Fréttatíminn - 28.11.2014, Side 34
Þ etta er mitt persónulega upp-gjör sem fór fram á sama tíma og fjárhagslegt uppgjör mitt. Það var farið í gegnum
hvern einasta millimetra í viðskipta-
dílum mínum og ég ákvað að gera þetta
líka á persónulegu nótunum. Það var
drulluerfið vinna að fara í gegnum fjár-
hagslega endurskipulagningu – og líka
þá persónulegu,“ segir Björgólfur Thor
Björgólfsson fjárfestir.
Í vikunni kom út bók Björgólfs, Bil-
lions to Bust – and Back, þar sem hann
fer yfir sögu sína, sigra í viðskiptalíf-
inu og hvernig hann hefur tekist á við
eftirköst efnahagshrunsins. Í bókinni
leggur Björgólfur spilin á borðið og
sérstaka athygli vekur að hann er ekki
feiminn við að fjalla um einkalíf sitt sem
hann hefur til þessa lagt sig fram um að
halda fjarri kastljósi fjölmiðla. Í bókinni
talar hann um fertugsafmælið fræga,
brúðkaup sitt og Kristínar Ólafsdóttur
og barneignir þeirra.
Unnið að þýðingu á íslensku
Fréttatíminn ræddi við Björgólf í
vikunni í tilefni af útgáfu bókarinnar.
Þegar hann er spurður af hverju hann
skrifaði bókina segist hann hafa verið
staðráðinn í því að láta hrunið verða
tilefni til breytinga, að læra af því. „Ég
vildi ekki láta seinna eins og ekkert
hefði gerst, sem er hin klassíska með-
virkni. Ég vildi láta þetta verða mér
að lexíu og það er fínt að deila því með
fólki. Hin ástæðan fyrir bókarskrifun-
um er sú að það hafði verið rosa mikið
bull í gangi eftir hrunið. Það hefur yfir-
gengilegu bulli verið haldið fram um
mig og mín viðskipti og sumt af því lifir
enn góðu lífi. Ég hlýt að eiga rétt á því
að segja mína hlið á málum. Hvort fólk
fílar frásögnina eða trúir henni er þess
mál.“
Björgólfur segir að hann hafi byrjað
að halda utan um staðreyndir eftir hrun
og punkta hjá sér. „Þetta byrjaði fyrst
sem hobbí en síðar fór ég að velta því
betur fyrir mér hver djöfullinn hefði eig-
inlega gerst. Hvernig komst ég í þessa
aðstöðu? Þá fór þetta að vaxa og mér
fannst ég vera með heila bók í höndun-
um,“ segir Björgólfur en hann staðfestir
að unnið sé að þýðingu bókarinnar
og hún verði gefin út á Íslandi innan
skamms. Það náist þó ekki fyrir jól.
Kristín er stolt af bókinni
Þú hefur haldið úti vefnum BTB.is í
nokkur ár og gefur nú út þessa bók. Þér
virðist vera annt um það hvernig augum
fólk lítur þig.
„Já. Ég tek ábyrgð á því sem ég segi og
geri og mér er umhugað um hvernig fólk
lítur á mig. Og hvernig mér líður sjálfum.
Ég vil hafa hlutina uppi á borðinu og
mér leiðist þykjustuleikur, þegar menn
skauta framhjá staðreyndum. Ég vil ræða
hlutina beint og stundum finnst fólki það
skrítið. Návígið á Íslandi er mikið.“
Það er einmitt athyglisvert að þú ert
mjög opinskár í skrifum um þitt einkalíf
og fjölskyldu þína.
„Já, ég ákvað það. Ég tala um hluti
sem hafa verið í umræðunni heima, í
fjölmiðlum. Ef ég vil að fólk taki mig
trúanlegan fannst mér ég verða að taka
stökkið og koma nakinn fram, með
vörtum og öllu, eins og þeir segja hér í
Englandi. Ég ákvað að ganga hreint til
leiks og koma fram eins og ég er. Það
er eina leiðin til að fólk hlusti alvarlega
á mann. Að játa mistök svo fólk skilji að
þú sért heill þegar þú ert að tala. Það er
enginn leikaraskapur. Þetta er ákveð-
ið áhættuspil því ég hef aldrei viljað
opna mig en þarna fer ég í öfuga átt. En
ég tek útpældar áhættur. Annað hvort
gengur þetta eða ekki.“
Björgólfur segir að það hafi ekki
verið sjálfgefið að opna sig um málefni
fjölskyldunnar.
„Kristín hefur sýnt mér mikinn
stuðning og segist vera ákaflega stolt
í dag, af bókinni og mér fyrir að hafa
skrifað hana. Það var ekki alltaf þannig.
Margir nánir mér reyndu að draga úr
mér að gera þetta og héldu að þetta
myndi skaða mig en ég hélt áfram með
stuðningi konunnar minnar, foreldra
og fleiri. Ég er ákaflega þakklátur þeim
fyrir að leyfa mér að segja fjölskyldu-
söguna.“
Sagan endurtekur sig í fjölskyld-
unni
Eftir að hafa farið í gegnum þessa sjálfs-
skoðun og uppgjör, hvað finnst þér
standa upp úr?
„Eitt besta ráðið fékk ég frá vini
mínum sem sagði mér að bíða í nokkur
ár með útgáfuna. Hvert ár færir þér
meiri fjarlægð, sagði hann. Ég er feginn
að ég beið, það færði mér meiri sýn og
yfirvegaðra hugarfar. Ég vildi líka klára
að borga upp allar skuldir mínar. Það
var forsenda útgáfunnar.
En það sem stendur upp úr er
kannski hvað sagan endurtekur sig oft
í fjölskyldu minni. Fyrst langafi, svo
pabbi og ég. Þetta eru allt menn sem
hafa hug á því að gera stóra hluti, hafa
Ég ákvað að segja alla fjölskyldusöguna
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur gefið út bókina Billions to Bust – and Back þar sem hann fer yfir feril sinn
og gerir upp stóra atburði í viðskiptum og einkalífi. Athygli vekur að í bókinni fjallar hann á opinskáan hátt um
einkalíf sitt; fertugsafmælið á Jamaíka, vandræði í sambandi sínu og Kristínar Ólafsdóttur og síðar barneignir
þeirra og brúðkaup. Fréttatíminn ræddi við Björgólf Thor í vikunni og birtir að auki kafla úr bókinni þar sem
hann fjallar um samband sitt og Kristínar og sambandið við föður sinn, Björgólf Guðmundsson.
Hver er
Björgólfur Thor
Björgólfsson
Fæddur
19. mars 1967.
Sonur Björgólfs
Guðmundssonar og
Þóru Hallgrímsson.
Lauk prófi í við-
skiptafræði frá New
York University.
Rak skemmti-
staðinn Tunglið
í félagi við Skúla
Mogensen í byrjun
tíunda áratugarins.
Efnaðist á rekstri
gosdrykkjaverk-
smiðju í Rússlandi.
Fyrsti Íslendingur-
inn sem komst á
lista Forbes
Magazine yfir 500
ríkustu einstaklinga
heims.
Á í dag yfir milljarð
Bandaríkjadala.
Kvæntur Krist-
ínu Ólafsdóttur
kvikmyndafram-
leiðanda og saman
eiga þau þrjú börn.
Þau eru búsett í
London.
?
framkvæmdaeðli í sér og eru hug-
myndaríkir og kappsamir. Allir
lenda í svipuðum öldudal og alltaf
virðast þeir halda að þeir séu öðru-
vísi en aðrir. Sagan endurtekur sig
alltaf. Eftir á hugsar maður auðvit-
að, af hverju staldraðirðu ekki við?
Ég held að það sé ákaflega hollt
hverjum sem er að fara í svona upp-
gjör og sjálfsskoðun. Ég vona samt
að maður lendi ekki oft í þessu.”
Ekki farinn að skipuleggja
fimmtugsafmælið
Heldurðu að álit Íslendinga á þér
hafi breyst síðan 2008?
„Já, ég held það. Íslensk sýn er
reyndar oft svo öfgafull; ástandið er
annað hvort frábært eða ömurlegt
og okkur hættir til að vera annað
hvort eins og dagarnir í desember
eða í júlí. Það er hluti af umhverfi
okkar og eðli. Ég er ekki að reyna
að verða einhver hetja aftur. Ég vil
alls ekki komast á stall sem bis-
nessmönnum var tyllt á fyrir hrun.
Það var bara rugl. Það eina sem ég
vil er að fá að njóta sannmælis. Ég
held að fjarlægðin sé að færa okkur
öðruvísi sýn á hrunið. Ég hef í
fjögur ár svarað öllu á vefnum mín-
um og það hefur oft verið þungur
róður. Í fyrstu vildi enginn hlusta
en smám saman fór fólk að hlusta á
báðar hliðar. Það þarf ekki endilega
að vera sammála en það er ekki
lengur búið að dæma fyrirfram.“
Ertu byrjaður að skipuleggja
fimmtugsafmælið?
Nei... ætli það verði ekki bara pyl-
supartí og hoppukastali. Það verður
alla vega eitthvað öðruvísi en það
síðasta. En ég þarf nú að fara að
huga að því, það styttist í það.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Björgólfur Thor Björgólfsson fjallar
á opinskáan hátt um viðskipti sín og
einkalíf í bókinni Billions to Bust – and
Back sem kom út í vikunni. Ljósmynd/RAX
Sjá bókakafla á næstu opnu
34 viðtal Helgin 28.-30. nóvember 2014