Tíminn - 06.02.1945, Side 7

Tíminn - 06.02.1945, Side 7
10. hlað TÍMCViy, þrlðjMdaglnm 6. febr. 1945 7 Fréttír frá U. M. F. I. Ný sambandsfélög. Nýlega hafa þessi félög gengið í Ungmennafélag íslands: íþróttasamband Stranda- manna, sem telur 6 félög með 240 félagsmönnum. Formaður er Ingimundur Ingimundarson Svanshóli, Kaldrananeshreppi. Umf. Garðar í Gerðahreppi, sem telur 112 félaga. Formaður er Sigurbergur Þorleifsson, Hofi. Umf. Öræfinga, Öræfum, sem telur 60 félaga. Formaður er Páll Þorsteinsson Hnappavöll- um. Ungmennafélag íslands telur nú 172 félög, með um 9500 fé- lagsmönnum. íþróttakennslan I vetur. f vetur starfa eftirgreindir íþróttakennarar hjá ungmenna- félögum: Bjarni Bachmann frá Borg- arnesi, er kennir hjá Héraðs- sambandinu Skarphéðni. Halldór Jóhannsson frá Sandá í Svarfaðardal, er kennir í Svarf- aðardalnum, en þar eru 4 ung- mennafélög. Haraldur Sigurðsson frá Möðruvöllum, er kennir hjá Ungmennasambandi Eyjafjarð- ar.' Kristján Benediktsson frá Stóra-Múla í Saurbæ, er kennir hjá Ungmennasambandi Vest- fjarða og Ungmennasambandi Dalamanna. í október hélt hann íþróttanámskeið hjá Umf. Garð- ari í Gerðum við ágæta þátt- töku. Ólöf Jónsdóttir, Þórhöfn, er kennir þar og á Raufarhöfn.' Guttormur Sigurbjörnsson frá Gilsárteigi, kennir hjá Ung- menna- og íþróttasambandi Austurlands. Hjá því starfa fleiri kennarar en nókkurn tíma. Sigríður Guðjónsdóttir, Eyr- arbakka, er kennir þar og á Stokkseyri. Allir þessir íþróttakennarar hafa lok'ð prófi í íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni. Minningarsjóffur Affalsteins Sigmundssonar kennara. Sjóðurinn nemur nú rúmlega 16 þúsund krónum. Þessar gjafir hafa honum borizt að undan- förnu: Karl Helgason, Blöndu- ósi kr. 50,00. Kristvarði Þor- varðarson kennari kr. 50,00. Umf. Kjalnesinga, Kjalarnesi kr. 250,00. Umf. Biskupstungna, Biskupstungum kr. 200,00. Umf Efling, Reykjadal kr. 100,00. Umf. Borg, Borgarhreppi kr. 83,00. Ungmennasamband Dala- manna kr. 200,00. Stjórn minningarsj óðsins hef- ir skipt þannig með sér verkum: Ingimar Jóhannesson kennari, form., Helgi Elíasson fræðslu- málastjóri, ritari og Daníel Ágúslínusson ritari sambands- ins, gjaldkeri. Happdrættí norrænu hallarínnar Eins og áður hefir verið skýrt frá hefir Norrænafélagið á- kveðið að reisa Norrænuhöllina í Kárastaðanesi við Þingvalla vatn. Sá staður er mjíg vel í sveit settur, þar er mikil nátt- úrufegurð og auk þess skammt til hins sögufræga staðar, Þing- vallar. Norrænafélagið hefir nú á- kveðið að efna til happdrættis, til ágóða fyrir þetta mál. Happ- drætti þetta er all nýstárlegt. Vinningarnir eru tveir. Annar er ársdvöl við einhvern æðri skóla á Norðurlöndum. Hand- hafi vinningsins getur valið um við hvaða skóla hann dvelur. Hinn vinningurinn er ferð fyrir tvo til allra höfuðborga Norður- landa með tveggja daga dvöl í hverri borg. Með því að taka þátt í þessu happdrætti gera menn tvennt í einu, fá tækifæri til að kynnast frændþjóðunum á Norðurlönd- um, ef heppnin er með, og vinna að því, að Norrænahöllin rísi sem fyrst, en hún mun bæta starfsmöguleika til þess að bjóða hingað gestum frá hin um Norðurlöndunum. Sala happdrættismiða mun hefjast seint i þessum mánuði, og verða þeir þá sendir út um allt land, en dregið verður um mánaðamótin júní og júlí. 4 víðavangi Mbl. býr sér til vopn úr prentvillu. Svo fátt er nú orðið um varn^, ir í aðalmálgagni stjórnarinnar, Mbl., að það birtir nýlega heila forustugrein um prentvillu, sem hafði verið í Tímanum, og telur hana sönnun þess, að allt, sem Tíminn segi um stjórnina og stjórnarflokkana, sé eintómur uppspuni! Þegar Tíminn skýrði frá Dagsbrúnarkosningunni, stóð í frásögninni, að hinn sameigin- legi listi kommúnista og Sjálf- stæðismanna hafi ekki nema réttan þriðjung félagsmanna Dagsbrúnar að baki sér. Hafði misprentazt réttan í staðinn fyrir rúman. í Dagsbrún eru mikið á 4. þús. félagar, þótt ekki þóknaðist stjórninni að láta þá alla vera á kjörskránni. Listinn fékk 1301 atkv. og er það í fullu samræmi við málvenju að telja 1300 rúman þriðjung af mikið á 4. þús. félagsmanna. Ef þurfa þætti mætti benda á margar langtum stórfelldari þrentvillur í Mbl., enda hefir það jafnan staðið fremst allra blaða landsins í því að hafa fjöl- skrúðugar prentvillur. Má bezt sjá á því, hversu erfitt er orðið fyrir stjórnarliðinu að finna vopn á andstæðingana, að prentvilluauðugasta blað lands- ins skuli reyna að búa sér til vopn úr prentvillu! Fræffslustarfsemi Jóns Pá. Málpípa forsætisráðherrans, Jón Pá., lét nýlega þekkingar- ljós sitt skína í dálkum Mbl. Hann upplýsti þar, að ekki væru nema tveir flokkar í Bretlandi og sama væri að segja um flest þau lönd, þar sem lýðræðið hefir dafnað bezt. Það rétta er, að fimm flokkar standa nú að brezku stjórninni. Undanfarna áratugi hafa verið brír aðalflokkar í Bretlandi, í- haldsflokkurinn, verkamanna- flokkurihn og frjálslyndi flokk- urinn, apk nokkurra smærri flokka. Á Norðurlöndum, þar sem lýðræðið hefir tvímælalaust dafnað bezt, hafa aðalflokk arnir lengi verið-fjórir, íhalds- flokkur, verkamannaflokkur, bændaflokkur og frjálslyndur flokkur. Jón Pá. þarf því að læra bet- ur áður en hann tekur að sér frekari tilsögn um erlend stjórnmál. Sennilega er hann þó betur fallinn til að fræða um þau en innlend mál, því þótt mikið skorti á sannleikann í framangreíndri frásögn hans, verður frásagnarskekkjan þó oftast margfallt meiri, þegar Jón ræðir um innlenda atburði. Sovéthatur I „Manchester Guardian“. Þjóðviljinn þykist geta hermt mikið Sovétníð upp á Tímann í sambandi við frásögn hans um styrjöldina .í Póllandi. Einkum eru það eftirfarandi ummæli Tímans 26. janúar, sem mest hneyksla- Þjóðviljann: „Hin mikla framsókn Rússa í Póllandi undanfarna daga er ekki byggð á því, að þeir hafi unnið neina stórsigra á her Þjóðverja, heldur því, að þýzki herinn hefir að mestu verið hörfaður í burtu áður en sókn Rússa hófst“. — „Þeir (Þjóð- verjar) hafa lært af Normandí- ósigrinum og þess vegna kosið að flytja herinn heim og verjast þar“. Til mikilla leiðinda fyrir Þjóð- viljann, verður að uppfræða hann um það, að hér verður hann fyrst og fremst að deila við Sovéthatarana hjá „The Manchester Guardian", sem ekki hefir verið ásakað fyr- ir Sóvéthatur og Þjóðviljinn hef- ir líka oft vitnað til, en þar er þessu sama haldið fram 19. f. m. Þar segir m. a. í forustugrein, að það sé glöggt, að Þjóðverjar hafi dregið her sinn í Póllandi til baka og ástæða sé til að ætla, að þeir hafi undirbúið nýja víg línu meðfram þýzku landamær unum. Blaðið segir orðrétt: „It is clear that the German ar mies in Poland are already withdrawing and we must as- sume that they have prepared fresh defence lines somewhere short of or along the German frontier“. Tíminn getur svo eftirlátið Þjóðviljanum að deila um hern- aðinn í Póllandi við „sovethat arann“ hjá „The Manchester Guardian"! F asteignaskattur til bæjarsjóðs Rcykjavíkur árið 1945 féll í gjalddaga 2. janúar jicssa árs. Þessir skattar eru: Hásaskattur, Lóðaskattur, Yatnsskattur og eunfremur Lóðaleiga. Eigendur (eða umráðamenn) skattskyldra fast- eigna eru beðnir að gera bæjarskrifstofunum aðvart, ef þeir hafa ekki fengið senda gjaldseðla. — Er þessari aðvörun einkum beint til eigenda skattskyldra sum- arbústaða í lögsagnarumdæminu. Skrifstofa borgarstjóra Tilkynnðng Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á ben- zíni og olíum: Benzín ........ kr. 0.70 pr. líter Hráolía ....... — 500.00 pr. tonn Ljósaolía ..... — 740.00 pr. tonn Ofangreint verð á benzíni og hráolíu er miðað við afhendingu frá tank í Reykjavík, en ljósaolíuverðið við afhendingu í tunn- um í Reykjavík. Sé hráolía afhent í tunnum, má verðið vera kr. 25.00 hærra pr. tonn en að ofan greinir. Á Akureyri og Eskifirði má verðið á benzini vera 7 aurum hærra en að ofan segir, en á öðrum stöðum utan Reykjavíkur, sem benzín er flutt til á sjó, má verðið vera 9 aurum hærra. Sé ben- zín flutt landleiðis frá Reykjavík, Akureyri eða Eskifirði, má bæta einum eyri pr. líter við grunnverðið á þessum stöðum fyrir hverja fulla 25 km. Verðlagsstjórinn ákveður verðið á hverjum sölustað samkvæmt framansögðu. í Hafnarfirði skal verðið á hráolíu vera hið sama og í Reykja- vík. í verstöðum við Faxaflóa og Suðurnesjum má verðið vera 40.00 krónum hærra pr. tonn, en annars staðar á landinu 50.00 krónum hærra pr. tonn. í Hafnarfirði skal verðið á ljósaolíu vera hið sama og 1 Reykja- vík, en annars staðar á landinu má það vera 70.00 krónum hærra pr. tonn. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 3. febrúar 1945. Reykjavík, 2. febrúar 1945. VERÐLAGSSTJÓRINN. Feíkna úrval nýkomíð af Sportfata- Drcng'jafata- Kápu- Ennfremur mikið af: Tcppum — tannm - Lopa — Garni. Ath. Tökum nú aftur fatapantanir. VERKSMroJUtlTSALAX IIAFVARSTRÆTI 4. Klæðavcrzluu — Saumastofa — Skóverzlun. V erkst jórasambandið Að tilhlutun Verkstjórasambands íslands, verður námskeið fyrir verkstjóra haldið í Reykjavík dagana 22. febrúar til 24. marz n. k. Rétt til þátttöku 1 námskeiði þessu hafa allir verkstjórar er þess æskja, svo og flokksstjórar og aðrir þeir, er ráðnlr eru til þess að takast verkstjórn á hendur. Allar upplýsingar um kennslu og tilhögun námskeiðsins gefur JÓHANN HJÖRLEIFSSON, verkstjóri. — Símar 2588 og 2808. Forstöðunefndin. Eignarjorð mín DRAGAR í Skógarstrandahreppi, með eða án Gjarðeyja og áhafnar, er til sölu og ábúðar frá næstu fardögum. — Jörðinni fylgir, vandað íbúðarhús, með miðstöðvarhitun, raflýsingu og vatnsleiðslu, fjár- hús fyrir 250 fjár, hesthús fyrri átta hesta, heyhlöður fyrir 600 liesta, votheyshlöður fyrir tvö kýrfóður, stórt geymsluhús, tún vélslægt. Hlunnindi: Selveiði, dúntekja og hrognkelsalagnir. Skógur er í landi jarðarinnar. Væntanleg kauptilboð sendist undirrituðum eiganda.og ábú- anda jarðarinnar eða SIGURÐI ÁGÚSTSSYNI, Stykkishólmi, fyrir 10. febrúar n. k., sem gefa nánari upplýsingar. Guðmundur ólafsson. Erlent yfirlit. (Framhald af 2. síðu) þýzka herinn, sem enn er að baki þeim. Áður en þeir leggja til lokaárásarinnar á Berlín munu þeir og vafalaust reyna að uppræta þýzku herina í Kúr- landi og Austur-Prússlandi til að losa umsáturslið sitt þar, svo að það geti tekið þátt í aðal- sókninni. Þjóðverjar munu nokkuð hafa reynt að styrkja varnir sínar á austurvígstöðvunum með því að flytja lið sitt frá öðrum víg- stöðvum, en það munu þeir þó ekki geta, nema í litlum stíl. Á vesturvígstöðvunum þurfa þeir á öllu sinu liði að halda og lítt er vogandi fyrir þá að flytja lið frá Noregi og Danmörku, því að Bandamenn eru þá líklegir til að gera þeim heimsókn þar. Fregnir þær, sem berast frá Þýzkalandi um viðhorf almenn- ings þar til atburðanna á aust- urvígstöðvunum, eru mjög ó- samhljóða.. Sumar herma frá miklum flóttamannastraum vestur á bóginn, sem torveldi hernaðaraðgerðir Þjóðverja, og telja almeninng mikilli skelf- ingu lostinú. Aðrar fregnir herma, að Þjóðverjar séu furðu rólegir og almeninngur veiti hernum mikla aðstoð. Þær herma einnig, að Berlínarbúar undirbúi kappsamlega varnir borgarinnar. Margt virðist benda til, að síðari fregnirnar hafi við meira að styðjast. 4s2irift**r»'iald Tímans utan Rvíkur og Hafnarfjarðar er kr. 30.00 árgangurlnn. Laus prestaköll. (Framhald af 6. síðu) Ofanleitisprestakall í Rangár- vallaprófastsdæmi, Hestþinga- prestakall í Borgarfjarðarpró- fastsdæmi, Staðarhraunspresta- kall 1 Mýraprófastsdæmi, Stað- arhólsþing í Dalaprófastsdæmi, Brjánslækjarprestakall í Barða- strandarprófastsdæmi, Sauð- lauksdalsprestakall í Barða- strandarprófastsdæmi, Hrafns- eyrarprestakall í Vestur-ísa- fjarðarprófastsdæmi, Hvamms- prestakall í Laxárdal í Skaga- fjarðarprófastsdæmi, Gríms- eyjarprestakall í Eyjafjarðar- prófastsdæmi, Hálsprestakall í Suður-Þingeyj arpróf astsdæmi. Umsóknarfrestur að öllum prestaköllunum er til 1. apríl næstkomandi. Árni Pálsson. (Framhald af 4. síðu) af honum. Var það í fyrsta skipti, sem hann sat fyrir hjá ljósmyndasmið. Árni hefir dvalizt meiri hluta ævi sinnar í hinu fagra Gríms- neshéraði. Hann er einn af þeim, sem staðið hafa í lotningu og horft á kvöldsólina breiða glitfeld sinn á héraðið. Þannig óska ég þessum gamla bernsku- vini mínum að hann fái að líta ókomna ævidaga og kvöld. Gísli Gíslason frá Mosfelli. Vinniff ötulleqa fj/rlr Timann, SAVON de PARÍS mýkir húðina oq styrkir. Gefur henni yndisfagran litblœ og ver hana kvillum. IVOTIÖ SAVON ^de (fíyrV)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.