Breiðfirðingur - 01.04.1951, Blaðsíða 13
Helgi Hjörvar:
Átthagafélög og samlendir menn
Flutt á útvarpsvöku Breiðfirðinga 4. maí 1949.
Það er orðinn mikill siðnr hér í Reykjavík, að stofnuð eru og
efld héraðafélög. Sum eru nær eingöngu skemmtifélög sem hafa
fundi eða samkomur við og við, til þess að menn úr sama byggð-
arlagi geti fundizt og skemmt sér saman, í þeirri veru að þeirn
mætti hlýna um hug og hjarta við sameiginlegar minningar úr
heimahögum. Onnur þessara félaga færast meira í fang. Þau
taka upp á arma sér velferðarmál héraðsins með ýmsu móti, í
orði og verki. Það sem almenningur hefur mest séð af þessum
verkurn eru ritin, héraðasögurnar svonefndu, sem vægast sagt
eru nokkuð misjafnar, enda til orðnar í óðagoti.
Ekki leynir það sér að stofnun þessara héraðafélaga hefur orð-
ið einskonar tízka nú um hríð. En þó bera félögin vott um
tvennt: ósvikna rækt við heima-
hagana hjá mörgum, einhvern
sársauka eftir viðskilnaðinn,
sem fæstir mundu þó vilja
lækna með því að hverfa aftur
á grasið, og einnig söknuður-
inn hefur sinn ljúfleik. í annan
stað s'ýnir þetta, fjöldi héraða-
félaganna og fjölmenni þeirra,
að Reykjavík á sjálf heldur fátt
af sínum 50—60 þúsund börn-
um; hún hefur ekki alið þau,
ekki einu sinni fóstrað þau, en
stjúpbörn á hún mörg og góð,
suma tók hún í vist og sá fyrir
þeim með mörgum hætti. Hún
hefur verið hjúasæþog allir vilj-
að til hennar komast í vist, þó
að hjúin tali misjafnlega um