Tíminn - 20.04.1945, Side 7

Tíminn - 20.04.1945, Side 7
29. Mað TÍMINN, ftistndagiim 20. apríl 1945 7 Og enn segír Leynir ... „Leynir", öðru nafni Helgi S. Jónsson, heldur áfram bréfa- skriftum sínum fyrir Morgunbl., og segir „fréttirnar“ úr Kefla- vík. Birtist síðasta bréf hans skömmu eftir upprisuhátíðina. Kennir þar margra grasa eins og að undanförnu, og mun hann hafa ætlazt til að þau reyndust allbeisk sum, þótt sú hafi ekki orðið raunin. Bréf þetta ber sömu,. einkenni og fyrri bréf hans, og er ekki hægt að segja aö hann skari fram úr sjálfum sér, enn sem komið er, eins og sagt var þó að Neró keisara hefði tekist forðum. í þessu bréfi er að finna post- ullega trúarj átningu gagnvart afstöðu hans til Framsóknar- flokksins, en í henni stendur, að sá flokkur verði að víkja úr vegi hið allra bráðasta vegna framkvæmda komandi ára, og þó væntanlega fyrst og fremst þeirra, sem hann tekur sjálfur að sér að sjá um. Bréf þetta er rúmir tveir dálkar að lengd og að hálfu helgað hinu „pasturs- litla“ liði Framsóknarmanna, sem hann kallar svo. Er þetta eigi lítil rausn, enda mun hann álíta að með þessu hafi hann lagt fram alldýrmætan skerf til að eyða því með öllu. Hyggur hann sig nú kominn í skothelt vígi, og má ráða það af orðum hans að nú skuli ég bara koma og upplýsa hans pólitísku skoð- anir. Ég verð að játa, að mér kom þessi dirfska haps nokkuð á óvart. Með sínu táknræna dul- nefni, „Leynir,“ virtist hann hafa meint allt ^nnað en að óska beinlínis eftir .umræðum um pólitíska afstöðu sína, en úr því áð; hann segist hafa kjark til að hennar sé getið, þá verður að láta að orðum hans og minn- ast hennar að einhverju, án þess að hann megi þess vegna gera sér vonir um píslarvættis- gloríu síðar meir. Það er á allra vitorði, sem þekkja þennan mann, að hann er einræðissinnaður mjög. Alla núverandi stjórnmálafl. hefir hann á hornum sér, og þegar vel liggur á honum, ekki sízt Sjálfstæðisflokkinn. Að vísu skiptir þetta ekki miklu máli, að öðru leyti en til að sýna fram á, að hann hefir ekki fast land undir fótum í íslenzkri ,p>ólitík, og er afstaða hans í stjórnmálum allt of veik eins og nú horfir, til þess að hann geti leyft sér að skrifa stjórn- málapistla, jafnvel þótt undir yfirskini fréttamennsku sé, nema þá upp á grín. Ef hann ætlast til að vera tekinn alvar- lega, verður hann að hafa bar- áttu sína jákvæða að því leyti, að sýna fram á ágæti síns „flökks“ og sinnar stefnu og draga þar ekkert undan. Sem fréttaritara ber honum að halda sig við efnið og venja sig af klaufalegum útúrdúrum, reyna að hafa stjórn á skapi sínu um hvern, sem hann talar, og segja ekki meira en það, að^ hann sé áreiðanlegur maður til; að taka á móti ef ,honum er svarað án linkindar. Vil ég hér endurtaka það, sem ég hef áður bent á, að ef Morgunblaðið óskar eftir aðstoð við ritun stjórnmála- greina, ætti það að losa sig við þennan fréttamann og fá sér heldur einhvern flokksmann til að annast það. Hin pólitíska þvæla Helga S. Jónssonar skal annars ekki frek- ar gerð að umræðuefni hér, eigi heldur álit hans á undirbúningi að stofnun Útgerðarfélags Kefla víkur. Um fyrra atriðið getur hann varla vænst nokkurs á- rangurs, nema hann sætti sig við aöferð fuglsins, sem réðist á demantsfjallið, í ævintýrum Grimms. Um útgerðarfél.stofn- unina mun verða rætt í blaði, sem gefið er út í Keflavík, og rakin þar ,",heillaspor“ Helga í því máli, ef nokkur eru. Ýmsir kunningjar- mínir hafa verið að benda mér á, að ástæðu- lítið sé að elta ólar við hin ó- þreyjufullu andvörp þessa frétta ritara. Má það að vísu satt vera, og séu ,,spyrnur“ þær, sem hann þykist gefa ekki annað en nokk- urn veginn meinlausar hrær- ingar, sem sennilega orsakast af óreglulegum svefni eða of sterku kaffi. En aðrir líta þó á málið frá annarri hlið. Þeir minnast þess, að hann hafi hér áður á framboðsfundum haft í frammi allóvægið orðbragð við frambjóðanda Sjálfstæðisflokks ins hér í sýslu, og muni nú vera að vinna sig í álit innan Sjálf- stæðisflokksins með það fyrir augum að bjóða sig fram fyrir flokkinn, laumast upp fyrir nú- verandi forsætisráðherra og slá hann út. Skal ekki dæmt um, hversu heppilegt það myndi reynast ef svo færi, en hins veg- ar verður að draga í efa að hon- um takist það. Keflavík, 16. apríl 1945. Valtýr Gudjónsson. Erlent yfirllt. (FramhalcL af 2. síðu) auglýstu eftir samstarfi við borgaranna, báðu um gagnrýni þeirra og athugasemdir og fengu margvíslegar leiðbeiningar með þessum hætti. Þeir létu gera margar sjálfstæðar athuganir, ferðuðust mikið sjálfir og fengu aðra til að gera það. Þeir létu yfirleitt ekkert atriði í hernað- arrekstrinum,,smátt sem stórt, sér óviðkomandi, og komu öll- um endurbótatillögum sínum strax á framfæri við stjórnar- völdin. Yfirleitt var þein* vel tekið, einkum af herstjórninni. Það er nú almennt viðurkennt, að þetta starf Trumans-nsfnd- arinnar, en svo er þessi nefnd venjulega kölluð, hafi sparað Bandaríkjunum útgjöld, er skipta morgum hundruðum miljónum dollara, sumir segja miljörðum. Þetta starf Trumans gerði hann líka frægan um öll Bandaríkin og hann var viður- kenndur sem einn allra mesti verkmaðurinn, er sæti átti á Bandaríkjaþingi. Það dró ekki úr orðstír hans, að þrátt fyrir þennan mikla árangur, hefir nefndin ekki notað nærri allt það fé, sem henni hefir verið veitt til starfsemi sinnar, en sú, fjárveiting hefir verið stórauk- in, án þess að Truman hafi nokkuð beðið um það, en í fyrstu fékk hann ekki umbeðna fjár- veitingu, eins og áður hefir ver- ið sagt frá. Þótt Truman ynni sér þannig vaxandi álit og frægð, fór fjarri því, að hann gerði nokkuð til.að trana sér fram. Hann h£lt áfram háttalagi hins hlédræga bónda, gaf sig allan að vinnu sinni, en skeytti minna um sjálfan sig. Þegar farið var að tala um hann sem varaforseta- efni síðastl. vor, sinnti hann því engu. Hann gerði ekkert til þess að vera kjörinn í þá stöðu og engin sérstök samtök unnu heldur að því. Það var ekki fyrr en hægri menn og vinstri menn í demókrataflokknum höfðu ár- angurslaust reynt að ná sam- komulagi um helztu stjórnmála- foringja flokksins, að leitað var til Trumans og hann beðinn um að vera varaforsetaefni. Truman kvaðst skyldí gefa kost á sér, ef Roosevelt og flokkur- inn óskuðu þess. Honum var þá sagt, að Roosevelt myndi helzt óska eftir honum sem varafor- setaefni. »Hann varð því við beiðninni og almennt var litið svo á, að Roosevelt hefði valið sér það varaforsetaefni, er bezt styrkti kosningaaðstöðu hans. Vafalaust er, hvort nokkur forseti Bandaríkjanna hafi sezt í forsetastólinn undir örðugri kringumstæðum en Truman. Hann tekur við af einum «glæsi- legasta og ástsælasta forseta, er Bandaríkin hafa átt, og fram- undan bíða örðugri og örlaga- ríkari viðfangsefni en nokkur Bandaríkjaforseti hefir þurft að leysa. Truman mun nú þurfa við alla eiginleika hins góða bónda, sem hann héfir áður sýnt í ríkum mæli, vinnusemi, áfvekni, gerhygli og heiðar- leika. Truman er meðalmaður á hæð og er orðinn grár fyrir hær- um. Hann er allgóður ræðu- maður, talar hratt og með sann- færingarhita. Hann giftist einni æskuleiksystur sinni,þegar hann var orðinn 35 ára gamall, og eiga þau eina dóttur, sem nú er 21 árs. Truman er elskur að tónlist og leikur oft á píanó í tómstundum sínum. í tómstund- um sínum iðkar hann og tals- vert tennis og einstaka sinnum Leíkföng Flugmodel, Flugvélar, Bílar, Dúkkur, Dúkkuvagnar, Skip, Sippubönd, Rellur, Kubbar, Myndabækur, Nælur, Töskur, Húsgögn, Eldhússett. Þvotta- bretti, Símar, Eldavélar, Strau- járn, Hjólbörur, Hlaupahjól, Byssur, Mótorhjól, Skriðdrekar, Flautur, Úr, Lúðrar, Gúmmídýr, Spil ýmiskonar, o. fl. K. Eiiiarsson & Björnsson - Bankastræti 11 Aaglýsið í Tímanum! Beztu þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu mig l tilefni af sextugsafmœli mínu 10. þ. m., með heimsóknum, sim- skeytum, blómum, gjöfum og hlýjum handtökum. JÓN SIGURJÓNSSON. •ftfröin Borgartnn 1 í Þykkvabæ, er laus til kaups og ábúðar frá næstu fardögum að telja, ef viðunandi tilboð fæst. Tilboð óskast send til Sígurhjartar Péturssonar lögfræðings, Klapparstíg 16, fyrir 1. maí næstkom. Aðalfundur 5. deitdar KRON verður haldinn í Listamannaskálanum. mánudaginn 23. þ. m., en ekki næstkomandi fimmtudag eins og boðað er á aðgöngumiðunum. •• « Deildarsvæði í stórum dráttum: Bergstaðastræti, Smiðj ustígur að vestan, Bjargarstígur, Freyjugata að - sunnan, Frakkastígur að austan. Siiilkur vaníar á Vífilsstaðaliæli mi þegar cða 14. inaí. — llpplýsiiigar h.já yfirhjúkr- unarkonuiuii kí. 9—3.30. Sími 5611 oy í skrifstofu ríkisspítalaima, sími 1765. A víðavangi (Framhald af 2. síðu) unum og lýsa því sem dásam- legum stórhug og fórnarvilja, að Kveldúlfur skuli nota skatt- hlunnindaféð til skipakaupa? Það væri vissulega nær, að Mbl. reyndi að upplýsa eitthvað um þetta, heldur en að skamma bændur fyrir skort á framfara- hug á sama tíma og stjórnin getur hvergi nærri útvegað þeim þær vélar og erlendan áburð, sem þeir biðja um. „Áfergja eftir gróða“. Mbl. heldur áfram að skamma kaupfélögin fyrir „áfergju eftir gróða af kvikmynda- og gisti- húsarekstri,“ eins og Týri orðar það í seinasta Reykjavíkurbréfi. Orðalag þetta getur verið nokkur leiðbeining um, hvort það muni ekki frekar stafa af „áfergju“ vissra manpa eftir slíkum gróða en umhyggju fyr- ir bændum, að Mbl. hefir hafið þessar seinustu árásir á kaup- félögin. Það er a. m. k. erfitt að skýra það, að það sé óhagur fyrir bændur, ef kgupfélögin spilar hann „poker“, sér til upp- lyptingar, eins og hann kemst að orði. Lestrarefni hans er að- allega sögulegs efnis, einkum þó saga Bandaríkjanna. græða á þessari starfsemi og geta því eflt starfsemi sína. á öðrum sviðum. Óhagur spekúl- antanna af samkeppninni við kaupfélögin liggur hins vegar í augum uppi. Mbl. segir hálfa sögu. Morgunblaðið gerir sér mikiö far um að breiða það út, aö Framsóknarmenn í Siglufirði séu klofnir út af kosningunni í svokallaða Rauðkustjórn. Hinu segir Mbl. elrki frá, að Sjálf- stæðismenn í Siglufirði eru jafn klofnir út af sama máli. (--------------------- Hreðavatn í sumar óska ég eftir 1—2 smiðum (þurfa ekki að hafa réttindi) og 1—2 starfsstúlkum. — Sími á matmálstímum 2950. Vigfús Guðmundsson Vinir Tímans Útvegið sem flestir ykkar einn áskrifanda að Tímanum og lát- ið afgreiðsluna vita um það sem fyrst. GLEÐILEGT SEMAR'! Gcf jim — Iðium, Verksmiðjuútsalan, Hafnarstræti 4. n p I GLEÐILEGT SEMAR! H :: íshúsið Her&ubreið. J4ííí$íí«íííííííí4íííiíííí4$4$íííííí$íííí$ííííííííííí$iíííííííí^^ J GLEÐILEGT SUMAR! i:: ti Rókabúð Brat/a Rrt/njólfssonar. Tilkynning frá Nýbyggingarráði í sambandi við fyrirhugaða smíði á 50 fiskibátum innanlands, óskar Nýbyggingarráð hérmeð eftir tilboðum í eftirfarandi: 1. Aflvélar. a) 25 stk. 120—140 ha. b) 25 stk. 150—180 ha. Dieselvélar skulu vera þungbyggðar eðs meðalþungbyggðar. 2. Hjálparvélar (mega vera léttbyggðar). a) 25—50 stk. 10 ha., sem knýju 5 kw. rafal, loftþjöppu og austurdælu. b) 25 stk. 25 ha., sem knýja 15 kw. rafal, loftþjöppu og austurdælu. \ 3. Spil (með drifútbúnaði). a) 50 trollspil með gálgum og öðrum útbúnaði. b) 50 línuspil. c) 50 akkerisspil, þar af séu 25 af hséfilegri stærð íyrir 35 rúml. báta og 25 af hæfilegri stærð fyrir 55 rúml. báta. 4. Stýrisvélar. 50 stk. með vökvaútbúnaði (hydraulisk). 5. Siglingatæki. Öll venjuleg siglinga- og öryggistæki fyrir 50 báta, þ. á m. dýptarmælar, miðunarstöðvar, áttavitar, vegmælar, loftvogir o. a. 6. Legufæri fyrir 50 báta, þar af 25 fyrir 35 rúml. báta og 25 fyrir 55 rúml. báta. 7. 50 skipsbátar. Tilboð skulu hafa borist skrifstofu Nýbyggingarráðs fyrir föstudaginn 25. mai n. k. Nýbyggingarráð áskilur sér rétt til að hafna hvaða tilboði sem er, eða taka þeim eða hluta þeirra. Nauðsynlegt er, að í tilboðum sé tekið-fram um afgreiðslutlma. nýbyggingarrAð. ORDSEXDIAG TEL KAUPEIVDA TÍMANS*. Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin- samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.