Tíminn - 22.11.1947, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.11.1947, Blaðsíða 5
215. blað TÍMINN, laugardaginn 22. nóv. 1947 5 Föstud. 21. nóv. Góð byrjun Föstum starfsmönnum flug vallanna hefir verið fækkað um 27. Þegar þess er gætt, að það er fullur þriðjungur af föstu starfsliði, sem þar var undir stjórn Áka Jakobssonar, er mjög að vonum, að sú frétt veki nokkra eftirtekt. Þó að Áki sé kunnur að end- emum í sambandi við meðferð opinberra fjármuna, og því megi gera ráð fyrir, að þetta sé nokkuð sérstakt, mun þó víðar vera á kostnað ríkissjóðs fleira fólk en þörf er fyrir. Þessi fækkun á flugvöllunum er því væntanlega aðeins upp- haf á nauðsynlegum þætti viðreisnarstarfsins í fjármál- um og atvinnumálum þjóðar- innar. Það er mikils vert fyrir fjár- hagslega afkomu ríkissjóðs- ins, að komizt sé hjá óþörfu mannahaldi. Og sú stjórn, sem ætlar sér að rétta við hrunið fjármálakerfi, verður sérstak- lega aö gæta þess að standa sjálf með hreinan skjöld á heilbrigðum grundvelli. En fyrir atvinnulífið er það nauðsynlegt, að vinnuafl þjóðarinnar sé skipulagt af viti. Þá er það ekki sama hvort 27 menn eru fastráðnir um- fram þarfir á flugvöllunum, eða hvort með þeim er mann- aður togari. Það verður að miða stj órnarfarið viö það, að hver. maður skili fullu verki við nauðsynjastörf. Og það eru áreiðanlega nokkuð marg- ar skipshafnir, sem nú eru í þjónustu á almannakostnað umfram þarfir við ófrjó skrif- stofustörf. Það þarf víðar að endur- skipuleggja liðið en á flugvöll- unum. Bæði er það, að víðar en þar átti Áki til að sjá, og má búast við, að hann hafi fylgt sömu stefnu víðar. Eins mun það sýna sig hér, að skylt er skeggið hökunni, og Áki hefði ekki hagað störfum sínum á þennan veg, ef það hefði verið alveg gagnstætt viðhorfum og velþóknun stjórnarinnar i heild, enda mun ýmsum sýnast, að nokk- urs skyldleika kenni hér við hina' frægu eftirvinnureglu- gerð Péturs Magnússonar. Það er líka óhætt að segja það, að rnunað getur um minni sparnað en þann, að fullur þriðjungur liðsins sé látinn fara. Það er gott fyrri. Þeir, sem fylgzt hafa með flugvallarmálunum minnast þess, að Áki Jakobsson vildi jafnan gera sem minnst úr öllum kostnaði við rekstur þeirra. Það væri því óneitan- lega ástæða til að ætla, að hann hefði heldur gætt hófs um mannahald og tilkostnað þar, til að sýna þjóð sinni rétt- mæti þess, sem hann fullyrti. En þó var það svona. Eysteinn Jónsson fann þarna heila skipshöfn, sem Áki Jakobsson hafði dregið af vinnumarkaði f ramleiðslu- starfanna. Nú ganga þessir menn aftur inn í atvinnulífið og taka þar væntanlega þátt i jáSVæðri framleiðslu, sem ber uppi fjárhag, afkomu og menningu þjóðfélagsins. Það þarf áreiðanlega að halda áfram þessu starfi og leiða fram í athafnalífið hópa manna, sem á liðnum árum ERLENT YFIRLIT: André Vishinsky Málsvarl Sovétríkjamna, sem a*ek»ar ælí sísaa íi9 Fraiss II. Austai*ríklskeisai*a Sá maður, sém Rússar hafa valið til þess að verá aðalmálsvara sinn á þingi sameiiiuðu þjóðanna, er André Vishinsky, aðstoðarutanrík- isráðherra Sovétríkjanna. Það hef- ir áreiðanlegá ekki verið illa ráðið frá sjónarmiði þeirra, því að Vishinsky er svo snjall málflutn- ingsmaður, áð hann á fáa sína líka. Hann er' mælskumaður með afbrigðum, glöggur á rök og óvæg- inn, ef því er að skipta. Frumræða hans á þingi sámeinuðu þjóðanna í haust er einhver sú magnaðasta áróðursræða, Sém nokkru sinni hefir verið flutt á alþjóðlegum vettvangi. Andstæðingar Vishinskys viðurkenndu það ekki síður en samherjar hans, að hann hefði ekki sízt sýnt I ‘ ríkum mæli þann þrótt og það fjör, sem mikill mælskumaður þarf að hafa til að bera, ef mælska hans á að hafa tilætluð áhrif. Kominn af aðalsættum. Vishinsky er einn af þeim fáu núverandi ráðamönnum Sovét- ríkjanna, sem kómnir eru af aðals- ættum. Hann er 63 ára gamall. Hann er komffin af pólskri aðals- ætt og var faðir hans vellauðugur um skeið vegna þátttöku í olíu- og kolavinnslu, en lenti síðar í gjald- þroti. Má verá’, að það hafi átt sinn þátt í að koma Vishinsky inn á þá braut, að snúast til andstöðu við þáverandi' sfj’órnarhætti Rússa. Innan við tvítúKt var Vishinsky orðinn virkur félágsmaður í leyni- hreyfingu mehsjevikka eða jafn- aðarmanna, eii þó tókst honum að Ijúka lögfræðinámi sínu. Hann gerðist síðan riiálflutningsmaður í Odessa og þótii ftijög snjall á því sviði. Árið 1920 gekk hann í komm- únistaflokkinn og varð nokkru síð- ar prófessor i lögfræði við háskól- ann í Moskvu. 'Þar var hann þó skamma hríð, því að stjórnin þurfti á honum að hálda til þýðingar- meiri starfa. _JEíönum voru falin ýms stjórnarembætti og var hann m. a. menntámálaráðherra um skeið. Opinber ákærandi. Utan Rússlands varð Vishinsky fyrst frægur, þégár hann var gerð- ur að opinberum ákæranda og fékk það verkefni aðsækja mál af hálfu stjórnarinnar gegh öllum þeim, sem kærðir voru um byltingartilraun- ir og landráð. ýishinsky var ákær- andi hins opihbéra í öllum hinum mörgu réttarhöldum, sem haldin voru i Moskvu ’á árunum 1934—39 og beindust gegn ýmsum helztu frumkvöðlum byltingarinnar 1917, er nú voru sakaðir um gagnbylt- ingartilraunir. Framkoma Vish- insky í þessum í'éttarhöldum hlaut ýmsa dóma íijá þeim erlendum blaðamönnum,’ sem viðstaddir voru, en mælsku hans og hyggindi viðurkehndu allir. Hann gat sótt mál sitt með miklum ákafa og 7? ofsa, en gat líka verið hinn róleg- asti og lagt hinar kænlegustu snör- ur fyrir sakborningana. Grðfátt varð honum aldrei og hann fann jafnan einhverjar útgöngudyr, ef hann komst í klípu. Stúdentinn, sem myrti Ilamlet! Það vakti ekki sízt athygli er- lendra blaðamanna, er voru við- staddir þessi réttarhöld, hve ýmsir sakborninganna voru fúsir til að játa á sig þyngstu sakir, sem á þá voru bornar. Hvern þátt Vish- insky kann að hafa átt í þeim játningum, skal látið ósagt hér, en margar sögur ganga um, hvernig þessar „játningar" hafa orðiö 'til. Hér skal sögð ein, sem nýlega hefir birzt sem dæmisaga í ýmsum er- lendum blöðum: Enskur prófessor, sem hafði verið fenginn til að flytja fyrirlestra um enskar bókmenntir við rússneskan háskóla, gerði það að gamni sínu til þess að prófa þekkingu stúd- entanna að leggja eftirfarandi spurningu fyrir einn þeirra: Hver drap Hamlet! Spurningin kom stúdentinum á óvart og hann svaraöi felmtursfullur: Ekki ég! Leynilögreglumenn, sem voru við- staddir, töldu víst, að hér væri eitthvað óhreint á seiði, gripu stúdentinn og höfðu hann á burt með sér. Daginn eftir, komu þeir til -prófessorsins og töldu það nokkurn veginn upplýst, að stúd- entinn hefði ekki drepið Hamlet. — Prófessorinn lét sér það vel líka og taldi víst, að málið væri úr sögunni. En tveimur dögum síðar komu þeir aftur og sögðust hafa prófað nýja aðferð við yfir- heyrzlurnar og hefði hún borið þann árangur, að stúdentinn væri búinn að játa það á sig að hafa myrt Hamlet! Nýtt verkefni. Árið 1940 var öllum stærstu réttarhöldunum lokið og Vishinsky var þá fluttur yfir á nýtt svið, þar sem ekki þótti minni þörf fyrir snjallan málflytjanda. Hann var þá gerður að varautanríkisráðherra og hefir gegnt því starfi jafnan síðan. Hann hefir mætt fyrir Molo- toff á ýmsum alþjóðaráðstefnum og nú seinast á þingi sameinuðu þjóðanna, þar sem hann hefir ver- ið einn þeirra sem einna mest hefir borið á og einria oftast hefir verið nefndur í fréttum þaðan. Sá orðrómur hefir stundum heyrzt, að vel geti komið til mála, að Vishinsky verði eftirmaður Stalins, en lílclegra virðist þó, að einhver af yngri leiötogum Sovét- ríkjanna, eins og Sdanov eða Mal- enkov komi þar fremur til greina en bæði Molotov og Vishinsky. Það eru líka yngri mennirnir, sem stjórna hinni óopinberu utanríkis- þjónustu Sovétríkjanna, þ. e. starfi kommúnistaflokkanna utan Sovét- Vishinsky. rikjanna, en sú starfsemi er vafa- laust þýðingarmeiri í augum vald- hafanna í Kreml en hin opinbera utanríkisþjónusta. Á stofnfundi hins nýstofnaða kommúnista- bandalags voru þeir Sdanov og Malenkov fulltrúar Rússa og Sdanov skipaði forsætið á fundin- um. Vishinsky er maður myndarleg- ur í sjón og sérlega fjörlegur og léttur í hreyfingum. Hann er líka sagður einn bezti dansmaður Rússa og hafa þó fáar þjóðir betri dansmönnum á að skipa en þeir. Til viðbótar því, sem áður hefir verið sagt um ætterni Vishinsky, má taka fram, að hann rekur ættir sínar til Frans II. Austur- ríkiskeisara, en því er meira hald- ið á lofti í amerískum blöðum en rússneskum. hafa verið kyiksettir bak við skrifstofuveggi og undir hlið- stæðum kringumstæðum. Rík- isstjórnin verður að taka for- ystuna í sparnaði og hófsemi um mannaháld og skynsam- legt skipulag á vinnuaflinu. Siíkt hefir nú verið gert á flugvöllunum. Svo þarf víðar aö verða. Það getur verið dálítið erfitt að hreinsa til eftir slæma stjórn, segja starfsfólki upp og heimta meiri vinnu af þeim, sem vanir eru orðnir sjálfræði og léttum dögum. En þetta verður þó að gerast. Sízt af öllu mega ríkisfyrir- tæki verða gustukastofnanir, sem taka að sér eins konar þurfamannaframfæri í góð- gerðaskyni. Sem betur fer, eru það líka fáir, sem óska þess. Því mun nú þjóðin segja al- mennt eftir þessa fækkun á flugvöllunum: Það skal fram, sem fram horfir, meðan rétt horfir. Fjöllin blá Öllum, sem í bók líta, er kunnugt, að Ólafur Jónson er víðkunnur rithöfundur. Hann hefir ritað merkilega bók í þrem bindum um Ódáðahraun, og er bókin hvort tveggja, jarðfræðirit og skemmtilestur. Um hitt er mönnum ekki jafn kunnugt, að Ósifur er gott skáld, um það vijnar hin nýja ljóðabók hans, „Rjöllin blá,“ sem er 175 bls. og hefir að geyma yfir sextíu kvæði, ýmislegs | efnis. Ólafur kveður upp á gamla móðinn, þ. e. a. s% hann flat- rímar aldrei. Hamj. þarf þess ekki við, því honum virðist leika rímlistin í hendi, ef svo má segja: „Fylgdu mér á fjölln blá, fram tU efstu tinda! Þar sem breiðum fanna frá fellur mórauð Jökulsá. Bjartar jökulbungur gljá. Blása svipir vinda. Svanir á tjörnum synda.“ Þetta kvæði, sem þessi vísa er tekin úr nefni.st „Fjöllin blá.“ Allt er kvæðið 9 erindi og prýðilega kveðið. En at- hugi maður það nákvæmlega, þá skeður nokkuð, sem ekki er altítt í skáldskap. Innan úr hverju stefi, hoppar upp í fang manns kliðmjúk !fer- skeytla. Skal nú þettá sann- að: Fylgdu mér á fjöllln blá, fram til efstu tinda. Bjartar jökulbungur gljá. Blása svipir vinda. Með öðrum orðum, séu kveðnar saman tvær fyrstu línurnar, og hin fimmta og sjötta skapazt ferskeytla. Þetta er ekki algengt fyrir- bæri, en þetta sýnir ágæti ís- lenzkrar tungu þegar vel er á henni haldið. F. H. Berg. „Forusía” Péturs í landbúnaðarmál- • ♦ mmm Morgunblaðið hefir tekið upp þá furðulegu iðju að hæla Pétri Magnússyni fyrir sérstaka forustu í málum landbunaðarins meðan hann var forsætisráðherra. Qít hefír 'mönnum verið ómaklega hælt, en þó munu þess fá dæmi, að slíkt lof hafi verið meira óverðskuldað en þetta hrós Mbl. um Pétur. Mb1, reynir sérstaklega að hæla Pétri Magnússyni fyrir það, að framlög til bygginga- sjóðs og ræktunarsjóðs hafa nýlega verið aukin í krónu- tölu. Sannleikurinn er sá, að Framsóknarflokkurinn hafði forgöngu um bæði þessi mál. Á vetrarþinginu 1946 fluttu Framsókna.rmenn tvö frum- vörp, annað um aukningu Byggingar- og landnáms- sjóðs og hitt um aukningu Ræktunarsjóðs. Vegna þess, að kosningar fóru þá í hönd, treystist þáv. stjórn ekki til að stinga þessum málum undir stól. Hún Iét því flytja tvö frumvörp, er gengu í sömu átt. Annað fjallaði um eflingu byggingarsjóðs og náSi bað fram að ganga. Hitt fjallaði um eflingu Ræktun- arsjóðs og var það látið daga uppi. Það frv. náði ekki sam- þykki fyrr en á seinasta þingi eftir að Framsóknarmenn höfðu gert samþykkt þess að einu skilyrði sínu fyrir stjórnarþátttökunni. Forusta. Péturs Magnús- sonar var því engin í þessum málum, en vegna forgöngu Framsóknarflokksins treyst- ist hann ekki til annars en að auka fjárráð byggingarsjóðs- ins. Hitt málið, aukning Ræktunarsjóðs, var svæft meðan hann var landbúnað- arráðherra. Þrátt fyrir þá aukningu byggingarsjóðs og ræktunar- sjóðs, isem getið er hér á undan, eru framlög ríkisins litlu eða engu meiri til þess- ara mála en fyrir styrjöldina, þegar miðað er við raunveru- legt verðgildi krónunnar. En því gerðu Framsóknar- menn ekki Icröfu um neina aukniagu þessara sjóða, að þeir vildu iafnframt fá jarð- ræktarstyrkinn hækkaðan, en hann er nú hlutfallslega miklu lægri en fyrir styrj- öldina. Þetta er ekki síður nauðsynjamál fyrir land- búnaðinn en efling um- ræddra sjóða, því að sveitirn- ar þarfnast fárra hluta meira en stóraukinnar ræktunar. Vegna skilningsleysis og andstöðu Sjálfstæðisflokks- ins hefir réttmæt hækkun jarðræktarstyrksins enn ekki fengizt fram. Mbl. telur það sönnun fyrir auknum framlögum til bygginga og nýbýla. í sveit- um í stjórnartíð Péturs Magnússonar, að þau hafi verið 1.8 milj. kr. eða 1.8% af rekstrarútgjöldum fjár- laganna 1946, en 430 þús. kr. eða 2,9% af rekstrarútgjöld- um fjárlaganna 1937. Hver, sem kynnir sér kaup- hækkanir í sveitum á þessum tíma, sbr. vegavinnukaupið, veit mæta vel, að miklu meiri (Fraviliald á 6. siðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.