Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 30
Kostnaður:
Verð cil Skýrr fyrir nýtt aðildarsafn í Feng.
1. Stofhkostnaður
Grunnsafn kr. 290.000.- án/VSK
Útibú hvert kr. 95.000,- án/VSK
2. Rekstrarkostnaður
Grunnsafn kr. 15.800,- án/VSK pr. mán.
Útibú kr. 4.900,- án/VSK pr. mán.
Aðgangur
Nú er hægt að tengjast Feng í gegnum telnet. Hægt er
að gerast áskrifandi að leitarþættinum og leita í gögnum
allra safna sem eru með safnkost sinn skráðan í Feng.
Áskriftargjald er kr. 3.200 m/VSK á mánuði.
Áætlað er að á næstunni verði hægt að tengjast Feng í
gegnum WWW/Netscape. Hugsanlega verður þá hægt að
leita í gegnum heimasíður safnanna sem nota Feng eða
Upplýsingaheima Skýrr og yrði þá Fengur einn af fleiri
gagnagrunnum sem hægt er að tengjast hjá Skýrr.
Einnig er hægt að tengjast Feng með upphringisam-
bandi í gegnum modem og er þá gjaldið kr. 4.500 m/VSK
á mánuði.
Fjöldi stofnana sem hafa aðgang að Feng eru 61. Fjöldi
einstaklinga er 386.
Stofnanir sem skrá efni í Feng og eru notendur
kerfisins
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Bókasafn Borgarspítalans
Bókasafn Garðabæjar ásamt skólasöfnum Garðabæjar
(grunnskólar og Fjölbrautaskóli)
Bókasafn Landspítalans
Ríkisútvarpið - Sjónvarp
Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur ásamt öllum
grunnskólum borgarinnar
Safnkostur
Safnkostur þessara safna er skráður í einn og sama
gagnabrunn hvert sem form efnisins er, þar með taldar
tímaritagreinar og bókakaflar. Söfnin sem skrá inn í Feng
nota þrjú mismunandi flokkunarkerfi, Dewey-kerfið,
Dansk decimalklassedeling (DK) og National Library of
Medicine (NLM). Danska flokkunarkerfið sem er mjög
líkt Deweykerfinu hefur stafina DK á undan marktölunni
til að engin hætta sé á ruglingi milli kerfa. Notuð er Kerf-
isbundinn efnisorðalykill eftir Margréti Loftsdóttur og Þór-
dísi T. Þórarinsdóttur. Þar að auki notar Bókasafn Land-
spítalans efnisorðakerfið Medical Subject Headings frá
National Library of Medicine ( MeSH). Frá áramótum eru
sett efnisorð á allt nýskráð efni auk þess sem farið er að setja
efnisorð á eldra efni.
• Borgarbókasafnið hefur skráð allan safnkost sinn í Feng. Það eru
bækur, tímarit, myndbönd, geisladiskar, hljómplötur, nótur, hljóð-
bækur o.s.frv. Skráðar eru valdar greinar úr íslenskum tímaritum og
bókum. AJlt tónlistarefni er skráð, greiniskráningu á sígildri tónlist er
lokið og byrjað er að greiniskrá dægurtónlist, þ.e. skrá hvert einstakt
lag.
• Bókasafn Borgarspítalans hefur skráð hluta af tímaritakosti sínum en
hefur ekki enn tekið kerfið að fullu í notkun.
• Bókasafn Garðabæjar byrjaði síðastliðið haust að skrá í Feng og skrá-
ir allt nýtt efni sem safninu berst.
• Bókasafn Landspítalans hefur skráð allan sinn safnkost í Feng. Fyrir
utan bækur og tímarit hafa verið skráðar greinar úr öllum heilbrigð-
istímaritum frá 1986 og eitthvað af eldra efni. Flestar doktors- og
mastersritgerðir í læknisfræði og hjúkrun eru skráðar, lokaritgerðir í
hjúkrun, fræðslubæklingar fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra og
ljósmyndasafn Landspítalans.
• Sjónvarpið skráir íslenskt efni sem sýnt er í sjónvarpinu, bæði frétta-
, fræðslu- og skemmtiefni.
• Skólasafnamiðstöð hefur skráð allan safnkost grunnskóla Reykjavík-
ur, bækur, tímarit, myndbönd, geisladiska (tónlist), CD-ROM
geisladiska, hljóðbækur, skyggnur, glærur og forrit, aðallega kennslu-
forrit. Hluti af eldra efni aðallega erlendu er skráð skemmri skráningu
en verið er að vinna við það að fullskrá það.
Staðtölur
Fjöldi aðgerða á mánuði eru ca 900.000
Fjöldi útlána á mánuði 83.392
Fjöldi lánþega 65.452
Fjöldi titla 106.381
Fjöldi eintaka 805.139.
Notendafélög
Starfandi er alþjóðlegt notendafélag DLUG (Dobis/Lib-
is User Group). Til að kynna nýjungar og þróun á kerfinu
eru árlega haldnir alþjóðlegir notendafundir víða um heim.
Auk þess eru starfandi notendafélög sem ná til tiltekinna
svæða. Stofnað var íslenskt notendafélag Fengs sem heitir
Bókís. Stofnfundur félagsins var haldinn 1. desember
1993.
Stjórn Bókís skipa einn fulltrúi frá hverju safni. Auk
þess tilnefnir Skýrr einn áheyrnarfulltrúa. I stjórn félagsins
eru: Elísabet Halldórsdóttir frá Borgarbókasafni, Margrét
Björnsdóttir frá Skólasafnamiðstöð, Erla Jónsdóttir frá
Bókasafni Garðabæjar og Sólveig Þorsteinsdóttir frá Bóka-
safni Landspítalans. Fulltrúi Skýrr er Hendrikus Bjarnason.
Bókís hefur haldið árlegar notendaráðstefnur, staðið fyr-
ir fræðslu með námskeiðahaldi og gefið út handbók og
bæklinga fyrir notendur. Stjórn Bókls starfar sem skráning-
arráð til að samræma skráningu og efnisorðagjöf og hefur
útskurðarvald hvað varðar skráningu í kerfið.
Fulltrúar frá Bókís hafa sótt hina alþjóðlegu notenda-
fundi allt frá 1989. Einnig hafa þeir sótt fundi sem haldn-
ir eru af stjórn DLUG þar sem fulltrúar svæðisbundinna
notendafélga er boðið að sitja fundi og koma með ábend-
ingar og tillögur varðandi kerfið og tillögur um efni og til-
högun notendafundanna. Árið 1994 var hin árlega not-
endaráðstefna D/L haldin á Hótel Holiday Inn í Reykjavík
dagana 6-9. sept. í samvinnu við Skýrr og Bókís. Notenda-
ráðstefnan heppnaðist mjög vel og voru ráðstefnugestir 129
frá 15 löndum.
Flestir voru gestirnir frá Evrópu en einnig frá Japan,
Saudi Arabíu, Malasíu, Brasilíu og Bandaríkjunum. Fluttir
voru 24 fyrirlestrar á fundinum.
Samstarf
Eitt af fyrstu samstarfsverkefnunum var að þýða kerfið
yfir á íslensku. Það var unnið í samstarfi starfsmanna safn-
anna og Skýrr. Starfsmenn safnanna sömdu íslenska hand-
bók um notkun Fengs og stóð Skýrr undir kostnaði við
ljósritun og möppur.
Fyrsta fréttabréf félagsins kom út fyrir 2. notendafund
félagsins 1995 og er ætlunin að gefa út fréttabréf reglulega.
Einnig samdi stjórnin bækling fyrir notendur um upplýs-
ingaleit og var hann gefinn út af Skýrr.
Eins og fram kom hér að ofan stendur Bókís fyrir nám-
skeiðahaldi og útgáfu fréttabréfs en eitt stærsta verkefnið
30 Bókasafnið 20. árg. 1996