Tíminn - 27.03.1945, Qupperneq 6
6
TÖIIW, þrigjndagiiin 27. marz 1945
24. falað
Fimmtngnr:
Nveinn Einar^on
bóndl á Reynf
Sveinn Einarsson bóndi á
Reyni í Mýrdal varð fimmtugur
11. þ. m.
Hann var fæddur og uppalinn
að Reyni og hefir því haldið
tryggð við heimahaga og æsku-
stöðvar alla tíð, að hætti trygg-
lyndra og traustgeðja manna,
enda er maðurinn enginn flysj-
ungur í lund. Þótt hann sé mað-
ur ekki hávaxinn. hygg ég, að
allir, sem hann þekkja geti
heimfært þau orð um hann, að
hann sé „þéttur á velli og þéttur
í lund“, eins og hann líka á
ættir til. Foreldrar hans voru hin
merku hjón Einaf Brandsson og
Sigríður Brynjólfsdóttir, sem
bjuggu á Reyni um fjölda ára og
nutu almennrar hylli og virðing-
ar um allan Mýrdal og víðar
miklu á sinni tíð.
Sveinn stundaði nám í Flens-
borgarskólanum í Hafnarirði og
lauk þaðan gagnfræða- og burt-
fararprófi' vorið 1916. Hafa
margir nýtir og góðir starfs-
menn þjóðarinnar á síðustu ára-
tugum þaðan komið og skipað
sér framarlega í sókn þjóðarinn-
ar til bættra lífsskilyrða og auk-
innar menningar, og má óhikað
telja Svein einn í þeirra hópi.
Að loknu námi hvarf hann heim
og tók brátt við búi af öldruð-
um foreldrum. Hefir hann rekið
bú sitt af miklum dugnaði og
myndarskap, þótt eínyrki væri
og gengi ekki heill til skógar eft-
ir áfall, sem hann fékk. Hann
hafði fljótt opin augu fyrir gildi
véla og tækni í þjónustu land-
búnaðarins . og hagnýtti eftir
beztu getu. Hygg ég að það
hljómi dálítið- hjárænulega í
eyrum hans, eins og margra
anriarra bænda, sem bezt og ör-
ugga.st hafa sótt frám við um-
bætur í íslenzkum landbúnaði
síðustu áratugina, að heyra
áfellisdóma þeirra, er hina hörðu
líf.sbaráttu sveitanna flúðu,
um að íslenzkir bændur séu sof-
andi og hafi lítt aðhafst í þess-
um efnum, og er þeim það sann-
arlega nokkur vorkun.
Sveiiín_er maður traustur, vin-
fastur og einarður bæði í sókn
og vörn og lætur ógjarnan hlut
sinn fyrir neinum, enda er hann
greindur vel og ósérhlífinn við
að vinna að hugðarmálum sín-
um qg því, er hann telur rétt
vera. Hann er áhugamaður hinn
mesti um' öll félags- og sam-
Sveinn Eínarsson
vinnumál og hefir um margra
ára skeið átt sæti í stjórn Bún-
aðarsambands Suðurlands, sem
fulltrúi Vestur-Skaftfellinga
þar. Er hann fyrir margra hluta
sakir sannur fulltrúi bænda.
Gætinn, athugull, en þó djarfur
og lætur sér ekki alla erfiðleika
í augum vaxa. Af þeim eigin-
leikum hafa framfarir íslenzks
landbúnaðar sprottið hingað til
og gera vonandi enn um skeið,
þótt aðrir taki trú á hugaróra
og höfuðhlaup með þjóð vorri.
Kvæntur er Sveinn Þórnýju
Jónsdóttur (Sveinbjörnssonar)
frá Skála undir Eyjafjöllum,
hinni mestu merkis- og myndar-
konu. Hafa þau eignast 4- börn,
1 son og 3 dætur, sem nú eru,
hin elztu, að verða vaxin, og öll
hin mannvænlegustu.
Á þessum merku tímamótum,
í ævi Sveins á Reyni,»veit ég, að
sveitungar hans og sýslubúfer
senda honum hugheilar ham-
ingju- og árnaðaróskir með von-
um það, að hann megi sem
lengst starfa jafn heill og reif-
ur að hugðarmálum .sínum eins
og hingað til og að hamingju-
dísin verði honum og ástvinum
hans holl, bæði í gleði og raun
ókominna ára. Sú er eihnig ósk
okkar vina hans, sem fjær erum.
Heill þér fimmtugum, vinur!
Svb. H.
Hver er hagnaðurínn af því
að verzla í samvinnufélagi?
í ársskýrslu Kron árið 1940
birtist athyglisverð frásögn eins
félagsmanna þess, Guðjóns
Jónssonar verkamanns, Rauð-
arárstíg 10 í Reykjavík. í þess-
ari frásögn eða skýrslu gerði
Guðjón upp fjögurra ára við-
skipti sín við félagið og sýndi
með ljósum rökum hvílíkan
hagnað hann hefði haft af
þeim. Guðjón sagði frá við-
skiptunum á þessa leið:
„Á fjórum árum hefi ég verzl-
að hjá Kron fyrir kr. 4.471.17 og
er þá búið að draga 5% afslátt
frá búðarverðinu, því að ég
kaupi mest í pöntun. f stofnsjóð
minn hafa runnið að meðtöld-
um vöxtum, kr. 246.18. Tekjuaf-
gangurinn, sem mér hefir verið
endurgreiddur, nemur kr. 108.70.
Beinn hagnaður af viðskipt-
um mínum í fjögur ár hefir því
orðið:
1) 5% afsláttur í pöntun (af ca.
kr. 4000,00) .......... 200.00
2) Lagt í stofnsjóð minn 246.18
3) Endurgr. tekjuafg. . . 108.70
Samtals kr. 554.88
Þessi upphæð, kr. 554.88, svar-
ar til þess, að ég hafi eftir
fjögra ára viðskipti sparað sem
svarar hálfs árs úttekt.
Tekjuafgangurinn og stofn-
sjóðstillagið var fyrsta árið 9%
af viðskiptum, en hefir siðustu
þrjú árin verið 7%. Við það
bætist svo 5% afsláttur í pönt-
un eða samtals 12%. Það jafn-
gildir því, að hér um bil átt-
unda hver króna sé spöruð. Eftir
7 daga viðskipti við Kron hefi
ég sparað fyrir því, sem ég þarf
áttunda daginn.
Beinn sparnaður minn árlega
er fjörutíu og fjögra daga ó-
keypis úttekt“.
Þetta sagði reykvíski verka-
maðurinn Guðjón Jónsson. Með
■ fáum og látlausum orðum
bregður hann einföldum og
þýðingarmiklum sannindum á
loft. Hver og einn ætti að hug-
leiða þessa skýrslu.
| Á þeim árum, sem síðan eru
liðin, hefir sama saga gerzt.
Kron hefir haldið áfram að
greiða svipaðan tekjuafgang.
.Vafalaust er því Guðjón nú með
9 ára starfsemi sinni í félaginu,
búinn að spara saman fyrir
meira en 100 daga úttekt.
Þessi saga hefir gerzt víðar
en í Kron. Hún hefir gerzt i
svo að segja hverju einasia
kaupfélagi hér á landi. Þau hafa
flest úthlutað arði, sum nokkru
minni arði en Kron, en önr.ur
nokkr'u hærri. Það væri ástæða
til þess fyrir félagsmenn í þess-
um félögum að líta yfir viðskipti
sín við félagið og athuga, hvaða
hagnað þeir væru búnir að hafa
af þeim. f ljós mundi koma, að
margur hefði þar sparað drjúg-
an skilding.
Ef lagðar væru svo saman þær
upphæðir, sem einstaklingarnir
hefðu sparað, kæmi fram sá
beini hagnaður, sem landsmenn
í heild hefðu haft af starfsemi
samvinnufélaganna.
Þó væri sagan ekki nema hálf-
sögð með þessu. Kaupfélögin
Höfum fyurlíggjandi
ensk salerni
(Complete)
A. Jóhaimsson &
Smitli h.f.
Njálsgötu 112.
Skáldsaga um ástir og fmmskógalíf, víllídvr og njósnír:
Töfrar Afríku, eílir Stuarl Cloele
Nýkomið:
NAGLALAKK
litlaust.
H. TOFT
Skólav.st. 5. Sími 1035. 1
Þessi liíríka og blóð-
heita skáldsaga verð-
tir hverjam, sem les
haiia, umhugsuiiarefiii
í langan tíma. Persón-
ur heiinar eru sterkar
og mikilúðlegar, leik-
soppar sterkra kennda
og óstýrilátra ást-
hneigða og þó fær
maður samúð með
þeim öllum. — Lesið
þessa Srók um töfraua
í myrkviðum Afríku-
landa, þar sem hvítt
samfélag hefir mynd-
azt meðan heimurinn
logar af ófriði og eldi.
Kaaapið Töfra Afríkti
í dag.
Satnhantl isl. samvinnufélaga.
S AMVINNUMENN!
Samvinnan er málgagn samvinnuhreyfingar-
innar. Hún flytur alltaf fróðleik um samvinnu-
mál. Kaupið hana og lesið.
Ragnar Blöndal h.f.
“V
Austurstræti 10. Símar 3041 og 1258.
Metravara.
Smávara.
• Kvenundirfatnaður.
Sokkar.
Manchettskyrtur
og margt, margt fleira.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
Laust lögregluþjónsstarf
Á Akranesi er ein lögregluþjónsstaða laus nú þegar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. apríl n. k.
Bæjarfógetinn í Akraneskaupstað, 22. marz 1945.
Þórhallur Sæimmdsson.
eru víða orðin svo mikils ráð-
andi, að þau hafa getað með
verðlagi sínu ráðið gangverðinu
á hverjum stað. Kaupmenn hafa
orðið að lækka sínar vörur til
samræmis við verðlag í kaupfé-
laginu. Af þessu hefir leitt stór-
felldur hagnaður fyrir lands-
menn í heild, bæði fyrir félags-
menn í samvinnufél. og þá, sem
staðið hafa fyrir utan þau.
Staðreyndir þær, sem hér hef-
ir verið minnzt á, ættu að eggja
hvern félagsmann til dáða og
gera hann enn virkari og ó-
trauðari þátttakanda í félags-
starfinu en áður. Og þær ættu
að færa utanfélagsmönnum
heim sanninn um, að það borg-
ar sig að vera með, að það er
beinlínis fjárhagslegt tjón fyrir
þá að gerast ekki félagsmenn.
Sérhver félagsmaður ætti að
vekja athygli utanfélagsmanna
á þessum staðreyndum og fá
þá til að ganga í samvinnufélag.
Því fleiri, sem félagsmenn-
irnir verða, því færari verða
samvinnufélögin um að rækja
hlutverk sitt.
SAYON de PARÍS mýkir húðina o<j
styrkir. Gefur henni yndisfagran litblœ
og ver hana hvillum.
JV OT I Ð
SAVON
Renniloknr
/ ■ \ .-rf
\
fyrirliggjandí
í eftirtöldum stærðum
y2”; 1”; iy4”; i%"; 2”.
A. JÓHAMSSON & SMITH KK.F.
Njálsgötu 112.
v