Tíminn - 27.03.1945, Blaðsíða 5
24. blað
TlMlIV'IV, þriðjMdagmn 27. marz 1945
5
RITSTJÓRI: SIGRÍÐUR INGIMARSDÓTTIR
Snsan Anthony
Tvær stórmerkar bækur
irá Tónlistarfélaginu
Passíusálmarnír
með gömlu Grallaralögunum.
Hin fögru lög, sem Hallgrímur valdi sjálfur við Passíu-
sálmana, eru að vísu allmörg sungin enn, en fjöldi þeirra
mun nú algerlega ókunn flestum, og þó segir Jónas Jóns-
Þegar taldar eru forvígis-
konur kvenréttindahreyfingar-
innar, er hófst um miðja síðustu
öld, veröur nafn Susan Ant-
hony þar jafnan efst á baugi.
Þó er því svo varið, að margar
munu þær konur vera hér á
landi, sem aldrei hafa heyrt
hennar getið, og því síður er
þeim kunn saga hennar.
Susan Anthony er fædd í
bænum Adams í Massáchusett's-
fylki í Bandaríkjunum árið
1820. Faðir hennar átti þar litla
bómullayverksmiðju. „Frá hon-
um fékk ég uppreisnarandann",
sagði hún einhverju sinni. Hann
var Kvekari, en braut boðorð
trúarflokksins með því að kvæn-
ast stúlku, er var Baptisti, glað-
lyndri yngismær, er hafði yndi
af fallegum fötum og gull-
hamra-slætti. Það var í frásög-
ur fært, að hún hefði dansað
fram á rauða nótt- fáum dög-
um fyrir brúðkaup sitt. Þótti
slíkt ganga glæpi næst á þeim
dögum. Hún varð nú samt sem
áður ágæt eiginkona og um-
hyggjusöm móðir 8 barna. Su-
san var næstelzt og erfði glað-
lyndi móður sinnar í ríkum
mæli. Oft var þröngt í búi hjá
þeim hjónum og því lítið um
heimilishjálp. Eldri börnin
gættu yngri systkina sinna og
hjálpuðu móður sinni við heim-
ilisstörfin. Nóg var að gera, því
að verksmiðjufólkið hafði fæði
hjá frú Anthony. Lítill tími
gafst til lærdóms og leikja. Á
einum stað í dagbók sinni
skrifar Susan: „Gerði 21 brauð-
hleif í dag!“
Hún var látin ganga í kvenna-
skóla þar í bænum, og þótti
snemma uppreistargjörn og ó-
ráðþægin. „Stúlkur á 19. öld
verða að haga sér nákvæmlega
eins og allar stúlkur hafa gert
á liðnum öldum. Hefðbundnar
venjur eru friðhelgar", sagði
skólastýran. En Susan var ekki
á sama máli. Hún trúði hvorki
á hefðbundnar venjur né rót-
grónar skoðanir. Urðu þvi marg-
víslegir árekstrar milli hennar
og skólastýrunnar. Kastaði þó
fyrst tólfunum, er ungfrúin
skammaði Susan í viðurvist allra
nemenda fyrir smávægilega yf-
irsjón. Því gleymdi hún aldrei
síð_?m.
Árið 1838 skall á kreppa og
faðir Susan missti verksmiðju
sína. Gerðist hún þá kennslu-
kona og vann sér inn tvo doll-
ara á viku. Frá þeim skóla varð
hún að fara að skólaárinu liðnu,
því að skólastjórninni þótti hún
umgangast negrana í þorpinu
of frjálsmannlega. Réði hún sig
þá að illræmdasta drengjaskól-
anum í bænum. Nemendur hans
höfðu meiri áhuga á því að gera
kennurunum ýmiskonar grikki
en að lesa skólabækurnar. En
þeir komust brátt að raun um,
að slíkt framferði hentaði ekki
ung;frú Anthony. Hún batt sér
vænan «vönd úr birkihríslum og
flengdi höfuðpaur óspektanna
svo eftirminnilega, að frá þeim
degi naut hún óskiptrar virðing-
ar allra nemenda sinna: „Hún
hefir svei mér krafta í kögglum,
þessi kvenmaður11, sögðu þeir.
Skömmu síðar fékk hún góða
stöðu við annan skóla, hlaut
þar lofsamleg ummæli skóla-
stjórans fyrir ágæta kennslu
og góða stjórn.
Bónorð fékk hún mörg á þess-
um árum en hafnaði þeim öll-
um. „Mig langar ekki til þess
að gei-ast ánauðug ambátt
nokkurs manns“, sagði hún.
Frelsinú unni hún öllu öðru
fremur og fann að hún hafði
þrek til þess að standa ein.
Sumarið 1848 heyrði hún þess
getið, að konur hefðu komið
saman til fundarhalda í bæ
einum í New York-fylki til þess
að ræða þar þjóðfélagslega og
borgaralega aðstöðu sina. Hún
varð hrifin af hugmyndinni og
fór nú af kappi að kynna sér
lagalega aðstöðu konunnar í
heimalandi sínu. Hún var sú
sama og í flestum öðrum lönd-
um hins „menntaða“ heims.
Lögin settu konurnar skör
lægra en karlmennina. Þær-voru
réttlausar með öllu. Gift kona
var lögmæt eign eiginmannsins,
ógift kona varð samkv. lögum
að fá sér fjárhaldsmann, er
hafði fullan umráðárétt yfir
henni. Gifta konan hafði ekki
einu sinni umráðarétt yfir
börnum sínum. Ef hjón skildu,
mátti eiginmaðurinn ráðstafa
börnunum eftir sínum geðþótta,
þótt skilnaðarsökin væri öll
hans megin. Hann gat barið
konu sína og börn eins og hunda
án nokkurs ámælis. Það þótti
engin ástæða fyrir konuna til
að skilja við hann, þótt hann
væri drykkjumaður. Konur, sem
unnu utan heimilisins og þær,
sem ógiftar voru, fengu hvar-r
vetna miklu lægra kaup en karl-
menn og voru kjör þeirra hin
verstu í hvívetna: langur vinnu-
dagur og illur aðbúnaður. Kon-
an var í einu orði sagt ambátt.
Fyrstu tilraunum kvenna til
þess að rjúfa þrælkunarhlekk-
ina var tekið með skilnings-
leysi og aðhlátri. Fáeinir menn
viðurkenndu þó rétt þeirra til
frelsis og jafnyéttis á við karl-
menn, þar á meðal faðir Susan,
er var vel kunnugt um kjör
kvenna þeirra, er unnu í verk-
smiðjum.
Susan gerðist meðlimur bind-
indishreyfingarinnar, sem þá
var í miklum uppgangi í Banda-
ríkjunum. Hún hafði á þeim
árum -meiri áhuga á að endur-
bæta karlmennina en að afla
kvenfólkinu aukinna réttinda.
Drykkjuskapinn áleit hún einn
mesta blettinn á þeim. En svo
var það eitt sinn, að hún kvaddi
sér hljóðs á bindindisfundi. For-
maðurinn þaggaði niður í henni.
Susan gekk af fundi og sveið
sárt ósvífni karlmannanna.
Eftir það helgaði hún kvenrétt-
indastefnunni alla krafta sína.
Varð hún þar brátt fremst í
flokki, sökum góðra gáfna og
ágætra skipulagningarhæfileika.
En hún þekkti þó takmörk sín.
Hún var hvorki góður rithöf-
undur né mælskumanneskja.
Tók hún því höndum saman við
tvær konur, er þá voru mikil-
virkustu forvígismenn hreyfing-
arinnar, þær EliSabetu Stanton
og Ernestine Rose. Þessar konur
mynduðu með sér fyrsta kvenna-
bandalagið, er sögur fara af.
Þær ferðuðust um landið, héldu
fundi og töldu kjark í kvenfólk-
ið. Oft varð baráttan þeim erfið
og árangurinn lítill i fyrstu.
Fyrstu greinarnar, sem blöðin
birtu um kvenréttindahreyf-
inguna, voru þrungnar háði. En
þegar henni óx stöðugt fylgi,
tóku þau að ásaka forvígiskon-
ur hennar harðlega. Stjórn-
málamennirnir tóku í sama
strenginn og fordæmdu allar
kröfur kvennanna þriggja um
réttarbætur kveftfólksins.
Framhald.
Bátur til sðlu
5 tonna dekkbátur, með 25
, hesta hráolíu-vél, seglum og
; legufærum, i góðu standi. Verð
116 þúsund krónur.
Upplýsingar gefur
Ragnar Rag'mísson,
Dal við Múlaveg,
Reykjavík.
NÝKOMIÐ
Undlrföt,
Náttkjólar,
Naerföt,
Stakir undirkjólar,
úr prjónasilki og satíni.
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
son, sem á sínum tíma gaf þessi lög út, í formála útgáf-
unnar: „Úr Hólabókinni og Grallaranum hefir síra Hall-
grímur Pétursson valið lögin við passíusálma sína, og
eru þau svo meistaralega valin við efni sálmanna, að
óhætt er að fullyrða, að hvergi fara betur saman orð og
tónar í söngbókum vorum en einmitt þar.“ Þessi útgáfa
er ljósprentuð eftir útgáfunni frá 1906, sem mun nú að-
eins í örfárra höndum.
Hvert einasta íslenzkt heimili verður að eignast þessa
bók, kostar aðeins kr. 25,00 og 45,00 I svörtu silkibandi.
hlandsvísur Jóns Trausta
voru gefnar út rétt eftir síðustu aldamót í aðeins 150 ein-
tökum, .með fallegum teikningum eftir Þórarin B. Þor-
láksson.i Hefir eigandi verka Jóns Trausta, Guðjón Ó.
Guðjónsson og kona hans, gefið Tónlistarfélaginu eftir
útgáfuréttinn, og ekkja Þórarins B. Þorlákssonar leyft
endurprentun myndanna í 200 tölusettum eintökum.
Passíusálmarnir hafa þegar verið sendir öllum bóksöl-
um, en Íslandsvísurnar verða aðeins afgreiddar gegn sér-
stakri pöntun.
Gefið öllum unglingum bókina „Æska Mozarts.“ — Það
er hugnæm og göfgandi bók.
Bókaverzl. Lárusar Blöndal
Skólavörðustíg 2, —
aðalumboðsmaður fyrir útgáfu Tónlistarfélagsins.
Augjýsing
Kaupfélas'sstjórastaðau vlð Kaupfélag
Ilriitfirðing'a, Borðeyri, er laus til um-
sóknar frá 1. jiilí n. k.
Umsóknir sendist Sainhandi ísl. sam-
vinnufélaga, er gefur nánari upplýsingar.
Uinsóknarfrestiir er til 15/ apríl.
tjórniii.
KAUPMEIVN og KAUPFÉLÖG!
Nýjar sendingar af
V ef naðar vöru in
frá Bretlandi, Ameríku og Sviss,
væntanlegar á næstunni.
>
Heíldverzl. Sig. Arnalds
Hafnarstræti 8. — Reykjavík.
Forstóðnmanns-
starfid
við hælið að Elliðavatni, er laust frá 14. maí n. k.
Umsóknum um starfið sé skilað fyrir 1. maí n. k. til
Magnúsar V. Jóhannessonar yfirframfærslufulltrúa,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
FILMUR (allar stærdír)
sendar gegn póstkröfu um land allt.
Framköllun og kopiering fljótt og vel af hendi leyst.
Sigluf jarðar apótek.
Mínningarathöfn
um þá skipverja og farþega, sem fórust
á E.s. Dettifossi hinn 21. febrúar síðast-
liðinn, fer fram í Dómkirkjunni þriðju-
dagiiut 27. marz kl. 2 e. h.
Jafnframt fer fram útför Davlðs Gísla-
sonar stýrimanns, Jóns Bogasonar bryta
og Jóhannesar Sigurðssonar búrmanns.
Minningaratliöfninni verður útvarpað.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
í miklu úrvali. Allar stærðir. Einhneppt, tvíhneppt,
Brún, blá, grá og röndótt.
Drengjaföt
Ú 11 í m a
Bergstaðastræti 28. — Sími 3321.
Hangikjöt
til hátíðarinnar, er nauðsynlegt fyrir verzl-
anir að kaupa í þessari viku.
Samband ísl. samvinnufélaga
Símar 1080 og 2678.
Siafnar tannkrem gerir
tennnrnar mjallhvítar
Eyðir tannsteini og himnu-
myndun Hindrar skaðlega
sýrumyndun í munninum og
varðveitir með því tennurn-
ar. Inniheldur 'klls engin
skaðleg efni fyrir tennurnar
eða fægiefni, sem rispa tann-
glerunginn. Hefir þægilegt og
hressandi bragð..
IVOTIR SJAFHAR TAWVKREM
KVÖLDl OG MORGJVA.
Sápuverksmiðjan Sjöfn
Akureyri
UTfiOÐ
Þeir, sem vilja gera tilboð í að reisa fæðingardeild á Land-
spítalalóðinni, vitji uppdrátta og útboðslýsingar í teiknistofu
húsameistara ríkisins.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 4 e. h. þann 9. næsta mánaðar
Reykjavík, 23. marz 1945.
Guðjón Samúelsson.