Breiðfirðingur - 01.04.1951, Blaðsíða 98
Breiðfirðingafélagið
Ritstjóri tímaritsins Breiðfirðingur hefur eindregið óskað þess,
að ég léti nefndu riti í té nokkur orð um starfsemi Breiðfirðinga-
félagsins á liðnu ári. Mér er að sjálfsögðu ljúft að verða við þess-
um tilmælum ritstjórans, en þar sem ritið flutti lesendum sín-
um í hefti því, sem út kom á síðast liðnu ári mjög ýtarlega frá-
sögn um störf Breiðfirðingafélagsins á liðnum árum eftir þá-
verandi formann þess, hr. Sig. Hólmstein Jónsson, get ég verið
stuttorður.
Félagið hefur starfað á sama grundvelli, og að mestu eða
öllu leyti eftir sömu reglum og undanfarin ár. Það hefur aukið
sjóði sína, og staðið við sínar skuldbindingar að vanda, og nýtur
trausts og álits fullkomlega í hlutfalli við önnur byggðafélög,
sem starfa í sama anda. Breiðfirðingafélagið hefur ávallt verið
heppið með val á mönnum til stjórnarstarfa bæði í félagsstjórn
og stjórn Breiðfirðingaheimilisins h.f., enda á félagið mörgum
ágætum mönnum á að skipa,
sem eru fúsir til að verja bæði
tíma sínum og fé til þess að
efla gengi þess og álit á allan
hátt.
Þar sem ég hef ákveðið að
láta af störfum sem stjórnar-
nefndarmaður og formaður
Breiðfirðingafél. við næsta
stjórnarkjör, vil ég nota þetta
tækifæri til þess að árna les-
endum Breiðfirðings, Breiðfirð
ingafél., sem og öllum Breið-
firðingum beztu blessunar.
Megi þeir jafnan reynast
menn að manndómi meiri og
Guðmundur Einarsson stærri.