Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
37
Aðalmál bæjarstjórnar Akureyrar;
Rekstur leiktækjasala
heimilaður — og þó!!
--j-^ . -r. -----
OS
„GOURMET'
PÍÝJA UNDRATÆKIÐ
í ELDHÚSIÐ FRÁ
Leiðrétting:
Fjölbreyttu,
ekki gerbreyttu
SLÆM villa slæddist inn í frásögn
Mbl. á fimmtudaginn af ræðu Guð-
rúnar Agnarsdóttur alþingismanns
við útvarpsumræður á Alþingi sl.
þriöjudag.
Rétt er setningin þannig: „Þess
vegna er henni miklu vert að nota
féð til að tryggja börnum sínum
samfelldan skóladag með fjöl-
breyttu, viðeigandi námsefni til að
búa þau undir lífið, heldur en að
reisa stórhýsi í heimreiðinni."
í stað orðsins fjölbreyttu, stóð
gerbreyttu. Mbl. biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
1. Örtölvustýrt að öllu leyti.
2. Tölvustýrð klukka 7 daga fram í tímann.
3. Með 7 mismunandi dagskrárstundum.
4. Þráðlaus fjarstýring með 8 möguleikum.
5. Sjálvirkur dagsrárleitari (APLD) „Index skanner“.
6. Rafstýrðir snertirofar.
7. Framhlaðið.
8. Gefur nákvæmlega til kynna hversu margar
mínútur eru eftir óspilaðar af kasettunni.
9. Möguleikar á V2 hraða, tvöföldum hraða og
ramma fyrir ramma „Frame by frame“.
Aðeins39.900“
HLJOMBÆR ■—
Hrærir deig, sker niður grænmeti, hakkar kjöt, saxar
grænmeti, býr til franskar kartöflur, þeytir rjóma og
ótal m.fl.
Mjög auðvelt og fljótlegt er að hreinsa tækiö eftir
notkun.
*
„GOURMET" undratækið er knúið af jafnöruggum
mótor eins og notaður er í stóra bróðurinn
„Kenwood Chef" og hefur hann þrjár hraðastillingar.
Mótorinn er þeim eiginleikum búinn að hann slær út
ef tækið er yfirfyllt.
Komið og kynnist nýja undratækinu
frá Kenwood.
RAFTÆKJADEILD
[hIHEKLAlHF
LAUGAVEGI 170 - 172 SIMAR 11687 21240
Akai 84
hljómtækjaúrvalið
er (einu orði
frábært.
— íþróttafélögin fara fram á einkarétt til slíks rekstrar
Akureyri. 19. október.
VERULEGUR hluti tíma bæjar-
stjórnar á fundi sínum í gær fór í
umræður um rekstur leiktækjasala í
bænum. Mál þetta er búið að velkj-
ast í bæjarkerfinu alllengi og sér
ekki enn fyrir endann á því.
í bænum hefur verið rekinn
leiktækjasalur og billiardstofa í
Kaupvangsstræti til nokkurra ára
og hefur rekstur hennar verið til
fyrirmyndar og fáum til ama. Síð-
an gerðist það, með tilkomu nýj-
ustu gerðar spilakassa, að opnuð
var önnur stofa, Las Vegas, sem
rekin var í bænum í nokkra mán-
uði við misjafnan fögnuð bæjar-
búa. Foreldrar unglinga höfðu
ýmsilegt við þann rekstur að at-
huga en unglingarnir virtust
sækja þangað töluvert. Gekk á
ýmsu með veitingu leyfis fyrir
þessum rekstri. Ekki virtist aug-
jjóst hver ætti að veita leyfi til
slíks reksturs, bæjarfógeti eða
bæjarstjórn, engar reglur virtust
fyrirfinnast um slíka staði. Varð
það til þess að bæjarráð settist
niður og samdi reglugerð um
„leyfi til reksturs leiktæjastofa"
sem hlaut loks samþykki í bæjar-
stjórn fyrir hálfum mánuði, eftir
mikið japl, jaml og fuður.
í reglugerðinni er kveðið svo á,
að bæjarfógetinn á Akureyri veiti
leyfi til slíks rekstrar, að fenginni
umsögn bæjarstjórnar. Á fundin-
um í gær voru lögð fram tvö bréf
frá bæjarfógeta, þar sem leitað er
samþykkis bæjarstjórnar til út-
gáfu leyfa til tveggja einstaklinga
í bænum til reksturs leiktækja-
stofa. Munu báðir þessir einstakl-
ingar hafa haft verulegan undir-
búning að þessum umsóknum sín-
um, aflað sér leiktækja og hafa
húsnæði undir slíkan rekstur. Það
hefur verið ljóst lengi, að Kvenna-
framboðið og Alþýðubandalagið
hafa verið því andvíg að einstakl-
ingar fengju heimild til slíks
rekstrar og tókst þeim að þæfa
málið í bæjarráði um langt skeið
áður en það náði samþykki bæjar-
stjórnar. Töldu fulltrúar þessara
stjórnmálasamtaka, að fela ætti
æskulýðsráði bæjarins að sjá um
slíkan rekstur. Þegar ekki náðist
meirihluti fyrir því í bæjarstjórn
að svo yrði, þá komu þeir því til
leiðar að inn í reglugerðina var
sett heimild til niðurfellingar á
leyfisgjöldum til bæjarsjóðs, ef
íþrótta- eða æskulýðsfélög væru
með slíkan rekstur á sínum snær-
um. Nú gerðist það, eftir að þessi
tveir einstaklingar sóttu um leyfi
samkvæmt reglugerðinni, að bréf
barst til bæjarstjórnar frá
íþróttafélögunum KA og Þór, þar
sem þess var farið á leit við bæjar-
stjórn, að hún veiti félögunum
leyfi til reksturs leiktækjastofa og
jafnframt er til þess mælst að
fleiri aðilum verði ekki veitt slíkt
leyfi í bænum.
Á fundi bæjarstjórnar f gær
kom fram, að sitt sýnist hverjum
bæjarstjórnarmanni í þessum efn-
um. Frestur er á illu bestur og
einn ganginn enn var allri af-
greiðslu málsins frestað, þannig
að í raun er það svo nú, að leik-
tækjasalurinn í Kaupvangsstræti
situr einn að því að veita ungling-
unum þessa mjög svo eftirsóttu
þjónustu, þar sem hann byggir
leyfi sitt á reglum frá fyrri árum,
sem ekki er mögulegt að taka af
honum.
GBerg
Vörður ræðir nýjar leiðir í
verðmyndun landbúnaðarafurða
Á þriðjudagskvöld efnir Lands-
málafélagið Vörður til fundar um
nýjar leiðir í verðmyndun landbún-
aðarafurða. Verðlagning landbúnað-
arafurða og fyrirkomulag á þeim
hefur verið mjög til umræðu að
undanförnu og hyggst félagið fá um-
ræður um það í Valhöll á Háaleitis-
braut 1 sem hefjast kl. 20.30.
Framsöguræður flytja Björn
Matthíasson og talar um verð-
myndunarkerfi landbúnaðarins og
afleiðingar þess, Gunnar Jóhanns-
son, bóndi á Ásmundarstöðum,
fjallar um nýjar leiðir í landbún-
aði og Eyjólfur K. Jónsson, alþing-
ismaður, talar um ný stjórnunar-
viðhorf í landbúnaði. Tækifæri
gefst til umræðna að framsögu-
erindum loknum. Fundarstjóri er
Elín Pálmadóttir og fundarritari
Guðmundur Jónsson.
Fundurinn er öllum opinn og
má búast við gagnlegum og fróð-
legum erindum og umræðum.
HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
PRISMA