Tíminn - 10.07.1945, Page 4

Tíminn - 10.07.1945, Page 4
I TÍMIM, þriðjBdagiim 10. júlí 1945 Stórstúkan tekur upp baráttu fyrír banni á ínnflutningí og solu á áfengi • / Frá þin^i Stórstúku íslands Þing Stórstuku íslands, hið 45. í röðinni, var nýlega háð í Reykjavík og hófst fimmtudag- inn 21. júní. Templarar söfnuðust saman í Góðtemplarahúsinu kl. 1.30 og var svo gengið þaðan fylktu liði suður í Príkirkju.— Þar pré- dikaði séra Árelíus Níelsson, en séra Árni Sigurðsson þjónaði fyrir altari. Messunni var út- varpað. Síðan var aftur haldið til Góðtemplarahússins og fór þar fram hátíðleg viðhöfn áður en þingið var sett. Var þar vígðúr nýr silkifáni, sem Stórstúkan hefir eignazt. Söng Templara- kórinn á undan og eftlr, en séra Árni Sigurðsson vígði fánann með ræðu. Fánann hefir frú Unnur Ólafsdóttir gert af al- kunnri snilld sinni. Þingið sátu 88 fulltrúar frá 15 barnastúkur, 34 undirstúkum, 4 þingstúkum og 3 umdæmisstúk- um. 20 karlar og konur tóku Stór- stúkustig. Samþykkt var að senda prestastefnunni skeyti og enn- fremur Hátemplar Oscar Olsen, sem setið hefir i hátemplara- sæti síðan fyrir stríð. En á stríðsárunum hefir öll samvinna Templara í hinum ýmsu löndum truflazt og yfirstjórn Reglunn- ar eigi getað náð til hinna ýmsu deilda. Þó hafa borizt kveðjur og skilaboð milli Tátemplars og Reglunnar á íslandi, en annars hafa íslenzkir Templarar eigi haft samband við félagsdeildir annars staðar en í .Bandaríkj- unum, síðan stríðið hófst. Kosin var sérstök 5 manna nefnd til þess að ganga á fund ríkisstjórnarinnar og ræða við hana um áfengismál. Þá var útbýtt skýslum emb- ættismanna Stórstúkunnar. Sést í þeim, að í Reglunni eru nú 10138 félagar, eldri og yngri, og . hefir þeim fjölgað talsvert á árinu sem leið. Tekjur Stórstúk- unnar urðu á árinu krónur 75.491,66, þar af skattur frá undirstúkum kr. 11.883,65/ en gjafir frá einstökum Templur- ufti og stúkum o. fl. kr. 8.728,66. Reglan rekur nú mjög fjöl- breytta starfsemi við hliðina á bindindisstarfinu. Hún rekur bókaverzlun og gefur út barna- blaðið Æskuna, blöðin Eining og Reginn. Hún rekur gesta- og | sjómannaheimili á Siglufirði.' SUmarheimili fyrir börn er á | uppsiglingu. Á Jaðri, landnámi Templara, hafa stórkostlegar framkvæmdir verið gerðar í sjálfboðavinnu, skemmtifélag (S.G.T ) heldur uppi heilbrigðu skemmtanalífi hér í höfuðstaðn- 1 um, Leikfélag Templara er jstarfandi sér, og einnig Söng- kór (blandaður kór). Auk þess stendur Reglan í húiabygg- 1 ingum fyrir stúkur úti á landi. Þinginu var slitið sunnudag- ; inn 24. júni, á afmælisdegi Stór- 1 stúkunnar. Meðal tillagna, sem það samþykkti, voru eftirfar- andi: Áfengisbann. „Fertugasta og fimmta þing Stórstúku íslands lítur svo á, að áfengisneyzla landsmanna sé orðið sjúklegt fyrirbæri, sem, þrátt fyrir alla fræðslu og bind- indisstarfsemi bæði Reglunnar og annarra bindindismanna í landinu, ágerist stöðugt, qg á- fengissala ríkisins sé sá smán- arblettur á menningu þjóðar- innar, að þessu verði ekki unað, og þar sem komið hafa fram fjöl margar áskoranir frá umdæm- isstúkunum bæði sunnanlands og norðan, fjölmennum einstök- um stúkum, bæjarstjórnum og ýmsum fúndum og félagasam- tökum manna, er allar krefjast skjótra og markvissra aðgerða, þá leynir það sér ekki, að það er vilji mikils hluta landsmanna að reistar verði skorður hið allra bráðasta gegn þessum þjóðar- voða, sem áfengisneyzla og sala áfengra drykkja er orðin. Stórstúka íslands samþykkir því; 1. Að taka upp markvissa, á- kveðna og skipulagða baráttu fyrir algeru banni á innflutn- ingi og sölu alls áfengis. 2. Að krefjast þess, að sú undanþága frá áfengislöggj qí þjóðarinnar, er leyfi tilbúning áfengra drykkja og sölu að ein- hverju leyti, sé tafarlaust num- in úr gildi. 3. Að krefjast' þess, að stjórn- arvöld landsins láti lögin um héraðabönn koma tafarlaust til framkvæmda. 4. Aþ það sé rækilega brýnt fyrir templurum á öllum stig- um Reglunnar að vinna ein- dregið að því, að komizt geti á sem allra fyrst algert áfengis- bann I landinu. 5. Unnið verði að því frá Reglunar hálfu, að sameina alla þá. krafta utanreglumanna í landinu, sem fáanlegir eru, til markvissrar samvinnu um al- gert áfengisbann. 6. Að krefjast þess af syórn- arvöldum landsins, 1) að komið verði tafarlaust og algerlega í veg fyrir allar áfengisveitingar á félagssamkomum og öllum almennum mannfundum og skemí*itunum, 2) að allir emb- ættismenn þjóðarinnar setji hið ákjósanlegasta fordæmi um reglusemi í hvívetna og skyldu- rækni til viðhalds góðum siðum í landinu, og að alvarleg brot gegn slíku varði embættismissi.“ Lög um ofdrykkjumenn. „Stórstúkan ályktar að fela framkvæmdanefnd sinni að láta athuga- gildandi löggjöf áhrær- andi ofdrykkjumenn, og beita sér fyrir umbótum á þeirri lög- gjöf, einkum til verndar fjöl- skyldum drykkjumanna og þeim til hjálpar." Áfengisveitingar á skemmtunum. „Stórstúkan beinir því til framkvæmdanefndar sinnar, að hún leiti eftir að ná samvinnú við félög og félagasambönd í1 landinu, um að þau leyfi ekki j áfengisneyzlu á skemmtunum sínum og samkomum.“ Kvikmyndásýningar. „Stórstúkuþingið beinir þvi til framkvæmdanefndar, að hún hlutist til um við eftirlitsmenn kvikmyndasýninga, að börnum og unglingum sé ekki leyfður aðgangur að þeim kvikmynda- sýningum, sem sýna og reka á- fengisáróður. Stórstúkuþingið beinir því til framkvæmdanefndar að beita sér fyrir sameiginlegum fræðslufundum með þeim félög- um í hverju byggðarlagi, sem vinna að bindindismálum eða eru hlynnt þeim.“ Bindindismálasýning. „Stórstúkuþingið lýsir ánægju sinni yfir bindindismálasýning- unni, sem Kaldin var s. 1. vetur pg þar sem séð er, að hún hefir gefið góða raun, ályktar Stór- stúkan að fela framkvæmda- nefnd sinni undirbúning ann- arrar bindindismálasýningar, sem haldin sé á þessu Stór- stúkuári eða því næsta eftir þvi, sem ástæður leyfa. Skal í því sambandi leitað samstarfs við þau félagakerfi, er ásamt Stór- stúkunni stóðu að síðustu sýn- ingu.“ Á þinginu var skipuð fimm manna nefnd til þes að fara á fund útvarpsráðs og ræða við það um útvarp í þágu Reglunnar og bindindismálsins. Þingið sendi Gísla Sigur- björnssyni, forstjóra Elliheim- ilisins, þakkarskeyti fyrir ágæta samvinnu, hugkvæmni og dugn- að við að koma á fót bindindis- málasýningunni. Kosnir voru tveir fulltrúar til Hástúkuþings, þeir Kristinn Stefánsson stórtemplar og Jón Árnason, umboðsmaður Há- templars. 'í’il vara Brynleifur Tobíasson fyrrv. stórtemplar og Friðrik Ásmundsson Brekkan fyrrv. stórtemplar. Framkvæmdanefndin var að mestu endurkosin og er þannig skipuð næsta stórstúkuár: Ötórteplar: Kristinn Stefáns- son. Stórkanzlari: Árni Óla. Stórvarate^jiplar: Þóranna Sím- onardóttir/Stórritari: Jóh. Ögm. Oddsson. Stórgjaldkeri: Jón Magnússon. Stórgæzlumaður unglingastarfs: Hannes J.Magn- ússon. Stórgæzlumaður löggjaf- arstarfs: Pétur Zóphóníasson. Stórfræðslustjóri: Eiríkur Sig- urðsson. Stórkapelán: Sigfús Sigurhjartarson. Stórfregnrit- ari: Gísli Sigurgeirsson. Fyrrver- andi Stórtemplar: Friðrik Á. Brekkan. — Aðrir embættis- menn.: St.söngstj.: Jónas Tóm- asson og Friðrik Hjartar. St.- aðst.rit.: Jens E. Níelsson. St.drótts.: Sigríður Halldórs- dóttir. St.aðst.drótts.: Charlotta Albertsdóttir. St.vörður: Guðjón Magnússon. St.útvörður: Run- ólfur Runólfsson. St.sendib.: Bjarni Kjartansson. Umboðs- maður Hátemplars er Jón Kjart- (Framhald á 7. siðu) Þetta stranga eftirlit var af- sakað með þessari fögru afsök- un: „Við verðum að sameinast um að vinna stríðið“ — ályktun, /sem hefir reynzt röng, því ef sigurinn er unninn, þá er ekki hægt að merkja þann árangur, sem vonazt var eftir. Því hvað er að gerast í myrkv- uninni? Það er þetta, sem er að gerast þar: Alls staðar hefir kommúnist- iskum stjórnum verið komið á, sem ekki myndu standa stund- inni lengur.ef frjálsar kosningar mættu fara fram. Þá myndi þeim verða sópað burt eins og stráum í stórflóði. Vald sitt byggja þessar stjórnir á þvi, að beita sama vopni og nazistar: kúguninni. Leynilögregla og >vstormsveitir“ vinna margs kon- ar hryðjuverk, fólk er handtek- ið, hneppt í fangabúðir, flutt í útlegð eða drepið án dóms og laga, eða samkvæiút úrskurði málamyndardómstóla. Þessir nýju ofsóknarar bera jafnvel nazistisk nöfn, svo sem „þjóðar- dómstóll“. Enginn maður hefir skrifað meira um grimmd nazista en ég. Enginn hefir hamrað lengur á því, að nauðsynlegt myndi verða að hegna þeim, til þess að forða Þýzkalandi frá fleiri styrjöld- um. Ég hefi rætt um þetta í tólf ár. í rúm ellefu ár af þessum tíma létu þeir, sem nú blása sig mest út af gremju yfir grimmd nazista, ekkpt til sín heyra. En hegningin fyrir glæpi naz- istanna mun verða helber skrípaleikur, ef aðrir taka við að þeim dauðum og fremja ná- kvæmlega sömu glæpina óáreitt- ir — og er jafnvel hampað fyrir að fremja þá. Þetta er það, sem nú er að gerast. Við höfum séð það í hvert skípti og alls staðar, þar sem sést hefir í gegnum myrkv- unina — t. d. í Grikklandi og Trieste. Hliðstæðar fangabúðir. Pyndinga-fangabúðír Elas- manna við Athenu og í nazista Þýzkalandi, eru (nákvæmlega samskonar fyrirbrigði. Menn hafa verið teknir og bundnir og skotnir, þótt þeir væru jafn meinlitlir og saklausir og þeir voru varnarlitlir. í Trieste gengur ekki á öðru en ránum og skotum. Menn eru látnir „hverfa“, og Tito-sinnar kveðja til þjónustu fólk, sem þeir hafa ekki minnsta rétt til að gefa fyrirskipanir. Þetta er alveg eins og nazistar séu að verki. Stúlka, sem er skæruliði, gengur drembilega um með skammbyssu í höndunum. Hún or samdauna hinum nazistisku kvenskörungum. Ég hefi talað við brezka hermenn, sem eru hrelldir af að sjá svo dýrslegan æskulýð. Búlgarski herinn, — sem fyr- ir nokkru síðan myrti brezka fanga og auk þess er þekktur um allan Balkanskaga fyrir grimmd sína — gengur nú sigurgöngu með hinum „frelsandi herjum“ inn í Austurríki! Við fengum vitneskju um þetta einungis vegna þess, að það gerðist á takmörkum hins myrkvaða og bjarta hluta Ev- rópu, og brezkir hermenn og fréttaritarar' sáu það. Við feng- um vitneskju um handtöku hinnar pólsku sendinefndar ein- göngu vegna þess, að fréttirnar smugu gegnum myrkurhjúpinn. Gerfi-Ieiðt,ogar í myrkrinu. Alls staðar þar, sem myrkvun- in ríkir, eru hryðjuverk framin af mönnum, sem náð hafa nokkrum metorðum, vegna þess að lýðfrelsi er ekki ríkjandi. Þessir gervi-valdamenn myndu hverfa í músaholur sínar, ef dagsljósið fengi að skína á þá, en til þess að halda völdum sín- um, beina þeir ofsóknum gegn mönnum, sem eru — þó þeir séu ekki mikið kunnir brezkum al- menningi, — mjög elskaðir og virtir leiðtogar, eins og komið hefir í ljós við kosningar í hlut- aðeigandi löndum. Þeir hafa líka allt sitt líf barizt gegn yfir- drottnun og hryðjuverkum, sér- staklega gegn yfirdrottnun Þjóðverja og hryðjuverkum brúnu. fasistanna. Til að nefna nokkur nöfn, skulu nefndir: Maniu í Rúmeníu, Matchek í Króatíu, Mikolajczyk í Póllandi og Bor, hetja Warsjárborgar. Slíkir menn eru Churchill, Loyd George og Attlee, Mont- gomery og Alexander í heima- landi sínu. í einræðisríki eru menn eins og þeir skotnir eða hnepptir í faúgelsi. Má þar til nefna, sem dæmi Mihailovitch, sem Þjóð- verjar lýstu eftir og buðu að greiða 1000 gullmörk fyrir hann, dauðan eða lifandi. Aðeins eitt blað skýrði frá þessu í Bretlandi. Churchill sagði sannleikann í þessum málum í ræðu, sem hann flutti nýlega. Hann sagði: „Á meginlandi Evrópu eigum við enn eftir að ti-yggja það, að þeim óbrotnu og æruverðu markmiðum, sem fyrir okkur vöktu, þegar við fórum í stríðið, verði ekki gleymt eða þeim ýtt til hliðar á þeim mánuðum, sem nú fara í hönd á eftir sigri okk- ar, — að orðin frelsi, lýðræði og lausn undan harðstjórnaroki verði ekki fölsuð og hinni sönnu meiningu þeirra, eins og við höf- um skilið þau, gerbreytt“. Lög verða að ráða. Churchill sagði ennfremur: „hað myndi vera til lítils að hegna Hitlerssinnum fyrir glæpi þeirra, ef lög og réttlæti ætti ekki að ráða, og ef einræðis- stjórnir og ofbeldisstjórnir ættu að taka við af hinum þýzku inn- rásarherjum.......Þjóðabanda- lag það, sem nú er verið að stofna í San Francisco má ekki verða skjól hinum sterka og ein- skisvirði lítilmagnanum“. Bretar vita ekki hvílíkur mátt- ur fylgir þessum orðum í Ev- rópu, bæði hinni myrkvuðu og björtu, sérstaklega þegar þeim er fylgt eftir með ráðstöfunum til að auka frelsi og mannrétt- indi, eins og í Bretlandi, með afnámi reglugerðarinnar 18 B, afnámi fréttaeftirlitsins og þingkosningum. Við verðum að láta skína ljós á hina myrkvuðu Evrópu. Það er kominn tími til að segja sannleikann. 51. blag Fulltrúaiundur Kvenrétt- índaíélags íslands Fulltrúaráðsfundur Kvenrétt- indafélags íslands var haldinn í Skíðaskálanum í Hveradölum 26. , og 27. júní síðastliðinn. Fundinn sátu auk miðstjórnar Kvenréttindafélagsins fulltrúar úr öllum fjórðungum landsins. Eins og kunnugt er var Kven- réttindafélag íslands, gert að landsfélagi samkvæmt samþykkt síðasta landsfundar kvenna,, sem haldinn var á Þingvöllum fyrir rúmu ári síðan. Miðstjórn kven- réttindafélagsins skipa auk stjórnar K. R. F. í. í Reykjavík fjórar konur, ein úr hverjum pólitískum flokki, búsettar í Reykjavík og þrír fulltrúar úr hverjum landsfjórðungi. Helztu mál fundarins voru: Minningar- og menningarsjóður kvenna, Samstarf kvenfélaga við K. R. F. 1, Útbreiðslumál og Hallveigarstaðir. í Minningar- og menningar- sjóð kvenna hafa þegar safnazt rúmar 25 þúsundir króna, þar af 19 þúsundir til minningar um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, sem var stofnandi sjóðsins. Hitt eru gjafir til minningar um ýmsar aðrar merkar konur. Tilgangur sjóðsins ej að vinna að menningarmálum kvenna: a) Með því að styðja konur til framhaldsmenntunar við æðri menntastofnanir, hérlendar og erlendar, með páms- og ferða- styrkj um. Ef ástæður þykja til, svo sem sérstakir hæfileikar og efna- skortur, má einnig styðja stúlk- ur til byrjunarnáms, t. d. í menntaskóla. b) Með því að styðja konur til framhaldsrannsókna að loknu námi, og til náms og ferðalaga til undirbúnings þjóð- félagslegum störfum. c) Með því að veita konum styrk til ritstarfa eða verðlauna ritgerðir, einkum um þjóðfélags- mál, er varða áhugamál kvenna. Tekjur sjóðsins eru: Dánar- og minningargjafir, Áheit og aðrar gjafir, Tekjur af ýmsri starfsemi í þágu sjóðsins. Samþykkt var að hafa einn fjársöfnunardag á ári fyrir sjóð- inn var til þess valinn 27. sept- ember, sem er fæðingardagur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Þá var og ákveðið að % af því fé, sem inn kemur með fjársöfnun, merkj asölu eða minningar- spjöldum megi þegar verja til námsstyrkja samkvæmt tilgangi sj óðsins. Sjóðnum skal fylgja sérstök bók og skal, ef óskað er, geyma í henni nöfn, myndir og helztu æviatriði þeirrra sem minnst er með minningar- eða dánargjöf- um. Æviminningar þeirrra, bréf eða ritverk, sem eftir þær liggja, lætur sjóðsstjórnin geyma á trýggum stað, t. d. í handrita- safni Landsbókasafrisins. Minn- ingarbókin skal geymd á sama stað. — Stjórn sjóðsins er skip-, uð fimm konum. Um samstarf kvenfélaga við K. R. F. í. var samþykkt þéssi tillaga: „Kvenfélög, sem taka vilja þátt í starfi félagsins, kjósi þriggja kvenna nefnd, sem starfi í sambandi við K. R. F. í.“ Á fundinum var rætt um starf þessara kvenréttindanefnda og samþykkt ályktun varðandi verksvið þeirra. Um útbreiðslumál K. R. F. í. var þetta samþykkt: Fyrirlestraferðir.. Samþykkt var að senda fyrir- lesara út um land eftir því sem fjárhagur félagsins leyfði. Var og talið'æskilegt að í sambandi við fyrirlestrana yrðu sýndar fjæðslu-kvikmyndir, t. d. um uppeldismál. Opinberir fundir. Ákveðið var að K. R. F. í. gwigist fyrir opnum fundi um réttindamál kvenna, eigi sjaldn- ar en einu sinni á ári. Útvarp. Samþykkt var eftirfarandi ályktun: „Fulltrúaráðsfundur K. R. F. í. telur mjög nauðsynlegt, að kon- ur komi oftar fram sem þátttak- endur í dágskrá útvarpsins, með fræðslu og erindi um áhugamál kvenna og skorar á útvarpsráð að leita samvinnu við samtök kvenna í þessu skyni. Verði teknir upp sérstakir kvennatím- ar, sem fastir dagskrárliðir, ósk- ar Kvenréttindafélag íslands eindregið eftir að taka áinn fulla þátt í þeirri starfsemi". Samþykkt var að hefjast þegar handa um undirbúning að útgáfu sögu kvenréttindabar- áttunnar á íslandi. Hallveigarstaðir. Kosnar voru þrjár konur í stj órn Hallveigarstaða. Um þátttöku kvenna í ppin- berum málum og aukin áhrif þeirra á þjóðfélagsmál voru samþykktar eftirfarandi álykt- anir: „Fulltrúaráðsfundur K.R.F.Í., haldinn í Skíðaskálanum í Hveradölum 26. og 27. júní, tel- ur það algerlega óviðunandi og ekki vansalaust, g,ð konur skuli ekki eiga sæti á Alþingi. 1. Skorar fundurinn því á konur að hefja nú þegar mark- vísa baráttu, hver í sínum flokki, til að tryggja sem flest- um konum örugg sæti við vænt- anlegar alþingiskosningar á næsta ári. 2. Fulltrúaráðsfundur K. R. F. í. gerir þá kröfu til Alþingis og stjórnmálaflokkanna, fyrir hönd íslenzkra kvenna, að minnsta kosti ein kona fái sæti í stjórn landsins.“ Þá var og samþykkt eftirfar- andi ályktun: „Fulltrúaráðsfundur K. R. F. í., haldinn í Skíðaskálanum í Hveradölum, 26. og 27. júní, lýs- ir eindregnu fylgi sínu við til- lögur síðasta Landsfundar, varðandi væntanlega stjórnar- skrá hins íslenzka lýðveldis og aðrar réttindakröfur kvenna, og beinir þeirri eindregnu áskorun til þeirra kvenna, sem eru í stjórnarskrárnefnd, að þær leggi ríka áherzlu á, að stjórnar- skráin tryggi konum fullt at- vinnulegt og félagslegt jafnrétti og geri þeim kleift að nota sér þau réttindi.“ Fundurinn fór hið bezta fram og voru konur einhuga um að vina eftir mætti að framgangi stefnumála féiagsins. Að kvöldi þess 27. var haldið til Reykjavíkur, daginn eftir var farin stutt skemmtiferð um ná- grenni Reykjavíkur, og að lok- um hélt félagið fulltrúunum kveðjusamsæti að jHótel Röðli. Kírkjuhátíð í Wínuípeg Dagan 21.—26. júní s. 1. var minnst hátíðlega í Winnipeg 60 ára afmælis Hins evangelisk- lúterska Kirkjufélags Vestur-ís- lendinga. Athöfnin hófst á fimmtudag með guðsþjónustu i fyrstu lút- ersku kirkjunni, en þar messaði séra Validmar Eylands) en séra Egill Fáfnis prédikaði. Séra Hajaldur Sigmar, forseti kirkju- félágsins gaf skýrslu og próf. Ásmundur Guðmundsson, er var inættur, sem fulltrúi íslenzku þjóðkirkjunnar, talaði. Á föstudag var afmælisins minnzt í ræðum, sem séra Kristinn Ólafsson, sr. Sigurður Ólafsson og sr. Guttormur Gott- ormsson fluttu. Á laugardag kom til þingsins Franklin Clark Fry, forseti lútersku kirkjufé- laganna í Ameríku, og flutti hann ávarp. Þá fóru einnig fram hljómleikar, sem frú Snjólaug Sigurðsson stýrði. Á sunnudag flutti próf. Ásmundur vinakveðj- ur frá biskupi íslands og ríkis- stjóm, og var þeim ákaft fagn- að. Fundinn sátu 13 prestar, 50 fulltrúar og meir en 600 manns aðrir. Prófessor Ásmundur af- henti séra Haraldi Sigmar Fálkaorðuna. Séra Runólfur Marteinsson minntist 100 ára af- mælis séra Jóns Bjarnasonar. Á mánudag fóru fram hljómleikar vestpr-fslenzks æskulýðs, og (Framhald á 7. slðu) %

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.