Tíminn - 10.11.1947, Page 1
Ritstjóri: _
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Ritstjómarsimar:
4373 og 2353
Afgreiösla og aug'.ýsinga-
sími 2323
Prentsmiðjan Edda
31. árg.
Reykjavík, mánudaginn
10. nóv. 1947
205. blað
Stór, ný síldarganga kom
í Hvalfjörð í gær
Hvalavaða í fjarðarmynninu
í gær var uppgripasíldveiði í Hvalfirði. Leit helzt út
fyrir að mikil ný síldarganga væri að ganga í fjörðinn, og '
var krökt af síld utarlega í firðinum. Allur flotinn, miili
50 og 60 skip, var að veiðum utarlega í firðinum, aðallega
að norðanverðu á móts við Innra-Hólm og inn undir Klafa-
staði. Hvalavaða var líka í fjarðarmynninu í gær og á
skipaleið milli Altraness og Reykjavíkur.
10. þús. mál bíða norður-
flutnings í Reykja-
víkurhöfn.
í nótt og í gær komu mörg
skip til Reykjavíkur með mik
inn afla og liggja þau drekk-
hla'ðin við bryggjur liöfuð-
staöarins og bíða þess, að
síldin verði losuð til norður-
flutnings. Hafa bátar verið
aö koma hingað með síld
alltaf öðru hverju í morgun.
Alls eru nú um 10 þúsund mál
í skipum hér í höfninni og
bíða þess, að skip fáist til að
flytja síldina. Ekkert flutn-
ingaskip er fyrir hendi eins
og er, að því er Kristján
Karlsson verkstjóri tjáði blað
inu í morgun, en hann sér
um umhleðslu síldarinnar
fyrir L. í. Ú. Hins vegar er
verið að undirbúa flutninga-
skip. En erfitt er að fá hentug
skip til flutninganna.
Mesti aflinn 1900 mál.
Af þeim skipum, sem hér
bíða losunar, hefir Helgi
Helgason frá Vestmannaeyj-
um mestan afla, um 1900 mál.
Er nú verið að losa. þá síld,
sem hann hefir á þilfari, en
að því loknu fer báturinn
með afla sinn til Siglufjarðar.
3500 mál bárust til
Akraness í nótt.
Samkvæmt viðtali, er blað-
ið átti í morgun við Jón Pét-
ursson fiskvigtarmann á Akra
nesi, bárust þangað 3582 mál
sildar í nótt. Höfðu allir
Akranesbátarnir, sem veiða
með nót, fengið ágætan afia,
nema Farsæll, sem kom inn
snemma í gær og hafði riíið
nótina. Mestan afla hafði
Keilir, 90Q mál, skipstjóri á
honum er Hannes Ólafsson.
Enginn A.iranesbátanna fóru
út í morgun vegna þess, hve
hvasst er á miðunum í dag.
Sjömaður segir frá ...
Tíðindamaður blaðsins átti
í gær tal við sjómenn á Akra-
nesi, sem voru á bátum, er
veiða í Hvalfirði. Sveinn
Guðmundsson, háseti á Far-
sælí, segir svo frá:
„Við fórum út síðdegis í
fyrradag. í gær, laugardag.
var fremur treg veiði hjá
okkur ,en við fengum þó eitt
kast með 200 málum. í dag
var hins vegar mjög mikil
síld. Sáum við með aðstoð
bergmálsdýptarmælisins, að
um óvenju mikla síldargengd
var að ræða. Var engu likara
en sjórinn væri bókstaflega
morandi af síld frá yfirborði
og niður undir botn. Síldin
óð ekki í dag og voru það
því hin fullkomnu nýju mæli-
tæki, sem hjálpuðu okkur að
finna hana. Þegar við höfð-
um fundið þessa miklu síld-
armergð, sem var utarlega í
firðinum, köstuðum við. En
síldin var svo mikil, að við
rifum nótina og náðum litlu
um borð. Það var því ekki
annað að gera en halda til
’ands, þó blóðugt væri, þvi
að bátarnir héldu áfram að
háfa síldina allt í kringum
okkur. Þetta var fyrsta veiði-
förin okkar, en við erum á-
kveðnir í því að láta okkur
takast betur næst.
Það er líkiegt, að þessi
mikla síldarmergð sem var
utarlega í firðinum í dag, sé
stór, ný síldarganga, sem sé
að koma í fjörðinn.Síldin er
iíka greinileg hafsíld, stór og
feit. Við sáum hvalavöður í
firðinum og það er líka merki
um síldargöngur. Við sáum
hval bæði í fjarðarmynninu
og eíns innar i miðjum firð-
inum.“
Kásetahlutur um 1000
krónur á sólarhring.
Það borgar sig vel að vera
á síld núna. Hásetahlutur á
Akranesbátunum hefir kom-
izt upp í 1000 krónur á dag.
Er hásetahlutur nokkuð á
aðra krónu fyrir málið, þeg-
ar hægt er að koma því í
bræðslu á Akranesi. Hins veg-
ar verður hann nokkuð minni
þegar selja þarf síldina í
flutningaskip og flytja verð-
ur af’ann norður. Keilir frá
Akranesi fékk um 900 mál í
gær og lætur nærri, að hlut-
ur háseta sé um 1000 krónur
fyrir þann afla. Hásetahlutur
er um tvær krónur fyrir
hverja sildartunnu, sem fer
í íshús. Þótt hlutir sjómanna
verði háir dag og dag, ber
þess að gæta, að oft koma
margir dagar, þegar lítið
veiðist. Sjómenn eru líka vel
að því komnir að fá mikið
fyrir störf sín. ,
Hvalfjörður eins og
fljótandi borg á kvöldin.
'31aðið átti í morgun tal
við Guðmund Brynjólfsson á
Hrafnabjörgum á Hvalfjarð-
arströnd og Odd Andrésson
Framh. á 7. s.
Fulltrúar íslands í
þingi S. Þ. komnir
heim
Þrír af fulltrúum ísland
á þingi hinna Sameinuði
þjóða komu heim í morgun
Voru það þeir Hermann Jón-
asson, Ásgeir Ásgeirsson og
Ólafur Thors. Thor Thorf
sendiherra, er var formaður
íslenzku nefndarinnar, mun
sitja þingið áfram fyrir ís-
lands hönd.
Tíminn náði tali af Her-
manni Jónassyni í síma um
leið og hann kom á Keflar-
víkurflögvöllinn, en fulltrú-
arnir komu hingað frá New
York meö flugvélum frá
A. O. A. Lét Hermann vel fyrir
ferðinni að vestan og dvöl
íslenzku fulltrúanna á alls-
herjarbinginu, en þar hafr
beir verið um 7 vikna skeið
Skagfirðingar
mynda hrossasöla-
samlag
700 hrosKinn sláírað
I Isasist á vegiira
þessa félags
Byrjað er nú að gera ráð-
stafanir til þess að aðstoða
hrossamarga bændur við að
koma hrossum í verð, bæði
með sölu hrossakjöts og sölu
hrossa til lífs. Hefir þessi við-
leitni gefizt sæmilega, að svo
miklu leyti, sem hafizt hefir
verið handa um framkvæmd-
ir. —
Framleiðsluráð iandbúnað-
arins hefir skipt landinu í tvö
hrossasölusvæði. Er annað
Norður- og Austurland, hitt
Vestur- og Suðurland.
Sláturfélag Austur-Hún-
vetninga og Kaupfélag Skag-
firðinga hafa myndað með sér
sölufélag, og á það aö annast
það hlutverk að koma hross-
um bænda í verð á söiusvæð-
inu norðan og austan lands.
Plefir hið nýja sölufélag keypt
hús á Akureyri til þessarar
starfsemi.
í haust voru keypt um 700
hross. Var þeim lógað i slátur-
húsi K.E.A. á Akureyri, en
kjötið selt þar í bæ og í Siglu-
firði, Ólafsfirði og Dalvík.
Einnig hefir félagið annast
sölu á nokkrum hrossum til
lífs, og mun það auka þá
starfsemi í framtíðinni.
Ekki hefir verið unnt að
rannsaka möguleika á mark-
aði fyrir hross á Austfjörðum,
enn sem komið er, en það mun
i verða gera svo fljótt sem aúð-
I ið er.
Fyrstu. myndirnar frá Hvalf jarbarveibanum
Maður drukknar af Surprise
Skipið hlaut áfall á heimleið
Togarinn Surprise Jrá Hajnarjiröi jékk áfaíl í gœrkvöldi,
er hann var á heimleið aj miðunum. Tók einn skipsverj-
anna út og drukknaði hann. Auk þess missti skipið báða
Efri myndin er af vélbátnam Fat sæl frá Akranesi, er hann kom
heim af síldveiðum úr Ilvalfirði cftir hádegið í gær. — Neðri
myndin cr af Hvalfjarðarsíldinni, eins og hún lítur út á þilfarinu.
(Ljósm.: Guðni I'órðarson.)
bátana.
Togarinn Surprise hafði
verið á veiðum á Halamiðum.
Var hann á leið til Hafnar-
fjarðar í gær. Vont var í sjó
og hvasst. Hlaut skipið þá
áfall og tók út einn skip-
verja, Guðmund Jóhannsson.
til heimilis að Austurgötu 2?
í Hafnarfirði, og drukknaði
hann.
Guömundur var ungur
maður, aðeins 31 árs að aldri.
og lætur eftir sig ekkju og
þrjú börn ung.
Nýr norrænn lýð-
háskóli
f þriðju viku nóvember
verður vígður nýr lýðháskóii i
Kungálv, sem er skammt frá
Gautaborg. Gert er ráð fyrir,
að nemendur frá öllum Norð-
urlöndum sæki þennan skóla,
og hann veröur þeim mun
norrænni en aðrir lýðháskól-
ar, að reynt verður að fá
kennara frá Danmörku,
Noregi, íslandi og Finnlandi,
auk sænsku kennaranna.
Surprise misti einnig báða
bátana í þessum brotsjó.
Einari Þorgilssyni & Co.,
sem á togarann, barst skeyti
frá skipstjóranum um þetta
slys í gærkvöldi.
Tvö uraferðaslys
í gær
í gærmorgun rakst fólks-
bifreiðin R-306 á brúna hjá
Lækjarhvammi. Bifreiðin var
full af farþegum, en þeir
sluppu allir ómeiddir að
mestu, nema ein stúlka, sem
meiddist talsvert
Hitt slysið varð á gatna-
mótum Skúlagötu og Geirs-
götu um kl. 8 í gærkvöldi. Var
það maður á bifhjóli, sem
rakst á steinsteypta brún,
sem er á gangstéttinni og
hefir verið þar síðan á dög-
um hersetunnar. Maðurinn
féll af bifhjólinu við
áreksturinn og meiddist mjög
mikið. Var hann fluttur á
sjúkrahús Hvítabandsins, þar
sem ekkert rúm var til á
Landsspítalanum.