Tíminn - 21.08.1945, Page 8

Tíminn - 21.08.1945, Page 8
Þeir, setn viljja kynna sér þjjóðfélagsmál, inn- Iend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá. 21. ÁGÚST 1945 61. balð y AjrarAiÆ tíwaws S* 16. ágúst, fimmtudagur: Ný stjórn í Japan. Japan: Japanskeisari fól Hi- gashi Kuri prins aS mynda stjórn. Konoye prins, sem var forsætisráðherra nokkru áður en Japanir réðust á Bandarík- in, mun eiga sæti i stjórninni. Hann vár sagður mótfallinn styrjöldinni. Bandaríkin: Tilkynnt, að Mac Arthur hefði veitt japönsku stjórninni lengri frest til að undirbúa för nefndarinnar, sem á að koma til Manila og taka á móti uppgjafarskilyrðunum. 17. ágúst, föstudagur: Sprenging í Osló. Noregur: Mikil sprenging varð í höfninni í Osló. Nokkrir tugir manna fórust, aðallega þýzkir herfangar, og hundruð manna særðust. Ókunnugt er um or- sökina. Frakkland: De Gaulle breytti dauðadómnum yfir Petain í ævi- iangt fangelsi. Japan: Japanska stjórnin vann að því, að koma fyrirskip- unum til herjanna um að gef- ast upp og hafa þeir hætt allri mótspyrnu á ýmsum Kyrrahafs- eyjum. í Burma og Mansjúríu halda skærur þó áfram, aðal- lega þó í Mansjúríu, því að Rúss ar halda þar áfram sókn, þótt Japanir hafi beðið um vopnahlé meðan verið sé að ganga frá uppgj af arskilmálunum. 18. ágúst, laugardagur: Viðsjár í Búlgaríu. Búlgaría: Fjórir ráðherrar fóru úr búlgörsku stjórninni í. mótmælaskyni gegn því, hvern- ig hátta á tilhögun væntanlegra þingkosninga. Telja þeir, að kosningarnar verði hrein mark- leysa, ef þær fara fram með slíkum hætti. — Bandaríkija- stjórn tilkynnti, að hún myndi ekki semja frið við Búlgaríu, nema ný stjórn yrði mynduð þar og breytt um stjórnarstefnu. Kommúnistar eru nú mestu ráðandi í búlgörsku stjórninni. Jugóslavía: Varaforsætisráð- herrann sagði af sér í mótmæla- skyni gegn því, hvernig Tito ætlar að hátta kosningunum, sem þar eiga að fara fram . Tel- ur hann, að vilji kjósenda fái ekki notið sín, ef höfð verður sú tilhögun, sem Tito fyrirhug- ar. 19. ágúst, sunnudagur: Samiilngarnir í Manila. Filippseyjar: Sendinefnd frá Japönum, sem á að ganga frá uppgjöf þeirra, kom til Manila og var byrjuð á viðræðum. Á nefndin að gefa Bandaríkja-i mönnum upplýsingar, sem auð- veldar þeim hernám Japans, en uppgjafarsamningurinn verður ekki undirritaður fyrr en í Tokió þegar búið er að hernema borg- ina. Frakkland: Samþykkt á flokks þingi jafnaðarmanna að hafna sameiningartilboði frá komm- únistum. Grikkland: Tilkynnt, að langt sé komið með myndun nýrrar stjórnar. JAKOB MOLLER GERÐUR SENOI- HERRA Þau tíðindi spurðust í bænum 1 gær og vöktu sérstaka athygli, að ríkiSst j órnin hefði skipað Jakob Möller sendiherra i Kaup- manaaahöfn. Jakob mun vitanlega, láta af þingmennsku. Varamaður hans á þingi er Hallgrímur Bene- diktsson stórkaupmaður. Síldaraf linn Sama og engrar síldar hefir oröið vart nyrðra um helgina og eru nokkur skip þegar hætt veiðum en önnur í þann veginn að hætta. í vikulokin nam bræðslusíld- araflinn á öllu landinu 450.200 hl., en á sama iíma í fyrra 1.290.200 hl. Saltsíldaraflinn nam í vikulokin 44.171 tn., en á sama tíma í, fyrra 20.537 tn. Góð síldveiði i Faxaflóa Allmikið af freðsíld verffiur seniiilega selt Frökksun. Ágæt síldveiði er nú í Faxa- flóa og stunda hana allmargir bátar frá Akranesi, Keflavík, Sandgerði, Reykjavík og Hafn- arfirði. Hingað til hefir öll síldin ver- ið fryst til beitu, en horfur eru nú á, að hægt verði að selja 1000—2000 smál. af frystri Faxa- síld til Frakklands. Hefir Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna unn ið að samningum um þessi við- skipti og munu þeir vera vel á veg komnir. Einnig mun vera byrjað á því að salta síldina. f fyrra keypti IJNRA saltaða Faxasíld. Signrður Thorlacíus látinn Sigurður Thorlaéius skóla- stjóri andaðist síðastliðið föstu- dagskvöld, eftir stutta legu, að- eins 45 ára að aldri. Sigurður Tliorlacius var fætló- ur 1. júlí árið 1900. Hann heíir verið skólastjóri Austurbæjar- skólans frá stofnun hans. Enn- fremur hefir hann nokkuð gef- ið sig að opinberum málum og félagsmálum; verið í stjórn Sambands ísl. barnakennara og formaður BWndalags starfs- manna ríkis og bæja frá stofn- un þess. \ „Nýsköpunin".. (Framhald af 1. síðu) Ríkisstjórnin er þannig í raun og veru ekkert annað'en hand- hægt verkfæri húsabraskar- apna, en reynt er að leyna al- menning þessu, eins og þjónustu hennar við skuggaöflin á öðr- um sviðum, með því að lofa honum glæsilegri „nýsköpun" á svið byggingarmálanna. Það verður að steypa stjórii húsabraskar- anna af stúli. Reynslaii af framkomu ríkis- stjórnarinnar í byggingamálun- um ætti sannarlega að.vera orð- in næg til þess, að menn tryðu ekki á hin glæstu „nýsköpunar“- loforð hennar lengur. Áfram- haldandi völd hennar þýða það, að húsabraskararnir halda á- fram að ráða og byggingarefn- ið heldur áfram að fara til lux- ushalla og sumarbústaða meðan efn4 vantar til nauðsynlegustu ibúðarbyggingar. Fyrsti áfangi til að hefja raunhæfa nýsköpun á sviði byggingarmálanna er að steypa stjórnarforstu stórgróða- manna og kommúnista úr stóli, sem hefir það.m. a. fyrir mark- mið, að viðhalda húsabraskinu. Reynslan af framkomu stjórn arinnar í byggingamálum er líka ekki aðeins lærdómsrík fyr- ir þá, sem þar eiga mest hlut Bráðabirgðalög stjórnarinnar um afurðaverðið Hér fara á eftir bráðabirgalög þau um verðlagningu landbún- aðarafurða, sem ríkisstjórnin gaf út í gær, og nánar er rætt um á 1. síðu í blaðinu. 1. gr. Landbúnaðarráðherra skipar til eins árs í senn nefnd 25 manna, er nefnist „Búnaðar- ráð“. Nefndin skal skipuð bænd- um eða mönnum, sem á einn eða anpan hátt starfa í þágu land- búnaðarins. Heimilt er að til- nefna jafnmarga varamenn. Ráðherra tilnefnir formann ráðsins og kallar hann það sam- an til fundar í síðasta lagi 5. september ár hvert. Það er borg- araleg skylda að taka sæti í bún- aðarráði og mæta á fundum þess, nema lögleg forföll hamli. 2. gr. Fundir búnaðarráðs eru því aðeins lögmætir, að allir nefnd- armenn eða varamenn þeirra séu mættir. Nú stendur svo á, að hvorki aðalmaður né vara- maður geta mætt á fundi og skipar þá ráðherra mann í þeirra stað, meðan á forföllum stendur. 3. gr. Á 1. eða 2. fundi sínum skal búnaðarráð kjósa 4 mann í nefnd, er nefnist „Verðlags- nefnd landbúnaðarafurða". Nefndarmenn skulu að jafnaði valdir ihnan vébanda búnaðar- ráða, en heimilt er þó að víkja frá því, ef heppilegra er talið. Verðlagsnefnd skal kosin meiri hluta kosningu og er enginn lög- lega kjörinn nema hann hafi hlotið atkvæði meiri hluta bún- aðarráðsmanna, Ef ekki næst meiri hluti við endurtekna frjáls^, kosningu, skal kosið bundmni kosningu milli þeirra, er flest hafa fengið atkvæði. Kjósa skal svo menn til vara í nefndina og taka þeir þar sæti í forföllum aðalmanna. (jaynla Síc 4. Stuðlar að hagnýtri verkun og meðferð landbúnaðarafurða og hagkvæmri nýtingu markaða fyrir þær, jafnt innanlands sem utan. 5. gr. Verðlagsnefnd landbúnaðaraf- • urða skal skipuð fimm mönnum, 4 kosnum samkvæmt ákvæðum 3. gr. laganna, en formaður bún- ' aðarráðs er sjálfkjörinn for-! maður nefndarinnar. Formaður kveður nefndina til fund’a og stjórnar störfum hennar. 6. gr. Störf verðlagsnefndar eru: 1. Að ákveða verðlag á land- búnaðarafurðum á innanlands- markaði (kjöti allskonar, mjólk og mjólkurafurðum, garðávöxt- um). 2. Að annast aðrar fram- kvæmdir, sem hingað til hafa verið í’ höndum mjólkursölu- nefndar, mjólkurverðlagsnefnd- ar, kjötverðlagsnefndar og verð- lagsnefndar garðávaxta, sbr. þó ákvæði 4. gr. 7. gr. Verðlagsnefnd ræður sér framkvæmdarstjóra og annað 'starfsfólk. Framkvæmdarstjóri sér um daglega afgreiðslu mála og annast önnur störf, er verð- lagsnefnd felur honum. 8. gr. Á fundum verðlagsnefndar ræður afl atkvæða úrslitum. 9. gr. Allur kostnaður, er leiðir af störfum búnaðarráðs og verð- lagsneíndar, greiðist úr ríkis- sjóði, eftir reikningi er ráðherra úrskurðar. SYSTURNAR OG SJÓLIÐIM. (Two Girls and a Sailor) Van Johnson, June Allyson, Gloria DeHaven. Harry James & hljómsveit Xavier Cugat & hljómsveit. Sýnd kl. 6% og 9. Rlcldar a - lögreglan (Northwest Kangers) William Lundigan, Patricia Dane. Sýnd kl 5. Bönnuð yngri en 14 ára. tlý'a Síc Þeip gerðn garðinn frægan OG Dáðir voru drýgðar eru ágætar skemmtlbækur og hafa auk þess þann kost aS vera ódýrar. DRAFMFR OG VERULEIKI. („Flesh And Fantasl") Sérkennileg og áhrifamikil stórmynd. Aðalhlutverkin leika: Charles Boyer, Barbara Stanwyck, Edward G. Bobinson, Robert Cummings. Bönnuð börnum yngri en 14 ára. \ Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tjarharbíc OKLAHOMA (In Old Oklahoma) Spennandi og viðburðarík mynd. John Wayne, Martha Scott. Sýning kl. 5, 7 og 9' E.s. „Lagarfoss" fer héðan laugardaginn 25. ágúst til Kaupmannahafnar og Gautaborgar um Austfirði. Viðkomustaðir á Austfjörðum verða þessir: Norðfjörður, Reyðarfjörður, « ,. Fáskrúðsfjörður. ' * Skipið fermir í Gautaborg um 12.—15. september. Pantaðir farseðlar óskast sóttir í síðasta lagi á fimmtu- 4. gr. Búnaðarráð gegnir ennfrem- ur þessum störfum: 1. Gerir tillögur til landbún- aðarráðuneytisins um setning reglna um gæðaflokkun og verð- flokkuh landbúnaðarafurða. 2. Ákveður verðjöfnunarsvæði samkvæmt 1. gr. laga nr. 1, 7. janúar 1935 og verðlagssvæði samkvæmt 9. gr. laga nr. 2, 9. janúar 1935. 3. Ákveður verðjöfnunargjald á kindakjöt, mjólk og mjólkur- afurðir. 10. gr. Með lögum þessum eru úr gildi numin: 4. gr. og 8. gr. laga nr. 1, 7. janúar 1935. t 1. gr. og 2. málsliður 4. gr. laga nr. 2, 9. janúar 1935. 1. og 2. málsgrein laga nr. 31, 2. apríl 1943. Loks eru úr gildi numin öll, önnur lagaákvæði, sem koma í bága við þessi lög. 11. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Stúdentar hefja útgáfu nýs tímarits Stúdentaráð Háskóla íslands og Stúdentafélag Reykjavíkur hafa í sameiningu ákveðið að hefja útgáfu nýs tímarits á næstkomandi hausti. Hefir Ragnar Jóhannesson cand. mag. verið ráðinn ritstjóri að tíma- ritinu, en auk hans hafa verið kosnir í útgáfunefnd þeir Björn Þorsteinsson stud. mag. af hálfu Stúdentaráðs og Benedikt Bjark- lind lögfræðingur af hálfu Stúd- entafélagi Reykjavíkuri Ritinu hefir verið valið nafn- ið „Garður" og á það að fjalla um háskólanám, félagslíf stúd- enta og stúdentalíf almennt, fyrst og fremst hér á, landi, en einnig nokkuð /erlendis o. fl. Hugmyndin að stofnun tíma- ritsins kom fyrst fram hjá Stúd- að máli. Hún er lærdómsrík fyr- ir alla, því að^hún er ein gleggsta sönnun þess, að allt „nýsköp- nar“-glamur syórnarliðsins er fals og blekking. Það gildir ná- kvæmlega það sama um önnur mál og byggingamálin, að raun- hæf og stórfelld nýsköpun get- ur ekki átt sér stað fyrr en hinni óheilbrigðu samstjórn stórgróða manna og kommúnista hefir verið steypt úr stóli. entaráði 1943, eða fyrir um tveimur árum og var það sam- þykkt einróma af fulltrúum allra pólitískra flokka innan háskólans, að ráðast í útgáfuna. Þegar málið var síðar rætt nán- ar þótti rétt, að Stúdentaráð stæði ekki eitt að útgáfunnj og þótti hlýða að bjóða elzta og lang fjölmennasta stúdentafé- laginu á landinu; það er að segja Stúdentafélagi Reykjavík- ur, sem nú er 75 ára, þátttöku í útgáfu ritsins. Stjórn stúdenta félagsins tók þessu strax vel, og var þá strax ákveðið að hefj- ást handa um útgáfuna. Ritinu er ætlað að fjalla um hás'kólaAám og stúdentalíf, fyrst og fremst hér á landi, en einn- ig nokkuð erlendis. Það mun geta sér far um að fylgjast vel með öllum málum Háskólans, þróun hans og þroska. Það mun birta frásagnir og fræðilegar greinar frá hinum ýmsu náms- greinum. Það mun rekja öll helztu tíð- indi af félagslífi stúdenta, þar með talin pólitísk hvörf og bylt- ingar. Það skal þó skýrt fram tekið, að „Garður" er áháður allri flokkspólitík, enda stofnað til útgáfu hans með einróma samþykki Stúdentaráðs, en það úag. H.f. Eimskipafélag islands U R B Æ N U M Svavar Guðnason listmálari hefir opnað listsýningu í Sýningarskála listamanna. Sýnir hann þar 36 olíumálverk og f jölda vatnslita- mynda og teikninga. Sýningin verður opin frá klukkan 10—10 daglega til mánaðamóta. Svavar hefir dvalið er- lendis undanfarinn áratug, en kom heim með Esju nú í sumar. Busch kominn. Fiðlusnillingurinn Adolf Busch, sem mun halda hér tónleika á vegum Tón- listarfélagsins, kom hingað loftleiðis í gær. Ekki er alveg fullráðið ennþá, hvenær Busch heldur fyrstu hljómleika sína, en það verður væptanlega í byrj- un næstu viku. i i Knud Zimsen sjötugur. ■ Knud Zimsen, fyrrverandi borgar- stjóri var sjötugur síðastliðinn föstu- dag. Borgarstjóri og bæjarráð heim- sóttu hann þá og báðu hann að velja sér málara til að gera af honum mál- verk á kostnað bæjarins. Verður mál- verk þetta geymt í húsakynnum bæjar- stjórnarinnar. er, eins og menn vita, skipað fulltrúum frá öllum pólitískum flokkum. Auk þess verða einnig birtar ritgerðir og kvæði frá eldri stúd entum eftir því, sem efni fellu>' til og rúm leyfir. Fyrsta hefti mun væntanlegt seint í næsta mánuði. Ráðgert er að út komi 4 til 5 hefti á ári og verður hvert hefti 5 arkir í heldur minna en Skírnisbroti. Tekið verður á móti áskrift- um að „Garði“ í bókaverzlunum bæjarins og eins er hægt að senda þöntun um ritið beint til afgreiðslumanns þess, 'en það er Árni Garðar Kristinsson stud. jur., Vesttirgötu 52. Bönnuð sala á rjómaís. Samkvæmt tilmæ-lum héraðslæknis hefir lögreglustjóri bannað sölu á rjómaís hér í bænum. Er þetta gert með tilliti til mænuveikinnar en hrein- læti við meðferð þeirrar vöru er oft ábótavant og í henni þrifst oft all- mikill gerlagróður. Farþegar til Bretlands. Síðastliöið laugardagskvöld fór Brú- arfoss héðan til Englands. Með skipinu voru þessir farþegar: Herdís Þorvalds- dóttir, Ólafía Einarsdóttir, Maja K. Örvar, Ólöf Gunnsteir sdóttir, Helga Thorsteinsson, Albert Sigurður Guð- mundsson, Gunnar Hafsteinn Eyjólfs- son, Emma Mortensen, Úlfar Þórðar- son, Árni Guðmundsson, Thomas Ed- ward Dennis, Baldvin Einarsson, Perey W. Harding, Svanlaug Ermenreksdóttir Kristjana Kristjánsdóttir, Wing Comm. Humphrey, Mr. Mrs. W. R. Ross og tvö börn. Farþegar til SvíþjÓðar. Með flugvél' SILA tll Stokkhólms á föstudaginn var voru 10 farþegar, þeir Niels L. Tybjerg, Ágúst Jóhannsson og frú, Nils S. Tersson, Martin V. Göte Ólafsson, Aage Holbæk, Agnar Kofoed Hansen, Sveinn M. Sveinsson, Brynja Hlíðar og Jónatan T. Jóhannsson. Námskeið fyrir knatt- spyrnudómara hefst í Reykjavík 28. þ. m. og stendur yfir í eina viku. Þátttaka I námskeið- inu er heimil öllum félagsmönnum sambandsfélaga í. S. í. Umsóknir skulu sendast til Gunnars Axelssonar, for- manns Knattspyrnudómarafél. Reykja- víkur. s Skrifstofur Mjólkursamsöl- unnar fluttar. Síðastliðinn þriðjudag voru skrif- stofur Mjólkursamsölunnar fluttar úr Fiskifélagshúsinu i hið nýja húsnæði Samsölunnar við Suðurlandsbraut. Húsið er nú að mestu fullgert, en vél- arnar í mjólkurstöðina vantar enn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.