Tíminn - 21.06.1944, Síða 4
248
TfMlNTV. nitðvikudaginn 21. júní 1944
62. blaö
Frá hátídahöldun
um á Þingvöllum
Myndír irá hátíðahöldunum
Lífíð á Þlngvöllum.
Skrúðgangan í Reykjavík jer jram hjá Alþingishúsinu. — (Ljósm.: Vignir).
Fólksfjöldinn á Lœkjartorgi í Reykjavík, þegar forseti og formenn þing-
flokkanna fluttu rœður frá stjórnarráðshúsinu. — (Ljósm.: Vignir).
Eigi verður sagt um það til
hlítar, hve margt manna sótti
Þingvallahátíðina, en almenn-
astar ágizkanir eru frá 20—30
þús. manns. Mest var vitanlega
þátttakan úr Reykjavík og nær-
sýslum Þingvalla. Allmargt
Norðlendinga sótti og hátíðina.
Strax á fimmtudagskvöld
byrjuðu menn að koma til Þing-
valla og á föstudagskvöld var
kominn þangað fjöldi manns,
enda var þá reynt að flytja sem
flest fólk austur. Á laugardags-
morgun munu hafa verið talin
þar um 2500 tjöld. Þá um nótt-
ina var versta veður, rigning og
hvassviðri. Yfirleitt mun fólki
þó hafa liðið sæmilega í tjöldun-
um, nema þeim, sem urðu fyrir
því óhappi, að vatn kom upp í
tjaldstæðunum. Nábúarnir
bættu úr slíkum óhöppum eftir
beztu getu, því að greiðasemi og
góðvild skorti ekki og allir, voru
glaðir og ánægðir, þrátt fyrir
nokkurt mótlæti. Veðráttan gat
ekki komið mönnum úr hátíða-
skapi.
Á laugardagsmorguninn hélt á-
fram að rigna, en fólk lét það
ekki á sig fá og byrjaði að
streyma til Lögbergs löngu áð-
ur en þingfundurinn hófst. Var
þá kominn þangað múgur og
margmenni og biðu flestir þang-
að til athöfninni þar var lokið,
þótt áfram héldi að rigna.
Síðdegis stytti upp og tókst
þvi betur með hátíðahöldin á
Völlunum en á horfðist. Um
kvöldið fóru flestir heimleiðis,
en margir biðu þó til sunnudags,
þvi að bifreiðarnar gátu eigi
lokið flutningum fyrr.
Yfirleitt fór allt fram með
fyllstu röð og reglu og sérstak-
ur hátiðablær hvíldi yfir öllu.
Óreglu varð naumast vart. Um-
ferðarstjórn lögreglunnar varð
með miklum ágætum. Umferðin
varð þó stórum örðugri vegna
þess, að gamli Þingvallavegur-
inn varð fljótlega ófær.
Hátí ðahöld úti á landi
Víða út um land voru hátíða-
höld 17. og 18. júní í tilefni af
lýðveldisstofnuninni og verður
þeirra nánar getið í næsta blaði.
Ilátlðaliöldin I
Rcykjavik.
(Framh. af 1. síðu)
fóru fram og settu hinir marg-
litu búningar þeirra og fánar
skemmtilegan svip á umhverfið.
Þegar ræðuhöldunum lauk,
hófst söngur karlakóra í Hljóm-
skálagarðinum og um kvöldið
voru þar hljómleikar.
Reykjavík breytti mjög um
svip hátíðardagana. Flestir búð-
argluggar voru mjög fagurlega
skreyttir með myndum af Jóni
Sigurðssyni og islenzkum fánum.
•
Fánaröð hafði verið komið með-
fram Austurvelli, Austurstræti
og nokkrum fleiri aðalgötum
miðbæjarins. Alþingishúsið og
Landssímahúsið voru fagurlega
skreytt. Fjölmargir húseigend-
ur höfðu komið sér upp fánum
og reynt að prýða hús sín eftir
föngum.
Fyrsti þáttur hátíðahaldanna
í Reykjavík varð að morgni þess
17. júní, er forseti sameinaðs
þings lagði blómsveig á fótstall-
inn,á minnisvarða Jóns Sigurðs-
sonar. Fjöldi manna var við-
staddur þá athöfn.
(Framh. af 1. siðu)
og lúðra sveit lék „Þótt þú lang-
förull legðir“. Var ræðu Becks
mjög vel tekið. Þegar leik lúðra-
sveitarinnar var lokið ávarpaði
forsætisráðherra mannfjöldann
og sagði, að nýkomið væri skeyti
frá Kristjáni konungi, þar sem
hann lék í ljósi beztu árnaðar-
óskir til íslenzku þjóðarinnar og
vonir um að tengsl hennar við
Norðurlönd mættu haldast á-
fram að styrkjast. Svaraði
mannfjöldinn með ferföldu
húrrahrópi, er forsætisráðherr-
ann bað honum og fjölskyldu
hans allra heilla, en síðan lék
lúðrasveit danska konungssöng-
inn.
Þá flutti utanríkisráðherra
heillaóskir frá belgisku ríkis-
stjórninni og færeyska lögþing-
inu.
Þar næst fór fram fánahyll-
ing og mannfjöldinn söng undir
stjórn Páls ísólfssonar „Rís þú
unga íslands merki“. Þá fór
fram söngur Þjóðhátíðarkórs
Sambands ísl. karlakóra, sem í
voru um 200 manns, og stjórn
uðu stjórnendur helztu kóranna
söngnum á víxl. Pétur Jónsson
söng einsöng með kórnum, er
hann söng „Heyrið vella á heið
ur hveri“ og vakti söngur hans
mikla hrifningu. Að loknum söng
kórsins flutti Benedikt Sveins
son erindi um sjálfstæðisbar-
áttuna og seinast fór fram hóp
sýning íþróttamanna. Meira gat
eigi orðið af fyrirhuguðum há-
tíðahöldum, vegna veðurs. Voru
menn eigi að síður hið bezta
ánægðir, þegar þessum þætti há
tíðahaldanná lauk og rómúðu,
hve vel þau höfðu tekizt.
Um kvöldið var dansað á pall
inum á Völlunum. Valhöll hafði
um daginn verið lokuð almenn
ingi, því að erlendir sendiherrar,
þingmenn og gestir Alþingis
héldu þar til og neyttu þar há
degisverðar og kveldverðar.
Frá mannfjöldanum í Fangbrekku. Jafnjramt sér yfir tjaldborgina. - (Vignir),
Hópsýning íþróttamanna á Þingvöllum. — (Ljósm.: Vignir).
TJARNARBÍÓ
DIXIE
Amerísk músikmynd í
eðlilegum litum.
BING CROSBY,
DOROTHY LAMOUR,
BILLY DE WOLFE,
MARJORIE REYNOLDS.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Þmgffundnrinn
á Logbergi
(Framh. af 1. síðu)
mælti: Lengi lifi forseti íslands!
Tók allur mannfjöldinn undir
með ferföldu húrrahrópi.
Forseti íslands flutti nú ávarp
það, sem birt er á öðrum stað í
blaðinu. Þegar hann hafði lokið
máli sínu var þingfundi slitið.
Að þingfundi loknum hófust
ávörp þeirra erlendra sendi-
herra, er skipaðir höfðu verið
sérstakir fulltrúar við lýðveldis-
hátíðina. Töluðu þeir í þessari
röð: Louis G. Dreyfus, sendi-
herra Bandaríkjanna, Gerard
Shephard, sendiherra Bretlands,
Aug. Esmarck, sendiherra Norð-
manna, O. Johansson, ..sendi-
herra Svía, og H. Voillery, full-
trúi frönsku stjórnarnefndar-
innar. Þjóðsöngur hverrar þjóð-
ar var leikinn eftir ræðum
sendiherranna og forseti íslands
svaraði hverri ræðu fyrir sig á
því máli, sem hún var flutt. Full-
trúar Norðmanna og Svía mæltu
báðir á íslenzka tungu. Mann-
fjöldinn hyllti ákaft alla sendi-
herrana, en þó sérstaklega
sendiherra Norðmanna og Svía.
Þegar ræðum sendiherranna
var lokið, tilkynnti utanríkis-
málaráðherra að borizt hefðu
heilla óskaskeyti frá Vilhelmínu
Hollandsdrottningu og pólsku
stjórninni.
Hinni hátíðlegu athöfn á Lög-
bergi var nú lokið og mannfjöld-
inn tíndist þaðan smátt og
smátt.
Þegar stjóruarskráin
var staðfest.
Daginn áður, 16. jan., varð
annar sögulegur fundur í sam-
einuðu Alþingi. Þá voru bornar
upp og samþykktar tvær þings-
ályktunartillögur, önnur um að
sambandslagasamningurinn
skyldi úr gildi fallinn, en hin
um, að lýðveldisstjórnarskráin
skyldi öðlast gildi, er forseti
sameinaðs þings lýsti því yfir á
þingfundi. Báðar tillögurnar
voru samþykktir einróma að við-
höfðu nafnakalli.
Forsætisráðherra gerði sér-
staka grein fyrir báðum tillög-
unum og vísaði einkum til úr-
slita þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar. Var fyrst borin upp tillagan
um sambandsslitin og hún sam-
þykkt með 51 samhljóða atkvæði
að viðhöfðu nafnakalli, en einn
þingmaður, Gísli Guðmundsson,
var fjarverandi vegna veikinda.
Hin tillagan var síðan borin upp
og féll atkvæðagreiðslan um
hana á sömu leiö.
Þingfundi var síðan slitið. Var
fundur þessi sérstaklega hátíð-
legur og virðulegur. Það setti á
hann aukinn hátíðarblæ, að
tveir smiðir, Einar Bjarnason og
Sigurður Sveinbjörnsson, höfðu
gefið íslenzkan tjúgufána á
stöng á borð allra þingmanna.
Fyrsti ríkisráðsfundur lýð-
veldisins var haldinn að Þing-
völlum 17. júní kl. 6 síðdegis.
Voru þar staðfest lög um þjóð-
fána íslands, lög um forsetalaun
o. fl. Þá voru gefin út ný emb-
ættisbréf fyrir sendiherra ís-
lands erlendis.
Hátíðahold erlendís
Víða erlendis héldu landar
samkomur 17. júní í tilefni af
lýðveldisstofnuninni, og sendi-
herrar íslands erlendis og aðal-
ræðismalðurinn í New York
höfðu allir boð inni. Heillaóskir
bárust forseta íslands frá ís-
lendingum og íslandsvinum víða
um heim.
fr..».—.GAMLA BÍÓ«o—o—
Kaldrífjaður
ævíntýramaður
(Honky Tonk)
Metro Goldwyn Mayer-
stórmynd.
CLARK GABLE
LANA TURNER.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
■NÝJA >
Ættjörðin
umfram allt.
(„This above All“)
Stórmynd með
TYRONE POWER Og
JOAN FONTAINE.
Sýnd kl. 6,30 og 9.
SYNGIÐ NÝJAN SÖNG
(Sing another Chorus)
Dans- og söngvamynd með
Jane Frazeer, Mischa Auer.
Sýnd kl. 5.
LeUcféluff Retikiavíkur.
„Paul Lange og Tora Parsberg44
eftir BJÖRNSTJERNE BJÖRNSON.
Leikstjóri: frú GERD GRIEG.
Sýning í kvöld kl. 8.
Allra síðasta sinn!
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
Maðurinn minn
Vilhjálmur Ásmundsson
frá Vogsósum
andaðist laugardaginn 17. þ. m. Jarðarförin fer fram frá
heimili okkar, Seljaveg 5, föstudaginn 23. þ. m. kl. 1,30 e. h.
HÓLMFRÍÐUR SNORRADÓTTIR.
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að frá og með 24. júní
1944 megi verð á líkkistum, öðrum en zink- og eikar-
kistum, hæst vera kr. 900,00. Ódýrari gerðir, sem
framleiddar hafa verið, mega ekki hækka í verði
nema með samþykki verðlagsstjóra. Verð á zink- og
eikarkistum er og háð samþykki hans.
Reykjavík, 16. júní 1944.
Verðlagsstjórinn.
' I
Frelsi og menníng
Sýning úr frelsis- og' menningarbaráttn
fslendinga verðnr opin daglega kl. 1—10
e. h. í Menntaskólanum.
Aðgöngumiðar á kr. 5,00, ern seldir
við innganginn.
*
Þjóðhátídarnefndín.
/
i.
ffr
P A L
Rœstiduft
rvottð
O P A L rœstiduft
er fyrlr i..kkru kurnið &
n.arkaðlnn og h»flr þegar
uiotið hlð mesta lofsorð, þvl
vel er til þess vandað á alian
hátt. Opal ræstiduft hefir
la þá kosti, er ræstlduít
þarf að haía, — það hreinsar
án þess að rispa, er mjög
drjúgt, og er nothæft á allar
tegjndir búsáhalda og eld-
húsáhalda.
T I M IIV IV er víðle$nasta auglýsingablaðið!