Tíminn - 26.10.1945, Qupperneq 1

Tíminn - 26.10.1945, Qupperneq 1
RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A Sími 2323 29. árg'. | Fé, sem varið er til jarðabóta sé undanþegið sköttum Framv. frá tveimur Framsóknarmönnum. Reykjavík, föstudaginn 26. okt. 1945 • Framleiösluráö, skipaö meö verðskráningu | 81. blaö fulltrúum bænda, fari landbúnaðarafurða Tveir þingmenn, Páll Zóphóníasson og Jörundur Brynjólfsson, hafa nýlega lagt fram i neðri deild frv. um breytingu á lögunum um tekjuskatt og eignarskatt. Breytingin er fólgin í því, að fé það, sem bændur verja til umbóta á jörðum sínum, sé undan- þegið sköttum að vissu marki. lnnflutn.Ln.gur búvéía oq grasfræs frá Norður- löndum Frásögn Árna G. TSylands Árni Eylands framkvæmda- stjóri er nýlega kominn úr ferðalagi um Norðurlönd, en þangað fór hann I erindum S. í. S. til að undirbúa kaup á vélum og öðrum nauð- synjum í þágu landbúnaðar- framleiðslunnar. Tíminn hefir átt viðtal við Árna eftir heimkomuna og lætur hann vel af ferð sinni. Hann telur góðar horfur á, að hægt verði, þegar samgöngur eru komnar í eðlilegt horf, að fá mikið af landbúnaðarvélum frá Svíþjóð, sérstaklega þó hey- vinnuvélar. Þá munu fást þaðan mjaltavélar og er von á nokkr- um þeirra á næstunni og kemur með þeim sænskur maður til að leiðbeina við niðursetningu og notkun þeirra. Þá telur Árni góðar horfur á því, að unnt verði að fá nóg af heppilegu grasfræi frá Norðurlöndum, en hörgull á góðu grasfræi hefir mjög tálm- að nýræktinni hér á undan- förnum árum. Meðan Árni dvaldi í Svíþjóð, sat hann þar fund norrænna búvísindamanna. Einnig iíynnti hann sér ýmsar nýjungar i bún- aði. Samkv. frv. bætist svohljóð- andi málsgrein við 14. grein skattalaganna frá 20. maí 1942: „Sú upphæð, er bændur verja til umbóta á ábúðarjörð sinni, skal undanþegin tekjuskatti, þó eigi hærri fjárhæð árlega en nemur %' — einum fimmta — af hreinum tekjum viðkomandi bónda, áður en tekjuskattur, stríðsgróðaskattur og útsvar, sem greitt hefir verið á árinu, er dregið frá tekjunum“. í greinargerð frv. segir: Það er alkunnugt, að útgerðarmenn hafa nú um skeið fengið að leggja y3 hluta af tekjum sínum skattfrjá]san í varasjóð til að tryggja rekstur útgerðarfélags- ins. Á sama hátt hafa almenn hlutafélög fengið að láta Vs af tekjum sínum í varasjóð, án þess að borga skatt af þeirri upphæð, og orkar þó tvímælis, svo að ekki sé sterkara kveðið að orði, hvort þess er þörf. Hér er lagt til, að bændum sé á sama hátt leyfilegt að verja y5 af tekjum sínum til umbóta á á- búðarjörð sinni, og er ekki vafi á, að þeir eiga sama rétt á þvl og aðrir, sem þau réttindi hafa nú, að leggja nokkuð af fé sínu til hliðar án þess að greiða af því skatta. Umbætur á jörðinni, svo hún verði betri, er þeirra bezti trygg- ingarsjóður, og hann kemur ekki einungis þeim að notum, er á jörðinni búa, þegar umbót- in er gerð, heldur öllum þeim, er síðar meir búa á henni og njóta umbótanna. Það er því fullkomlega réttmætt, miðað við aðra, að bændur fái þessi fríð- indi, enda er málið hér flutt eftir ósk frá þeim. Kommúnistar frestuðu flokksþingi sínu Einar Olgeirsson var ókominn með Jínuna' frá Moskvu ■ . - Það hefir vakið athygli, að flokksþingi Sameiningar- flokks alþýðu, Sósíalistaflokksins, sem koma átti saman síðari hluta þessa mánaðar, hefir verið frestað. Þetta mun þó vekja meiri athygli, þegar mönnum verður kunnugt um tildrög frestunarinnar. Hún er sú, að Einar Olgeirsson er enn ókominn úr Rússlandsferðinni, en búið var að tilkynna, að hann ætti að hefja umræðurnar um utanríkismálin, sem eiga að vera eitt helzta umræðuefni flokksþingsins. Svona er þá komið stjórnarháttum á íslandl, að annar stærsti stjórnarflokkurinn getur ekki haldið flokksþing, nema hann hafi áður sent erindreka til Moskvu og erind- rekinn sé kominn heim með „línuna.“ Og svo gefur forsætisráðherrann út „opinbera tilkynn- ingu“ og segir, að Einar hafi farið út fyrir þrábeiðni sína og sem persónulegur fulltrúi sinn! Er mögulegt fyrir kommúnista að koma ár sinni betur fyrir borð en að nota þannig sjálfan forsætisráðherrann til að gefa út opinber- ar tilkynningar til að leyna hinum raunverulega tilgangi með Moskvuferð Einars? En hversu lengi getur þjóðin þolað slíkt stjórnarfar? NYJU VARÐSKIPIN Mynd þessi er af cinu hinna þriggja skipa, sem keypt hafa verið í Bretlandi til landhelgisgæzlu hér. Skipin eru væntanleg hingað um næstu helgi. ■ Ráðið vinni ennfremur að eflingu og skipulagningu landbúnaðarframleiðslunnar l með tilliti til þarfa þjóðarinnar og markaðsmöguleika Fimm þingmenn 1 neðri deild, Jón Sigurðsson, Bjarni Ásgeirs- son, Sveinbjörn Högnason, Pétur Ottesen og Páll Zóphóníasson hafa nýlega lagt fram frv. til Iaga um framleiðsluráð landbún- aðarins og verðskráningu og verðmiðlun á landbúnaðarvörum. Fruinvarp þetta var undirbúið af Búnaðarþingi síðastl. vetur og er það aðalefni þess, að nefnd níu manna, sem samtök bænda tilnefna, skuli ráða verðskráningu landbúnaðarvara, ákveða verðjöfnunargjald og úthlutun þess, ráðstafa sláturleyfum, hafa umsjón með sölu stórgripakjöts og vinna að eflingu og skipu- lagningu landbúnaðarframleiðslunnar með tilliti til þarfa þjóð- arinnar og markaðsmöguleika. Verði frv. þetta samþykkt, tekur framleiðsluráðið við störfum búnaðarráðs, og hefir auk þess víðtækara starfssvið, þar sem það á að vinna að eflingu og skipulagningu landbúnaðarfram- leiðslunnar. Megmefni frv. Verkfalliö heldur áfram á kaupskipaflotanum Samkomulagstilraunir sáttanefndar, sem stjórnin hefir skipað, hafa emi engan árangur borið. Þrjú skip Eimskipafélagsins hafa nú stöðvazt vegna háseta- verkfallsins, auk Esju og Súðarinnar. Sum þessi skip eru búin að liggja hér í þrjár vikur. Þannig er vinnufriðurinn í reynd, sem stjórnin þóttist hafa tryggt með yfirlýsingum frá Alþýðusam- bandinu og Vinnuveitendafélaginu, þegar hún kom til valda i fyrra. Fyrir nokkru síðan skipaði stjórnin þá Guðmund I. Guð- mundsson bæjarfógeta og Gunnlaug Briem stjórnarráðs- fulltrúa til að aðstoða sátta- semjarann, Torfa Hjartarson tolLstjóra, við sáttaumleitanir í deilunni. Enn hafa þessar um- leitanir þó ekki borið neinn ár angur. Menn fá hér að reyna það eins greinilega og verða má, hve mikið er að treysta- þeim full- yrðingum stjórnarsinna, að vinnufriðurinn. hafi verið tryggður með stjórnarsamvinn- unni, þar sem stjórnin styðjist einkum við atvinnurekendur og verkalýðsfélögin. Þetta verkfall á kaupskipaflotanum er nú búið að standa í nær mánuð og litlar horfur um lausn þess. Eftir þetta ættu stjórnarsinnar vissulega að spará sér allar yfirlýsingar um það, að stjórnarsamvinnan tryggði vinnufriðinn, en á stjórnmálafundunum í vor töldu margir þeirra henni það mest til gildis. Það liggur í augum uppi, að verkfall þetta er hið tilfinnan- legasta, þar sem einmitt á þess- um tíma er einna mest þörf NÝR DÓSENT Menntamálaráðherra hefir ný- lega skipað séra Björn Magnús- son dósent í guðfræði við Há- skóla íslaiids. Er þetta gert sam- kvæmt fyrirmælum seinasta þings. fyrir flutninga út um land, þar sem verzlanir og einstaklingar bar þurfa að koma sér upp birgðum til vetrarins. Hér er einnig að verða hörgull á ýms- um útlendum vörum, sem ekki verður bætt úr, nema þá seint og síðar meir, þar sem skip Eimskipafélagsins eru stöðvuð, og flutningarnir frá Norður- löndum falla þvi niður að mestu leyti á meðan. Þótt stjórnin reynist þess vanmegnug að leysa verkfallið, ætti henni að vera vel mögulegt að birta yfirlýsingar þær um tryggingu fyrir vinnufriðnum, sem hún telur sig hafa frá Al- þýðusambandinu og Vinnuveit- endafélaginu og hátíðlega var skýrt frá í stjórnarsáttmálan- um í fyrra. Menn gætu þá a. m. k. séð, hvor aðilinn hefði brugð- izt yfirlýsingunni og gengið á orð sín. Eða voru þessar yfirlýsingar eingöngu fals, eins og svo margt annað í stjórnarsáttmálanum? Brezku flugmennirnir á förum Varaflugmálaráðherra Breta hefir nýlega tilkynnt, að allt brezkt flu*.T&5 verði farið frá ís- landi innan sex mánaða. Samkvæmt þessu má telja víst, að Bretar hafi afhent ís- lendingum flugvöllinn hjá Reykjavík innan sama tíma. Frv. þessu er skipt í sjö kafla, enda fjallar það um margvísleg efni. Verða hér á eftir rakin nokkur aðalákvæði frv. Fyrsti kafli frv., sem fjallar um kjör og verkefni fram- íeiðsluráðs, hljóðar á þessa leið: „Búnaðarfélag íslands skipar 9 manna framleiðsluráð til 4 ára í senn. Skulu 5 þeirra skip- aðir samkvæmt tilnefningu aðalfundar Stéttarsambands bænda, og sé þess að jafnaði gætt, að þeir séu valdir úr öllum landsfjórðungum, en þó skal hlutfallskosning viðhöfð við tilnefningu þeirra, ef óskað er. Hinir fjórir skulu skipaðir af eftirgreindum aðilum, einn af hverjum: S. í. S., Mjólkursam- sölunni í Reykjavík, Sláturfélagi Suðurlands og mjólkurbúunum utan mjólkurverðjöfnunarsvæð- is Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Kosning og skipun þeirra fer fram í fyrsta skipti ekki síðar m í byrjun septembermánaðar 1946. Framleiðsluráð kýs sér formann og ræður sér fram- kvæmdastjóra. Aðalverkefn'i framleiðsluráðs er: 1. að fylgjast með framleiðslu og vinnslu landbúnaðarvara. 2. að stuðla að eflingu land- búnaðarframleiðslunnar í sam- starfi við Búnaðarfélag íslands, svo að hún fullnægi þörfum þjóðarinnar. 3. að stuðla að umbótum á vinnslu og meðferð varanna. 4. að vinna að aukinni hag- nýtingu markaða fyrir þessar vörur utan lands og innan. 5. að vinna að þvi að beina framleiðslu landbúnaðarins að þeim framleiðslugreinum, sem landbúnaðinum eru hagfelld- astar og samrýmast bezt þörfum þjóðarinnar á hverjum tíma. 6. að ákveða verðmiðlun á kindakjöti, mjólk og mjólkur- vörum samkvæmt fyrirmælum laga þessara. Kostnaður við framleiðsluráð greiðist úr Búnaðarmálasjóði. Framleiðsluráð lætur safna og gefa út ár hvert ýtarlega skýrslu um framleiðslu landbúnaðar- vara, vinnslu þeirra og sölu, markaði, markaðshorfur og af- komu landbúnaðarins á hverjum tíma. Skylt er öllum þeim fyrir- tækjum og stofnunum, er hafa með höndum vinnslu eða sölu landbúnaðarafurða, að láta ráð- inu í té allar upplýsingar, er því geta að gagni komið við störf þess og þær geta veitt.“ Annar kafli lagarina, sem Hlutur bænda f blaSinu Skutli 14. þ. m. er í innrammaðri grein, sem nefn- ist: Hlutur bænda, verSlagsráð- stöfunum Péturs Magnússonar lýst á þessa leið: „Margir gera sér alrangar hugmyndir um það, hvað bónd- inn fái af þcim kr. 10,80, sem flestir neytendur kaupstaðanna eiga nú að greiða fyrir eitt kíló af kjöti. Bóndinn fær £ bezta tilfelli kr. 5,88. Þrjár krónur fjörutíu og sjö aurar fara í verzlunar- kostnað og ein króna og fimm- tíu í verðjöfnunargjald. Það er því ekki nema röskur hclmingur kjötverðsins, sem rcnnur til bændanna sjálfra. Er þá niðurstaðan sú, að Pét- , ur Magnússon og landbúnaðar- sovét hans ætla nú bændunum 85 aurum M I N N A verð f yrir hvert kjötkíló, en þeir fengu I fyrra, og hefir þó framleiðslu- kostnaður bænda hækkað á ár- inu með vaxandi dýrtíð um fast að 10%.“ Hér er því lýst af manni, sem styður stjórnina og vill því áreiðanlega ekki halla á hana, hvcrn hlut Pétur Magnússon skammtar bændum. Ritstjóri Skutuls er aðeins að því leyti frábrugðinn öðrum stjórnar- sinnum, að hann viðurkennir það rétta í þessu máli. En nú er að sjá, hvort bændur ætla að sætta sig við þann hlut, sem Pétur hefir skammtað þeim og láta stuðningsmenn hans, eins og Jón Pálmason, Eirík Einars- son, Sigurð Bjarnason og Garð- ar Þorsteinsson, vera áfram sem fulltrúa sína á þingi. I—— ---------------------------] fjallar um verðskráningu land- búnaðarafurða, hljóðar svo: „Hagstofa íslands reiknar ár- lega út framleiðslukostnað bænda. Við útreikning fram- leiðslukostnaðarins skal fylgt þeim reglum, sem fyrir er mælt í 4. gr. laga nr. 42 14. apríl 1943, um dýrtíðarráðstafanir, og sam- komulagi sex manna nefndar- innar. Framleiðsluráð hefir á hendi verðskráningu landbúnaðarvara. Við verðskráningu grænmetis og garðávaxta tekur fulltrúi Sölu- félags garðyrkjumanna sæti i framleiðsluráði og hefir atkvæð- isrétt um þau mál. Nú verða at- kvæði jöfn um verðlagningu þessara vara, og ræður þá úr- slitum atkvæði fulltrúa sölufé- lagsins. Heimilt er framleiðslu- ráði að fela formanni og fram- kvæmdastjóra ásamt fulltrúa Sölufélags garðyrkjumanna að (Framhald á 8. siðu)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.