Tíminn - 15.06.1945, Síða 4

Tíminn - 15.06.1945, Síða 4
4 TÍMTVTV. föstndaglim 15. |ání 1945 44. blaS \ 1* Fyrirbævið i Húsavík U Ég var á gangi á einni af að- algötum Reykjavíkur. Allt í einu er sagt við mig í rómi, sem snertir strengi endurminning- anna: Sæll og blessaður! Og frammi fyrir mér stendur gam- all kunningi norðan af Húsavík, Arnór Kristjánsson, — oftast kallaður Nóri. Líkur er hann sjálfum sér, vinurinn: hall- ar undir flatt, og allt annað eins og það á að vera fyrir end- urminninguna. Sæll og blessaður, segi ég líka. Hvað er nú í fréttum? Það er enginn afli og atvinnu- laust. Ég kom með sjúkling. Hann veiktist í hjartanu um daginn. Svo er ég að garfa í höfninni. Það veitir ekki af, því að oddviti og sýslumaður duga illa, þó að ég sé ekkert að lasta þá, mannagreyin. Ég þori nú að tala við þessa háu herra hérna í henni Reykjavík. Þeir hafa bara trúað mér fyrir því, að öll áhöld hefði vantað, ef stríðið hefði ekki hætt. Það þótti mér ljóta frammistaðan hjá þeim öllum. Ég er nú að koma þessu í lag.----- Nokkrum dögum seinna er ég að blaða í Þjóðviljanum. Þá sé ég þar allt í einu andlitið á Arnóri mínum: mynd á miðri síðu. Einhverntíma hefði verið brosað í Húsavík framan í þessa mynd, dettur mér í hug. Skyldu þeir vera hættir að hafa gaman af því, sem skrítið er, þarna nyrðra. Svo langt samtal við Arnór, — stórletruð fyrirsögn um við- tal við formann Verkamannafé- lags Húsavíkur, því að svo er nú ástatt -í Húsavík, að Arnór er formaður verkamannafélags- ins þar. Þetta merkilega blað Þjóðvilj- ans, hvar í „Arnór ræðir um ýmis mál og viðhorf í Húsavík“, er frá 16. maí 1945. Ég les: „-----þá hafði hún legið niðri frá því um njánaða- mótin sept.—nóv. s. 1. haust.“ Skelfing er maðurinn líkur því, sem hann var. Man ekki mánuðina i röð! Ég les áfram: „Meiningin er að hafnargerðinni verði lokið árið 1946“. (Þetta ártal er tekið upp tvisvar í fyrirsögn greinar- innar). Mér hafði áður skilist af fréttum að norðan að áætlað sé, að verki þessu verði lokið sumarið 1947. Ég hringi i vita- málaskrifstofuna. Jú, áætlað er að ljúka hafnargerðinni 1947,— fyrr getur það ekki orðið. Líkt er það Nóra, eins og hann var, að geta ekki einu sinni í einföldu formi farið rétt með svona stórt atriði. Enn les ég: „Hafnarbryggjan, sem er úr tré, er orðin allmikið skemmd af maðki..“ Sá er nákvæmur eins og fyrri daginn. Þetta mikla mannvirki, hafnarbryggjan, er aðallega úr steini, en af því að tréáta er komin í staura, sem utan með bryggjunni eru, þá verður hún öll „úr tré“ i frásögn Nóra. Fari maðkurinn norður og niður bæði vegna bryggjunnar og for- manns verkamannafélagsins! Auðvitað les ég meira. Maður hættir ekki við svona sælgæti fyrr en búið er. En ekki dugar, rúmr/ns vegna, að taka upp alla romsuna. Hér er eitt sýnishorn til viðbótar: „Mér kom það skrítilega fyrir sjónir, þegar nefndin, sem fór til Reykjavíkur vegna hafnarmála og rafmagns- mála Húsavíkur, var hér, að ekk- ert skyldi heyrast frá nefndinni um þessi mál í bæjarblöðunum hér. Ég keypti öll dagblöðin í Reykjavík þennan tíma, sem nefndin var hér, og sá þar ekk- ert um þessi mál, og ræddi um það við varaformann verka- mannafélagsins, þegar hann kom norður, hversvegna nefnd- in hefði ekki átt viðtal við blöð- in. Oddviti Húsavíkur frétti þetta og rak framan í mig blað af Tímanum, þar sem var grein um Húsavíkurhöfn og viðtal við oddvitann, — sem var dagsett daginn eftir að nefndin fór úr Reykjavík(i). Það sýnir einmitt það, sem sló,mig lengi, að sam- vinnan muni ekki hafa verið of góð i þessum stóru málum okk- ar Húsvíkinga — —“. Ég tók mig til og athugaði Tíma-blaðið, sem um ræðir. Við- talið við oddvitann, sem til er vísað, er auðvitað ódagsett. — Ekkert virðist of smátt fyrir Nóra til þess að rangherma! — í Tímanum, sá ég heldur ekki eitt orð, er benti í þá áttina, að samvinna i nefndinni hafi ekki verið góð. Hver finnur sam- hengið? Nú skil ég vel það, sem kunnur Húsvíkingur á eitt sinn að hafa sagt við Arnór: „Hvað sérðu mörg tungl á lofti í einu, Nóri minn?“ Þetta blað Þjóðviljans hlýtur Þorbergur Þórðarson að telja óborganlegt sem sýnishorn „lág- kúru“ og „ruglandi“. „Upp- skafning“ er aftur á móti lítil í stílnum. Hún er bara í aum- ingja höfundinum sjálfum. Talsvert er í viðtalinu af til- raunum til illgirnislegra árása á forvígismenn Húsavíkur, svo sem Þórhall Sigtryggsson kaup- félagsstjóra. í þeim þekki ég ekki anda Nóra frá fyrri tíð — okkar kynningartíð — heldur bara rödd hans og hendur. En þarna sést hvernig deigt og skörðótt Járn tekur herzlunni í eitri kommúnistaofstækisins. í gær vildi svo til, að kunn- ingi minn, sem er að norðan, en búsettur hér syðra eins og ég, hitti mig í kaffihúsi. Við sátum þar saman um stund og röbbuðum um „fyrirbærið í Húsavik“, sem hann kallaði svo. Hann sagðist vita, að Þingey- ingar hefðu verið og væru enn háðfuglar margir hverjir. En aldrei, að óreyndu, sagðist hann hefði trúað því, að meiri hluti manna í fjölmennu verklýðsfé- lagi, eins og Verkamannafélagi Húsavíkur, gerði það „upp á grín“ að kjósa sér formann. Ég mótmælti því, að kunningi minn, Arnór, væri formaður „upp á grín“. Þá dró hann Þjóðvilja-blaðið góða upp úr vasa sínum og þuldi viðtalið með — ég verð að viður- kenna — hsefilegum skýringum. Harin hafði svo hátt, að þeir, sem næstir sátu, fóru að hlusta, og að lokum var þarna stór hóp- ur hlæjandi manna. Höfundur svona viðtals hlýtur að vera formaður „upp á grín“, sagði félagi minn, að loknum lestri. Annar stærðfræðilegur mögu- leiki er til, gall maður við, og hann er sá, að Húsvíkingar séu miklu þynnri en gerist og geng- ur um menn. Þá varð ég reiður og mótmælti harðlega með ýmsum dæmum. ~En, segir þið mér eitt, góðir hálsar, sagði nú maður nokkur, sem að þessu hafði ekkert til málanna lagt, — hvers vegna haldið þið að blaðamaðurinn birti viðtalið? Það get ég sagt þér, sagði fé- lagi minn: Hann gerir það af kvikindishætti. Hann gerir það Húsvíkingum og Þingeyingum til skammar. Eða heldurðu, að hann hefði ekki lagað viðtalið meira en hann hefir gert, ef hann hefði birt það af heilind- um? Hann er á sinn hátt með í „gríninu". Við slitum talinu. Ég segi frá þessu Húsvíkingum til umhugsunar. Norðlingur. Eftir eina viku eða svo fara bændur að smala og rýja fé sitt og marka lömbin. Nú er víðast af sú tíð, er vakað var yfir fénu allt vorið, lömbin mörkuð' jafnóðum og þau fæddust og tekið af ánum smátt og smátt. Nú verður ein allsherjar smalamennska að duga vlðast hvar og fylgja því vökunætur og mikið þvarg, þar sem margt fé kemur til réttar í einu, þótt margiir bændur létti þetta orðið með rúmgóðum girðingum til þess að geyma safnið í meðan unnið er að rúningu og mörkun. — Á þessari mynd sést roskinn bóndi með hest klyfjaðan uliarpokum. Hann er lotinn nokkuð í herðum, enda handtök hans sennilega mörg orðin og vökunætur að baki. í gamla daga var öll ullin flutt í kaupstaðinn á þennan hátt og er sums staðar enn. Heimiltsbíaðid Nýlega er komið út 4.—5. tbl. Heimilisblaðsins, fjölbreytt og læsilegt. Er þetta blað að veru- legu leyti helgað aldar-ártíð Jónasar Hallgrímssonar og skrifar Gils Guðmundsson- rit- höfundur aðalgreinina um skáldið. Fylgja þeirri grein myndir af fæðingarstað Jónas- ar, síðasta bústað hans hér og í Kaupmarinahöfn og mynd af Reykjavík á dögum Jónasar. Þá er í blaðinu allangur þátt- ur um nýjungar í vísindum og tækni. Er þar m. a. rætt nokkuð um glerið, sem er orðið sann- kallað undraefni, skýrt frá all- árangursríkum tilraunum með lyf gegn berklaveiki, sagt nokk- uð frá útvarpi og farþegaflug- vélum, eins og þetta hvort tveggja mun verða í framtíð, o. m. fl. Framhaldssagan, maðurinn frá Alaska, skipar allmikið rúm i blaðinu, og sögu Rannveigar Kr. Guðmundsdóttir, Gildi, lýk- ur í þessu blaði. Ennfremur er í blaðinu hugleiðing eftir sr. Gunnar Árnason frá Skútustöð- um, þátturinn „Blaðað í ggöml- um blöðum,“ bókafregnir, krossgáta, skrítlur o. fl. Á einni opnu blaðsins eru fall- egar íslenzkar myndir, og á for- síðu er stór mynd af Jónasi Hallgrímssyni. — Er blaðið að öllu hið myndarlegasta og vel úr garði búið. K. E. Skattar og skatta- framtöl Margir tala um háa skatta ,og flestum þykja sínir skattar of háif. En fæstum finnast skattar náungans nægilega háir, hvað þá of háir. Þrátt fyrir þá óhemju skatta, sem lögfestir eru hér á landi, koma minni skattatekjur út úr þeim, en líklegt væri, og er það af því, að rniklar tekjur og eignir sleppa árlega undan sköttum. Hins vegar er það áberandi, hvp sú tilhneiging er rík að íþyngja þeim, sem hafa at- vinnutæki og fasteignir skráð á nöfn sín. Það er viðurkennt, að mjög stór hluti sparifjár og verð- bréfaeignar sleppf algerlega undan sköttum, og núverandi fjármálaráðherra hefir hælzt um, að bankarnir skytu sér und- an upplýsingaskyldu sinni í þessum efnum. Ekki verður um það deilt, að þjóðfélagsheildinni er það hentugt og hagkvæmt, að sem flestir eigi og starfræki framleiðslutæki, og ættu þeir aðilar því ekki að vera verr sett- ir en aðrir þjóðfélagsþegnar. Til þess að fá bót ráðna á þessum hlutum, væri réttlátt, að allar eignir i landinu, fastar og laysar, yrðu nafnskráðar. Allar innlánsbækur' og innláns- skírteini yrðu nafnskráð, enn- Auðu seðlarnir Senn líður að því, að endur- heimt algerðs stjórnfrelsis ís- lendinga á ársafmæli. Eitt ár er liðið síðan við fengum aftur fullt og óskorað sjálfstæði eftir nær því 700 ára kúgun erlendra þjóða, sem virtust oftast aðeins hugsa um það eitt að auðgast sem mest á landsmönnum í öll- um viðskiptum við þá, bæði í verzlun og stjórnarfari. Hitt létu þessar útlendu þjóðir sig minna skipta, hvernig landsmönnum leið undir stjórn þeirra, er oft leiddi yfir þjóðina hungur með verzlunarkúguninni og einok- inni. Það var því sízt að furða, þótt landsmenn fögnuðu fengnu full- veldi og greiddu því atkvæði, er þeir áttu þess kost, sem og líka þeir gerðu. Sú samheldni, sem þá kom fram hjá landsinönn- um, verður þeim til ógleyman- legs sóma um ókomnar aldir. Því leiðinlegra var það, að 15 alþingismenn skyldu skila auð- um atkvæðaseðlum, er tilnefna skyldi forsetann á hátíðlegustu stundu þjóðarinnar. Til hvers var að fá viðurkennt sjálfstæði, ef engum hæfum manni samlendum var treyst- andi að takast á hendur for- setaembættið? Merkur Vestur-íslendingur, sem hér var á hátíðinni í fyrra, sagði: „Ég harma það, að svona skyldi takast til, að þingmenn skiluðu auðum seðlum við for- setakjörið, því að það vekuri at- hygli út á við og sums staðar látið tákna lítilsvirðing á því máli, er þar ræðir um.“ Þetta atriði verður alltaf skuggi á þessari fullveldishátíð okkar, eða svo finnst mér og fleiri öldruðum mönnum, sem munum vel útlenda stjórn hér og tókum virkan þátt að fá inn- lenda stjórn, eftir því sem geta og aðstæður leyfðu. Á. H. fremur öll hlutabréf, verðbréf og skuldabréf. Gefa mætti mönnum frest til að leiðrétta framtöl sín gegn því, að greiddir yrðu vangreiddir skattar til ríkis og bæja, en það fé, sem svo yrði eftir og ekki kæmu eigendur að, ætti að gerast upptækt, og mætti' nota það til greiðslu á ríkisskuldunum. H. B. Ef kaupendur Tímans verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér STRAX til afgreiðslunnar. „Ég heiti Jdh Stefán Sveins- son, frá Möðruvöllum í Hörgár- dal.“ „Þér hafið þá ekki dvalið á íslandi síðustu tuttugu árin?“ „Alveg rétt. Ég fór ungur drengur af landi burt fyrir 25 árum og hefi dvalið erlendis alla tíð síðan.“ „Já, nú man ég eftir því. Ég hefi heyrt um það. Faðir yðar hét Sveinn, sonur Þórarins Þór- arinssonar úr Kelduhverfi. Móð- ir yðar var Sigríður, ættuð úr Mývatnssveit. Hún fluttist með systkinum yðar til Kanada." Fleira fór þeim á milli, en ég set þetta hér sem dæmi þess, hve Nonni, er sjálfur læzt vera hlutlaus ferðalangur, lætur hér koma fram hin fegurstu ein- k'enni íslendinga, gáfurnar, minnið. Úr þessum jarðvegi spruttu íslendingasögurnar, „Is- landsblomster". ■ Nonni heldur áfram norður á hestbaki, aðjieirra tíma sið, og fer svo á skipi frá Akureyri aft- ur til Kaupmannahafnar. En í leiðinni kom hann við á Möðru- völlum í Hörgárdal og gisti þar eina nótt. Honum varð að vísu ekki svefnsamt, því svo hlóðust bernskuminningarnar að hon- um, að um háttamál varð hann að rölta út, út fyrir túngarðinn, og njóta endurminnin^a æsk- unnar í bjartri vornóttinni. Ein- lægri hrifni af fögrum æsku- stöðvum getur ekki. Á íslenzku hafa þessar bækur komið út eftir Jón Sveinsson: Nonni 1922, Borgin við sund- ið 1923, Sólskinsdagar 1924, Nonni og Manni 1925, Ævin- týri úr Eyjum 1927. Á Skipalóni 1928. Útgefandi var undirritað- ur, þýðandi Freysteinn Gunn- arsson, að undanskildu því, að Magnús Jónsson, nú prófessor, þýddi hinn eiginlega Nonna og Manna og einn kaflann úr Sól- skinsdögum (Ævintýri á sjó). Ég segi „hinn eiginlega Nonna og Manna“ vegna þess, að í þeirri bók var bætt við annarri frásögn, „Nonni og Manni fara á fjöll“, sem var ekki með í þýzku útgáfunni, en var .sameinuð í íslenzku útgáfunni að ráði höf- undp*ins. Eins og áður er getið kom Nonni heim til íslands 1895, eft- ir 25 ára fjarveru. Aftur kom hann hingað heim 1930, að mestu á vegum ríkisstjórnarinn- ar, en fyrir atbeina útgefanda bóka hans hér. Eftir þá ferð skrifaði hann bók, Die Feuer- insel im Nordmeer (Eldeyjan I norðurhöfum) og hefir hún ekki komið út á íslenzku. Enn er ein bók eftir hann, Die Geschichte des kleinen Guido (Saga Guidos litla), kom út 1930, „frásögn handa kaþólskri æsku“ eins og á titilblaðinu stendur, um franskan dreng af háum stigum, sem dó ungur, en þótti undra- barn á kaþólska vísu. Um aðrar bækur eftir Nonna er mér ekki kunnugt. Þess má geta, að kaflar úr bókum hans hafa verið gefnir út sérstaklega, stundum með öðrum titli en hin- um upprunalega. i Bæklingur kom út eftir hann, nokkru eftir styrjöldina fyrri, sérprentuð grein um heimsókn í barnahæli. Þó að, eða öllu heldur af því að hún var skrifuð af hinni lát- lausu einlægni að hætti Nonna, var hún gefin út í tugþúsunda- tali, sem áróðursrit til hjálpar slíkum stofnunum. Það er einkennandi fyrir Nonna sem rithöfund, að svo Halldór KristjáHSSoii; Bækur Einars Jónssonar Einar Jónsson myndhöggvari hefir verið hljóðlátur og afskiptalítill maður í þys dægurmálanna. Það vakti því talsverða athygli þegar Guðmundur heitinn Finnbogason landsbókavörður las kafla úr sjálfsævisögu hans í útvarp og mun mörgum hafa orðið sá lestur minnisstæður og jafnframt þau orð Guðmundar, að líf Einars Jónssonari væri mesta listaverk hans. Hér birtist grein um bækur Einars. Það hefir löngum verið þrá íslendinga, metnaður og stolt, að eiga menn, sem væru hlut- gengir í fremstu röð á mæli- kvarða heimsins. Bókmenntir og innilega sem hann var tengdur kaþólskri kirkju, jafnvel trú- boðsstarfsemi hennar.kemur það hvergi fram í sögum hans. Sag- an „Nonni og Manni“ er að vísu undantekning, en hún var skrif- uð handa kaþólskri árbók. f sög- um sínum er hann aðeins Nonni, litli íslenzki drengrinn, sem kvaddi móður sína tólf ára gam- all og fór á lítilli skútu út í ó- þekkta heiminn. Hann var ekki „stórmenni“ í venjulegum skiln- ingi, hann vann ekki heiminn með ofbeldi eða orrustugný, til þess að undirbúa hrun sjálfs sín, en hann vann hjörtun í miljónatali. Óg liklega hefir enginn íslendingur orðið eins víða frægur, unnið íslandi meira gagn með sínum látlausu, ástúðlegu frásögnum og fyrir- lestrum um land og þjóð en Nonni, séra Jón Sveinsson. landafundir fyrri alda eru þau afrek, sem löngum er vitnað til. Ég hygg, að hugur íslendinga birtist allur í þeirri stoltu gleði, sem víða kemur fram yfir mynd- um þeirra Leifs heppna og Snorra Sturlusonar, sem fram- andi þjóðir hafa gefið hingað. Umkomulitlir smælingjar, eru oft veikir af sér gagnvart skoð- un og áliti þeirra stóru og sterk- ari. Það er eins um þjóðir og menn. Meövitund verðleikanna er þeim sá styrkur, sem heldur þeim uppi. Sú meðvitund nær- ist á viðurkenningu. Þegar vold- ugri þjóoir rétta slíkar gjafir úr vinarhendi, þá er það sér- staklega mikils virði vegna þess, að þar er rétt örvandi hönd skilnings og samúðar, sem eyk- ur sjálfsvirðingu og innra sjálf- stæði. Það er að vísu veikleikamerki, að vera háður áliti annarra, en sá veikleiki vex ekki, þótt hann sé viðurkenndur og minnkar ekki, þó að þrætt sé fyrir hann. íslendingar hafa jafnan þráð að eignast menn eins og Leif heppna og Snorra Sturluson. Þeir hafa glaðst með hverjum landa sínum,sem unnið hefir sér frægð og frama erlendis. Stund- um hefir þá risið barnaleg hrifn- ing af litlu tilefni. En það er aukaatriði, sem bendir þó til þess sem þjóðin óskar. Einar Jónsson myndhöggvari er einn þeirra manna íslenzkra, er nú lifa, sem mesta frægðar- för hefir farið til framandi landa. Það er þó ekki sú yfir- borðsfrægð, sem gerir hann mikinn. Þó að mörgum þyki gaman að henni og oft verði til hennar vitnað er hún ekki annað en bjarminn af starfi hans og lífi. Það er líf hans og list, sem þjóðina varðar um. í verkum hans er sá boðskapur, sem hann vill flytja þjóð sinni. Sá boð- skapur, meðferð hans og form, er það, sem heldur nafni Einars Jónssonar á lofti. Síðastliðinn vetur komu út tvær bækur eftir Einar Jónsson: Minningar og Skoðariir. Ég álít það svo merkan viðburð, að ástæða sé til þess, að fara um hann nokkrum orðum. Til þessa finnst mér að hafi verið of hljótt um þær bækur. Þetta er ævisaga listamanns- ins, og er þó sögð á nokkuð sér- stakan hátt. Mér virðist frá- sögnin miðuð við það, að fram komi sejn bezt, það, sem þýðirigu hafði fyrir listámanninn. Það sem mótaði hann og þroskaði er rakið. Þetta er því. sagan um þróun hans og vöxt. Hins vegar virðist ekki neitt vera gert til þess, að krydda frásögnina með því, að seilast eftir gamansöm- um atriðum, sem lítið snerta að- alþráðinn. Hitt er annað mál, að höfundur hefir það næman 1 lífsskilning að víða tvinnast saman í frásögn hans og lýsing- um dýpsta alvara og spaugilegur blær atvikanna. Svo er t. d. frá- sögipin um fyrstu ástina. Ævisaga Einars Jónssonar er hetjusaga. Það er saga um fá- tækan og umkomulítinn sveita- dreng, sem hófst til hinnar mestu frægðar vegna frábærra afreka í heimi listarinnar. Slík- ar sögur ná að hjarta íslend- ingsins. Þær eru hollar til lest- urs hverjum sem er, og ekki .sízt ungum mönnum. Alþýða íslands hefir jafnan sótt sér þrótt og styrk í sögur sínar. Þar átti hún sér fyrirmýndir, sem gáfu henni þrek í raunum og þor í hættum. Þegar annað brást treindi fólkið lífstrú sína og lífsvon á sögunum um hetjur, sem báru allt með æðrulausri karlmennsku og brugðu sér hvorki við sár né bana. Þær fyr- irmyndir björguðu þjóðinni. Og enn þarf fyrirmyndir. Ég veit ekki hvort þes'si þjóð hefir nokk- urn tíma haft meiri þörf en nú á fyrirmyndarmönnum, sem víssu hvað þeir vildu og gengu þá leið, sem köllun þeirra-. benti þeim. Þess vegna eiga bækur Einars Jónssonar svo brýnt erindi til æsku landsins. Þær eru heimild um fyrirmynd, sem æskan þarf. Maður átti sér köllun, þjónaði henni með frá- bærri staðfestu, færði miklar fórnir og sigraði. Einar segir sögu sína drengi- lega. Það leynir sér ekki að hann vill bera mönnum gott. Þó finnst það, að honum hefir fallið mjög misjafnt við menn, eins og öll- um. En það, sem honum finnst lakara, reynir hann að nefna ekki fremur en nauðsyn sög- . unnar krefur og sleppir þá oft (Framhald á 5. siðu) %

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.