Tíminn - 06.02.1945, Side 6
6
TÍMIIVIV, »iim 6. iebr. 1945
10. blaS
Áttræðnr:
9
Amundi Sigfmundsson
í Kambi í Flóa
Þann 9. okt. s. 1. var Ámundi |
Sigmundsson í Kambi i Flóa |
áttræður. Hann er fæddur í
Kambi og hefir átt þar heima
alla ævi. Tók hann þar við búi
Ámundi Sigmundsson
af föður sínum og bjó þar á
fimmta tug ára. Hann kvænt-
ist Ingibjörgu Pálsdóttur, hinni
mestu myndar- og ágætiskonu.
Þau eignuðust 11 börn og eru
8 þeirra á lífi. Tvímælalaust er,
að hann og jafnaldrar hans
kunnu þá list, betur yngri
mönnum, að bjargast við lítil1
] efni. Jörðin er lítil og kostasmá.
■En þar komu þau fram 8 börn-
um sínum, prýðilega mannvæn-
legum og framúrskarandi dug-
legum. Eru þau og vel séð af
öllum, sem þau þekkja. Fróðlegt
væri að sjá, hve mikið verðmæti
það yrði-hjá hagfræðingum nú-
tímans, sem slík hjón hafa
skapað. — Efalaust geta þeir
reiknað krónutöluna, en hitt
kann enginn að meta hvers virði
er, að alá upp slíkan hóp svo
að hann verði allur að nýtum
borgurum.
Ámundi var feikna afkasta-
maður við vinnu, gleðimaður
mikill, svo að hvarvetna þótti
fengur að nærveru hans og svo
er enn. Söngmaður var hann
ágætur og var því um skeið
forsöngvari í sóknarkirkju
sinni.
Á afmæli hans var mann-
margt kringum hann. Þar voru
öll börn hans, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn,
auk frænda, vina og nágranna.
Ámundi er ágæfrlega ern, vinn-
ur enn bæði sumar og vetur.
Syngur, eins og hann væri 20
—30 árum yngri og hefir mesta
yndi af gleðskap öllum. Dvelur
hann nú í skjóli sonar síns við
ágætan hag.
| Kunningi.
Áítræðnr:
r
Arni Pálsson
á Ormsstöðum í Grímsnesi
Árni Pálsson á Ormsstöðum í
Grímsnesi varð áttræður 30.
janúar síðastliðinn. Hann er
fæddur í Hring undir Eyjafjöll-
um 30. jan. 1865. Foreldrar hans
voru þau Sigríður Guðmunds-
dóttir og Páll Sigurðsson bóndi.
Er hana kominn af góðum og
nýtum bændaættum. Árni átti
tvo albræður.eina systur og einn
hálfbróður, sem öll eru dáin. Al-
systkinin voru þau: Einar bóndi
í Geirakoti í Flóa, Böðvar söðla-
smiður og Sigríður á Stokkseyri.
Hálfbróðir Einar Jónsson, bóndi
á Geldingálæk á Rangárvöllum.
Árið 1901 kom Árni að Mosfelli
til foreldra minna, Sigrúnar H.
Kjartansdóttur og séra Gísla
Jónssonar og dvaldist þar til
ársins 1918, er faðir minn dó.
Allan þann tíma var hann
heimilinu ómetanlega dyggur
og þarfur þjónn, þótt hanri væri
ekki til stærri átaka, sökum
veikinda, er hann varð fyrir í
bernsku og móíuðu mikið and-
legt og líkamlegt atgervi hans.
Hann var fjár- og kúahirðir
65 ára:
Þórarínn Grímsson >
Víkíngur
65 ára er í dag Þórarinn
Grímsson Vrkingur — fyrrver-
andi bóndi og yitavörður á
Vattarnesi við Reyðarfjörð.
Þárarinn Gr. Víkingúr
Þórarinn er Þingeyingur —
ættaður frá Víkingavatni. Hann
er bjartsýnn ' samvinnumaður
og hefir haft forgöngu í ýmsum
félagsmálum og hlotið traust og
ve.lvild sainstarfsmanna sinna.
Þórarinn vinnur nfí í
Skömmtunarskrifstofu ríkisins.
Heimili hans er á Ljósvallagötu
8 hér í bænum.
góður, enda skepnuvinur mik-
ill. Faðir minn átti jafnan góða
reiðhesta, en flestir voru þeir
styggir. Þeirra *þekktastur var
Árni Pálsson
„Vinur“, sökum afburða kosta,
en styggur. Þó gat Árni hand-
samað hann í haga, en það var
engum öðrum fært, nema föður
mínum.
Árni var ágætur ferðamaður
og hafði jafnan gaman af ferða-
lögum, enda voru þau í þá daga
fjörug og fréttarík. Árni fór
oftast póstferðir frá Mosfelli um
Laugardal, einnig fór hann
jafnan kaupstaðaferðir til Eyr-
arbakka og Reykjavíkur, bæði
meðan allt var flutt á klakk og
eins e* hestvagnar komu til
sögunnar. Er hann meðal þeirra
manna, sem kunna að segja frá
mörgum svaðilferðum í vetrar-
férðum þeirra tíma. Fáum
trúði faðir minn betur fyrir
farangri og hestum en honum,
en það var oft æði vandasamt
að verja vörur bleytu og hesta
meiðslum, eða ofreynslu. Eftir-
farandi dæmi er glöggt vitni
þess. Árni eignaðist sem aðrir
i þessum ferðum marga ferða-
félaga. Einm þeirra hefir sagt
mér eftirfarandi sögu:
Eitt sinn er Árni og nokkrir
ferðamenn voru á leið austur á
útmánuðum, var ófærðin svo
mikil í Smiðjulaut, að seiflytja
varð vagnana og beita tveim
hestum fyrir. Árni var með 2
vagna. Fyrir fremri vagninum
var hestur, sem hét Skenkur, af-
burða sterkur, en að sama skapi
hægfara. Ferðamenn höfðu
nægilegt á ferðapelanum, til
þess að vera léttlyndir þrátt
fyrir ófærð og kalsablota. Einn
ferðafélaganna segir þá við
Árna með stórum orðum: „Þú
lætur okkur hafa þann gráa,
hann hreinsar sig af nokkrum
ferðum“. Árni svaraði þá ákveð-
inn og sagði: „Þið megið fara
ÍTIJBLUIVCÍAÍAGA
N ý j a a 1 m e|n ningsútgáfan er nú í prentun
■■ ■ ‘ .v..: ■ ■ ' ' ■
Staðarhóll í Dölum (auglýsingamynd)
Tvær litprentaðar myndir eftir málverkum próf. Ás-
gríms Jónssonar, sem hann hefir gert sérstaklega fyrir
þessa útgáfu. Verður sín myndin með hvoru bindi. Bæði
bindin koma út í einu.
Gerist áskrifendur sem fyrst, því að svo getur farið, að
færri fái en vilja.
Snúið ykkur til næsta bóksala eða umboðsmanns, eða til
Stefáns A Pálssonar, Varðarhúsinu í Reykjavík.
»■
Bókin er í 2 bindum, yfir 1000 blaðsíður alls. Útgáfa
þessi er frumleg, en hvergi uppprentun.
Texti, inngangur, skýringar og skrár, allt samið og búið
undir prentun af færustu vísindamönnum.
f
Pappír, prentun og band eins vandað og unn t er
að fá.
Um 200 nýjar myndir af sögustöðum Sturlungu.
Margir uppdrættir.
Skjaldabjarnavvík á Ströndum (auglýsingamynd).
Sturlungaútgáfan.
Undirritaður gerist hér með áskrifandi að
STURLUNGASÖGU
í skinnbandi verð 200 til 250 krónur, heft 150 til 175
kr., bæði bindin. (Strikið út það, sem þið viljið ekki).
Nafn
Heimili
Til STURLUNGUÚTGÁFUNNAR,
- Pósthólf 66, Reykjavík.
Samband ísl. samvinnufélaga.
S AMVINNUMENN:
Vér vátryggjúm vörur og innbú fyrir Sam-
bandsfélögin og viðskiptamenn þeirra. Enginn
ætti að fresta að vátryggja eignir sínar, því
eldsvoði getur orðið á hverri stundu.
með mig eins og þið viljið, en
ég fyrirbýð ykkur að snerta
hestinn“. Það sannaðist á Árna,
að sá er góður við skepnur, sem
gott hefir hjartalag.
Eitt af aðaleinkehrpim Árna
er, hversu barngóður hann er
og hefir jafnan verið, og eru ó-
talin sporin hans um Mosfells-
hagana með okkur systkinin á
bakinú. Er mér í fersku minni,
hve mjcig ég hafði gaman af, er
hann sótti hest í haga, bar mig
á bakinu frá bæ, en reiddi til
baka.
Árni fór frá Mosfelli að Orms-
stöðum í sömu sveit til ekkjufrú-
ar Sigríðar Guðmundsdóttur,
systur Tómasar Guðmundsson-
ar skálds, en síðan hún brá búi
dvelur hann á sama stað hjá
fyrirmyndarhúsfreyjunni Helgu
og óðalsbóndanum Þorbirni
Bjarnasyni, hinum ágætasta bú-
manni í hvívetna. Hann hefir
því dvalið langdvölum á sömu
stöðum, enda haft, sem fyrr
greinir, hjúahæfileika, sem
stutt hefir bústólpann á und-
anförnum árum. Árni hefir sýnt
mönnum og málleysingjum
mikla góðvild og uppsker nú til
endurgjalds að eiga nú við að
búa hjá þeim ágætishjónum,
einhverja þá beztu umönnun,
sem hægt er að hugsa sér að
vandalausu gamalmenni geti
hlotnazt.
Árni hefir verið trúmaður,
glaðlyndur og snyrtimenni
mesta, er enn mjög ern og fylg-
ist vel með rás viðburðanna,
þrátt fyrir þerinan háa aldur.
Síðastliðið sumar kom hann
hingað til Reykjavíkur og heim-
sótti vini og ættingja. Var þá
mynd su, er hér birtist, tekin
(Framhald á 7. síöu)
Sjafnar tannkrem gerir
tennurnar mjallhvítar
Eyðir tannsteini og himnu-
myndun. Hindrar skaðlega
sýrumyndun í munninum og
varðveitir með því tennurn-
ar. Inniheldur alls engin
skaðleg efni fyrir tennurnar
eða fægiefni, sem rispa tann-
glerunginn. Hefir þægilegt og
hressandi bragð.
ixorm SJAFMR TAMXKUFÆ
KVÖLDi OG MORGIXA.
Sápuverksmiðjan Sjöfn
Akureyri