Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 90
sport@frettabladid.is 50 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 27 28 1 2 3 4 5 Fimmtudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Haukar og KR mætast í Iceland Express-deild kvenna.  19.15 Grindavík og Njarðvík mæt- ast í Iceland Express-deild karla.  19.15 Höttur og Skallgrímur mæt- ast í Iceland Express-deild karla.  19.15 Snæfell og KR mætast í Iceland Express-deild karla.  19.15 ÍR og Haukar mætast í Iceland Express-deild karla.  19.15 Hamar/Selfoss og Þór mæt- ast í Iceland Express-deild karla.  19.15 Keflavík og Fjölnir mætast í Iceland Express-deild karla. ■ ■ SJÓNVARP  16.20 England gegn Úrúgvæ á Sýn. Endursýndur leikur.  21.00 Sterkasti maður heims á Sýn.  22.00 A1 á Sýn. Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102. rafport@rafport.is www.rafport.is Umboðsmenn um land allt • Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl. • Á CD/DVD diska, miðar úr plasti • Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook • Prentar merkiborða bæði á pappír og plast, stærðir eftir vali, allt að eins meters langa • Allt að 62mm breidd • 50 miðar á mínútu* • USB tenging • Windows hugbúnaður • Sjálfvirk klipping • Heilar lengjur eða staðlaðar *Staðlaðir póstfangamiðar Fljótvirkasti miðaprentarinn Umboðsaðili: QL-550 Ti lboðsverð 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.43 „Í fyrsta skipti á ævinni ætla ég að láta líkamann ráða en ekki hausinn. Ég hefði átt að hætta árið 2001 eftir að ég kom heim þá. Ég vildi að einhver hefði ráðlagt mér að hætta þá en þetta er vissulega að hluta til mér að kenna líka,“ sagði Bjarki Gunnlaugsson við Fréttablaðið í gær en hann hefur nú endanlega lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril í boltanum. Bjarki sleit knattspyrnuskónum á Akra- nesi þar sem hann varð Íslandsmeistari áður en hann var seldur til Feyenoord í Hollandi ásamt Arnari tvíburabróður sínum. Bjarki hefur meðal annars leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi, Noregi og Englandi en hann kom heim til KR árið 1999 og átti þá frábært tímabil. Bjarki hefur átt í meiðslavandræðum æ síðan og á endanum var ákvörðunin óumflýjanleg. „Brynjólfur Jónsson læknir leit á myndina af mjöðminni á mér í eina sekúndu áður en hann vissi hvað þyrfti að gera. Ég bað um kalt mat og fékk það ískalt beint í andlitið, hættu þessi Bjarki, var niðurstaðan hjá honum,“ sagði Skagamaðurinn sem er meiddur á mjöðm en hann á erfitt með að skilja við boltann. „Ég var orðinn virkilega spenntur fyrir sumrinu, ég hef verið að æfa eins og vitleysingur og það eru spennandi hlutir í gangi hjá KR. Teitur er að gera frábæra hluti og hann er virkilega fær þjálfari og fleiri mættu taka hann til fyrirmyndar,“ sagði Bjarki sem var með þéttskipaða dagskrá fyrir framtíðina sem nú hefur breyst. „Ég ætlaði að enda ferilinn uppi á Akranesi. Óneitanlega hefði það verið frábært og ég ætlaði mér að spila í nokkur ár til viðbótar enda á besta aldri. Ég ætlaði ekki að skilja við KR nema á toppnum en það tókst því miður ekki. Mér finnst ég ekki alveg hafa lokið mínu verki í Vesturbænum en nú tekur golfið bara við, ég stefni á að mæta á sem flest mót í sumar,“ sagði Bjarki sem er með 12 í forgjöf. KNATTSPYRNUKAPPINN BJARKI GUNNLAUGSSON: ÞARF AÐ HÆTTA Í FÓTBOLTA VEGNA MEIÐSLA Hefði átt að vera löngu hættur > Heimasíða ársins? Eina „dýrustu“ heimasíðuna á netinu gefur að finna á slóðinni heidmar.de. Þar er hægt að fylgjast með Heiðmari Felixsyni handboltakappa í máli og myndum, sem og á tveim tungumálum. Ekki ónýtt það. Óhætt er að mæla með stúdíómyndum af Eyfirðingnum þar sem hann sýnir meðal annars bringuhárin. Einnig má lesa lofræður um Heiðmar á íslensku og þýsku. Punkturinn fyrir ofan i-ið er eiginhandaráritunarþjónustu kappans en með því að senda honum umslag fá menn senda eiginhandar- áritun til baka. Sómi að þessu framtaki Heiðmars og Logi Geirsson má fara að spýta í lófana ef hann ætlar að halda sér á heimasíðu- toppnum þar sem Heiðmar er búinn að skjóta sér á methraða. HANDBOLTI Skyttan unga Arnór Atlason, sem sló rækilega í gegn á EM í Sviss, fór í speglun á hné á miðvikudag þar sem hann var með rifu í liðþófa. Verður Arnór frá æfingum og keppni fram í apríl hið minnsta vegna þessa. Það sem vekur mesta athygli við meiðsli Arnórs er sú staðreynd að þau eru alls ekki ný af nálinni og lék Arnór til að mynda alla leikina á EM meiddur. „Þetta gerðist í desember lík- lega en liðþófinn fór endanlega í fyrsta leik á EM,“ sagði Arnór en af hverju lét hann ekki gera eitt- hvað í meiðslunum strax? „Ég vildi það ekki og sleppti því vilj- andi að fara í ítarlega skoðun þar sem ég vildi ekki missa af þessu tækifæri að spila á EM. Þetta háði mér nokkuð en með því að hita lengur upp var þetta viðun- andi ástand. Ég er samt þakklát- ur fyrir að krossbönd eða eitt- hvað fór ekki í kjölfarið,“ sagði Arnór sem ætlar að spila með Magdeburg í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar sem hefj- ast 8. apríl. - hbg Harðjaxlinn Arnór Atlason spilaði alla leikina á EM meiddur og kvartaði ekki: Vildi ekki láta skoða mig ARNÓR ATLASON Sýndi af sér fádæma hörku með því að spila alla leikina á EM með rifinn liðþófa.FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ingólfur ekki í framboð Ingólfur Hannesson mun ekki bjóða sig fram til forseta ÍSÍ eins og búist var við. Fjöldi manna hafði hvatt Ingólf til að fara fram en sökum anna í starfi, og fleiri ástæðna, hefur Ingólfur ákveðið að gefa ekki kost á sér í embættið en Ellert B. Schram lætur senn af störfum. HANDBOLTI Það var fín mæting og flott stemning í Safamýrinni í gær og skal engan undra þar sem þetta var einn af úrslitaleikjum Íslands- mótsins. Hart var tekist á en þó heiðarlega. Eftir mikinn barning og dramatíska lokamínútu fagnaði heimaliðið eins marks sigri, 30- 29. Það var nokkur skrekkur í báðum liðum í upphafi leiks en leikmenn voru fljótir að hrista af sér mesta stressið. Valur komst fyrst yfir en ekki leið á löngu áður en Fram tók forystuna og henni sleppti liðið aldrei. Mestur var munurinn þrjú mörk á liðunum í fyrri hálfleik en tveim mörkum munaði á liðunum í leikhléi, 14-12. Heimamenn skoruðu fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks en Valur kom fljótt til baka og jafnaði, 18-18, eftir 42 mínútna leik. Fram hélt ávallt frumkvæðinu og Valur var sífellt að elta. Þegar leið á hálf- leikinn tognaði í sundur með lið- unum og forskotið gat Fram þakk- að frábærum sóknarleik en þeim var ekki gert auðvelt fyrir enda manni færri á löngum köflum í síðari hálfleik. Liðsmunurinn breytti engu og Fram gekk endan- lega frá leiknum, 30-26, þegar 70 sekúndur voru eftir. Valur skoraði þrjú mörk á næstu 60 sekúndum og það var smá von þegar Fram fór í sína síðustu sókn níu sekúnd- um fyrir leikslok. Þorri Gunnars- son gerði vel í að halda boltanum og leiktíminn rann út. „Við vildum ekki vinna með miklum mun,“ sagði glaðbeittur þjálfari Fram, Guðmundur Guð- mundsson, á léttu nótunum. „Ann- ars fannst mér við spila frábæran leik hér í dag og þá sérstaklega í sókn. Við buðum upp á lifandi og fjölbreyttan sóknarleik sem Valur réð ekki við.“ Jóhann G. Einarsson var frá- bær í síðari hálfleik en hann bar þá uppi sóknarleikinn. Sigfús stýrði spilinu mjög vel og var klókur í erfiðum stöðum og báðir markverðir liðsins áttu sína spretti. Sverrir batt síðan vörnina saman af myndarskap. Breiddina vantaði hjá Vals- mönnum og það voru of fáir leik- menn að leggja lóð sín á vogar- skálarnar. Loutoufi var frábær en þegar hann var tekinn út stigu aðrir ekki upp nema kannski Fann- ar. Einnig hefði Hlynur mátt koma í markið mikið fyrr en hann gerði. „Við vorum á hælunum eigin- lega allan tímann og það datt allt inn hjá þeim. Frammistaða dóm- aranna hjálpaði okkur heldur ekki mikið,“ sagði Valsarinn Sigurður Eggertsson svekktur. „Við vorum lélegir og getum betur. Það er samt vonandi að spá Jóa Bjarna í Fréttablaðinu gangi eftir,“ sagði Sigurður og glotti en Jóhannes Bjarnason spáði Val tapi í leiknum en sagði að félagið yrði samt Íslandsmeistari. henry@frettabladid.is Sanngjarn sigur Framara Framarar nældu í tvö gríðarlega mikilvæg stig í Safamýri í gær þegar Valur kom í heimsókn. Fram leiddi nánast allan tímann og átti sigurinn skilinn. ALLT Í ÖLLU HJÁ VAL Stórleikur Frakkans Mohamadi Loutoufi dugði Val ekki til sigurs í gær. Hér nær Framarinn Sverrir Björnsson að stöðva Frakkann en Sverrir öflugur í vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Körfuboltadrottningin Anna María Sveinsdóttir lék kveðjuleik sinn á ferlinum þegar Keflavík lagði Breiðablik 98-62. Leikurinn fer í sögubækurnar því Anna María varð í gær fyrsta konan til þess að skora yfir 5.000 stig á ferlinum en hana vantaði aðeins fjögur stig til þess að ná þeim áfanga fyrir leikinn. Hún gerði gott betur og skoraði fimm stig og lauk því ferlinum með 5.001 stig. „Það var svakaleg pressa á manni að skora þessi 4 stig, og ég hefði nú bara viljað klára þetta í fyrri hálfeik og láta gott heita, en þetta datt ekki fyrr en í lokin. Það var dálítið stress í manni að ná þessu marki en sem betur fer tókst þetta og ég get hætt sátt,“ sagði Anna María kát. - hbg, - jd Anna María Sveinsdóttir: Fyrst kvenna yfir 5.000 stig SÖGULEG KARFA Anna María hleypur hér brosmild til baka eftir að hafa skorað körfuna sögulegu. MYND/VÍKURFRÉTTIR DHL-deild karla: FRAM-VALUR 30-29 (14-12) Mörk Fram (skot): Jóhann Gunnar Einarsson 8/1 (11/3), Sergey Serenko 8 (16), Haraldur Þorvarð- arson 5 (9), Sigfús Sigfússon 4 (6), Stefán Baldvin Stefánsson 2 (5), Rúnar Kárason 1 (1). Varin skot: Egidijus Petkevicius 14/3, Magnús Erlendsson 7. Mörk Vals (skot): Mohamamdi Loutoufi 10 (16), Fannar Friðgeirsson 7/4 (7/4), Elvar Friðriksson 3 (4/1), Sigurður Eggertsson 3 (8), Davíð Höskulds- son 2 (2), Ingvar Árnason 2 (2), Hjalti Pálmason 2 (6/1). Varin skot: Hlynur Jóhannesson 11/1, Pálmar Pét- ursson 6. ÍR-ÞÓR AK. 40-30 (23-12) Mörk ÍR: Ragnar Helgason 7, Tryggvi Haraldsson 6, Ólafur Sigurjónsson 5, Ísleifur Sigurðsson 4, Karl Gunnarsson 4, Davíð Georgsson 3, Björgvin Hólmgeirsson 3, Þorleifur Björnsson 3, Mörk Þórs: Arnór Þór Gunnarsson 12, Bjarni Gunnar Bjarnason 4, Sindri Haraldsson 3, Rúnar Sigtryggsson 3, Þorvaldur Sigurðsson 3, Sindri Viðarsson 2. FH-ÍBV 26-25 Mörk FH: Valur Arnarson 8, Sigursteinn Arndal 5, Linas Kalasauskas 5, Hjörleifur Þórðarson 3. Mörk ÍBV: Sigurður Bragason 6, M. Dostalik 6. VÍKINGUR/FJÖLNIR-STJARNAN 30-31 Mörk V/F:Björn Guðmundsson 7, Sverri Her- mannsson 7, Brynjar Hreggviðsson 6, Sæþór Fann- berg 4, Pálmar Sigurjónsson 2, Brjánn Bjarnason 1, Sveinn Þorgeirsson 1, Brynjar Loftsson 1, Andri Jakobsson 1. Mörk Stjörnunnar: Þórólfur Nielsen 10, David Kekelia 6, Kristján Kristjánsson 5, Tite Kalandadze 4, Björn Óli Guðmundsson 2, Arnar Theodórsson 2, Bjarni Gunnarsson 1, Patrekur Jóhannesson 1. AFTURELDING-FYLKIR 26-29 HAUKAR-KA 39-28 STAÐA EFSTU LIÐA: HAUKAR 18 14 1 3 550:488 29 FRAM 18 13 2 3 506:464 28 VALUR 18 12 1 5 550:499 25 FYLKIR 18 10 2 6 498:458 22 STJARNAN 17 9 4 4 498:467 22 KA 17 8 3 6 476:471 19 ÍR 18 8 2 8 584:560 18 HK 18 7 2 9 513:519 16 FH 18 7 1 10 495:502 15 AFTUREL. 18 6 3 9 453:471 15 Vináttulandsleikir: ENGLAND-ÚRÚGVÆ 2-1 Crouch, Cole - Pouso. RÚSSLAND-BRASILÍA 0-1 - Ronaldo (14.) SENEGAL-NOREGUR 2-1 NDiaye, Gueye - Hagen. TYRKLAND-TÉKKLAND 2-2 Umit 2 - Poborsky (víti), Stajner. ÍSRAEL-DANMÖRK 0-2 - Perez, Skoubo. ARGENTÍNA-KRÓATÍA 2-3 Tevez, Messi - Klasnic, Srna, Simic. HOLLAND-EKVADOR 1-0 Dirk Kujit. ÍRLAND-SVÍÞJÓÐ 3-0 Duff, Keane, Miller. PORTÚGAL-SAUDI ARABÍA 3-0 Ronaldo 2, Maniche. FRAKKLAND-SLÓVAKÍA 1-2 Wiltord, víti - Nemeth, Valachovic. ÍTALÍA-ÞÝSKALAND 4-1 Gilardino, Toni, Rossi, Del Piero - Huth. ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.