Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 7
MÖRGIWBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR =23. ÁGÚST 1986 ?7 Sala Hótels Hofs nægir ekki FLUGSÝNING í REYKJAVÍK Tæknisýningin: Skoðunarferð með Magna um Sundahöfn í TILEFNI tæknisýningarinnar í Borgarleikhúsinu, býður Reykjavík- urhöfn upp á ókeypis skoðunarferð með hafnarbátnum Magna um Sundahöfn frá 13 til 20 á sunnudag- inn. Þeir sem áhuga hafa á sjóferð þessari mæti við Komhlöðuna. Stærsta flugsýning í íslandssögunni fer fram laugardaginn 23. ágúst í tilefni 50 ára afmælis Flugmálafélagsins og flugmálastjórnar. Sýningaratriði hvaðanæva að úr heiminum. Dagskrá: Kl. 13.00 Sýning í skýli 1 við Hótel Loftleiðir opnuð. Kl. 13.30 Brjóstmynd af Agnari Kofoed Hansen fyrrv. flugmálastjóra af- hjúpuð í skýli 1. Kl. 14.00 Flugsýning. Herir 5 landa sýna; Bandaríkjanna, Bretlands, Hollands, Þýskalands og Danmerkur, ásamt flugrekstraraðilum, flug- vélaframleiðendum og einkaaðilum. MEÐAL S ÝNINGARA TRIÐA: Hópflug, svifdrekasýning, flug í loftbelg, fallhlífar- stökk, listflug, módelflug og fleira og fleira . . . Aðgangseyrir: kr. 200,- Allir fljúgandi færir og vettlingi valdandi velkomnir. Flugatriðin gæti þurft að flytja yfir á sunnudag 24. ágúst ef veður verður óhagstætt. Dagskrá flugdagsins verður útvarpað í svæðisútvarpi Reykjavíkur á FM 90,1 MHz frá kl. 13.30 - 18.30. Flugmálafélag íslands FLUGMÁLASTJÓRN Húseignin er veðsett fyrir nær 30 milljónir króna „Framsóknarflokkurinn hefur átt við fjárhagslega erfiðleika að stríða eftir NT málið og var það því samkomulag í húsbyggingar- sjóðnum að réttast væri að selja Hótel Hof,“ sagði Finnur Ingóifsson, gjaldkeri Framsóknarflokksins um ástæður þess að flokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík, ákváðu að selja eign sína við Rauðar- árstíginn. Hann sagði þó að sala Hótels Hofs nægði ekki til að greiða að fullu skuldir blaðsins. Framsóknarflokkurinn átti helm- inginn í Hótel Hofi, á móti Fram- sóknarfélögunum, í Reykjavík. Fengu flokkurinn og Framsóknar- félögin eignir RKÍ við Skipholt og Nóatún í skiptum fyrir Hótel Hof, auk þess sem RKÍ greiðir 37 millj- ónir króna á milli. „Við vildum taka á NT málinu og frekar en að láta blaðið verða gjaldþrota, sem var hægt þar sem NT var hlutafélag, ákvað flokkur- inn að borga skuldimar. Þetta hefur sett flokknum þröngar skorður og því var ákveðið að selja Hótel Hof,“ sagði Finnur. „Framsóknarflokkurinn mun nota sinn hluta af greiðslunum fyr- ir Hotel Hof til að greiða skuldir NT, en það sem fékkst fyrir húsið dugar ekki til.“ Skuldir NT nema nú milli 70 og 80 milljónum króna. Finnur sagði að enn hefðu engar ákvarðanir verið teknar um hvað annað bæri að gera til að greiða skuldir blaðsins að fullu. Hann sagði að framkvæmda- stjóm flokksins myndi á næstunni taka ákvörðun um hvar skrifstofur flokksins og félaganna yrðu til húsa, en til greina kæmi að nota skrifstofur RKl undir starfsemi þeirra, þar sem í Nóatúni væri fyr- ir ágætis skrifstofuhúsnæði. Finnur sagði að hlutur Fram- sóknarflokksins í Hótel Hofí hefði verið að fullu veðsettur, en ekki hlutur félaganna. Samkvæmt veð- bókarvottorðum, nema skuldir sem hvíla á húsinu nær 30 milljónum króna. Finnur sagði að bmnabóta- mat beggja eignanna og stærð þeirra hefði verið lagt til_grundvall- ar upphæðinni sem RKI greiðir á milli eftir eignaskiptin. Auk þess keypti RKÍ rétt til að byggja eina hæð ofan á Hótel Hof. Nýr kaupfélags- sljóri hjá KRON ÓLAFUR Stefán Sveinsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Reykjavíkur og nágrennis. Tek- ur hann við því starfi af Ingólfi Ólafssyni, sem gegnt hefur því frá 1963. Ólafur, sem er 28 ára gamall, er stúdent frá Verslunarskóianum og viðskiptafræðingur frá Háskóla Islands. Hann var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Hrútfírðinga á ámnum 1981 til ’82, en hefur undanfarið gegnt starfi framkvæmdastjóra hjá Agæti. Ólafur Stefán mun taka við starfí kaupfélagsstjóra um næstu áramót. Húsið Rauðarárstígur 18, Hótel Hof, sem Framsóknarflokkurinn hefur selt Rauða krossi íslands. Fróöleikur og skemmtun fyrirháasemlága! til að greiða skuldir NT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.