Tíminn - 16.03.1945, Qupperneq 7
21. blaS
TÍMINN, föstndaglim 16. marz 194S
7
Gum-Grípper,
Minning’ 100 ára endur-
reisnar Alþingis
Blaðinu hefir borizt svo-
hljóðandi greinargcrð frá for-
seta sameinaðs Alþingis:
Hinn 8. marz 1943 var í sam-
einuðu Alþingi minnst „endur-
reisnar" Alþingis íslendinga, en
þá voru liðin eitt hundrað ár
frá því, að út var gefin konung-
leg tilskipun um þetta (sem sé
8. marz 1843), og skyldi Alþingi
koma saman sem ráðgjafarþing
1. júlí 1845. Kom þá og þingið
saman, eins og kunnugt er, í
sal Latínuskólans nýja, sem nú
er hátíðasalur Menntaskólans í
Reykjavík. í minningu þessa var
í fyrsta lagi ákvarðað 1943, að
nefnd skyldi skipuð til þess að
láta fullgera „sögu Alþingis",
og er þessi nefnd nú starfandi
og mun slík saga . verða skráð
út árið 1944; í öðru lagi er gert
ráð fyrir, að Alþingi gangist fyr-
ir nokkurum ’hátíðahöldum ein-
mitt hinn 1. júlí í ár, m. a. með
þinghaldi í sjálfum Mennta-
skólasalnum. í þessu skyni var
ákveðið af hálfu Alþingis og
ríkisstjórnar, að láta fara fram
viðeigandi aðgerð á hátíðasaln-
um, enda skyldi honum komið
í sem 'líkast horf því, sem hann
var í öndverðu, og framvegis
eigi notaður nema við hin hátíð-
legustu tækifæri. Húsameistari
ríkisins vinnur nú að þessu í
samráði við rektor Menntaskól-
ans og forseta sameinaðs Al-
þingis. Þess er að geta, að á-
minnstur salur var um hríð eftir
1845 samkomustaður Alþingis og
hlaut ódauðlega frægð af hin-
um nafnkunna þjóðfundi 1851.
Af því fundarhaldi er nú einn
af kunnustu listamönnum
landsins að fullgera stórt mál-
verk, er mun gera þessa atburði
enn minnisstæðari en áður.
En að því er snertir hið til-
ætlaða þinghald 1. júlí n. k., þá
er nú svo komið, að ekkert getur
af því orðið. Að öðru leyti verð-
ur haldið áfram með hinar aðr-
ar framkvæmdir, sem getið var,
að Alþingi hefði áformað. Má
og vera, að þessa viðburðar í
sögu Alþingis verði fírekar
minnst, er þingið kemur saman
væntanlega síðla sumars á þessu
ári.
nýtt amerískt efni, lagfærir
falskar tennur, sem tolla illa eða
særa góminn.
Berist á á þrlggja mánaða
fresti. Einfalt og þægilegt.
Leiðarvísir á lslenzku. Tólf
króna túba endist heilt ár.
Sendum um land allt.
Seyðisfjarðar Apótek.
Þér skuluð lesa þessa bók.
■f
Bandarikin
Bókin fjallar um hina miklu og voldugu þjóð 1 vestrinu.
Baráttu framgjarnra manna til að geta lifað lifinu frjálsir
og jafnir, sem óhikað hafa fórnað öllu fyrir frelsi og
mannréttindi. Bókin hefir komið út á flestum tungu-
málum heims, og alls staðar verið talin hin merkasta.
enda rituð af einum frægasta rithöfundi Bandaríkjanna,
Stephen Vincent Benét, sem nýlega er látinn. Af bók
þessari geta íslendingar mikið lært, ekkl sízt i sambandi
við verndun lýðræðisins og framtíðardrauma þjóðarinnar.
Verður því hver fróðari eftir en áður vlð lestur þessarar
bókar.
Itandaríkiii
Sásl nú hjá
bóksölum
Erlcnt yflrllt.
Möðruvallaskóli
brcinmr
(Framhald af 2. síöu)
honum, og hve vel þeir full-
nægja hinum settu skilyrðum.
Jafnaðarmannaflokkurinn, er
hefir nú stjórnarforustuna í
Belgíu, er annar stærsti flokkur
landsins. Hann hefir jafnan
starfað sem hófsamur umbóta-
flokkur og átt í harðri baráttu
við kommúnista. Styrkur hans
liggur ekki sízt í því, að hann
hefir verið í nánu samstarfi við
samvinnufélagsskapinn þar í
landi.
Á víðavangi
(Framhald af 2. siðu)
sem horfið hefir, hafði ástæðu
til að fyrirfara sér eða að
minsta kosti benda allar líkur
til þess, að Jieir hafi gripið til
þess örþrifaráðs".
Slík fullyrðing er' vitanlega
alveg út í bláinn, enda vafa-
laust sprottin af því einu,- að
blaðið hefir viljað koma sér vel
við lögregluna, vegna fréttaöfÞ
unar, en lögreglan hafði orðið
fyrir ómaklegu aðkasti Alþýðu-
blaðsins fyrir það, að eigi hgfir
upplýzt um þessi mannhvörf.
En vissulega er henni minna en
enginn greiði gerður með slík-
um málflutningi, þar sem menn
munu líka freistast til að halda,
að þessar upplýsingar séu frá
henni komnar.
Harmur þess fólks, sem misst
hefir ástvini sína með dular-
fullum hætti, er vissulega nógu
mikill, þótt ekki sé aukið á hann
með órökstuddum blaðafullyrð-
ingum um, að þeir hafi haft á-
stæðu til að fyrirfara sér. Slík
framkoma er vissulega sorp-
blaðeinennska á hæsta stigi og
mætti mikið vera, ef lögin veittu
ekki vernd gegn jafn einstæð-
um níðingsskap.
Geta engir svindlað
nema bændur?
Þess var nýlega getið i Tíman-
um, að smjörráðstafanir stjórn-
arinnar gætu hæglega leitt til
þeirrar svindlstarfsemi, að
ameríska smjörið yrði keypt við
lága verðinu og síðan selt aftur
sem íslenzkt smjör með háa
verðinu.
Mbl. hefir nýlega birt þá at-
hugasemd við þetta, að Tíminn
sé hér að brigzla bændum um
svindlstarfsemi. Mbl. virðist
þannig ekki koma til hugar, að
neinir aðrir menn í þessu landi
geti fengizt við svindlstarfsemi
en bændur. Svo mikil er and-
úð þess gegn bændastéttinni,
að það getur ekki hugsað sér
svindlstarfsemi í sambandi við
aðra en bændastéttina
Morgunblaðið hefir hér af-
hjúpað hugarfar sitt til bænda-
stéttarinnar á þann hátt, að
því mun vafalaust veitt verð-
skulduð athygli í sveitum lands-
ins.
Útbrelðið Tírnaun!
(Framhald af 5. síðu)
Um skeið þótti mikil hætta
á, að eldurinn læsti sig í hús
Stefáns, ef vindstaða breyttist.
Var snjó hlaðið að því horni
þess, sem næst var eldinum, og
sömuleiðis að gafli leikfimihúss-
ins. En norðankul var, og það
hélzt. Einnig var norðurgafl
skólahússins svo nærri íbúðar-
húsi Stefáns, . að af því gat
hætta stafað, ef hann félli í þá
átt. En svo varð ekki.
Tjón af eldinum varð mikið,
auk sjálfrar byggingarinnar.
Einkum fórst þar mikið af bók-
um, sem skólameistari og kenn-
arar áttu, auk nokkurs af bóka-
kosti skólans, og dýrmæt hand-
rit, sem Ólafur Davíðsson hafði
undir höndum, sum eign hans,
önnur lánsgripir.
Það vitnaðist aldrei, hver
upptök eldurinn átti. Líkleg-
ast þótti þó, að kviknað hefði
út frá ofnpípu uppi á efsta loft-
inu. Svo mikið var víst, að það-
an breiddist hann út.
Nóttina eftir brunann voru
fjórir piltar látnir vaka yfir
rústunum, því að enn var mik-
ill eldur í þeim, og aðfaranótt
mánudagsins vöktu tveir. Um
hádegi á mánudag rauk enn úr
þeim, en mjög var þá tekið að
minnka um eldsneytið.
Eins og gefur að skilja, urðu
það hin mestu vandræði að
koma piltunum og öðru fólki,
er húsnæðislaust varð á staðn-
um, í einhvern dvalarstað. En
ekki þótti annað fært en að
gefa piltunum, sem voru að
ljúka námi, kost á því að taka
próf. Varð það því úr, að þeir
hreiðruðu um sig.á kirkj ulofti.
En kaldsöm mun sú vist hafa
verið, enda voru stórhríðar og
grimmdarfrost hina næstu daga.
Veiktust jafnvel sumir, og voru
þá þeir, er veikbyggðir þóttu,
fluttir í hús Stefáns til dvalar
þar.
Þannig lauk sögu Möðruvalla-
skólans. Hann var ekki endur-
reistur á sama stað. Arftaki hans
var gagnfræðaskólinn á Akur-
eyri, síðar menntaskóli Norður-
lands.
Rödd iTlfúðarinnar
(Framhald af 4. síðu) 1
hvað sízt þakkir skilið fyrir sinn
mikla skerf, sem þeir hafa lagt
fram, til þess að tengiliður ung-
mennafélaganna, U. M. F. í.,
megi verða sem styrkust stoð í
sameiginlegri baráttu allra ung-
mennafélaga fyrir hugsjóna-
málum íslenzkrar æsku. U. M.
F. í. mun því hér eftir, sem hing-
að til, velja til forustu þá menn,
sem það ber mest traust til, án
tillits til þess, hvar þeir eru bú-
settir á landinu eða hverjar
stjórnmálaskoðanir þeir aðhyll-
ast.
Allir sannir ungmennafélagar
munu láta það lítt á sig fá, þótt
blaðasnápar í höfuðstað lands-
ins geri sér það til dundurs að
Guðrún A. Símonarson
Sópran
S0NGSKEMMTUN
í Gamla Bíó næstjiomandi þriðjudag, 20. marz, kl. liy3
síðdegis.
Þórarinn Guðniundsson, Fritz Wcisshappel
ofí Þórhallur Árnason
aðstoða.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzl. Sigfúsar Eymundssonar
og Hljóðfærahúsinu.
Byfigingarsamvinnufélai/ Reyhjjavíkur
Húsíði Hríngbraut 208
er til sölu.
Félagsmenn hafa forkaupsrétt samkvæmt félagslögunum.
Þeir, sem hafa í hyggju að kaupa húsið, sendi stjórn félagsins
skriflega umsókn fyrir 18. marz n. k.
Nánari upplýsingar gefur gjaldkeri félagsins, Elías Halldórs-
son, skrifstofustjóri í Fiskiveiðasjóði íslands. — Sími 1072.
STJÓRNIN.
J árniðnaðar próf
Þeir nemar, sem ekki hafa enn skilað umsóknum og
skilríkjum varðandi próf í járniðnaði; eirsmíði, járn-
smíði (eldsmíði), málmsteypu, rennismíði, plötu- og ketil-
smíði, vélvirkjun og auk þess mótasmíði, skili þeim fyrir
17. þ. m. til undirritaðs.
Prófið hefst fyrri hluta næsta mánaðar.
Ásgeir Signrðsson,
. ‘ m
forstjóri Landssmiðjunnar.
Jörð tíl ábúðar eða sölu
Jörðin Reykjar II í Mjóafirði Suður-Múlasýslu, er laus til á-
búðar í næstu fardögum.
Sala gæti komið til greina.
Allar upplýsingar hjá undirrituðum
Hans G. Wium, Mjóafirði
og Gisla G. Wiuin, Yestmannaeyjum.
skrifa lymskublandna grein um
núverandi sambandsstjórn. —
Ungmennafélagar þekkja alla
þá mætu menn, sem skipa sam-
bandsstjórnina og ómerkileg
blaðagrein mun ekki spilla því
trausti, sem ungmennafélagar
bera til þeirra. Þeir hafa sýnt
fullkominn áhuga fyrir hugsjón-
um ungmennafélagana og verð-
skulda virðingu og traust allra
þeirra, sem meta störf og stefnu
„vormanna íslands“„
Ólafur H. Guðmundsson.
Beztu alúðarþakkir minar flyt ég hér með öllum þeim
fjœr og ncer, sem bæði með mjög rausnarlegum gjöfum
og á annan hátt réttu mér hjálparhönd í vetur, þegar
bœrinn mínn var brunninn og við hjónín stóðum slypp á
vetrarhjarninu. — Guð launi ykkur öllum af ríkidómi
sinnar náðar, þegar ykkur liggur mest á.
MAGNÚS GUÐJÓNSSON, Grafarkoti
Tilkynning
Hárgreiðslustofau L IIV D E S,
0
Tjarnargötu 11, tilkynnir, að Auður I. Vigfúsdóttir
hefir keypt að hálfu hárgreiðslustofuna. Hér eftir
verður stofunni stjórnað af Auði I. Vlgfúsdóttur.
Virðingarfyllst.
F. h. dánarbús Önnu Karlsdóttur.
Karl Einarsson.
K A U P U M
tóinar flöskur
móttaka í Nýborgf
Til sölu á sama stað
ódýrír trékassar
r
ASengisverzlun ríkisíns.
Nokkrar byggingarlóðir verða mældar út til leigu nú í
vor á þessum stöðum:
1) í Kleppsholti, neðan við Efstasund.
. 2) Við Hraunteig, Kirkjuteig og fleiri fyrirhugaða
vegi vestan Reykjavegar.
3) í Norðurmýri, sunnan Miklubrautar.
Þeir, sem óska að koma til greina við úthlutun lóð-
anna, geta fengið nánari upplýsingar hjá Þór Sand-
holt arkitekt, bæj arverkfræðingaskrifstofunni, aðeins
fyrir hádegi virka daga. Fyrirspurnum er ekki unnt að
svara á öðrum tímum.
Umsóknarfrestur um lóðirnar til loka marzmánaðar.
BÆJARYERKFRÆÐHVGIJR