Tíminn - 12.01.1945, Síða 8
DÆGSKRÁ er bezta íslenzUa tímaritUS unt
þjjóðfélagsntál.
8
REYKJAVÍK
Þeir, sem viljja hgnna sér þjjóðfélagsmál, inn-
lentl og útlend, þurfa að lesa Dagshrá.
12. JAN. 1945
3. blað
Hagsmimir
þeirra „stóru“.
(Framhald af 1. síðu)
sagt útvegsmönnum hefði verið
hagkvæmara að fá skipin leigð,
enda bendtr aðstaða eigenda
flutningaskipanna til þess. Hér
hafa því hagsmunir smáútvegs-
manna og fiskimanna verið
látnir víkja, auk þess, sem *það
hefir verið hindrað að aukinn
skriður kæmi á stofnun sölu-
samlaga.
Annaf ókostur þess að hafa ís-
fiskflutningana ekki alveg í
höndum sölusamlaga með þeirri
yfirstjórn Fiskifélagsins, að það
skipti skipunum milli hafna eft-
ir þörfum, er sá, að minni ver-
stöðvarnar geta alveg orðið út-
undan. Að vísu hefir Landsam-
bandi útvegsmanna verið falið
að leiðbeina kaupaskipunum, en
hætt er við, að þar séu þeir
hagsmunir ráðandi, að skipun-
um verði beint til staðanna, þar
sem bezt er að kaupa, og hinir
staðirnir verði svo útundan.
Landssambandið mun og bresta
allt vald til þess, að fyrirskipa
þessu eða öðru skipi að fara til
einhvers staðar, ef eigendur þess
telja sér óhagkvæmt að láta það
fara þangað. Virðist yfirleitt
svo, sem stjórnin hafi lítið eða
ekkert hugsað fyrir ýmsum
smærri verstöðvunum.
Þá virðist það fullkomlega ó-
eðlilegt fyrst lagt er verðjöfn-
unargjald á ísfisk á annað borð
að sleppa stórum hluta hans, en
það er allur togarafiskurinn. Hér
hefir það farið alveg eins og
með flutningaskipin, að hagur
smáútgerðarmanna og sjó-
manna hefir orðið að víkja fyr-
ir hagsmunum þeirra „stóru“.
Annars verður að segja það um
verðjöfnunargjaldið, að óeðli-
legt virðist að leggja það á og
innheimta það, án þess að
raunverulegum eigendum þess,
smáútvegsmönnum og fiski-
mönnum sé ljóst, hvernig eigi að
nota það. Það verður að teljast
sjálfsagt, að tafaílaust verði sett
skýr lagaákvæði um ráðstöfun
þess.
Um heildarsvip þessara ráð-
stafana verður að segja það, að
þær beri IWip þess, að hagsmunir
þeirra „stóru“ séu mestu ráðandi
hjá ríkisstjórninni. Þess vegna
eru flutningaskipin ekki leigð
samlögunum, heldur fá eigend-
ur þeirra að kaupa fisk fyrir
fast verð, er í mörgum tilfell-
um getur fært þeim mikinn
gróða. Þess vegna er togarafisk-
inum sleppt undan verðjöfnun-
argjaldi, er leggst á annan ísfisk.
Til viðbótar þessu kemur svo það,
að ekki er tryggt neitt öruggt
heildarskipulag, ekkert er séð
fyrir smærri stöðunum, og ekki
heldur neitt tryggt, að nægur
flutningakostur fáist. Mörg
meginatriðin, sem mest veltur
á, eins og t. d. verð hraðfrysta
fisksins, enn alveg óþekkt,
vegna þess að samningarnir við
Breta hafa verið vanræktir.
Mbl. hoftar hækkun
(Framhald af 1. síðu)
Vilhjálmur Þór tók við utan-
ríkismálunum haustið 1942, var
hækkun olíuverðsins raunveru-
lega skollin á. Meðferð málsins
hafði verið í fyllsta ólagi hjá
Ólafi Thors, sem hafði fylgt
þeirri hringavitlausu stefnu, að
láta „leppa" olíufélaganna hér
vera að skipta sér af málinu.
Vilhjálmur Þór tók málið í eig-
in hendur og fékk afstýrt hækk-
uninni. Þegar aftur átti að
hækka olíuna haustið 1943, fékk
Vilhjálmur einnig afstýrt því.
Það er því vonlaust fyrir Mbl.
að þakka Ólafi Thors, að verð-
hækkunin, er var skoliin á 1942,
var afstýrt. Það var verk Vil-
hjálms. Og ætlar Mbl. þá ekki
einnig að þakka Ólafi, að Bret-
ar fengust til þess að kaupa
þunnildin af frystihúsunum og
leyfði þeim að nota pappaum-
búðir í stað trékassa? Þetta
bjargaði rekstri frystihúsanna
þá. En hér á Mbl. ekki eins hægt
um vik, þvi að fyrir liggur frá
hraðfrystihúsaeigendum þakk-
aryfirlýsing til Vilhjálms Þórs
fyrir að hafa komið þessu í verk.
Ú R BÆNUM
Samkoma.
Næsta skemmtisamkoma Framsókn-
arfélaganna í Reykjavík verður n. k.
föstudagskvöld 19. þ. m. í Sýninga-
skálanum. Hefst hún með Framsókn-
arvist kl. 8,30.
Framsóknarmenn, sem sækja ætla
þessa skemmtun, ættu að tryggja sér
sem fyrst aðgöngumiða á afgreiðslu
Tímans.
Árshátíð
Ungmennafélag Reykjavíkur heldur
árshátíð sína í Sýningaskála mynd-
listamapna í kvöld. Verður þar margt
til skemmtunar. Ungmennafélagar ut-
an af landi eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Nýr sundhallarforstjóri.
Þorgeir Sveinbjarnarson hefir verið
settur forstjóri Sundhallarinnar í
Reykjavík, og hefir hann þegar tek-
ið við starfinu. Þorgeir var áður í-
þróttakennari við Laugaskóla, en var
nýlega orðinn framkvæmdastjóri Í.S.Í
Hann er ættaður frá Efstabæ í
Skorradal.
Aðsókn að Sundhöllinni.
Sundhöll Reykjavíkur sóttu á sl.
ári 250.409 manns. Árið 1943 voru bað-
gestir 227.064 talsins. Hefir því bað-
gestum fjölgað á árinu um 23.345.
Nýr prestur í Hallgrímssókn.
séra Sigurjón Árnason hefir af
kirkjumálaráðuneytinu verið veitt
prestsembætti í Hallgrímssókn, það
er kosið var um nýlega. Sigurjón hlaut
flest atkvæði við kosningarnar en
náði ekki lögmætri kosningu vegna
þess, hve kjörsókn var lítil.
Sr. Sigurbjörn Einarsson
kvaddi söfnuð sinn við Guðþjónustu
í Dómkirkjúnni, en hann hefir nú
tekið við dósentembætti við guðfræði-
deild Háskólans. Sr. Sigurbjörn hefir
um fjögurra ára skeið verið prestur
í Hallgrímssókn og hefir verið vel
látinn af sóknarbörnum sínum. Kom
hugur safnaðarins til hans vel í ljós,
þegar hann var að kveðja, því að
þeim hjónum voru færðar margar veg-
legar gjafir við það tækifæri.
Þátturinn
„Um þetta leyti ....“ fellur niður
í þessu blaði vegna veikinda þess,
er þær greinar ritar.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band, af sr. Bjarna Jónssyni, ungfrú
Kristín Guðmundsdóttir frá Lækjar-
skógi í Dalasýslu og Jósef Sigurðsson
sjómaður til heimilis á Karlagötu 22.
.Ritst j ór asklpti
(Framhald af 1. síðu)
stefnan var þá mjög' að færast
í aukana hér á landi og Fram-
sóknarflokkurinn var nýlega
stofnaður. Ingimar skipaði sér
og blaði sínu þegar undir merki
samvinnustefnunnar og Fram-
sóknarflokksins og undir þeim
merkjum hefir hann barizt æ
síðan, með festu, skörungsskap
og fullum drengskap.
Náin vinur og samherji Ingi-
mars sagði nýlega um hann, að
hann hefði jafnan dugað bezt,
þegai mest á reyndí. Þetta er
hárétt. Þegar samvinnufélögin
hafa orðið fyrir árásum eða
Framsóknarflokkurinn verið í
hættu staddur hefir Ingimar
jafnan tekið upp hina hörðustu
vörn. Hann er svo heill maður
og trúr hugsjónum sínum og
stefnumálum, að baráttan fyrir
þeim hefir verið honum hjart-
ans mál og einmítt þess vegna
hefir starf hans borið svo mik-
inn árangur. Af sömu ástæðu
er það, að hann hefir aldrei
hikað við að fylgja þeim mál-
stað, er hann taldi réttan, þó
það bakaði honum óvild manna,
jafnvel stundum þeirra, er hann
mat mjög mikils og tók sárt,
að geta ekki átt samleið með.
Nú þegar Ingimar Eydal hefir
látið af ritstjórn Dags, veit ég,
að allir samvinnumenn og Fram-
sóknarmenn í þessu héraði og
þessum bæ og einnig víðs veg-
ar um landið, taka undir með
mér, er ég flyt honum alúðar-
fyllstu þakkir fyrir starf hans
við blaðið, því þeif vita það
allir og viðurkenna, að starfið
hefir verið mikið og borið góð-
an árangur; að Dagur hefir
undir ritstjórn Ingimars verið
Framsóknarflokknum og sam-
vinnustefnunni sverð og skjöld-
ur.“
Siðleysísbrigsl stjórnarsinna
sanna bezt vondan mélstáð
>—NÝJA BxÖ-^—<—,
Sjáíd hana
syslur mína
(„His Butler Sister“)
Söngvamynd með:
DEANNA DURBIN,
FRANCHOT TONE,
PAT O’BHIEN.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBlÓ
SE3\DIFÖR
TIE MOSKVU.
(Mission to Moscow)
Aðalhlutverk:
WHLIAM HUSTON.
Sýnd kl. 9.
MAÐURINN MEÐ
JÁRNGRÍMUNA.
(The Man in the Irorr
Mask)'.
LOUIS HAYWARD,
JOAN BENNETT,
WARREN WILLIAM.
Sýnd kl. 3, 5, 7.
Bönnuð yngri en 4 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Álfhóll
Sjónleikur í 5 þáttum eftir J. L. IIEIBERG.
7. sýniiig á summdag kl. 8.
Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 2 á morgun (laugard.).
FramsóknarféL Reykjavíkur
ogFélag ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík
halda fund í Kauphingssalnuin hriðjudaginn
16. h- ni. kl. 8V2 e. h.
Fundarefni:
VUDSKIPTA- og VERÐUAGSMAL.
Stjjórnir félaganna.
-GAMLA BÍÓ«
SKAUTA-
DAOTTNWGDí.
(Lady, Let’s Dance)
Dans- og skautamynd.
Skautamærin
BELITÁ
James Ellison.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bezta bókin:
Bcrnskubrek
og æskujirek,
*
sjálfsævisaga Winstons
Churchills forsætisráð-
herra Bretlands, er nú
komin í bókaverzlanir.
Góð bók er gulli betri.
Snœlandsútgáfun.
(Framhald af 1. síðu)
Er hegnskaparlaust
að vera í sÉjórnar-
andsÉöðu?
Þá kemur að þeirri aðdróttun,
að Framsóknarflokkurinn hafi
sýnt þegnskaparleysi með því
að vera í stjórnarandstöðu, því
að það þyki alls staðar sjálfsagt
á stríðstímum, að flokkarnir
standi saman um stjórn. Þessu
er bezt svarað með því, að í
Bandaríkjnúm er mjög öflugur
stjórnarandstöðuflokkur, auk
þess, sem margir flokksmenn
forsetans og stjórnar hans, eru
oft í stjórnarandstöðu. í Kan-
ada, í Ástralíu, Nýja-Sjálandi
og Suður-Afríku, eru líka mjög
öflug stjórnarandstaða. Stjórn-
arandstaða þykir síður en svo
merki um rieitt þegnskapar-
leysi í þessum löndum, heldur
telja margir hana til bóta frá
því, að höfð væri þjóðstjórn, því
að stjórnarandstaðan láti
stjórnina hafa hitann í hald-
inu og knýi hana til meiri.ár-
vekni og heiðarleika en ella.
Það er aðeins hér á íslandi, sem
því mun hafa verið haldið fram
í blöðum, að það sé þegnskap-
arleysi að vera í stjórnarand-
stöðu, jafnvel þótt menn hafi
ótrú á og sé andstæðir stjórnar-
stefnunni. í ljósi framan-
greindra staðreynda verða því
umræddar ásakanir stjórnar-
blaðanna heldur lítilsverðar.
TilefnislausÉ sið-
leysisbrigsl.
Þá er að víkja að því atriði,
að Framsóknarmenn hafi sýnt
siðleysi og óþjóðhollustu í
stjórnarandstöðunni. Það, sem
stjórnarblöðin bera einkum
úyrir sig í þeim efnum, er gagn-
rýnin á seinaganginn í samn-
ingunum við Breta og annað
sleifarlag á fiskmálunum hér
heima. Framsóknarmenn hafa
vegna hagsmuna sjávarútvegs-
ins talið sér skylt að gagnrýna
þetta hvort tveggja og heimta
skjótari aðgerðir, en þeir hafa
gætt þess að haga málflutningi
þannig, að erlendum stjórnar-
völdum væri ekki blandað inn
í málið eða að eitthvað það
kæmi fram, er gæti spillt hags-
munum íslands.
Það gengur líka eins og rauð-
ur þráður gegnum öll þessi sið-
leysisskrif stjórnarsinna, að þeir
hafa ékki getað bent á eitt ein-
asta dæmi þess, er sanni þess-
ar fullyrðingar. Þau hafa orðið
að láta sér nægja að tuggast á
siðleysisummælunum aftur og
aftur, án þess að geta fært
nokkur rök fyrir máli sínu.
Sézt bezt á því, að þessar á-
sakanir þeirra gegn stjórnar-
andstöðunni eru algerlega til-
efnislausar og úr lausu lofti
gripnar. Er raunverulega ekki
hægt að fá betri sönnun fyrir
sekt stjórnarinnar en slíka bar-
dagaaðferð stjórnarblaðanna.
VerSur aÉhuröurinn
frá 1941 láÉinn end-
urtakasÉ?
En fyrst stjórnarblöðin hafa
kosið að ræða þannig um þessi
mál, verður ekki komizt hjá því
að benda á, að hafi siðleysi
sannast á nokkra i þessu efnum,
er það éf* stjórnarsinna. Þeir
hafa í fyrsta lagi reynt að af-
saka sig með þeim hreinu ó-
sannindum, að Bretar hafi ekki
viljað taka á móti íslenzkri
samninganefnd fram að þessu.
Það sanna er, að Bretar voru
fyrst spurðir um þetta 21. des.
og jákvætt svar þeirra kom aft-
ur fyrir áramót. Hér er því
ekki hlífst við að fara með ó-
sannindi um erlenda þjóð í
þeim tilgangi að geta afsakað
stjórnina og afvopnað stjórnar-
andstæðingana. Hvað er sið-
leysi í utanríkismálum, ef þetta
er það ekki? í öðru lagi eru svo
níðskrif annars helzta stjórnar-
blaðsins um forustumenn Breta
og þær fullyrðingarþess.aðBret-
ar vilji okkur flest illt í fisksölu-
málunum, því að þeir vilji
hindra „nýsköpuninni hér“.
Slík skrif um vinveitta þjóð,
sem verið er að hefja samn-
inga við, myndi í hvaða öðru
menningarlandi þykja fyllsta
siðleysi. Það eru því stjórnar-
sinnar, sem hafa gert sig seka
um siðleysi í þessum efnum en
aðrir ekki.
Það kemur líka engum á ó-
vart, þótt stjórnarsinnar geri
sig seka um slíkt siðleysi. Haust-
ið 1941 var svo komið, vegna sí-
felldra svívirðinga kommúnista
og Finns Jónssonar um fisk-
sölusamninginn og þingsálykt-
unartillögu, sem Finnur hafði
flutt um uppsögn samningsins,
að Bretar tilkynntu ríkisstjórri-
inni, að þeir væru ekki aðeins
fúsir til að upphefja samning-
inn og lofa íslendingum að sjá
’Um sig sjálfa í þessum efnum,
heldur vildú þeir fá um þetta
skýlaus svör tafarlaust. Þetta
hefði m. a. þýtt algera stöðvun
hraðfrystihúsanna og stórfelld-
an samdrátt á útflutningi ís-
fisks. Hraðfrystihúsin og stór
hluti útvegsins hefði lagzt í
rústir. Til þess að afstýra slík-
um óhöppum af siðleysi Finns
og kommúnista, varð Alþingi að
koma saman í skyndi og lýsa
yfir samþykki sínu á samningn-
um. Þetta sýnir okkur vel, að
nauðsynlegt er að kunna kurt-
eisisvenjur í umgengni við aðr-
ar þjóðir og haga sér ekki eins
og götustrákur. Hvenær geta
ekki níðskrif Þjóðviljans um
Breta og ósannindin um, að
Bretar hafi ekki viljað taka á
móti samninganefnd, leitt til
svipaðs atburðar og haustið
1941?
Þegar Tíminn og Framsókn-
armenn eru að vara við því, að
slíkir atburðir séu látnir endur-
taka sig, hafa stjórnarblöðin
ekkert annað að segja: Það er
siðleysi að minnast á þetta, sið-
leysi, siðleysi, siðleysi!
Siðleysisbrigsl efÉir
rússneskum og |iyzk-
um fyrirmyndum.
Þegar þessar harmatölur og
hneykslanir stjórnarsinna út af
stjórnarandstöðunni eru þann-
ig krafðar til mergjar, kemur
það best í ljós, að þær hafa ekki
við nein réttmætanleg rök að
styðjast. Þeir eru því í raun
réttri ekkert annað en nauð-
vörn forsvarsmanna stjórnar,
sem finna að málstaðurinn
þolir illa gagnrýni. Þess vegna
er gripið til þess ráðs að stimpla
það þegnskaparleysi að vera í
stjórnarandstöðu og stimpla
alla þá gagnrýni, er frá stjórn-
arandstæðingum kemur, sið-
leysi, en láta ógert að mæta
gagnrýninni með* nokkrum
rökum.
Þessi framkoma stjórnar-
sinna í garð stjórnarandstæð-
inga er vissulega fullkomið
einsdæmi í lýðfrjálsu landi. Hún
er ættuð austan úr Rússlandi,
þar sem allir stjórnarandstæð-
ingar hafa verið stimplaðir sið-
lausir Trotskyistar og var síðan
tekin upp af Hitler, er lét
stimpla alla ^.ndstæðinga sína
siðlausa Gyðinga. í lýðfrjálsu
landi hefir slík framkoma
stjórnarsinna aldrei þekkst.
Fyj;ir þjóðina er vissulega full-
komin ástæða til að gera sér
þess grein, hvað hér er að ger-
ast, hvers konar rússneskar og
þýzkar einræðisaðferðir íslenzku
stjörnarflokkarnir eru hér að
taka upp til að reyna að kæfa
niður alla gagnrýni og gera alla
að þægum undirlægjum stjórn-
arvaldanna, hvað svo sem þau
aðhafast.
En það mega stjórnarflokk-
arnir vita, að hversu mjög, sem
þeir beita þessum einræðisað-
ferðum gegn Framsóknar-
flokknum mun hann halda á-
fram að gagnrýna allt það,-sem
hann telur miður fara hjá
stjórninni, og benda á það, sem
hann telur rétt til úrbóta. Hann
telur það skyldu sína sem
sjást líka þegar merki, að gagn-
stjórnarandstöðuflokks. Þess
rýni hans hefir komið að til-
ætluðum notum. Gagnrýni hans
í fisksölumálunum hefir nú leitt
til að samninganefnd er á för-
um til Bretlands og stjórnin
hefir nú gert nokkrar ráðstaf-
anir í þeim málum innanlands,
sem eru til bóta frá því, sem
var, þótt sitthvað megi að þeim
finna. Nokkur skriður er einnig
að koma á heildsalamálið, er
vafalaust hefði . verið þaggað
niður, ef ekki hefði verið tekið
röggsamlega á því í Tímanum.
Heilbrigð gagnrýni stjórnar-
andstöðunnar, ásamt því al-
menningsáliti, sem hún skapar,
veitir stjórninni þannig aðhald
og rekur á eftir framkvæmd.
Þessu hlutverki stjórnarand-
stöðunnar mun Framsóknar-
flokkurinn því ekki bregðast,
hvað sem líður siðferði^brigsl-
um stjórnarblaðanna.
Aðalfundur „Gróttu"
Aðalfundur Skipstjóra og stýri-
mannafélagsins Gróttu var haldinn
síðastliðinn sunnudag. Nokkrar breyt-
ingar voru gerðar á stjórn félagsins,
og er hún nú skipuð þessum mönn-
um: Auðunn Hermannsson form.,
Halldór Halldórsson gjaldkeri, Ágúst
Snæbjörnsson ritari, Ingvar Pálma-
son og Sveibjörn Einarsson með-
stjórnendur. Samþykkt var á fund-
inum áskorun til Alþingis um að fela
Fiskifélaginu störf Fiskimálanefndar.
RéÉÉarrannsúkn
(Framhald af 1. síðu)
son & Melsteð, sem að kunn-
ugra dómi eru álitin meðal
beztu og trúverðugustu heild-
verzlana landsins, sæti réttar-
rannsókn, en þeir, sem eru trú-
legri til miklu stórfeldari brota,
sleppi. Almenningur krefst
þess, að einnig verði fram-
kvæmd réttarrannsókn á mál-
um annara grunaðra heildverzl-
ana og þá ekki sízt þeirra, er
neitað hafa verðlagsyfirvöldun-
um um afhendingu reikninga.
Eitt stjórnarblaðið, Þjóðviljinn,
hefir nú ásamt Tímanum, tekið
undir þessa kröfu um almenna
rannsókn, vegna þess að það
veit, að hún styðst við réttar-
meðvitund og álit almennings.
Alþýðufiokkurinn, og þó sér-
staklega dómsmálaráðherra
hans, eru alvarlega varaðir við
því að gerast verkfæri íhaldsins
í því að halda hlífiskyldi yfir
heildsölunum og hindra al-
menna rannsókn á framferði
þeirra. Það eru ekki sízt flokks-
menn Alþýðuflokksins, sem
heimta slíka rannsókn, og að
leitazt sé við að láta lögin fiá
til allra heildsalanna, en ekki
aðeins þeirra tveggja fyrir-
tækja, sem kærð hafa verið.
Trúlofun sína
hafa nýlega opinberað ungfrú Ása
Guðmundsdóttir húsmæðrakennari frá
Harðbak á Sléttu og Þorgeir Gestsson
frá Hæli.