Tíminn - 26.10.1945, Qupperneq 2

Tíminn - 26.10.1945, Qupperneq 2
2 TÍMEViy, föstndagiim 26. okt. 1945 81. blað Föstudagur 26. oht. Jarðræktarlögin Framsóknarmenn hafa nú lagt fram í þriðja sinn á Alþingi frv. sitt um þá breytingu á* jarðræktarlögunum, að styrk- urinn til túnasléttunar og ný- ræktar verði aukinn um helm- ing næstu 10 árin eða þar til að býli, sem styrks nýtur, hefir 600 hesta heyskap á véltæku landi. Um það mun ekki verða deilt, að landbúnaðinum muni fátt eða ekkert nauðsynlegra, ef hann á ekki að verða eftir- bátur annarra atvinnuvega, en að hann geti tekið sem mesta véltækni í þjónustu sína. Stærsta og þýðingarmesta á- takið í þeim efnum er að koma öllum heyskapnum á véltækt og velyrkt land. Þar hefir að sönnu náðst mikill árangur á undanförnum árum, en þó er þar enn mikið verkefni óunnið. Eigi að inna það af höndum á skömmum tíma, verður það ekki gert öðruvísi en með stór- auknu ræktunárframlagi rík- isins. Slíkt framlag er líka full- komlega eðlilegt, þar sem öll þjóðin mun njóta góðs af hinni auknu ræktun, því að bæði ætti afkoma bænda að geta batnað og neytendur að geta fengið ó- dýrari vörur. Ríkið getur vissu- lega fátt betur gert með fjár- muni sína en að leggja þá i aukna ræktun. Þess vegna telja Framsóknarmenn það ekki of- langt gengið til að koma land- búnaðinum á samkeppnisfæran grundvöll á skömmum tíma, að jarðræktarstyrkurinn verði tvö- faldaður næstu 10 árin. Á seinasta þingi töldu stjórn- arandstæðingar sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi aukni jarðræktarstyrkur myndi kosta rikissjóð um 60 milj. kr. á öllu tímabilinu eða 6 milj. kr. á ári til jafnaðar. Það er m. ö. o. miklu lægri upphæð öll árin en stjórnarflokkarnir verja nú til launagreiðslna úr ríkissjóði á einu ári. Er því vissulega ekki unnt að halda því fram, að þetta framlag sé ekki kleyft af fjárhagslegum ástæðum eða gangi á hlut annarra atvinnu- vega, ef hófsemi og sparnaðar væri gætt í rekstri ríkisins á öðrum sviðum. Eins og áður segir, er þetta í þriðja sinn, sem Framsóknar- menn bera þetta frv. fram. Tví- vegis hefir það verið fellt af stjórnarliðinu. Má vel af því marka hinn raunverulega frarn- faraáhuga Framsóknarflokksins og stjórnarliðsins, þótt það tali öllum meira um „nýsköpun" og láti Kiljan og Kolka og aðra því líka riddara sína skammast yfir oflitlum ræktunarfram- kvæmdum. Stjórnarliðið fær nú enn að sýna, hvort þetta er nokkuð anna,ð en meiningar- laust glamur, sem notað er í blekkingaskyni. Felli það jarð- ræktarlagafrv. i þriðja sinn, hefir það sjálft ógilt svo greini- lega „nýsköpunar“-loforðin, að bændur og aðrir landbúnaðar- menn þyrftu ekki að blekkjast af þeim lengur. Vélbáta- og togara- kaupin Umræðurnar, sem nýlega fóru fram á Alþingi um vélbáta- og togarakaup ríkisstjórnarinnar upplýstu sitt hvað um þessa „nýsköpun" stjórnarinnar, sem vert er að veita athygli. Það uplýstist í fyrsta lagi, að búið er að gera ráðstafanir til að kaupa um 110—120 vélbáta. Þar af hafði fyrrv. ríkisstjórn eða einstaklingar undirbúið kaup á 80 bátum. Núverandi ríkisstjórn hefir haft veg og vanda af 35 bátum eða þeim, sem hún hafði samið um smíði á innanlands. Það eru líka einu bátarnir, sem enn eru óseldir. Til þess liggja þær einföldu á- stæður, að þeir eru miklu dýrari en aðrir bátar, enda er það eðli- leg afleiðing dýrtíðarinnar í Má ekki gleymast. í bréfi, sem sunnlenzkur bóndi skrifar Tímanum nýlega, segir: „Margt hefir verið rætt og ritað um afurðasölumálin á þessu hausti, en eitt finnst mér þó hafa gleymzt að taka fram. Þótt kostir okkar bænda hafi verið mikið þrengdir, er ég viss um, að nær okkur hefði verið gengið, ef ekki hefði notið við Fram- sóknarflokksins og baráttu hans. Vegna Framsóknarflokksins og þeirrar andstöðu sem hann hefir haldið uppi gegn ráðstöfunum stjómarinnar, hefir hún ekki þorað að skerða hlut okkar meira, þótt eflaust hafi viljinn verið fyrir hendi. Þessu megum við bændur ekki gleyma, heldur verðum við stöðugt að minnast þess, að eftir því, sem pólitískir málsvarar okkar eru öflugrí, þora andstæðingarnir síður að ganga á hlut okkar. Þess vegna er það skylda okkar bænda við sjálfa okkur að þoka okkur sam- an um einn flokk, sem gætir réttinda okkar, og sá flokkur er Framsóknarflokkurinn." Hverjir vilja halda í kotbúskapinn? Valtýr Stefánsson og Ken- gáluriddari hans hafa að und- anförnu stundað þann áróður mjög kappsamlega, að Fram- sóknarflokkurinn hafi unnið og vinni að því að eingöngu sé rek- inn kotbúskapur á íslandi. Raunar mun þetta eins og fleira hjá þesum félögum haft eftir Kiljan, þyí að nú finnst for- sprökkum Sjálfstæðisflokksins fátt gott, nema einhver komm- únisti hafi sagt það áður. Það er með þetta eins og flest annað, að staðreyndirnar tala gegn málflutningi Kiljans og Valtýs, því að fyrir atbeina Framsóknarflokksins hefir kot- unum stórfækkað á íslandi. Það - er hægt að fara sveit úr sveit og finna margar jarðir, þar sem var kotbúskapur áður, en nú eru rekin á stórbú á okkar mælikvarða. Þetta er að þakka framtaki bændanna og svo því, að Framsóknarflokkurinn hefir komið til móts við þá og tryggt þeim hjálp, sem hefir gert þeim kleift að gera þetta. Seinasta verk Framsóknar- flokksins til að ná þessu tak- marki yfirleitt, er flutningur jarðræktarlagafrv., þar sem stefnt er að því, að hvert býli geti haft a. m. k. 600 hesta hey- skap á véltæku landi. Þetta frv. hafa stjórnarflokkarnir tvívegis fellt. Það mætti því vissulega segja um þá, að þeir vildu við- halda kotbúskapnum. En þeir landinu. Svo mikill er verðmun- urinn, að 62 smál. bátarnir, sem stjórnin er að láta smíða, kosta 247 þús. kr. meira hver en nýjir, hliðstæðir bátar kosta nú í Dan- mörk. Það verður því ekki ann- að séð en að stjórnin hafi með þessari ráðstöfun sinni búið til nokkurra milj. kr. aukagjöld, sem annað hvort lenda á ríkinu eða þeim einstaklingum, sem glepjast til að kaupa bátana. Þessi bátakaup stjórnarinnar eru því eins mikið ráðleysi og hugsast getur. Þau verða enn ráðleysislegri, þegar þess er einnig gætt, að það vinnuafl, sem notað er til bátasmíðanna, hefði nú þurft við önnur brýn verkefni, t. d. íbúðabyggingar. Um togarakaupin liggja enn ekki fyrir jafn greinilegar upp- lýsingar. Þó er það vitað, að verð togaranna verður alltaf 2.5 milj. kr. eða 600—800 þús. kr. meira en upphaflega var til- kynnt. Þessi mikla verðhækkun virðist fyrst og fremst liggja í því, hversu illa var gengið frá bráðabirgðasamningum, því að fjölmörgu þurfti að breyta í beim, en slíkar breytingar verða jafnan dýrari, þegar samið er um þær eftir á. Þá er talið, að enn vanti mörg tæki í togarána og endanlegt verð þeirra geti jafnvel orðið yfir 3 milj. kr. Þeir eru þá orðnir dýrari en dieseltogarar, sem fáanlegir voru í Bandaríkjunum og taldir voru alltof dýrir á sínum tíma, þótt vitanlegt sé, að þeir hefðu orðið miklu ódýrari i rekstri hegða sér hér eins og oftar á þá nazistávísu, að ætla að leyna sekt sinni með því að ásaka aðra um hana. Rógburður Mbl. um fimmmenningana. Forsprökkum Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er illa við andstöðu þá, sem nokkrir þing- menn flokksins og margir sveitakjósendur flokksins sýna ríkisstjórninni. Þetta hefir komið einna greinilegast fram, þegar Gísli Sveinsson var felld- ur við forsetakosninguna í sam- einuðu þingi. Ekki hafa þó blöð Sjálfstæðismanna þorað að deila opinberlega á þessa menn, en undanfarið hefir Kengáluridd- arinn skrifað um þá hverja dulbúna skammagreinina á fætur annarri i Mbl. Þetta er gert með þeim hætti, að Bún- aðarþing og Búnaðarfélagið er skammað fyrir hin og þessi verk og jafnhliða farið þeim svívirðingarorðum um þessar stofnanir, sem Kengáluriddar- anum eru lagin. Undantekning- arlítið hafa þessi verk verið gerð með fullu samþykki full- trúa Sjálfstæðisflokksins í þessum stofnunum, t. d. Pét- urs Ottesen, Jóns á Reynistað og Þorsteins Þorsteinssoriar. Má því til sönnunar nefna kröfuna um sexmannanefndar-verðið, ráðstöfun búnaðarmálasjóðs og tilhögunina við stofnun Stétt- arsambands bænda. Sjálfstæðisbændum mætti vissulega verða af þessu ljóst, hve mikið muni að marka róg- inn um Framsóknarflokkinn, þegar nákvæmlega sami söng- urinn er sunginn, þótt undir rós sé, um þá forvígismenn í Sjálfstæðisflokknum, sem njóta mestrar tiltrúar meðal bænda. Uppgjöf Bjarna Ben. Bjarni Ben. skrifaði fyrir nokkra pistla í Mbl., þar sem hann bar forráðamönnum Fram sóknarfl. valdagirni á brýn. Tíminn svaraði þessu með því að benda á þær staðreyndir, að bæði vorið 1942 og haustið 1944 hefðu Hermann Jónasson og Ey- steinn Jónsson átt þess kost að fara í ríkisstjórn, en hafnaö því, þar sem þeir hefðu ekki get- að fengið fram, að fylgt væri þeirri stjórnarstefnu, sem þeir teldu nauðsynlega. Hins vegar hefði Ólafur Thors myndað stjórn í bæði þessi skipti eftir að hafa tekið upp gagnstæða stjórnarstefnu, við það sem hann hafði áður talið nauð- synlegt. Bjarni Ben. hefir nú farið en þessir brezku gufuvélatog- arar. Þetta tvennt, vélbáta- og tog- ar*akaupin, eru það eina, sem stjórnin telur sér helzt til afreka í „nýsköpunarmálunum.“ Ekkert liggur eftir hana til að bæta hagnýtingu aflans, t. d. með nið- rirsuðu og lýsisherzlu. Ekkert liggur eftir hana í landbúnað- armálunum. Ekkert liggur eftir hana í raforkumálunum. Öll „nýsköpun" hennar er þessi tvennu skipakaup, eins vel og líka hefir verið til þeirra vandað. Hefði stjórnin ætlað að fram- kvæma raunhæfa „nýsköpun," átti hún að gera það með þeim hætti, að mynda sér yfirlit um þær framkvæmdir, sem gera þurfti næstu árin, og síðan átti að hefjast handa um þær í þeirri röð, að þær, sem voru taldar nauðsynlegastar, gengu fyrir. Slík heíldarvinnubrögð hefir stjórnin alveg vanrækt, en í stað þess snúið sér að einu verkefni, skipakaupunum, sem farrizt hafa úr hendi, eins og að framan greinir. Af þessu hefir leitt þann losarabrag, að hér er vinnuaflið notað til að byggja lúxusvillur, sumarbústaði og óhóflega dýr skíp meðan ekki fást menn á báta og til nauð- synlegustu íbúðabygginga. „Ný- sköpunin“ er stjórninni því ber-. sýnilega engin alvara, heldur er kákað við einstakt verkefni til að geta auglýst eitthvað og þess vegna eru líka vinnubrögðin á því eina sviði eins ömurleg og raun ber vitni. Erlent yfirlit Bæjarstjórnarkosningarnar í Budapest V i aftur á stúfana í Mbl. Hann reynir ekki hið mínnsta til að hrófla við þessum rökum Tím- ans, og verður þannig óbeint að staðfesta þau, enda er ekki annað hægt. Hinsvegar reynir hann að klóra i bakkann með því að bera eitthvað fyrir sig, sem staðið hefir í Ófeigi! Það má vel vera, að Bjarni Ben. vilji skrifa undir alla þá sleggjudóma, sem birtir eru í Ófeigi, en vissulega yrði þá hlutur hans sjálfs ekki glæsi- legur og leggur þó ritstjóri Ó- feigs minna kapp á að ófrægja hann en þá H. J. og E. J. En hitt er til ofmikils ætlazt af honum, að almenningur taki meira mark á sleggjudómum Ófeigs en staðreyndunum sjálf- um. Með slíkum undanbrögðum fær Bjarni ekki bjargað sér undan þeim dómi, að honum hafi orðið algerlega rökvant í því að sanna valdagirni á for- vígismenn Framsóknarflokks- ins, en hins vegar sýnt þá bletti á forvígismanni flokks síns, þar sem hann er viðkvæmastur fyrir. „Meistari í misreikningi“. „Það er sá munur á Leifi heppna og Bjarna okkar borg- arstjóra, að Leifi lánaðist allt — Bjarna mistekst allt. Hann misreiknar allt, hann er meist- ari í misreikningi“. Eitthvað á þessa leið fórust gætnum Sjálf- stæðismanni orð, er rætt var um Bjarna Benediktsson fyrir nokkru. Þegar allir viðstaddir vildu ekki á þetta fallast, hélt Sjálfstæðismaðurinn áfram: „Það var Bjarni sem uppgötv- aði sjálfstæðis-nazistann Her- mann Guðmundsson. Fyrir pen- inga Sjálfstæðismanna var Hermann sendur um allt land tíl að safna verkamönnum í sjálfstæðisfélög. Hermann er nú farinn með alla þessa verka- menn yfir til kommúnista. Eft- ir stendur þetta í nafnaskrá Hafnarfjarðar: Hermann Guð- mundsson' fulltrúi Sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn. Bjarni stofnaði verkalýðsfé- lag í Reykjavík eftir að hann (Framhald á 7. slöu) Fljótlega eftir að Rússar höfðu náð nokrum hluta Ungverja- lands á vald sitt, var sett þar á laggirnar ungversk stjórn, sem talin var mynduð af ýmsum smáflokkum, en kommúnistar skipuðu flest þýðingarmestu sæti hennar. Rússar viður kenndu strax þessa stjórn, en hvorki Bandaríkjamenn eða Bretar. Síðan Rússar hernámti allt Ungverjaland hafa fréttir það- an verið af skornum skammti.en sitt hvað hefir þótt benda til, að eigi hafi gætt þar jafnmikils ofbeldis og í Búlgaríu og Rúm- eníu. Þetta mun hafa OEðið þess valdandi, að Bandaríkjastjórn tilkynnti ungversku stjórninni í síðastl. mánuði, að hún myndi viðurkenna hana og taka upp stjórnmálalegt samband við Ungverjaland, ef trygging feng- ist fyrir því, að frjálsar kosn- ingar yrðu látnar fara fram í landinu. Ungverska stjórnin mun hafa lofað að veita þessa tryggingu. Síðar birti brezka stjórnin svipaða yfirlýsjngu og bandaríska stjórnin hafði gefið. Nokru eftir að þetta gerðist eða fyrstu dagana í oktöber, lét ungverska stjórnin fram fara bæjarstjórnarkosningar í Buda- pest og áttu þær m. a. að sýna, að hún stæði við loforð sín um frjálsar kosningar. Allir flokkar, sem ekki voru taldir hliðhollir nazistum fengu því að taka þátt í kosningunum. Talið er víst, að stjórnin hafi treyst því, að bandalag kommúnista og jafn- aðarmanna myndi vinna glæsi- legan sigur, en stjórnin styðst einkum við þetta bandalag. Þess vegna mun stjórnin líka hafa ákveðið að láta fyrstu kosning- arnar fara fram í Budapest, en ekki í öðrum borgupi og héruð- um samtímis, því að í Budapest er fylgi þessa bandalags talið mest. Úrslit kosninganna urðu stjórninni hins vegar mikil von- brigði. Það furðulega gerðist, sem mun víst ekki eiga sér hlið- stætt dæmi í sögunni, að bænda- flokkur fékk hreinan meiri- hluta í kosningum í stórborg. Úrslitin urðu sem sagt þau, að smábændaflokkurinn fékk 122 fulltrúa, bandala^ kommúnista og jafnaðarmanna 103 og aðnr flokkar 15. Ástæðan til þessa mikla sigurs smábændaflokks- ins er talin sú, að hann þykir líklegastur til að koma á raun- hæfri lýðræðisstjórn í landinu og er ekki eins fullkomlega á bandi Rússa og Hinir flokkarnir. En vinsældir Rússa eru sagðar fara óðum þverrandi í Ungveíja- landi vegna framkomu rúss- neska setuliðsins þar. Þessi mikli sigur smábænda- flokksins í Budapest þótti aug- ljós sönnun þess, að hann myndi alltaf fá 70% greiddra atkvæða í þingkosningunum, sem voru boðaðar 1. nóv., ef ekki væru höfð brögð í frammi. Það leið ekki heldur langur timi frá bæjarstjórnarkosn- ingunum í Budapest, unz hat- römustu ofsóknir hófust gegn smábændaflokknum. Foringjar hans urðu fyrir ógnunum og meiðingum og liðsmönnum hans var einnig hótað flestu illu. Bækistöðvar hans , urðu fyrir árásum og þar fram eftir götunum. í flestum tilfellum hefir sannazt, að kommúnist- ar voru hér að verki. Þá hefir stjórnin nýl. tilkynnt að hún ætli að hafa sama fyrir- komulag á þingkosningunum og fyrirhugað er í Búlgaríu og Rúmeníu, þ. e. að ekki verði lagður fram nema einn listi, sem allir stjórnarflokkarnir standi að og verða þeir því að semja um skiptingu þingsæt- anna fyrirfram. Kosningarnar verða því eins ófrjálsar og hugs- azt getur. Stjórnir Bandaríkjanna og Bifetlands hafa nú lýst yfir, að þær muni ekki viðurkenna ungversku stjórnina, ef hún lætur kosningarnar fara fram með þessum hætti. Hins vegar þykir víst, að Rússar fylgi því fast eftir, að (Framhald á 7. síðu) í Reykjavíkurbréfi Skutuls 14. þ. m. segir svo um nýja verðlagið á land- búnaðarvörunum: „Nú kynnu ýmsir að álíta, að bændur bæru óþarflega mikið úr býtum með því verði, sem nú hefir verið ákveöið, og er hætt við, að gremja launþeganna beinist að ein- hverju leyti að þeim. En það er engan veginn sanngjarnt. Afurðaverðið er að vísu orðið vit- leysislega hátt. Nú mun danskt smjör kosta i heildsölu eitthvað á þriðju krónu kg. Hér hefir heild- söluverðið verið ákveðið kr. 26,50. Samt fæst sáralítið íslenzkt smjör. Þetta sýnir glögglega brjálæðið í verðlagsmálum okkar íslendinga. Samt er það svo, að bœndur eru sennilega sú stétt á íslandi, sem undanfarin ár hefir haft lœgstar tekjur og lengstan vinnutima. Enn- fremur búa þeir við lökust húsa- kynni af öllum stéttum þessa lands, þegar frá eru taldir íbúar bragga- hverfanna í Reykjavík og að ýmsu öðru leyti við örSugust og ömur- legust lífsskilyrði. Raunin er líka sú, að fólkið#flýr í stórhópum í kaupstaðina, bændur selja jarðir sínar stórgróðamönnum kaupstaðanna, en aðrar leggjast í eyði. Þjóðartekjurannsókn, sem gerð hefir verið fyrir árið 1942, sýnir glögglega, að meðaltekjur bœnda eru langt fyrir neðan tekjur allra annarra aðalstétta landsins þetta ár, og þó nokkur breyting kunni að hafa orðið á hlutföllunum síðan, þá mun það í engu hagga því, sem hér að framan er sagt. Það eru ömurlegar staðreyndir, að þessi skuli vera niðurstaðan, þrátt fyrir hið óskaplega háa af- urðaverð. En þetta sýnir vel, hvern- ig landinu hefir verið stjörnað und- anfarið tímabil, þegar stríðsgróðinn var látinn flæða yfir landið. Þetta er m. a. niðurstaðan af þvi, að stríðsgróðamennirnir hafa allt frá því 1939 átt sina fulltrúa í ríkis- stjórninni og raunverulega ráðið stjórnarstefnunni, þrátt fyrir það þótt „fulltrúar hinna vinnandi stétta“, bænda og verkamanna, hafi að nafninu til ætíð verið í meiri hluta í þessum stjórnum, þegar frá er talið stjórnartímabil utanþings4- stjórnarinnar, sem þó að engu veru- legu leyti sker sig úr um þetta. En leiðtogar bænda og verka- manna virðast öll þessi ár aldrei hafa skilið, að hagsmunir þessara stétta og miljónamæringa, heild- salanna og stórútgerðarmanna geta ekki farið saman og að vandamál- in, sem að þjóðinni steðja, verða aldrei leyst í samvinnu við þá, nema annað hvort á kostnað bænda eða launþega, eða þá hvort tveggja, ef slíkt skal kalla lausn. Og sú stund nálgast óðfluga, ef þetta stjórnarfar á að ríkja áfram" Þá er vikið að fölsun vísitölunnar og segir þar svo: „Launþegarnir hafa undanfarið verið að fá forsmekkinn af því, sem koma mun, ef haldið er áfram á sömu braut. Þeir hafa undanfarna mánuði búið við falsaða vísitölu, þar sem ríkisstjórnin hefir ákveðið með bráðabirgðalögum, að sumar- verðið skyldi engin áhrif hafa á vísitöluna og að reiknað skyldi með verðinu á hálfóætu ameríkusmjöri, sem auk þess hefir verið mjög lítið til af og ófáanlegt upp á síðkastið. Þetta er í rauninni nýr neyzlu- skattur, sem laumað er yfir á laun- þegana í skjóli bráðabirgðalaga. Hin nýja verðhækkun um miðjan þennan mánuð thér mun vera átt . við septemberl er enn nýr neyzlu- skattur, sem lagður er á með mjög óheiðarlegri aðferð. Enn er ekki fullvíst, hváð ríkis- stjórnin ætlar sér að gera í verö- lagsmálunum. En stjórnarblöðin gera fyllilega í skyn, að afurða- verðið muni verða lækkað á ný með niðurgreiðslum fyrir 1. okt. n. k. til þess að hækkunin komi ekki fram í vísitölunni. Þessu verð- ur þó tæpast trúað að óreyndu. Vitanlega væri það ný stórfelld fölsun vísitölunnar. Lauslega áætlað ætti vísitalan, ef öll kurl kæmu til grafar, að hækka upp undir 40 stig um næstu mán- aðamót. Þessi hækkun hefir raun- verulega staðið hálfan mánuðinn og samsvarar því um 20 stigum fyrir allan mánuðinn (auk þeirrar skékkju, sem fyrir var). Fyrir mann með 500 kr. grunn- kaup á mánuði nemur þessi hækk- un 100 kr., sem er raunverulega neyzluskattur, sem lagður er á hann þennan hálfa mánuð bótalaust. Ef slík fölsun á vísitölunni væri allt árið, næmi það 2400 kr. yfir árið. Hér er því ekki um peina smáræð- isskekkju að ræða. Auðvitað nær slík framkoma af hálfu yfirvaldana gagnvart laun- þegunum engri átt. Hún er hlið- stæð því, ef kaupmenn fölsuðu mál og vigt. Slíkt væri talin tugthús- sök, ef einstaklingur œtti í hlut, og minni siðferðiskröfur ætti ekki að gera til æðstu stjórnar landsins, heldur en rétt þykir að gera til kaupmannastéttarinnar. Það má furðulegt heita, ef rikis- stjórn, sem styðst við verkálýðs- samtökin og tvo verkalýðsflokka, fsér að komast upp með slíka svindilpólitík, því annað betra nafn verðskuldar hún ekki. Ef ríkisstjórnin telur. nýjar álögur á launþeganna nauðsynlegar, þá á hún að viðurkenna það hreinskiln- islega, í stað þess að lauma þeim yfir á almenning með fölsun vísi- tölunnar. Slíkt er ekki samboðið < siðuðu þjóðfélagi." Það er vissule^a ekki ofmælt, að fölsun vísitölunnar sé ósamboðin sið- uðu þjóðfélagi, því að sé talið nauð- synlegt að þyngja byrðarnar á laun- þegum, á að ganga hreint tll verks, en vera ekki að fara í felur með það. Það eitt er heiðarlegt. En stjórnin tel- ur víst, áð launþegum verði'þá augljós- ara eðli „kjarabótanna“ og velur þá leiðina, sem ósæmilegri er.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.