Tíminn - 27.11.1947, Síða 1

Tíminn - 27.11.1947, Síða 1
Ritstjóri: Þórarmn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason ÚtgejancLi Framsóknarjlokkurinn Skrifstofur i Eddvhúsinu Ritstjórnarsimar: 4373 og 2353 Afgreiðsla og augiýsinga- sími 2323 Prentsmiðjan Edda 31. árg. Reykjavík, fimmtudaginn 27. nóv. 1947 218. blaS Svona er umhorfs á Akranesi Alger Iöndunarstöðvun er nú á Akranesi. Allar þrær síldarverk- smiðjunnar eru fullar af síld og flýtur út af plönum þeim, er tekin hafa verið til síldargeymshi, eins og myndin hér að ofan sýnir. (Ljósm.: Guðni Þóröarson). Koma stórir hópar enskra skíða- manna til Islands í vetur? sokkinn af ofhleöslu Yarð að m©ka sssikles af sáM í sjómsi siiilli Akraness ©j* Iteykjavíksis* í fyrradag fyllti vélbáturinn „ÁSmundur“ frá Akranesi sig á skömmum tíma í Hvaifirffi. Reyndu skipverjar að kema sem mestu af seinasta kastinu um borð í skipið, og var það orðið mjög hlaðið, er þeir héldu til hafnar. Póru þeir fyrst til Akra- ness. Var þá logn og gekk allt að óskum, enda farið gætilega. Vegna löndunar- stöðvunar á Akranesi urðu skipverjar að snúa til Reykja víkur með síldina og bíða losunar þar. Ilöfðu skip- verjar ekki reiknað með því, er þeir hlóðu skipið, að þurfa að fara annað en á Akranes. Nú var hins vegar ekki um annað að ræða en að halda til Reykjavíkur, þó að hleðslan væri mikii. Þegar Ásmundur var að leggja af stað frá Akranesi, fór heldur að hvessa, þó ekki væri það að ráði. Gekk ferð skipsins vel í fyrstu, en þegar leiðin var meira en hálfnuð, urðu skipverjar varir við það, að leki var kominn að því. Hafði það einhvers staðar gefið sig undan þessum mikla farmi. Voru nú góð ráð dýr, og loks gripið til þess úrræðis að kasta síld fyrir borð. Var mikilli síld mokað í sjóinn af þilfari, og með aðstoð tveggja báta, sem komu til hjálpar, Hvítárinnar og Steinunnar gömlu, tókst að koma Ásmundi heilu og höldnu til hafnar i Reykja- vík. Bifreiðaferðnra norður hætt í§íðsssísi ferðin snðmr sí Isesig'arelag Öxnadalsheiði er nú með öllu ófær. Seinasta bílferð yfir heiöina var á laugar- daginn. en þá brauzt póst- bíllinn suður. Pylgdu honum menn frá Akureyri alla leið að Kotum í Norðurárdal i Skagafirði. Þurfti víða að moka bílnum braut, og segir Karl Friðriksson verkstjóri, að ekki verði reynt að brjót- ast með bifreiðar þessa leið nema tíðarfar batni verulega og snjóa leysi. Samgöngur um Eyjafjarð- arhérað eru ennþá erfiðar. Búið er þó að ryðja veginn út í Kaupangssveit og í nótt var unnið að því, að ryðja veginn út á Melgerðisflug- völl. þar sem Dakótaflugvél F. í. hefir beðið veðurteppt í tólf daga. Dalvikurvegur er fær frá Akureyri að Möðru- völlum. Frá fréttaritara Tímans á Akureyri: Útför Einars Árnasonar, fyrrverandi ráðherra og al- þingism., fór fram í fyrradag að viðstöddu miklu fjölmenni. Athöfnin hófst með hús- kveðju 'neima að Eyrarlandi á hádegi og flutti sóknar- presturinn, séra Benjamín Kristjánsson húskveðjuna. Síðan var farið til Kaupa^igs- kirkju og jarðsett þar. Flutti þar einnig ræðu sóknarp/:est- urinn séra Benjamín Krist- jánsson. Bændur úr sveitinni, stjórn Kaupfélags Eyfirðinga | og starfsmenn báru kistuna að heiman, í kirkju og úr. Fjöldi kransa og skeyta bár- ust víðsvegar að af landinu, bæði frá einstaklingum og stofnunum. Veður var hið bezta fyrir norðan í gær. Málið á dssg'skrá Iijá enskinm IilólSum ©g tímariium Ferðaskrifstofa ríkisins hefir að undanförnu haft savi- band við nokkur brezk ferðamannafélög og skíöafélög. En Englendingar þeir, sem á hverju ári fara til Sviss eða Noregs til að stunda vetraríþróttir, hafa nú mikinn hug á að koma hingað til lands til skiðaiðkana, þar sem ferðalög þeirra til fyrrnefndra landa eru bönnuð vegna gjaldeyrisskorts í heimalandinu. T résmíðaverkstæði og timburþurrkun- arstöð í Hveragerði Frá fréttaritara Tímans í Hveragerði: Hér í Hveragerði er nýlega tekið til starfa trésmiðaverk- stæði og timburþurrkunar- stöð. Eigandi þessa er Sig- urður Ellasson, trésmíða- meistari hér. Enda þótt hús- ið væri tilbúið til notkunar í júlí s.l., var ekki hægt að hefja starfrækslu sökum raf- orkuskorts fyrr en nú nýlega. Húsið er um 1300 fermetrar, tvær hæöir. Á neðri hyð er stór vélasalur og timbur- geymsla. Er salurinn búinn fullkomnum, rafknúnum vél- um, og vinna þar nú 6—8 manns, en möguieikar eru til þess að tvöfalda þann vinnu- kraft. Eru þarna smíðaðar hurðir, gluggar, eldhús- og búðarinnréttingar, gróöurhús og margt fleira. Er smíði öll hin vandaðasta, þar sem ein- göngu er notað fullþurrkað timbur. Þurrkunin fer fram á efri hæðinni við allt að 36 stiga hita, og er loftinu haldið á hreyfingu með rafknúnum dælum. Hægt er að þurrka um 5—6 standarda timburs í einu lagi. Á efri hæð er einnig mikið geymslurúm og verkstæði til handsmíða. í Bretlandi er starfandi stór skíðaklúbbur, sem flest- ir þeir, sem stunda skiðaiðk- anir í Englandi, eru meðlimir í. Hefir féfagsskapuir þessi skipulagt á ári hverju ódýrar hópferðir til Sviss, en þangað hafa Englendingar sótt mjög •til vetraríþróttaiðkana und- anfarin ár. Hefir félagið átt sérstaka skíðaskála í Sviss og lagt undir ,sig mikil skíðalönd þar i Ölpunum. Margir þeir, sem stunda þar skíðaferðir árlega, hafa aldrei stigið á skiði heima í Englandi, heldur eiga þeir skíðin sín geymd i Sviss og hafa lært þar. Vandamál, Jhvernig á að koma skíðunum íiingað. Nú er hins vegar loku fyrir það skotið, að Bretar fái að fara til Sviss til að stunda skíðaferðir. Hefir því vaknað mikill áhugi í Englandi með- al vetraríþróttamanna að koma hingað til að stunda vetraríþróttir. Umboðsmaður skíðaklúbbsins brezka hér á landi, frú Ellen Sighvatsson, hefir fengið fyrirspurnir frá félaginu, þar sem óskað er oftir uppi; 'i'ingu.m um að- stöðuna hér. Hefir frúin falið málið ferðaskrifstofunni, sem þegar hefir gefið hinum brezku aðilum nákvæmar upplýsingar um Norðurland, gistihúsakost þar og önnur skilyrði, og er nú verið að safna sams konar upplýsing- um um Suðurland. Hefir skíðafélagið nú aug- lýst eftir tilboöum um að fiytja heim til Englands mik- ið af þeim skíðaútbúnaði, er brezkir skíðamenn eiga geymdan í Svi.s.s. og hefir svo aftur .verið leitað tilboða um að koma honum hingað til lands. ísland komiff á dagskrá. Þegar í haust fóru brezk blöð að ræða þann möguleika, j að Bretar færu hingað til 1 vetrariþróttaiðkana að þessu sinn.i. Mún Manchester Guardian hafa hreyft þessu máli fyrst og bent á ísland, en ummæli þess um landið voru frekar óvingjarnleg og villandi. Hefir Ferðaskrif- .stofan hér leiðrétt missagnir blaðsins. Nú upp á síðkastið hafa aftur á móti nokkur brezk blöð og tímarit .skrifað mjög vingjarnlega um landið og gefið góðar og glöggar upplýsingar um það. Stór grein uni ísland í tízkublaffinu Vogue. í nóvemberhefti hins kunna, brezka tizkublaðs Vogue, .sem margt íslenzkt kvenfólk kannast við, er löng (Framhald á 8. siöu) Kroppur af mylkri á 88 pund Avrieiwriiiii 24 iiaei*kBir Frá fréttaritara Tímans á Sauðárkróki: Þaff má sjálfsagt til einsdæma teljast, aff í haust var slátraff I .slátur- húsi Ka.upfélags Skagfirð- inga mylkri á, sem hafði áttatíu og átta punda skrokk. Nýrmörinn úr henni vóg tuttugu og fjórar merkur. Gefur þetta ekki eftir alvænstu sauff- um í mestu kjarnasveit- um landsins. Vænsti dilkurinn, sem slátrað var, hafði fimmtíu og fimm punda skrokk. Hann var eign Iiróðmars Margeirs- sonar á Ögmundarstöðum í Staðarhreppi. Var ærin væna og frá sama bæ. Alls var í haust slátrað 18123 kindum hjá Kaupfélagi Skagfiröinga á Sauðárkróki. Voru þar af 15187 lömb. Hófst slátrunin 18. sept., en var lokið 21. október. Meðalþungi lamba úr hér- aðinu var rúm þrjátíu pund, og er það ágæt meðalvigt. Fáeinir bændur í Skaga- firði vestan Héraðsvatna slátruðu öllu fé sínu í haust, vegna sauðfjársjúkdóma þeirra, sem héraðslægir eru orðnir. Sæmdir norskura heiðursmerkjum Noregskonungur hefir sæmt Gísla Sveinsson, sendiherra í Osló, stórkrossi orðu Ólafs helga, og Henrik Sv. Björns- son, sendiráðsritara þar, riddarakrossi sömu orðu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.