Tíminn - 11.09.1945, Qupperneq 7
68. blað
TÍMIMV. |>riðjudaginn 11. sept. 1945
7
IfhjHdatfréttir
BÍLABÓKIN
Neapel var fyrsta stórborgin, sem Bandamenn hertóku á meginlandi Ítalíu.
Lífið þar er nú að mestu leyti komið í venjulegt horf. Meðfylgjandi mynd er
frá einni af aðalgötum borgarinnar.
Mynd þessi er frá'sveitakauptúni i Bretlandi. Kindurnar, sem sjást fremst
á myndinni, er verið að fara með á búfjáfsýningu, en slíkar sýningar fœrast
nú mjög í vöxt í Bretlandi og þykja hinar gagnlegustu.
Mynd þessi er frá danssýningu, sém nýlega var lialdin í borginni Freetown
á vesturströnd Afríku. Innfœddar stúlkur, klœddar hátíðabúningi kvenna á
þessum slóðum, eru að sýna þjóðdansa.
Gengisskráning á
danskri krónu
Laugardaginn 8» september
1945 hefir Landsbankinn tekið
upp opinbera gengisskráningu á
danskri krónu. Er sölugengi
hennar ákveðið kr. 131,71, en
kaupgengið kr. 135,04, hvort
tveggja miðað við 100 danskar
krónur. — Síðast var dönsk
króna skráð hér 9. apríl 1940. Þá
var sölugengi hennar 125,78, en
nú hefir það verið ákveðið
135,71. Orsök þessarar hækkun-
ar er sú, að verðgildi dönsku
krónunnar gagnvart öðrum
valútum var í janúar 1942
hækkað um hér um bil 8%, og
hefir henni verið haldið þar
síðan.
Dráttur sá, sem orðið hefir á
því, að gengi yrði ákveðið á
dönsku krónunni, hefir orsak-
azt af því, að semja þurfti um
fyrirkomulag á greiðslum fíl
Danmerkur. Nú hefir náðst sam-
komulag við þjóðbankann
danska um það, að hann selji
Landsbankanum danskar krón-
ur fyrir sterlingspund til greiðslu
Málshöfðun gegn
níu mönnum
Dómsmálaráðuneytið hefir
endursent sakadómaranum í
Reykjavík útskrift af réttar-
rannsókn í málum 10 manna,
sem hernaðaryfirvöldin höfðu
handtekið og afhent íslenzkum
yfirvöldum til rannsóknar. Jafn-
framt hefir það lagt fyrir hann
að halda áfram rannsókn máls-
ins og höfða síðan mál gegn
þeim: Ernst Fresentius, Sigurði
Norðmann Júlíussyni, Hjalta
Björnssyni, Magnúsi Guðbjörns-
syni, Sverri Matthíassyni, Einari
Birni Sigvaldasyni, Lárusi Sigur-
vin Þorsteinssyni, Guðbrandi
Einari Hliðáí og Jens Björgvin
Pá.lssyni, fyrir brot gegn X. kafla
hegningarlaganna.
Sjálfsögð eins og bensín í hverjum bíl
Bílabókin er komin út í 2. útgáfu, hún hefir verið aukin og end-
urbætt, einkanlega með tilliti til bifreiða og aksturs þeirra hér
á landi.
Efni bókarinnar:
Fræðslukafli um bifreiðina, eftir Nikulás Steingrímsson.
Um mælitæki bílsins, viðhald hans, ökuvenjur og fleira,
þýtt af Ólafi Halldórssyni.
Umferðareglur, eftir Erling Pálsson, yfirlögregluþjó'n.
Hjálp í viðlögum, eftir Jón Oddgeir Jónssón.
Bifreiðalög.
Bifreiðaskrá af öllu landinu
Umsókn um ökuskírteini
Tiíkynning um sölu bifreiða
Kaupa notaðan bíl
Einkennisstafir bifreiða
Ljósatími bifreiða í Reykjavík
i
Bílabókin er 280 blaðsíður að stærð, — yfir 100 myndir eru í henni
Verð 35 krónur.
Fæst h|á bóksölum o« beint frá Bókaútgáfu GLBJÓ\S Ó. GH)JÓ\SSOIVAU,
Hallveigarstíg 6 a — Sími 4169.
I
á vörum, sem keyptar verða frá
Danmörku. Samningum um yf
irfærslur til Danmerkur til
greiðslu á skuldum er enn ekki
lokið, og geta b^nkarnir því að
svo stöddu ekki selt danskar
krónur til þeirra nota.
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. síðu)
Rússum sé ekki nóg að geta far-
ið með flota sinn um Dardan-
ellasund, ef þeir ætli að seilast
til áhrifa á Miðjarðarhafi, því
að flugherinn geri það að verk-
um, að þeir, sem ráða yfir Grikk-
landseyjum, geti hindrað allar
siglingar til og frá Svartahaf-
inu. Tilgangurinn með kröfum
Rússa til aukinna siglinga um
Dardanellasund geti því tæpast
verið annar en sá, að þeir séu að
seilast eftir bættri aðstöðu til
að ná Tyrkjum undir áhrifa-
vald sitt.
Það mun líka vera þetta, sem
Tyrkir óttast fyrst og fremst.
Tyrkir hafa lengi óttast ásælni
Rússa og hafa á síðari árum
einkum leitað sér trausts og
halds hjá Bretum. Bretar hafa
líka lagt mikla áherzlu á vin-
áttu Tyrkja og hún hefir verið
þeim mikils virði í nýlokinni
styrjöld, því að hefðu Tyrkir
ekki verið hlutlausir, myndu úr-
slit hennar hafa getað orðið á
aðra leið. Lykti átökunum um
Dardanellamálið svo, að Tyrkir
verða að veita Rússum ýms auk-
in fríðindi, er það spá margra,
að Tyrkir muni þá telja heppi-
legra í framtíðinni að leita frek-
ar eftir vináttu Rússa og Breta,
því að þeir teldu þá þar meiri
styrks að vænta. Það þykir og
ekki ólíklegt, að slík lok deil-
unnar geti haft mikil áhrif með-
al Arabaþjóðanna, því að þær
munu telja hana merki þess, að
að veldi Breta sé minnkandi á
þessum slóðum, en veldi Rússa
vaxandi. Fyrir Breta er mikil-
vægt, að þessi deila leysist þann-
ig, að álit þeirra bíði ekki hnekki
meðal Tyrkja og Araba, og þess
vegna má telja víst, að þeir muni
veita Tyrkjum eins mikla lið-
veizlu og þeir megna. Þykir ekki
ólíklegt, að Bretar hallist að
þeirri lausn, að Dardanellasund
verði sett undir alþjóðlega
stjórn, en Tyrkjum þó veitt ýms
sérréttindi. Þykir líka sennilegt,
að Tyrkir fallist frekara á þá
lansn en að þurfa að veita Rúss-
um einhver meiri réttindi en
öðrum þjóðum.
Umboð fyrir happdrætti
Vinnuheimilis S. í. B. S.
Bókabúð Lárusar Blöndal.
Hljóðfærahúsið.
Sigfús Eymundsson, bókaverzlun. *
Helgafell, Laugavegi 100.
Mál og menning, Laugavegi 47.
Kiddabúð, Bergstaðastræti 48.
Silli & Valdi, Hringbraut 149.
Jón Símonarson, Bræðraborgarstíg 16, Bakarí.
Verzl. Höfn, Vesturgötu 12.
Verzlunin Drífandi, Laufásvegi 58.
Verzlunin Ægir, Grófin, Tryggvagötu.
Styrkið gott málefni og skapið yður möguleika
íil þess að eignast einstæð verðmæti —
Kaupið miða strax í dag-
Raddir nágrannanna
(Framhald af 2. síðu)
ábyrgð, að upphæð hvorki meira
né minna en 2 miljónir króna, til
þess að bjarga sér upp úr feni van-
skilanna við Færeyinga?
5) Er það ekki staðreynd, einnig
staðfest af fjármálaráðherra, að
innan ríkisstjórnarinnar er litið
svo alvarlegum augum á alla ráðs-
ihennsku Fiskimálanefndar í sam-
bandi við framkvæmd færeyska
skipaleigusamningsins, að þess var
óskað á ráðherrafundi, að fiski-
málanefnd gæfi ríkisstjórninni ít-
arlega skýrslu um starfrækslu sína’,*
áður en henni væri veitt ríkissjóðs-
ábyrgð á áðurnefndu miljónaláni?
6) Er það að endingu ekki stað-
reynd, að ríkisstjórnin hefir nú
neyðst til þess að fá tvo lögfræðinga
til að reyna að komast til botns í
þeirri bendu og óreiðu, sem þessi
mál eru komin í hjá Fiskimála-
nefnd undir allra hæstri yfirstjórn
(Framhald af 2. síðu)
blessað. En það hefði farið bet-
ur, að stjórnarliðið hefði vakn-
að ári fyrr til að láta taka upp
skömmtun á byggingarefni, því
að þá hefði verið byggt meira
á þessu ári til að bæta úr hús-
næðisleysinu. Og það færi líka
betur, að þetta yrðu meira en
ráðagerðir rétt fyrir kosningar,
sem álitnar eru eiga meginþátt-
inn í þessum áhugakipp, sem
stjórnarflokkarnir fengu allt í
einu í sambandi við byggingar-
málin.
Einar og Nafta.
Einar Olgeirsson er einn af
aðaleigendum olíufélagsins
Nafta. Fyrirtæki þessu hefir
gengið illa að ná sér í olíu að
undanförnu. Mælt er að það sé
eitt af erindum Einars til Rúss-
lands og reyna að fá olíu þar,
og vafalaust yrði þá séð svo til,
að Nafta fengi umboðið.
Það eru svo sem fleiri opin-
berir sendimenn en Arent Claes-
sen, sem hafa ýmsum auka-
störfum að sinna, jafnhliða því,
sem þeir eiga að gegna erindum
fyrir ríkið. Og hvað skyldi Þjóð-
viljinn hafa sagt, ef Stefán Jó-
hann hefði átt í Nafta og verið
sendur í olíukaupaerindum til
útlanda?
Áka Jakobssonar og framkvæmda-
stjórn Halldórs Jónssonar?"
Eins og vænta mátti, leiðir Þjóð-
viljinn þessar spurningar alveg hjá sér,
og heldur áfram að hamra á því, að
staðreyndirnar í þessu máli séu ekkert
annað en rógur.
Saga Póllands í sárum :
Glóðu Ijáir, geirar sungu
•
Þetta er áhrifarík frásögn hins unga menntamanns,
Jan Kareks, um leynistarfsemina í Póllandi, og lýsir á
átakanlega einfaldan hátt ógnum þeim og hörmungum,
sem Pólverjar hafa átt við
að búa. — Höfundurinn
starfaði í leynistarfsemi
Pólverja i 4 ár, og var m.
a. erindreki hennar og
hraðboði milli Póllands og
útlagastjórnarinnar pólsku,
' fyrst í París og síðan í
London, og hefir því sjálfur
séð og lifað alla þá ægilegu
og djöfullegu atburði er
hann skýrir frá. — Glóðu
ljáir, geirar sungu lýsir
merkilegum þætti úr sögu
hjns hertekna Póllands —
en ægilegum, og þó enn
ægilegri, ef lesendur, og
álfa vor, yfirleitt, lokar
augum og eyrum fyrir því,
sem þar gerðist, og víðsvegar um alla álfuna — og
gíeymir!
Lesið frásögn Jan Karski
með gaumgæfni og athygli
Bókin er 256 bls. að stærð
og kostar aðeins kr. 18,00.
Aðalútsala Norðra h.f.
Pósthólf 101. Reykjavík.
■ Jan Karski,
höfundur bókarinnar.
I