Tíminn - 11.11.1947, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.11.1947, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi Framsóknarflokkurinn Skrifstofur i Edduhúsinu Ritstjórnarsimar: 4373 og 2353 Afgreiðsla og auglýsinga- sími 2323 Prentsmiöjan Edda 31. árg-. Reykjavík, þriðjudaginn 11. nóv. 1947 206. blaff Íslandssíldin gaf Norðmönnum meira en nokkrn sinni áður CséH afk©Bína síMar- sa í ger ða r ub £í sb as *a faaa* Norski útgerðarmaöur- inn Knut Vartdal flutti nýlega erindi i norska út- varpið nim ve^ðtítr Norð- manna við ísland á pessu ári. Fara hér á eftir fáein atriði úr útvarpserindi hans. Hann skýr'ði svo frá, að sldveiðiflotinn norski hefði farið hingað með 220 þúsund tómar tunnur í sumar. Ekki tókst þó að fá síld til þess að fylla þessar tunnur allar. — Einkum vantaði talsvert á, að fullfermi fengist í skip, sem byggðu á reknetaveið- um. Alls fluttu norsku skipin heim 190 þúsund tunnur síid- ar frá ströndum íslands. íslendingar söltuðu síðast- liðið sumar aðeins 63 þúsund tunnur síldar. Tvö skip fórust á heim- leiðinni — flutningaskip og fiskiskip. Fórust þar 3500 tunnur af síld, en auk þess misstu sum skipanna útbyrð- is dálítið af síld, sem þau höfðu á þilfari. Sextíu þúsund tunnur af Íslandssíldinni voru krydd- saltaðar eða sykursaltaðar, átta þúsund ísaðar, en hitt var saltað á venjulegan hátt, mest hausskorið. 35 þúsund tunnur af þess- ari síld fara til neyzlu í Nor- egi, en hitt er selt til ann- íirra landa. Svíar hafa fengið H5 þúsund tunnur, Danir sex þúsund tunnur og til Banda- ilkjanna eiga að fara uin 25 þúsund tunnur og 25—30 þús- ] nd tunnur til Rússlands. — i'veir þriðju hlutar sölusíld- arinnar hafa verið sendir (Framhald á 7. síðu) Viiíaí við fiennanii Jónasm: Rússar skárust úr leik í þrem stórmálum, sem allsherjarþingið afgreiddi Sum deilumálin hafa verið rædd í nefndum ailan þingtímann Nýja vitaskipið kom í nóíí Hermóður, vitaskipið nýja, kom til Reykjavíkur frá Sví- þjóð laust fyrir kl. 1-1 í gær- kvöldi. Skipið er hið glæsi- legasta og virðist vera traust- byggt. Það er 200 brúttólestir að stærð, en burðarmagn þess er 150 smál. Hið nýja skip á að gegna sömu störfum og gamli Her- móður. Það er að flytia vist- ir og nauðsynjar til vitavarð- anna og til viðhalds vitun- um. Skipið er sérstaklega sterkbyggt, og ætlazt er til, að það þoli vel hnjask við þryggjur. Skipstjóri á Hermóði ev Guðni Thorlacíus, en skip- verjar eru alls 10. Margiv þeirra eru þeir sömu og voru á gamla Hermóði. í gær komu þrír fulitrúar. íslands á allsherjarþingi sam- einuffu þjóffanna hcim frá New York, eftir aff hafa dvaliff þar síffan um miðjan septembermánuff. Þinginu er þó ekki nærri lokiff enn, og mun Thor Thors, sendiherra íslands í Washington mæta einn af hálfu íslendinga á þinginu, það sem eftir er af starfstíma þess. Tíðindamaður Tímans átti í gærkvöldi stutt viðtal við Hermann Jónasson, en hann var einn af fulltrúunum, og spurði hann frétta af störfum þingsins. Þingið byrjar. — Þing hinna Sameinuðu þjóða, segir Hermann Jónas- son, hófst 16. september. í rúmlega vikutíma voru stöð- ugir fundir, þar sem rætt var almennt um helztu málin, er leggjast áttu fyrir þingið. Þann tíma voru engin nefnd- arstörf. Það vakti strax mikinn ugg og kvíða métSal margra full- trúa, hvern blæ allar umræð- ur og þingstorf yfirleitt fengu á sig frá byrjun. Deilurnar voru vægast sagt hlífðarlaus- ar, og fyrirsjáanlegt var í upphaíi, að þingið myndi verða lengi að störfum. Helztu deilumálin. — HeJztu deilumálin frá upphafi þingsins voru m. a. Grikklandsmálin, Gyðinga- vandamálin og Palestína, Kóreumálið, tillaga Banda- ríkjanna um að skipa sérstaka milliþinganefnd, „Litla alls- herjarþingið", eins og hún hefir síðan verið nefnd, enn- fremur bannið við stríðsæs- ingum og róg um þjóðir og framsal stríðsglæpamanna. Mál, er leyst hafa verið. — Afgreiðslu hafa þessi mál hlotið: Grikklandsmálin að mestu leyti, striðsæsingamál- ið og framsal stríðsglæpa- manna. Um afgreiðslu tveggj a fyrstu málanna mun íslenzk- um blaðlesendum kunnugt. Á allsherjarþinginu 1946 var samþykkt tillaga um framsal stríðsglæpamanna til þeirra þjóða, er þeir höfðu framið afbrotin gegn. Nú komu Júgóslavar hins vegar með málið inn á þingið á nýj- an leik. Voru i tillögu þeirra urn málið endurtekin flest at- riðin úr tillögunni, er sam- þykkt var um málið á allsherj - arþinginu í fyrra, en þeirri á- sökun bætt við i garð vestur- veldanna, að þau hefðu ekki stað’ið við samþykktir þings- ins varðandi þessi mál í fram- kvæmd. Út af þessu máli urðu mjög heitar umræður í laga- nefnd þings í meira en viku. Loks var málið afgreitt þann- Framleiðsla Breta eykst Hermann Jónasson. frá 1946, varðandi þetta at- riði, og sú ályktun samþykkt með flestum greiddurn at- kvæðum. Er afgreiðsla þessa máls nokkuð táknræn fyrir vinnubrögðin á allsherjar- þinginu að þessu sinni. í stjórnmálanefndinni. — Flest hinna stórmálanna eru komin langt áleiðis í nefndum. Palestínumálið er enn í stjórnmálanefndinni, og hefir verið rætt þar mest af þingtímanum. Vesturveldin og Rússar nafa komið sér saman um að skipla Palestínu og stofna þar Gyðingaríki. Arabar hafa hins vegar lýst því yffr, aff þeir muni hik- (Framhald á 7. siðu) VefiÉÍMg |3E,éfffiSS©B*S- ffiEsaisæíÉisasss: Lækaar vísa á Srag inóímælum Eins og kunnugt er hafa nokkrar deilur oröið út af því, að Jóhanni Sæmundssyni ækni var veitt prófessorsemb- ætti í lyflæknisfræði við Há- skóla íslands. Nú nýlega var þetta mál tekið til urnræðu á fundi í Læknafélaginu. Var þar lögð fram tiilaga til ályktunar, þar sem mótmælt var þessari embættisveitingu. En niður- staðan varð sú, að tillagan var ig, að vísað var til tillögunnar felld með meirihiuta atkvæða. Kol aframleiðslan nasn 4,250 ntiljomim lesta í síföiBStvi vikss Attlee, forsætisráðherra En^Iands, hélt í gærkvöldi ræffu í borgarstjóraveizlu í London. Hefir ræffa þessi vakiff mikla athygli og: geta fjölmörg blöð hennar í morgun. í ræðu sinni benti forsæt- isráðherranii á ýmsar tölur, er sýna að framleiðsla Breta á ýmsum útflutningsvörum hefir aukizt stórlega á síð ustu var kolaframleiðslan alls um 4,250 millj. smálesta í Bret- ’andi, og er það mesta viku- framleiðsla síðan eftir stríðs- lok. Þá hefir stálframleiðslan stóraukizt. Attlee benti hví- 'íkt feiknaátak Bretar hefðu gert á fyrstu árum styrjald- arinnar ,er þeir stóðu svo að segja einir eftir uppgjöf Frakklands. Kvað forsætis- ráðherrann þessa frammi- stöðu Breta of lítils metna nú af ýmsum aðilum. Auk bess hefðu Rússar ráðizt á Bre:ta fyrir st-ríðsæsingar. Vísaði forsætisráðherrann á bug öllum slikum ásökunum Frarakvæmdastjóra- skipti hjá I. A. C. Nýi fffiamkvseHida- stjérliaii er mjég Siekktisr filngiinála- sér íb g anr Fyrir nokkru síðan urðu skipti á framkvæmdasíjórum hjá Iceland Airport Corpor- ation á Keflavíkurflugvellin- um. Hinn nýi framkvæmda- stjóri heitir B. R. J. Hassel. IJassel á sér langa sögu í sambandi við flugmál, og er einn af fyrstu mönnum, sem höfðu trú á'því, a'ö flugleið- in yfir Norður-Atlantshaf væri heppileg fyrir farþega- flug milli Evrópu og Amer- íku á friðartímum. Árið 1928 gerði hann merki lega tilraun til að fljúga yfir' Norður-Atlantshaf með við- komu á Grænlandi og ís- landi. Lagði hann upp frá Rockford í Illinois og áform- mánuöum. í síðustu viku 1 a® flíú§a þaðan til Stokk- hólms. Hann komst þá til Grænlands og varð að nauð- lenda þar. Tók það hann tvær vikur að' komast fót- gangandi til strandar ofan af jöklinum þar sem hann lenti. Hann lagði á þessum árum fyrir sig rannsóknir á flugleiðum og kom þá meðal annars hingað til lands. Kynntist hann þá ýmsuny mönnum hér. Ha.ssel er af sænsku bergi brotinn og hefir dvalið lang- dvölum í Svíþjóð. Hann hefir verið framkvæmda- stjóri á flugvellinum í Goose Bay í Labrador í tvö ár. íátar lenda í firakningum á Hvalfirði í hvassviffrinu í gær lentu bátar frá Akranesi í hrakning- um á Hvalfirði. Þorsteinn frá Akranesi missti annan nóta- bát sinn í ofviðrinu, en bjargaði hinum og nótinni viff illan leik. Fylkir frá Akranesi, sem var með reknet undan Laxvogi, lenti líka í storminum og gat við illan leik náff netunum upp cg forffaff því aff reka á land. Er þaff talið að þakka harðfengi skipstjórans, Vaidimars Kristmundssonar, og skipsmanna hans. Tíðindamaður blaðsins átti í morgun tal við Valdimar, og sagði hann, að hin stutta reynsla sín af veðri á Hval- firði væri sú, að þar gæti hvesst ekki síður en annars staðar og sjóir gætu orðið þar ærið miklir, eins og t. d. í gær. — Mér virðist, segir Valdi- mar, að það slái alitaf fyrir í firðinum i hvaða átt sem er. Auk þess er mjög misvinda og vont að átta sig á snörp- um vindhviðum, sem koma þegar minnst varir. Véltaáturinn Þorsteinn frá Akranesi lagðist fyrir akkeri í storminum í gær, en vindur og bára urðu þess vaidandi, að hann missti annan nóta- bátinn út í veðrið. svo að við ekkert varð ráðið. Hins vegar tókst að ná mestum hluta nótarinnar, sem þó er nokkuð skerr.md. Var hún eins og venjulega i báðum bátunum, en skipverjum tóksr. aö koma henni að mestu yf'r í hinn bátinn. sem ekki tapaðist. Bátinn, sem týndist, hefir nú rekið á h.nd við Bjarteyj- arsand á Mvalfjarðarrirönd, Þorstemn komst arnavs heilu og höldnu að landi I gær.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.