Vísir - 08.06.1962, Blaðsíða 6
6
VÍSIR
Föstudagur 8. juní 1962.
MÁLVERKASÝNING
Ólafs Túbals
verður opnuð boðsgestum kl. 20.30 í kvöld
í Listamannaskálanum. Sýningin verður op-
in daglega kl. 14—22.
SÝNING
Bækur og vörusýnishorn
frá Sovétríkjunum
t Snorrasal, Laugavegi 18, stendur nú yfir sýning á
sovézkum bókum á ensku, þýzku og sænsku. Einnig
eru sýnishom af nokkrum vörutegundum, sem fluttar
eru hingað frá Sovétríkjunum eða standa til boða ís-
lenzkum innflytjendum: Hljóðfærum, hljómplötum,
myndavélum, úrum, kvikmyndavéium o. fl.
Sýningin er opin daglega kl. 2—10 síðdegis.
Ókeypis aðgangur.
SNORRASALUR
Frá íræðsluráði
Reykjavíkur
Skólasýning 1862—1962 í Miðbæjarskólanum í Reykja-
vík verður opin almenningi kl. 20—22 í kvöld.
Kennurum er sérstaklega boðið að skoða sýninguna
kl. 18 í dag.
Sýningin verður opin til 20. júní, kl. 14—22 alla daga
nema annan dag hvítasunnu kl. 10—22.
Aðgangur ókeypis.
Skrifstofustúlka
Viljum ráða skrifstofustúlku a afgrciðslu vora í Iíaup-
mannahöfn. Kunnátta í vélritun, dönsku og ensku
nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri '
störf sendist skrifstofu vorri fyrir 15. þ. m. merkt
„Skrifstofustúika“.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
— í:i
,
:
VEKUR A THYGLI
VIÐ tónlistarháskólann í Köln við
Rín hefir undanfarin ár ungur ís-
lendingur, Atli Heimir Sveinsson,
stundað tónlistarnám við góðan
orðstír, en tónsmíð eftir hann
vakti sérstaka eftirtekt á háskóla-
tónleikum þar nýlega, og er skrif-
að mjög viðurkennandi um verk-
ið í dagblöðum Kölnarborgar.
Þar segir m.a. Dr. J. Schjermer,
að í verki sínu, er nefnist „Imm-
pressionen 1961“, hafi Atli birt
„hina hreinustu blómskrúðafeg-
urð“ með gegnsæum, „óserielt"
mótuðum furðulegum hljómbrigð-
um, sem jafnframt sýni rækilega
úrvinnsiu formsins og hittni, er
komi fram á eðlilegan hátt.
Annar gagnrýnandi tekur sér-
staklega fram að mjög ánægjulegt
sé hvernig Atli Heimir forðist hina
alltof notuðu og væmnu samstill-
ingu hörpu, vlbrafóns og „celestu"
— enda ríki 1 verki hans örugg-
leg mótun spennu milli púnkta
með viðkæmri hljómsamstillingu,
sem hafi sannfært við fyrstu á-
heyrn.
Atli Heimir Sveinsson er fæddur
hinn 21. september 1938. Foreldr-
ar hans eru þau Kristín Guðmunds
dóttir frá Flatey á Breiðafirði og
Sveinn Þórðarson, fyrv. aðalféhirð
ir Búnaðarbanka íslands. Atli
Heimir stundaði nám við Tónlist
arskólann i Reykjavík og lauk það
an burtfararprófi í píanóleik vorið
1957, og var aðalkennari hans
Rögnvaldur Sigurjónsson. Jafn-
framt tóniistarnárainu stundaði
Atli Heimir nám við Menntaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
stúdentsprófi 1958. Vorið 1959
lauk hann prófi í forspjallavísind-
um við Háskóla íslands og fór þá
um sumarið til Þýzkalands. Að
loknu inntökuprófi innritaðist
hann í Tónlistarháskólann í Köln,
þar sem hann aðallega hefur lagt
Atli Heimir Sveinsson
stund á tónsmíðanám. Kennari
hans fyrst 1 stað var hið þekkta
tónskáid prófessor Giinther Rapha
el, en eftir lát hans Rudolf Pet-
zold. Jafnframt tónsmíðanáminu
hefir Atli Heimir lagt stund á
hljómsveitarstjórn hjá próf. Wolf
gang von der Nahmer og sömu-
leiðis píanóleik hjá próf. Erich
Pillney. Atli Heimir hefir £ hyggju
að liúka námi við tónlistarháskól
ann á komandi sumri.
■> Skipaður hefur verið nýr am-
bassador V-Þýzkalands £ Washing-
ton. Hann er Kar! Heinrich Knapp-
stein, 56 ára. Sagt er, að skipan
hans £ embættið hafi valdið von-
brigðum £ Washington, Knappstein
var eitt sinn sendiherra á Spáni
og fór að ségja Franco fyrir varð-
andi utanrikisstefnu Spánar, segir
í Lundúnablaði, og var þá kvaddur
heim.
Iþrótfir —
Framh. af bls. 2.
ínn réttlátlega með 3:0, eftir 1:0
£ hálfleik.
TÉKKAR TÖPUÐU . . .
EN ERU í UNDANÚRSLITUM
í Vina del Mar töpuðu Tékkar
fyrir Mexíkó 1:3 sem má teljast
nokkuð óvænt, en Tékkar léku eins
og raunar var við búizt af litlum
krafti og reyndu sig aldrei til fulln
ustu enda þegar búnir að tryggja
sér áframhald meðal 8 beztu lið-
anna. Það voru þó Tékkarnir sem
skoruðu fyrsta mark leiksins eftir
aðeins 30 sekúndur, en brátt tóku
Mexíkanar við og unnu réttlátlega
3:1.
1 undanúrslitum £ Chile verða
þessir leikir:
. Rússland — Chile.
Þýzkaland — Júgóslavia
Brazilfa — England.
Ungverjaland — Tékkóslóvakia.