um slíka sýningu, en þannig verður það nú samt að vera og ég ætla að biðja forláts á því hér. En að lokum hvet ég fólk til að sjá þessa sýningu, sem er bæði vönduð og skemmtileg. Hún er einnig til sóma fyrir Listmálara- félagið, en auðvitað verða gerðar meiri kröfur til þessa félags- skapar en annarra sýnenda á málverki. Hér eru engir viðvan- ingar á ferð, og árangur þessa hóps verður að teljast mæli- kvarði á vissa hluti í menningu okkar, hjá því verður ekki kom- ist. heildin furðu samstæð. Það er rúmt um verkin, og þau fá að njóta sín. Allt eru þetta ný verk og því gott sýnishorn af því, sem er að gerast í málverkinu hér á landi. Flestir þeir listamenn er sýna eru fyrir löngu fastmótaðir listamenn og eiga sér langan starfsaldur að baki, en þeir beita afar mismunandi aðferðum, og þarna er bæði að finna fígúra- tíva myndlist og abstrakt og allt þar á milli. Ágúst F. Petersen er nýlega búinn að sýna verk sín í List- munahúsinu, en kemur hér með myndir, sem ekki voru á þeirri sýningu. Hann er sjálfum sér líkur og stendur fyrir sínu. Björn Birnir kemur skemmtilega á óvart með stórar myndir og nokkuð breyttan myndgerðar- máta. Hann lætur mikið til sin með það að fara. Erfitt að gera upp á milli verka hans. Þau eru traust og vel unnin. Einar Þor- láksson sýnir bæði olíumálverk og teikningar. Olíumyndir hans finnst mér miklu meira sann- færandi en teikningarnar, sem eru of einfaldar í sniði fyrir minn smekk. Elías B. Halldórs- son á þarna þrjú málverk, og eru þau bæði vel byggð og gefa hug- mynd um hamfarir í náttúrunni, þrátt fyrir abstrakt stíl. Guð- munda Andrésdóttir er afar fersk og litsterk í myndum sín- um. Persónulegur stíll hennar leynir sér ekki. Hafsteinn Aust- mann sýnir þrjú málverk, og eru þau öll afar tengd í formi og meðferð lita. Hafsteinn hefur vaxið sem málari á undanförn- um árum og vitna þessar myndir þar um. Hrólfur Sigurðsson Listmálarafélagið Valtýr Pétursson Fyrir rúmu ári var Listmál- arafélagið stofnað. Yfir tuttugu þekktir listmálarar voru þar að verki, og það fer ekki milli mála að stofnun þessa félags var sannarlega tímabær. Það var sem sagt fyrst og fremst stofnað til varnar málverkinu sem slíku þar sem mikið var um árásir á myndina í rammanum, eins og ungur maður komst að orði í fjöimiðli nýlega. Uppákomur og alls konar útúrsnúningar komu fram í nafni myndlistar, og þá varð það eðlilegt, að menn, sem vildu málverkið óskaddað, tækju til sinna ráða og gerðust virkari en ella. Undir þessu merki var fyrsta sýning félagsins haldin að Kjarvalsstöðum í fyrra, og vakti hún verðskuldaða eftirtekt. Mál- verkið er ekki gamalt í menn- ingu íslendinga sé miðað við aðr- ar þjóðir, og þess má minnast, að fyrsta einkasýning íslendings var fyrir áttatíu og þrem árum hér á landi. Það er því sannast mála hvergi tímabært að hefja niðurrif þessa unga litmiðils, sem hefur blómstrað meira en margt annað í þjóðlífi okkar. Það eru til að mynda ekki marg- ar borgir í Evrópu af sömu stærð og Reykjavík, sem geta státað af öðru eins fjöri í myndlist og við- gengst í höfuðborg íslands. Nú hefur Listmálarafélagið efnt til sinnar annarar sýningar að Kjarvalsstöðum. Það eru 17 listamenn sem sýna að sinni, og eru verk þeirra rúmlega sextíu. Mest eru það olíumálverk, en samt má finna á þessari sýningu grafík, teikningar og vatnslita- myndir. Þessi sýning er nokkuð frábrugðin þeirri fyrri, og að mínum dómi er hún mun fersk- ari og hefur jafnvel meiri fjöl- breytni að bjóða en sú fyrri. Þarna eru stílbrögð ýmiss konar, og hver syngur með sínu nefi, ef svo mætti segja, en samt er Málverk eftir Jóhannes Jóhannesson. Mílverk eftir Einar G. Baldvinsson. Málverk eftir Hafstein Austmann. taka. Bragi Ásgeirsson sýnir nokkur af grafíkblöðum sínum er hann sýndi nýlega á öðrum stað. Hann er allur í ástarleikn- um og fer sínar eigin leiðir. Ein- ar Hákonarson sýnir stór og fyrirferðarmikil málverk. Mér finnst stærsta málverk hans bera áf, bæði hvað uppbyggingu forms og litar snertir, og hefur honum sjaldan tekist betur. Ein- ar G. Baldvinsson er sjálfum sér samkvæmur. Sjávarsíðan er viðfangsefnið, og hann kann vel heldur sig við landslagið og nær föstum tökum á viðfangsefni sínu. Þessar myndir eru hnit- miðaðar og bera með sér mikla natni og vandvirkni. Jóhannes Geir á þarna gott samsafn mál- verka. Eitt þeirra finnst mér framar öllum hinum, „Áning í þoku“, sem er sérlega fíniegt og viðkvæmt í lit og gefur visst andrúmsloft úr óbyggðum á sannfærandi hátt. Jóhannes Jó- hannesson er að vanda með tæra og sterka liti, sem eru mjög ein- kennandi fyrir hann, og „Á hvít- um grunni" er traust og vel gerð mynd. Kjartan Guðjónsson er persónulegur að vanda og teikn- ing hans ber vott um sérgáfu, sem ekki mörgum er gefin. Kristján Davíðsson á þarna þrjú verk, öll mjög í ætt við hans venjulegu myndgerð, og litameð- ferðin svíkur ekki. Sigurður Sig- urðsson sýnir mjög eftirtektar- verðar myndir, eitt besta fram- lag hans til sýningar sem ég man eftir. Þorvaldur Skúlason sýnir Myndlist ERTUITAKTVID TÍMfíNN....? Snorrabraut simi 13505 Glasiba simi 34350 Hamraborg simi 46200 Midvangi simi 53300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.