Tíminn - 20.04.1945, Síða 5

Tíminn - 20.04.1945, Síða 5
29. blað TlMlNN, föstadagiim 20. apríl 1945 5 17m þetta leyti fyrir 101 árir Vithelm M.oberg: Jón Sígurðsson kosinn á þing í fyrsta skípti Jón Sigurðsson er hin glæsta þjóðhetja okkar íslendinga — maðurinn, er sérhver landi lítur upp til og dáir. Og hans ljómi mun verða því meiri sem fleiri aldir líða, svo fremi sem íslenzkt þjóðerni og íslenzk hugsun lifa. Það var því í senn merkis- og happadagur, er hann var fyrst kjörinn á þing og þannig gert kleift að skipa sér þar í fylk- ingartarjóst, sem þýðingarmesta taaráttan fyrir stærstu málum þjóðarinnar var háð. Og þessi merkisdagur var hinn 13. apríl 1844. Danska stjórnin hafði með tilskipun, er út var gefin 8. marz 1843, ákveðið, að Alþingi íslend- inga skyldi endurreist. Var þá undangengin alllangt þóf um þessi mál. Bjarni Thorarensen amtmaður og Páll Melsted hófu 1837 baráttu fyrir því, að end- urreist yrði ráðgefandi sam- kunda í landinu. Síðan hafði nefnd, sem í sátu tíu hinir æðstu embættismenn landsins, tvíveg- is fjallað um málið á fundum í Reykjavík. Úti í heiminum sló bjarma nýrra frelsishugsjóna hátt á loft og heillaði hugi margra og blés þeim í brjóst von, trú og kjarki, en þeir afturhalds- sömu streittust á móti eftir mætti. Loks var úr þessum mál- um skorið með tilskipuninni, sem áður var að vikið. Jón Sigurðsson hafði fyrst komið til Kaupmannahafnar árið 1833 og gerzt fljótlega að- sópsmikill í hópi íslendinga þar. Fór svo, að hann varð þar senn fyrir öðrum íslenzkum frelsis- unnandi menntamonnum, þótt deilur væru þeirra á milli fyrst í stað. Árið 1841 hóf hann útgáfu „Nýrra félagsrita," ásamt nokkrum öðrum íslendingum. Eftir það var hann forustumað- ur íslendinga í allri þeirra rétt- indabaráttu til æviloka. Eins og gefur að skilja, var alþingismálið eitt þeirra mála, sem hann lét mjög til sín taka þegar frá upphafi. Framboð hans í ísafjarðarsýslu var að- eins sjálfsagður liður í því mikla starfi, sem hann hafði tekizt á hendur — endurlausn þjóðar- innar undan erlendu oki og viðreisn hennar og mönnun. Hið endurreista Alþingi skyldi skipað tuttugu og sex mönn- um tuttugu kjörnum af landsmönnum sjálfum og sex konungkjörnum. Vald þess var harla lítið, því að það var að- eins ráðgefandi. En það var samt vísir þess, sem seinna várð, og frá upphafi hinn mikilsverð- asti vettvangur sjálfstæðisbar- áttunnar. Kosningaréttur og kjörgengi var bundið við embættispróf eða þá vissa fasteign, er mun ekki hafa mátt vera minni en tíu hundruð í jörð eða hús, sem metið væri þúsund ríkisdala virði. Jón Sigurðsson var maður próflaus, en hann hafði eignar- hald á jarðarskika vestan lands, og þvi gat hann boðið sig fram. Þessi söguríka alþingiskosn- ing, er ísfirðingar kusu Jón Sigurðsson, fulltrúa sinn á hið endúrreista alþingi íslendinga, fór fram í kirkjunni á ísafirði, því að þá og lengi síðan, var aðeins kosið á einum stað í hverju kjördæmi. Lýstu kjós- jendur yfir því í heyranda hljóði, hvern þeir kysu jafnóðum og nöfn þeirra voru upp lesin. Alls voru áttatíu menn á kjör- skrá í ísafjarðarsýslu við þessar fyrstu alþingiskosningar. Af þeim komu fimmtíu • og tveir á kjörfund. Mun það hafa verið gðð kjörsókn eftir því, sem þá gerðist. Var allt í senn, að á þeim tímum var óhægra um kjörsóknina, stjórnmálaáhugi daufari en nú og ekki þeim á- róðri og þeirri smalamennsku beitt við háttvirta kjósendur, sem nú er landssiður orðinn. Kosningunni stýrði Þorkell Gunnlaugsson, er þá var sýslu- maður ísfirðinga. Á undan kosningu fóru fram lítils háttar ræðuhöld. Var það siður allengi frameftir, að frambjóðendur töluðu til kjós- enda sinna á sjálfum kjörfund- inum áður en kosning hófst, eftir því, sem þeim þótti við eiga. En * ekki var því til að dreifa um Jón Sigurðsson. Hann var alls ekki á kjörfundinum og jafnan enlurkosinn meðan hann aldrei síðar, og var hann þó bauð sig fram.ætíð mótatkvæða- 1874. Þá hlaut hann ekki fjögur atkvæði af sextíu og einu, sem greitt var. Einn maður varð til þess að að vara menn við því að kjósa Jón. Það var séra Arnór Jóns- son, prestur í Vatnsfirði. En ræða þessa fróma guðsmanns stoðaði lítið, því að allir þessir fimmtíu og tveir ísfirðingar, er saman voru komnir í ísafjarðar- kirkju þennan dag, kusu Jón einróma, nema Þorkell sýslu- maður og séra Arnór sjálfur. Þegar alþingi kom saman í Reykjavík 1. júlí 1845 reyndist Jón Sigurðsson yngstur allra þingmanna, aðeins þrjátíu og f jögurra ára. En hann var þeirra bezt að sér gerr , traustastur, og sókndjarfastur, og gerðist því þegar forustumaður þeirra, er heimta vildu íslandi rétt sinn. Ræktun Landeyja (Framhalð, af 4. síðu) dýrin og finnur nautn í því að vinna að ræktun og framþróun lífsins, með véltækni og eigin orku. Þetta er framtiðar land sveitanna og Landeyja, — en það er bara enn þá svo langt í burtu, að það sést ekki nema í hillingum, en þangað á að stefna. Þetta er hillingaland Landeyja, sem sólskinið á Rang- árvöllum bregður upp töfra- myndum af. Því kemur mér í hug, að E. B. hafi séð einhverja slíka sýn.Vera má,að bændurnir, sem búa með tryppin sín í göml- um sið, álíti þetta af litlu bú- viti skrifað, við því get ég bú- izt. En hvað um það. Ég trúi samt á gróður landsins og fram- tíð Landeyja. Byggðin þar getur margfaldazt, ef landið er rækt- að. The World’s News Seen Throufc;h The Christian Science Monitqr I An International Daily Neivspaþrr *■ is Truthful—Constructive—Unbiased—Fre« from Sensationai- ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily Features, Together with the Weckly Magazine Section, Make the Monitor an Ideal Newspaper for the Hotne. The Christian Science Publishi.ng Socicty One, Norway Street, Boston, Massachusetta Price 512.00 Yearly, or 51-00 a Month. Saururday Issue, mcluding Magazine Secbon, $2.60 a Ycar. Introductory Offer. 6 issues 25 Qjtnvt SAMPLB COPY ON REQUEST Raftæk j avínnustof an Selíossí framkvæmir allskonar rafvirk jastfirf. Eiginkona FRAMHALD nakinn, strípaður. Honum hryllti við sjálfum sér. Sofa? Sofa? Hvernig gat hann sofið — hann, sem kvaldist í sjálfu helvíti? Nei, í helvíti fær maður áreiðanlega ekki að sofa eina einustu nótt fyrir kvölum. Og Hákon snarar sér fram úr og sækir brennivínsflöskuna og drekkur. Brennivín eyðir hugar- víli og heimskugrillum. Það græðir særð hjörtu — hann finnur, hvernig hann styrkist allur innvortis af brennivíninu. Hann tæmir flöskuna og fer að leita að meira. En þá man hann það, að hann hefir drukkið síðustu löggina, sem til var á heimilinu. Og hann á ekki eitt einasta korn til þess að brugga úr. Hann gat með öðrum orðum ekki drukkið sig fullan og öðl- azt frið. Þá var ekkert hjálparráð til. Eða til hvers gat hann gripið til þess að stökkva á brott þessari bölvuðu sýn, sem kvaldi hann? Ó, þessi mynd: Margrét þýðist Pál og liggur auðmjúk í örmum hans. Hingað til hefir hún veitt honum svimandi sælu — nú bíður hans sjálfsagt ekkert nema vansældin. * Margrét var kyrr niðri við vatnsbólið og beið Hákonar eins lengi og hún þorði. Hann myndi þó líklega iðrast gerða sinna og koma aftur. Hann gat varla komizt hjá að sjá, hversu hann hafði gert henni rangt til. Hann kom ekki aftur. Hún beið árangurslaust. Og hún rölti heim með alla byrði örvæntingarinnar á herðum sér. Ef hann hefði bara hlustað á hana, þá myndi hún áreiðanlega hafa getað blíðkað hann. En hann hlustaði alls ekki á hana, þeg- ar hún sagði honum sannleikann: að hún hafði fórnað sjálfri sér til þess að ekki kæmist upp um þau. Auðvitað hefði hún get- að vísað Páli á bug og sagt, að hún væri ástmey annars manns. En þá hefði hann kúgað hana til þess að segja, hver það var, og svo hefði hann kannske tekið byssuna sína af þilinu og farið beinustu leið heim til Hákonar og skotið hann. Og þá væri hann nú ef til vill kominn inn í eilífðina. Hefði hann viljað það held- ur? Hún hefði líka getað þagað yfir þessu. Það hefði verið hyggi- legast. Ef hún hefði haldið þessu öllu leyndu og logið, þá hefði hann setið með hana í fanginu á þessari stundu í stað þess að hann þeytti henni frá sér eins og dauðum hlut. En nú var hún svo falslaus, að hún sagði allt eins og var — því að hún hafði heitið því að vera heiðarleg. Henni hafði illa launazt ráðvendnin. Hún ætlaði að segja sannleikann með varúð framvegis; hún hafði komizt að raun um, hvað af því leiddi. Lygin var hjálpartíella og verndari. Sannleikurinn olli bara sársauka. Gat hann ekki skilið það: að hún var saklaus. Hún gat ekki við því spornað, þótt hún yrði kona tveggja manna. Og hann gat ekki þjáðst meira heldur en hún sjálf þjáðist. Gátu þau ekki sætt sig við þessi óviðráðanlegu örlög og verið hvort öðru eins og áður? En hann hlustaði ekki á hana. Hún grátbað hann, hún kraup í duftið, en hann kom ekki aftur til þess að taka hana í sátt. Dagar líða, og hún hefir engar spurnir af honum. Sá, sem hún getur sízt án verið, hefir yfirgefið hana. Þegar hún gat ekki leng- ur án Hákonar verið, þá fór hann frá henni. Sorgin var eins og nafar, sem gróf sig ofurhægt inn í sál Mar- grétar. Svona hafði hún aldrei þjáðst fyrr á ævinni. En svona var það, þegar öll gleði manns stafar frá öðrum. Þá gat maður glatað henni hvenær sem var og hreppt hina stærstu óhamingju í staðinn. Já, hvers vegna gat hún ekki án hans verið? Það var óhamingja að geta ekki verið án einhvers annars. Sá maður er varnarlaus á valdi annars manns. Hamingjusamastur var sá, sem átti uppsprettu gleðinnar í sjálfum sér — hann hafði hamingj- una á sínu valdi, og það gat enginn komið, tekið hana og sagt: Ég á hana — nú fer ég með hana! Þetta hafði Hákon gert — hann kom, og nú var hann farinn. Hún gat ekki frelsað sig undan valdi hans. Hún var yfirgefin með hina nístandi sorg sína og gat ekki dulið hana til fulls í leyn- um hugans. Hún varð skeytingarlaus um það, sem áður hafði verið hennar dægrastytting. Hún vanrækti heimilisverkin og mat- sýsluna, varð uppstökk við vinnukonu sína og stutt í spuna við Pál. Og nú fór Páll að taka eftir því, að það var breyting orðin á henni. Hann virti konu sína fyrir sér, því að hann gerði sér sínar hugmyndir um ásigkomulag hennar: Skyldu þau eiga barn í vonum, lítinn dreng eða stúlku? Konur urðu svo undarlegar fyrstu mánuði meðgöngutímans, Sérstaklega breyttist skapferlið. Og hann fór að kasta fram glettnum athugasemdum, tvíræðum orðum um ástand konunnar. Hún þagði fyrst í stað, en loks svar- aði hún honum og neitaði því afdráttarlaust, að þau ættu nokkuð í vonum. Og hún virtist vera orðin svo uppstökk — það var eins og hún væri grunuð um einhvern glæp. En á næsta augnabliki iðraðiát hún þess, hve hún hafði verið önug við Pál. Hann hafði ekki gert neitt á hluta hennar. Hann hafði aðeins verið leiksoppur atvikanna. Nei, Páll hafði ekki gert henni neitt til miska — ef samvizku- samlega var litið á það, sem gerzt hafði. En Hákon .... Hákon .... Áður en hann kom hafði allt verið svo rótt og friðsælt. Hún hafði ekki verið glöð, en hún hafði ekki heldur verið vansæl. Svo kom hann og hreif hana með sér með þeim ástríðuhita, er tendrað hafði fryggð hennar. Og svo fór hann. Hann átti alla sökina. Hún trúði því hálfvegis, að hún hataöi hann svo mikið, að hún belzt vildi vita hann dauðan. Þetta hvarflaði að henni, þegar hún fór að spyrja sjálfa sig, hvort honum hefði nokkurr\ tíma þótt vænt um hana. Eða hvernig gat hann fengið sig til þess að kvelja hana svona? Ef til vill var hann þegar orðinn fullsadd- ur á henni og greip fyrsta tækifærið til þess að losna við hana? Var honum orðið alveg sama um hana? Tilfinningar annars kólnuðu, hinu var jafn heitt 1 geði og áður — það var meinið mesta. En þá hlaut reiði hans að vera uppgerð. Nei, svo fláráður gat hann ekki verið. Hataði hún hann? Nei, allan sólarhringinn rúmaðist aðeins ein stór, kvíðvænleg, óræð spurning í huga hennar: Vildi hann hana ekki framar? Kemur hann ekki aftur? Kemur hann ekki aftur og segir: — Margrét, Margrét — það yrði eins og hurð væri skyndilega lokið upp. Heyrði hann ekki, að hún var að drepa á dyrnar? Hvers vegna opnaði hann ekki? Hkólasaga Færeysk gamansaga eftir M. Wlnther. Þýðing Aðalsteins Sigmundssonar. I. SKÓLADAGUR í K. Klukkan var rúmlega 9, og ekkert sást enn til kennarans. Það átti að hleypa inn klukkan 8, en börnin þráðu ekki ákaflega mikið að setjast inn. — Ætli hann sé ekki að gegna beljunum? sagði Jón og beit í munntóbak. Hann var nærri því 12 ára. — Kannske hann sé líka að gæta að kornþurrkinum.. Uppskeran stendur yfir, mælti Pétur Kristján. — Við skulum fara inn, úr því við erum komnir svona langt, sagði Jón við Pétur Kristján. Skólastofan bafði verið tekin á leigu hjá manni ein- um 1 byggðinni, því að ekkert skólahús var til. Það var nú svona eins og það var um skólavistina. Þegar lakari gállinn var á kennaranum, eða kannske engu síður á konunni hans, gat það komið fyrir, að hann kæmi alls ekki í skólann, en léti börnin bjarga sér eins og verkast vildi. Uppeldi þeirra var líka eftir því, sem í pottinn var búið. Þau voru miklu betur að sér í blóti og ragni en í lestri, reikningi og öðrum fræðigreinum, sem iærast eiga 1 skóla. Takmarkið var að ná fermingu, en það vildi stundum ganga treglega, og var því mikill siður í K., að unglingarnir gengju í skóla eitt eða tvö ár „til ábætis“, áður en þeir næðu fermingu. Versnaði þetta iremur en batnaði. Jón og Pétur Kristján voru foringjar barnanna og ,.gáfu tóninn“, eins og sagt er. Þeir voru jafnaldrar, reyktu, tóku upp í sig og „spýttu langt“. Þeim var ljóst, að þetta var ekki leiðin til að ná fermingu, en þeir kærðu sig kollótta um það. Þeim líkaði lífið ágætlega. Nokkur börn voru komin, er þeir komu inn í skóla- stofuna þenna morgun. Þau léku sér eins og fyrir féll, og svo sem geta má nærri, var ekki þögn á þingi. Jón svipaðist um stofuna, setti á sig svip og kallaði: „Kyrr, börn! Nú á ég að vera kennari í dag, því að Hans er forfallaður. Hann hefir vakað yfir belju í nótt. Og af því að ég er siðprúðastur hér, hefir hann beðið mig að kenna í dag. Prestur hefir gert mér sömu boð.“ Börnin gláptu á hann um stund, en svo skildu þau, að þetta var leikur, og hávaðinn hófst að nýju. — Þegið þið, ótætin ykkar, kalláði Jón, tók reglustiku og danglaði í nokkur þeirra, svo að þau kénndi til og fóru að skæla. Jón settist á stólinn, sem kennarinn var vanur að sitja á. — Nú skuluð þið segja mér dálítið um Nóa. Hvað var Nói? — Karlmaður, svaraði einn. Pabbi Katrínar, svaraði annar. — Haldið ykkur saman; ég vil vita, hvað hann gerði. Nei, þau vissu ekkert um það. ' — Jú, hann var sjómaður, skipstjóri, sagði Jón. — Á hvaða skútu? Nú var getið upp á ýmsum nöfnum. — Jú, einhver þeirra hefir það víst verið, hélt Jón; hann var sjálfur í vafa. — En hann strandaði einu sinni. Hvar var það? — Inni í Skálafirði, hélt einn. Á Klakksvík, hélt annar. Nú hafði Jón fengið nóg af þessu. Hann leit á gömlu Tilkynning frá Selfossbíó Höíum opnað gístihús í sambandi við gildaskálann. - Tekið á móti dvalargestum til lengrí eða skemmri dvalar. * Allar frekari upplýsingar í sínium 20 og 31 á Sel- fossi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.