Tíminn - 10.07.1945, Side 1

Tíminn - 10.07.1945, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON. ÚTGEPFANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. Símar 2353" oe 4373. PRENTSMIÐJAN EDDA h.í. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9A. Símar 2353 oe 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI,* Llndargötu 9A. Síml 2323. 29. árg. Rcykjavík, þriðjudagiun 10. júli 1945 51. blað % Esjuiarþegar segja íréttir frá Norðurlöndum Viðtal við Hjalta Gestsson, Ólaf Eiríksson og Rögnvald Þorláksson Flestir þeirra, sem komu meff Esju, hafa meira og minna merkilegar frásagnir aff segja frá dvöl sinni á meginlandi Ev- rópu á styrjaldarárunum. Tíffindamanni Tímans tókst í gær aff ná tali af þremur þeirra, Hjalta Gestssyni frá Hæli í Árnessýslu, Ólafi Eiríkssyni frá Reykjavík og Rögnvaldi Þorlákssyni bygg- ingaverkfræffing frá Reykjavík. Fara frásagnir þeirra hér á eftir, en þess ber aff gæta, aff þær eru ófullkomnari en skyldi, þar sem um nauman vifftalstíma var að ræða í öll skiptin. Er kommúni&tísk ógnaröld að heljast? Stjórnarandstæðingum ógnað með brottrekstri úr opínberum embættum Hjaltí Gestsson segir frá. Hjalti Gestsson frá Hæli kom heim með Esju með konu og barn eftir 7 ára dvöl í Dan- mörku. Hann lauk búfræði- kantidatsprófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1943; en hefir síðan unnið, sem aðstoð- arkennari við sama skóla. Tíð- indamaður blaðsins hefir átt tal við hann og skýrir hann þannig frá ástandinu í Danmörku á her- námsárunum: — Fólki hefir yfirleitt liðið vel og haft nóg af öllu því nauðsyn- legasta, þ. e. a. s. til að borða. En skortur hefir verið mikill á fatnaði og það litla, sem fengizt hefir, verið svo dýrt, að almenn- ingur hefir varla getað keypt það. Ýmsar fatnaðarvörur o. fl. hefir verið ófáanlegt með öllu. Næstum allt er skammtað og það tekur langan tíma að ná í vörurnar úr búðunum, því bið- raðirnar éru oft langar. Þannig er það yfirleitt með öll viðskipti. Ástandið í landinu á hernáms- tímanum hefir verið mjög alvar- legt. Morð og dráp vóru algengir viðburðir.. Fólk hefir fyllzt miklu hatri til Þjóðverja, enda hafa þeir komið grimmdarlega fram, einkum þó Gestapomenn- irnir. Þeir höfðu sér til aðstoðar danska föðurlandssvikara, sem njósnuðu um landa sína og starfsemi mótstöðuhreyfingar- innar. Þeir bentu Þjóðverjum á þá brotlegu og voru þeir þá teknir og hnepptir í fangabúðir og oftast beittir pyndingum. Á kvöldin var fólk sem minnst Fundahöld um helgina Þrír stjórnmálafundir voru haldnir um seinustu Þelgi. Framsóknarmenn héldu fundi á Skagaströnd og Hofsós og ríkis- stjórnin á Blönduósi. Á fundinum á Skagaströnd mætti séra Sveinbjörn Högna- son af hálfu Framsóknarflokks- ins, en Jón Pálmason af hálfu stjórnarsinna. Fundurinn stóð í 4—5 klst. og var Jón orðinn illa leikinn eftir þá viðureign. Fund- inn sóttu hátt á annað hundrað manns. A fundinum á Hofscfc mættu Steingrímur Steinþórssonv og Sigurður Þórðarson af hálfu Framsóknarflokksins, en enginn af hálfu stjórnarinnar. Fundinn sóttu um 60—70 manns. Á Blönduósi mætti séra Svein- björn Högnason af hálfu Fram- sóknarmanna, en Jón Pálmason, Áki Jakobsson og Friðfinnur Ól- afsson af hálfu stjórnarliðsins. Fundinn sóttu um 200 manns. Stjórnarliðið ber sig illa eftir fundinn. Framsóknarflokkurinn hafði boðað ,til fundar í Búðardal á laugardaginn, en hann féll nið- ur. Höfðu þau mistök orðið við boðun fundarins, að þess hafði ekki verið gætt, að ýmsir inn- ansveitarfundir voru á sama tíma, m. a. manntalsþing, þar sem þingmaður kjördæmisins þurfti að mæta. á ferli, því þá gat það jafnvel átt það á hættu'að verða skotið. Þegar mótspyrnuhreyfingin framdi hefndarverk, átti Ge- stapo það til að skjóta einhverja af handahófi á sama stað kvöld- ið eftir. Þá sló oft í bardaga milli Dana og Þjóðverja. í frels- isþernum i Kaupmannahöfn voru um 16 þús. manns, þegar Þjóðverjar gáfust upp. Það var eins og gefur að skilja, mjög hættulegt, að taka svo virkan þátt í mótstöðuhreyfingunni. Þegar uppgjöfin kom, var farið að þrengja mjög að fólki og hefði orðið hungursneyð í Danmörku, hefði stríðið^ staðið mikið lengur. Fangelsanir Þjóðverja voru mjög illræmdar, og meðferð fanganna hræðileg. Einn kunn- ingi minn var tekinn fastur nokkrum vikum áður en Þjóð- verjar gáfust upp. Hann hafði rekið veitingastofu og danskir föðurlandsvinir höfðu haft að- setur hjá honum þar. Það munu Þjóðverjar hafa fengið vitn- eskju um frá dönskum föður- landssvikara. En hins vegar var aldrei hægt að sanna neitt á hann. Þegar hann kom úr fang- elsinu, er striðihu lauk, var hann illa til reika. Hann var beittur pyndingum, svo að hann mundi aðeins eftir fyrstu þremur yfir- heyrslunum. Báðir kjálkar hans voru brotnir og nýrun voru laus. Hann verður aldrei samur mað- ur aftur. Danska þjóðin er nú óþekkj- anleg frá því fyrir stríð. Kaup- mannahöfn er ekki lengur gleði- bær. Þar er nú talsverð ringul- reið á ýmsu. Skæruliðar aka bíl- um um göturnar og leita að föðurlandssvikurum. Stundum eru slíkir menn handsamaðir, en stundum verða líka saklausir menn fyrir þessum handtökum. En það er bezt að tala sem minnst um það. Skemmtanalíf hefir svo að segja legið niðri. Skemmtistöðum hefir verið lok- að snemma á kvöldin og spor- vagnar hætt ferðum kl. 9. Nú erum við komin heim, og það er það, sem við höfum lengi þráð. Með skipinu koma fjórir búfræðingar frá K.höfn og 2 frá Noregi og Svíþjóð. Flestir okkar hafa lagt stund á ýmsar sér- greinar og starfað ytra eftir að náminu lauk. Til þess að vera í sem nánustu sambandi við ís- lenzkan landbúnað, þrátt fyrir einangrunina, höfum við starf- rækt ísl. búnaðarfélag i Höfn og haldið fundi einu sinni í mánuði og rætt ísl. landbún- aðarmál. í félaginu voru 16 með- limir og gáfúm við út blað um ísl. landbúnað. Það komu ekki út mörg tölublöð af blaðinu og upplagið var lítið. En sem sagt, nú erum við bráðlega komnir í lífrænt sámband við íslenzkan landbúnað. Eitt er það þó, sem skyggir á gleðina við heimkomuna, og það ei; hiri skjótráðna handtaka hinna 5 farþega, er handteknir voru, eftir að skipinu hafði verið sleppt af dönskum yfirvöldum. Það var sorglegt að sjá þessa menn, er þekktir voru að öllu góðu, tekna frá konum sínum og börnum. (Framhald á 8. slðu) FRÁ KOMV ESJF KX 4* ^ //// ' ? HlPSrJftJj/ / i Ví! Þjéðvíljinn boðar „hreínsun“, sem kommnnístar munu þegar hafa undirbúið í skólunum Þaff kemur greinilega fram í forustugrein Þjóffviljans síffastl. laugardag, aff kommúnistar vilja láta hefja skipulagða ofsókn gegn öllum þeim opinberum starfsmönnum, sem ekki eru fylgi- spakir ríkisstjórninni. Fyrirætlun þeirra er aff búnar verffi til tyllisakir gegn þessum mönnum og þeir síðan flæmdir úr störfum effa m. ö. o., aff hér verffi framkvæmd svipuff „hreinsun“ og þar sem kommúnistar hafa komizt til valda. Meðal þeirra Sjálfstæff- ismanna, sem áffur fylgdu nazistum, er einnig mikill áhugi fyrir þessu, eins og ljóst kom fram í Morgunbl.-greinunum um hunda- þúfuna og Kengálu. Forustugreiri þ. m. nefnist: embættismenn skipulagsbundin í þjófffélaginu?“ Þjóðviljans 7. „Vinna sumir Framsóknar skemmdarstörf í grein þessari Ljósm. Fr. Klausen. Á myndinni sést nokkur hluti af mannfjöldanum er safnazt hafði saman á hafnarbakkanum til að fagna komu skipsins. — Myndin er tekin um borð í Esju, áður en farþegar fóru að fara í land. w Þúsundir manna íögnuðu Esjuíarþegunum Handtaka flmin farþega settí þó skug’ga á föguuSSInii. Sjaldan hefir meiri mannfjöldi sézt hér saman kominn en þegar Esja lagffist aff hafnarbakkanum í gærmorgun. Mannfjöld- inn mun hafa skipt mörgum þúsundum. Sjaldan mun heldur hafa sést meiri gleffibragur á fólki, þótt allt færi rólega og hávaffalaust fram. íslendingar, sem voru aff koma heim, gátu séð og fundiff þaff glöggt, aff þeim var ekki affeins fagnað af ættingjum og vinum, heldur allri þjóffinni. Þaff mun líka áreiffan- leg ósk þjóffarinnar, aff þessi hópur eigi enn eftir aff stækka og allir þeir, sem heim koma, kunni vel viff sig og fái fullnægt starfslöngun sinni, en sú þrá mun áreiffanlega ríkust í hugum þeirra, sem komnir eru til vits og ára. Esja kom á ytri höfnina kl. 8 um morguninn. Hafði hún farið rólega frá Vestmannaeyjum, en hún var stödd nálægt eyjunum, þegar útvarpað var frá henni á sunnudagskvöldið. ’Á ytri höfn- inni lá hún í nær tvo tíma, en upp að Sprengisandi lagðist hún um tíu leytið. Klukkan var ekki orðin 8 þeg- ar fólk fór að tínast niður að höfn, til þess að tryggja sér góð- an stað. Þagar klukkan var orðin níu, skipti mannfjöldinn þús- undum og kl. 10 var hafnarbakk- inn og' öll nærliggjandi stræti orðin yfirfull af fólki. Þeir sem voru svo heppnir, að hafa miða, sem leyfði þeim að fara niður á Sprengisand, höfðú beztu að- stöðuna, en mörg hundruð kom- úst upp á vörugeymslu- og skrif- stofuhúsin við höfnina og hver gluggi i þeim var þéttskipaður fólki. Kl. 9 y2 hófst útvarp, sem lýsti (Framhald á 8. síðu) Vorhátíð Framsókn- armanna Vorhátíð Framsóknarmanna var haldin að Reykjaskóla í Hrútafirði síðastl. sunnudag. Á skemmtuninni fluttu ræður alþingismennirnir Hermann Jónasson og Skúli Guðmunds- son. Auk þess var til skemmt- unar kvikmyndasýning, ein- söngur og dans. Skemmtunin var mjög fjölsótt og fór í alla staði hið bezta fram. segir m. a. á þeass leið: „íslendingar eiga bágt meff aff trúa því, aff nokkrir embættis-^ menn hins opinbera vildu verffa til þess aff vinna beinlínis skemmdarstörf gagnvart al- , menningi. Menn hafa í lengstu j lög viljaff koma sér hjá því aff j trúa því, aff flokksofstæki gæti j leitt menn svo langt aff valda j þjófffélaginu beinlínis skaffa ineff þessháttar aðferffum. En hvaff eiga menn aff halda? Sífellt fjölgar þeim kærum, sem berast á hendur ofstækis- fullum Framsóknarembættis- mönnum, sem sitja í trúnaffar- stöffum þjóðfélagsins .... Þegar þessar ákærur á hend- ur Framsóknarleiðtogum í trún- affarstöffum ríkisins bætast ofan á grunsamleg eða dularfull fyr- irbrigði af hálfu málsmetandi Framsóknarmanna í öffrum stofnunum, þá er ekki nema von að almenningur spyrji, hvort engin takmörk séu fyrir því, hvaff Framsóknarlegátum geti haldizt uppi. — Vitaff er, aff margir heiffarlegir Framsóknar- menn eru í embættiskerfi ríkis- ins og mun ekki laust viff, aff hinir hatrömmu foringjar Framsóknar hafi horn í síffu slíkra. Sökum þess aff þessir of- stækisfullu leifftogar hafi hugs- aff sér að nota einmitt ítök sín í ríkiskerfinu til þess aff spilla fyrir ríkisstjórninni og fram- gangi áhugamála hennar. Þaff er nauffsynlegt aff taka suma Framsóknarpeijana undir smásjá almennings og jafnvel rannsókn af hálfu ríkisstjórnar- innar“. Þessi ummæli Þjóðviljans lýsa eins vel og verða má fyrirætl- unum kommúnista. Það á að hefja herferð gegn stjórn- arandstæðingum í opinberum störfum með rógsögum og tylli- sökum, flæma þá úr embættum og setja byltingalýð stjórnar- liðsins í þau í staðinn. Það er sama aðferðin og kommúnistar hafa notað í Balkanlöndunum, þar sem foringjar lýðræðisflokk- anna og forustumenn mót- spyrnunnar gegn nazistum hafa verið ofsóttir, fangelsaðir og myrtir undir því yfirskyni, að þeir væru nazistar. Þessar fyrirætlanir kommún- ista eru þegar komnar það langt á. veg, að ofsóknirnar munu þeg- ar hafa verið undirbúnar á þeim vettvangi, þar sem kommúnistar eru valdamestir, þ. e. á sviði skólamálanna. Þar eiga þær að beinast gegn Pálma Hannes- syni rektor, Bjarna Bjarnasyni skólastjóra, Jóhanni Frímanni skólastjóra, Þorsteini M. Jóns- syni skólastjóra og fleirum kunnum Framsóknarmönnum. Þá á einnig að hefja sókn gegn skólamönnum, sem ekki eru sagðir nógu mikið fylgjandi stjórninni, þótt ekki séu þeir Framsóknarmenn, og má þar m. a. nefna Sigurð Guðmundsson skólameistara, Freystein Gunn- arsson skólastjóra og Hannibal Valdimarsson skólastjóra. Þá er einnig í undirbúningi herferð gegn forstjórum nokk- urra ríkisstofna og eru þar eink- um tilnefndir Jón ívarsson, Guð- brandur Magnússon og Sigurður Jónasson. Sigurður er í Alþýðu- flokknum, en er ekki talinn nógu hlynntur stjórninni. Kommún- istar leggja sérstaka áherzlu á að nauðsynlegt, sé að reka Guð- brand og Sigurð, þar sem stjórn- in eigi líf sitt undir því, að nóg brennivín og tóbak sé flutt til landsins og selt. Kröfðust þeir þ^ss um tíma, er nokkur hörgull var á vissum víntegundum, að Guðbrandur yrði rekinn, því að hann hefði látið áfengið vanta af ásettu ráði, til að gera stjórn- inni óhægt fyrir! Sérstökum mönnum mun hafa verið falið að athuga málið og munu þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að vínskorturin-n hafi ekki verið Guðbrandi að kenna! Innan Sjálfstæðisflokksins njóta þessar fyrirætlanir öflugs stuðnings þeirra, sem áður voru nazistar, eins og líka kom skýrt fram i Kengálugreininni svo- nefndu, en höfundur hennar var brenriheitur nazisti um eitt skeið. Reynist það hér sem oft- ar, að kommúnistar og nazistar eiga samleið, þegar um það er að ræða að beita rangindum, illmennsku og ofbeldi. Fyrir þjóðina er vissulega rétt að vera vel á verði gegn þeim starfsháttum, sem hér eru í und- irbúningi. Þeir snerta ekki fyrst og fremst þá menn, sem hinum lognu ásökunum og ofsóknúm verður beint gegn, heldur þau mannréttindi, sem lýðfrjálst þjóðfélag byggist á, rétt manna til að hafa aðrar skoðanir en þær, sem eru þóknarlegar vald- höfunum á hverjum tíma. Þess vegna þarf þjóðin þegar að rísa gegn þessum ofbeldisfyrirætlun- um nokkurs hluta stjórnarliðs- ins og það svo öfluglega, að það treystist ekki til að láta þær sjá dagsins ljós, nema þá í glósum og dylgjum Þjóðviljans. t HAG birtist á 3, síSu grein eftir Bern- harð Stefánsson, er nefnist „Áttayilla“ Jóns Pálmasónar. Neðanmáls á 3. og 4. síffu er grein um ástandið í þeim hluta Evrópu, er Rússar ráffa yfir, eft- ir Douglas Reed.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.