Tíminn - 19.06.1947, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARENN ÞÓRARINSSON >
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
..ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A
Slmar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargöw 9A
Siml 2323
31. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 19. júni 1947
110. blað
Glæsilegt íslandsmet sett
á 17. júní mótinu
Finnbjörn. I»orvaldsson rann 100 m. skeiðið
á 10.7 sek.
Tvö ný íslandsmet og eitt drengjamet voru sett á frjálsíþrótta-
móti í. S. í., sem haldið var í fyrradag. Finnbjörn Þorvaldsson
hljóp 100 m. á 10.7 sek., en gamla metið, sem Finnbjörn setti í
fyrra, var 10.8 sek. A-sveit í. R. hljóp 1000 m. boðhlaup á 2.02.5
mín., en gamla metið, sem sveit úr í. R. setti 1945, var 2.04.1 mín.
Drengjametið setti Haukur Clausen, sem hljóp 100 m. á 11.0 sek.,
en Haukur er ekki nema 18 ára gamall.
Þrír íþróttaflokkar
úr Árraanni fara til
Helsingfors
Þrír íþróttaflokkar úr Ar-
manni eða rúmlega 40 njanns,
munu taka þátt í hinu mikla í-
þróttamóti, sem haldið verður í
Helsingfors í sumar og hefst 29.
þ. m. Mót þetta mun standa í
rúman mánuð og hefir 26 þjóð-
um verið boðin þátttaka í því.
Gert er ráð fyrir, að þátttakend-
ur verði um 70 þús. og verður
þetta eitthve rt stærsta íþrótta-
mót, sem haldið hefir verið.
Þegar boðið barst hingað síð-
astliðinn vetur, ákvað í. S. í.,
að fimleikamenn úr Ármanni
skyldu mæta þar fyrir íslend-
inga. Síðar bauð Glímusamband
Finnlands Ármanni að senda
þangað glímuflokka. Það verða
þrír flokkar úr Ármanni, leik-
fimisflokkur kvenna, leikfimis-
flokkur karla og glímumanna-
ÖBeztu íþróttamennirnir.
Met Finnbjarnar í 100 m.
hlaupinu var bezti árangurinn á
mótinu og hlaut hann því kon-
ungsbikarinn, sem er jafnan
veittur þeim, er nær bezta ár-
■■ angrinum á 17. júní mótinu. Met
1 hans gaf 934 stig. Næstbezta
árangrinum náðu Huseby í kúlu-
varpi og Haukur Clausen í 100
m. hlaupi.
Auk þeirra íþróttamanna ,sem
áður eru kunnir orðnir, vöktu
þeir Haukur og Örn Clausens-
bræður og Hjálmar Torfason
sérstaka athygli. Haukur og
Örn, sem eru tvíburar, eru að-
eins 18 ára gamlir og eru sér-
staklega glæsileg íþróttamanns-
efni. Hjálmar er ungur Þingey-
ingur, sem bar sigur úr býtum í
spjótkastinu.
Skemmtilegar keppnir
Sú keppni, sem áhorfendum
þótti einna mest spennandi, var
viðureign þeirra Óskars Jóns-
sonar og Kjartans Jóhannesson-
ar í 800 m. hlaupi. Kjartan hefir
um skeið borið af keppinautum
sínum á þessari vegalengd,
flokkur, sem fara héðan á mótið. unz Óskari tókst að setja þar
Munu þeir fara héðan í næstu nýtt met í fyrra.Óskar varð hlut
viku með Skymastervélinni skarpari nú, en mjóu munaði.
Heklu.
Glímuförin til Noregs
Glímuflokkur Ungmennafélags
Reykjavikur, sem fór til Noregs,
kom heim síðastl. laugardag.
Flokkurinn hafði fimm sýning-
ar í Noregi, þar af 3 í Bergen,
og fékk jafnan mikla aðsókn og
beztu undirtektir. Þeír, sem voru
í förinni, róma mjög móttökur
Norðmanna. Fararstjóri var séra
Eiríkur J. Eiríksson, en glímu-
stjóri Lárus Salómonsson. Auk
glímumannanna voru nokkrir
ungmenftafélagar utan af landi
með í förinni.
Kann það að hafa ráðið nokkru,
að Kjartan hefir verið veikur
nýlega.
Keppnin í 5000 m. hlaupi var
einnig mjög hörð. Þórður Þor-
geirsson leiddi fyrst hlaupið, en
síðan fór Sigurgeir Ársælsson
fram úr honum. Leiddi hann
síðan hlaupið, unz Þórður reif
sig fram úr honum í seinustu
umferðinni. Var lokasprettur
beggja harður og skemmtilegur.
Úrslit í einstökum íþrótta-
greinum urðu þessi:
100 m. hlaup: Finnbjörn Þor-
valdsson (ÍR) 10,7, Haukur
Clausen (ÍR) 11.0, Örn Clausen
(ÍR) 11.3.
800 m. hlaup: Óskar Jónsson
(Framhald á 4. siðu)
Frægir sænskir íþróttamenn
keppa hér um mánaðamótin
Þrír sænskir íþróttamenn
munu taka þátt í afmælis-
móti íþróttafélags Reykjavík-
ur, sem haldið verffur um
næstu mánaðamót. Eru þaff
þeir Anton Bolinder, Olaf
Læsker og Roland Nilson.
Einnig er von á Roland Sun-
din og Olle Lindén.
Þetta eru allt mjög góðir i-
þróttamenn og standa í fremstu
röð í Evrópu. Bolinder varð Ev-
rópumeistari í fyrra í hástökki á
1,99 m., en í ár hefir hann stokk-
ið 1^4. Læsker varð Evrópu-
meistari í langstökki í fyrra.
Hefir hlaupið 100 m. á 10,6 sek.
og 200 á 21,7. Roland Nilsson
varð að lúta í lægra haldi fyrir
Huseby á Evrópumeistaramót-
inu, en héfir þó náð jafngóðum
árangri í kúluvarpi og hann,
15,69 m. — Sundin hefir hlauplð
1500 m. á 3,50 mín., 3000 m. á
8.16,0 mín. og 5000 m. á 14.20
mín. Olle Lindén er sá hinn sami
er kom hingað s. 1. sumar.
HATIÐAHÖLDIN 17. JUNI
Hátíðahöldin 17. júní í Reykjavík fóru fram eins og gert hafði verið ráð
fyrir og eftir þeirri dagskrá, sem birt var hér i blaðinu. — Hátíðahöldin
hófust skömmu eftir hádegi með skrúðgöngu frá háskólanum á Austur-
völl. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti guðsþjónustu i dómkirkj-
unni. Forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, talaði af svöium Alþingis-
hússins og lagði blómsveig á fótstall líkneskis Jóns Sigurðssonar. Frú Alda
Möller kom fram á svalir Alþingishússins í gervi Fjallkonunnar. Að lokum
talaði Stefán Jóhann Stefánsson forsætisráðherra af svölum Alþingis-
hússins. — íþróttamót var haldið, sem sagt er frá á öðrum stað í blað-
inu. — Um kvöldið voru hátíðahöld í Hljómskálagarðinum og að lokum
dansað á Fríkirkjuveginum til kl. 2 um nóttina. — Myndin er af forseta
íslands, er hann leggur blómsveig á minnisvarða Jóns Sigurðssonar. —
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).
Fréttlr frá Skagaströnd:
Vörusala Kaupfél. Skagstrend-
inga nam 24 milj. kr. á síöastl. ári
Nýtt félag' hefur íitgerð tveggja báta.
Affalfundur Kaupfélags Skagstrendinga var haldinn 7. júní.
Sala félagsins s. 1. ár á erlendum vörum nam iy2 millj. kr., en
crlendra og innlendra vara samtals um kr. 2.400.000,00.
íslandsmótiÖ í
knattspyrnu
Á sunnudaginn var kepptu
Valur og Akurnesingar. Bar Val-
ur sigur af hólmi með fjórum
mörkum gegn engu.
í gærkvöldi kepptu K. R. og
Víkingur og lauk leiknum með
sigri K. R., tvö mörk gegn einu.
Allmargt fólk var á vellinum
að vanda og veður með bezta
móti. Leikurinn var allfjörugur
og töluvert harður, en oft skipt-
ust á góð upphlaup.
Fundurinn samþykkti að end-
urgreiða til félagsmanna af á-
góðaskyldri úttekt 6%, er greið-
ist út og 3%, er gangi til stofn-
sjóðs.
Þá ákvað fundurinn að kaupa
hluti í nýstofnuðu útgerðarfé-
lagi Höfðakaupstaðar, fyrir kr.
15.000,00.
Á síðastliðnu ári kom félagið
upp brauð- og kökugerð, ásamt
brauðbúð, er það starfrækir. Þá
reisti það vöruskemmu um 1600
rúmmetra að stærð.
í tilefni af 40 ára afmæli, sem
félagið á nú á þessu ári, kaus
aðalfundur Ólaf Björnsson,
bónda á Árbakka, sem heiðurs-
félaga, en Ólafur var fyrsti
framkvæmdastjóri félagsins og
lengi í stjórn þess, og ávallt ó-
trauður stuðningsmaður.
Úr stjórn félagsins átti að
ganga Björn Þorleifsson, og var
hann endurkosinn. Endurskoð-
andi til 2ja ára var endurkosinn
Guðmundur Guðlaugsson, bóndi
Árbakka.
Ilangindum tryggingalaganna
mótmælt.
Fundurinn samþykkti eftir-
farandi tillögu, snertandi lög
um almannatryggingar:
„Fundurinn mótmælir ein-
dregið atvinnurekandaskatti
þeim, sem 112. gr. hinna nýju
tryggingarlaga leggur á alla
einstaklinga og félög, sem menn
hafa i vinnu, og skorar fastlega
á Alþingi að fella niður um-
rædda grein nefndra laga.
Jafnframt skorar fundurinn á
Ti;yggingarstofnun ríkisins, að
innheimta ekki skattinn á þessu
ári“.
Útgerffarfélag Höfffakaup-
■ staðar stofnaff.
I Nú fyrir stuttu hefir verið
stofnað í Höfðakaupstað félag
er nefnist Útgreðarfélag Höfða-
kaupstaðar h.f. Svo sem nafnið
I (Framhald á 4. síðu)
Rifsnes hefir ekki orð
ið síldarvart enn
Vélskipið Rifsnes hefir að
undanförnu verið í rannsókn-
arleiðan,gri fyrir Norðurlandi og
leitað síldar. Samkvæmt fréttum
sem Tímanum hafa borizt frá
skipinu, var það i gær statt á
Seyðisfirði og beið betra veðurs
til að halda áfram síldarleitinni
sem ennþá hefir ekki borið
neinn árangur.
Rannsakað hefir verið allt
svæðið frá Horni til Kolbeins-
eyjar og þaðan til Tjörnes
Hefir komið í ljós, að á svæði
þessu er töluvert mikil rauðáta
og virðist fara vaxandi. Sjávar-
hiti hefir verið 6—7 stig á þessu
svæði. Rannsökuð var öll leiðin
frá Maríueyjuín, 50 mílur norð
ur af Sléttu, og til Langaness. Þá
var rannsökuð grunnleiðin til
Seyðisfjarðar. Var þar mjög
lítil rauðáta og sjávarhiti 5—6
stig. Vegna veðurs hefir ekki
verið hægt að rannsaka djúpt
út af Austurlandi.
Á öllu þessu svæði hefir engin
síld sést og engin fengizt í rek-
net.
Áðgerðaleysi fyrv.stjórn-
ar í fisksötumálunum. vítt
Frá aðalf. söluiniðsloðvar hraðfryslihiisaiuia.
Affalfundur sölumiffstöffvar hrafffrystihúsanna var haldinn
hér í bænum 11.—13. þ. m. Auk venjulegra affalfundarstarfa og
skýrslna, sem erindrekar sölumiffstöðvarinnar fluttu, voru gerðar
jar ýmsar samþykktir um málefni útvegsins. Alveg sérstaklega
var lögff áhersla á betri undirbúning viffskiptasamninga en átt
hefffi sér stað á síffastl. vetri.
Nokkrar helztu ályktanir fundarins fara hér á eftir:
Viffskiptasamningar við 0
önnur lönd.
„Fundurinn álítur mjög ó-
heppilegt að samningar við önn- j
ur lönd um sölu á útflutnings-
vöru hvers árs séu hafnir eins
seint og gert var um afurðir yf-
irstandandi árs.
Fundurinn skorar þess vegna
á ríkisstjórnina að hefja samn-
inga um sölu afurðanna i fram-
tíðinni mun fyrr en nú var gert.
Fundurinn tekur undir þá
samþykkt nýafstaðins aðalfund-
ar L. í. Ú., að nauðsynlegt sé að
tryggja, að unnið sé að afurða-
sölumálunum á skipulagsbund-
inn hátt allt árið, og að sölu-
samningar við önnur ríki megi
ekki tefjast vegna pólitískra
flokkadrátta innanlands".
Viðskipti viff Spán og Ítalíu.
„Fundurinn beindi því til rík-
isstjórnar íslands, að gera sem
fyrst verzlunarsamninga við
Spán og önnur þau lönd, sem
líkleg eru til þess að kaupa ís-
lenzkar sjávarafurðir.
Auk þess beinir fundurinn því
að ríkisstjórninni, að hvers kon-
ar verzlunarupplýsingar frá
sendiráðum okkar erlendis verði
auknar að mun.
Ennfremur að ríkisstjórnin
sendi sem fyrst verzlunarfróð-
an fulltrúa til Þýzkalands eins
og Norðurlöndin hafa gert“.
„Fundurinn telur nauðsynlegt,
að notfærðir séu að fullu þeir
möguleikar, sem fyrir hendi
kunna að vera á vöruskiptum
við Ítalíu“.
Markaffsleitir fyrir
sjávarafurðir.
„Fundurinn lýsir því mjög
eindregið yfir, að hann telur
eitt af mestu nauðsynjamálum
frystihúsanna, að varið verði
miklu fé til auglýsinga á fram-
leiðsluvörum þeirra á erlendum
mörkuðum.
í þessu sambandi skorar fund-
urinn á stjórn Fiskimálasjóðs
og ríkisstjórn, að leggja fram
(Framhald á 4. síðu)
FJALLKONAN
Mynd þessi eraf Fjallkonunni, frú
Öldu Möller. Er hún tekin í Alþingis-
hússgarðinum 17. júní, er hún kom
niður af svölum Alþingisliússins, eftir
að hafa ávarpað mannfjöldann.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).
Frá Kvenréttinda-
félagi íslands
Þriðji fulltrúaráðsfundur
Kvenréttindafélags íslands var
haldinn i Reykjavík dagana 14.
—16. júní síðastl. Á fundinum
voru mættir fulltrúar -úr öllum
fjórðungum landsins, nema
Vestfirðingafjórðungi. Voru
gerðar samþykktir varðandi ýms
Voðaskot
Það slys vildi til á Húsavík
síðastl. mánudagskvöld, að ung-
ur maður beið bana af voðaskoti.
M^ður þessi hét Karl Valdi-
mar Parmesson. Hann var að
koma af sjó með tveim drengj-
um og hafði byssu meðferðis.
Rétt í lendingunni hljóp skot
úr byssunni og fór kúlan í höf-
uð mannsins. Hann lézt sam-
stundis.
Þing Kvenfélaga-
sambandsins
Þing Kvenfélagasambands ís-
lands var sett hér í bænum í
gærkvöldi. Þingið sækja um 40
fulltrúar víðs vegar að af land-
inu. Ýms mikilvæg mál verða
til umræðu. Þingið stendur til
25. þ. m. Fundir þess eru haldn-
ir í háskólanum og hefjast dag-
réttinda- og áhugamál kvenna, lega kl. 13.30. Ollum konum er
svo sem atvinnumál og útgáfu heimill aðgangur meðan húsrúm
(Framhald á 4. síðu) leyfir.
Listsýning Nínu
Sæmundsson
Listsýning ungfrú Nínu Sæ-
mundsson var opnuð í Sýning-
arskála myndlistarmanna kl. 5
á mánudaginn var. Biskupinn,
herra Sigurgir Sigurðsson, opn-
aði sýninguna með ræðu og bauð
listakonuna velkomna til ætt-
landsins.
Á sýningunni eru 29 málverk
og 29 höggmyndir, en þó er það
aðeins lítill hluti af verkum
listakonunnar. Flest þeirra eru í
New York og Los Angeles, enda
eru mörg þeirra i því formi, að
erfitt er að flytja þau yfir hafið
til sýningar.
Uppsögn Mennta-
skólans í Reykjavík
Menntaskólanum í Reykjavík
var sagt upp 16. þ. m. Pálmi
Hannesson rektor flutti þar
snjalla ræðu að vanda. Að þessu
sinni útskrifaði skólinn 72 stud-
enta, 40 úr máladeill, 30 úr
stærðfræðideild og 2 utanskóla.
Rúmlega 40 nemendur stund-
uðu nám við skólann í vetur.
Undir inntökupróf gegngu 156
og stóðust 133 þeirra prófið.
Við skólauppsögn afhenti Sig-
urjón Jónsson skólanum mál-
verk af Halldóri Frðirikssyni
yfirkennara, sem 50 ára stúd-
entar gáfu skólanum, og Thor
Thors afhenti málverk af Jóni
Ófeigssyni yfirkennara, sem 25
ára stúdentar gáfu.