Tíminn - 15.12.1947, Page 2
TÍMINN, mánudaginn 15. des. 1947
233. blað
ch
ec^i
£ dag:
'í Sólin kom upp kl. 10.17. Sólarlag
kl. 14.18. Árdegisflóð kl. 7.00. Síð-
Jegisflóð kl. 19.20.
í nótt:
Næturakstur annast bifreiða-
Stöðin Bifröst, sími 1508. Nætur-
iæknir er í læknavarðstofunni í
\usturbæjarskólanum, sími 5030.
Næturvörður er í lyfjabúðinni Ið-
unni, sími 7911.
Útvarpið í kvöldi:
; Pastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.30 Útvarpshljómsveitin: ís-
jnzk alþýðulög. 20.45 Um daginn
jg veginn (frú Aðalbjörg Sigurð-
irdóttir). 21.05 Einsöngur (frú
llísabet Einarsdóttir): a) Sofnar
Iþa (Sigfús Einarsson). b) í rökk-
urró (Björgvin Guðmundsson). c)
Vogguvísa (Sigurður Þórðarson).
d) Kom þú, ljúfa (Þórarinn Guð-
mundsson). e) Ave María (Sigvaldi
Saldalóns). 21.20 Erindi: Um hit-
ún og einangrun húsa (Vilhjálmur
Suðmundsson, verkfræðingur).
21.45 Lög og réttur. — Spurningar
ar og svör (Ólafur Jóhannesson
prófessor). 21.55 Préttir. Dagskrár-
iok. (22.05 Endurvarp á Græn-
iandskveðjum Dana).
Mæðrablaðiff,
—sem selt verður á götum bæjar-
ins í dag og á morgun til styrkar
atarfsemi nefndarinnar, verður af-
greitt til sölubarna í skrifstofu
ngfndarinnar og Þingholtsstræti 18
r' dag og á morgun kl. 1—7 síðd.
Tónleikar Árna Kristjánssonar.
Árni Kristjánsson hélt Chopin-
tónleika á föstudagskvöldið í Aust-
ufbæjarbíó fyrir fullu húsi og við
ágætar undirtektir áheyrenda. —
Hljómleikarnir voru á vegum Tón-
ilstarfélagsins. Árni er nýkominn
iieim, eftir nær því eins árs dvöl
á Norðurlöndum.
Bridgekeppninni lokið.
Lokið er brigdekeppni í 1. flokki
í Reykjavík. Úrslit urðu þau, að
sveitir Isebarns og Ragnars Jó-
hannessonar urðu hæstar að vinn-
ingatölu og fengu 12 stig hvor.
Flytjast báðar þessar sveitir upp í
meistaraflokk í bridge. Næstar .að
vinningatölu komu sveitir Magnús-
ar Björnssonar og sveit Einars
Jónssonar með 8 stig hvor.
16. þing Sambands bindindisfélag
í skólum
var háð í Reykjavík dagana 6. og
7. desember. Þingið sátu 85 full-
frúar frá 12 skólum í landinu. 3
'lýir skólar gengu inn í sambandið:
Menntaskólinn, Iðnskólinn og
Gagnfræðaskólinn í Reykjavík.
Þingið gerði eftirfarandi álykt-
anir:
• 16. þing S.B.S. haldið í Reykja-
vík dagana 6. og 7. des. lýsir
ánægju sinni yfir framkomnum
fcumvörpum á Alþingi, sem miða
áð minnkandi áfengisneyzlu lands-
rjianna og skorar á Alþingi það sem
'iý situr að samþykkja eftirgreind-
■'tr þingsályktunartillögur, sem þeg-;
.tf eru fram komnar á Alþingi:
.Tillaga til þingsályktunar um
’áðstafanir til að draga úr áfengis-
;íautn. Þsk. 30.
lÍTillaga til þingsályktunar um af-
nám vínveitinga á kostnað ríkis-
ins—Þsk. 31.
'“Tillaga til þingsályktunar um af-
:iám sérréttinda í áfengiskaupum.
ÞSk. 33.
Ennfremur skorfir þing S.B.S. á
Alþingi og ríkisstjórn:
a) að koma á fullkomnari bind-
indisfræðslu i landinu, og leggur til
að ráðinn verði og launaður af rík-
inu sérstkur erindreki 1 bindindis-
og félagsmálum, sem vinni ein-
göngu á vegum skólanna í land-
inu.
b) að komiö verði í veg fyrir
léynivínsölu með strangari fram-
kvæmd laga, sem að henni lúta, en
verið hefir hingað til.
að nöfn þeirra manna sem sekir
verða um leynivínsölu verði birt.
c) að fella frumvarp það, sem nú
liggur fyrir Alþingi, um heimild til
að framleiða áfengt öl.
16. samband S.B.S leggur til að
hafin verði samvinna við bindind-
issambönd skóla á Norðurlöndum.
16. þing S.B.S. skirar á væntan-
lega stjórn sambandsins að hlutast
til um að bindindisfélög þeirra
skóla, sem ekki eru í sambandinu,
gangi í það hið allra fyrsta.
Ennfremur skorar þingið á vænt
anlega stjórn sambandsins að hlut-
ast til um að þeir skólar, sem ekki
hafa starfandi bindindisfélög stofni
þau innan vébanda sinna hið allra
fyrsta.
Stjórn sambandsins skipa: For-
seti Ingólfur A. Þorkelsson úr
kennarajkólanum, Ritari Björn
Guðmundsson úr Iðnskólanum,
Gjaldkeri Jón Norðdal úr Gagn-
fræðaskólanum í Reykjavík. Með-
stjórnendur Jón Böðvarsson úr
Gagnfræðaskóla. Reykvíkinga,
Kristín Nanna Amlin úr Kvenna-
skólanum.
Árnað fieiUa
Gefin hafa verið saman
í hjónaband:
Ungfrú Björg Ágústsdóttir frá
Vatnsdal og Sigurgeir Kristjáns-
sson, bústjóri í Laugardælum.
Togarastraiadlð.
(Framhald af 8. ,síöu)
réksfirði flokkar manna, er
höfðu meðferðis ýmislegar
nauðsynjar tii aðstoðar björg
unarleiðangrinum. En þeir
komust ekki á slysstaðinn þá
um kvöldið, því að sumir villt
ust af leið, en aðrir gátu ekki
haldið áfram ferð sinni vegna
svartaþoku, er skall á um það
leyt-i, sem leiðangrarnir fóru
af stað, hver frá sínum stað.
Komust fjórir af þessum leið-
angursmönnum að Hvallátr-
um á laugardagskvöld og
gistu þar um nótina. í gær
komst aðstoðarleiðangurinn
á slysstaðinn og gat fært
þeim, er þar biðu, ýmsar
nauðsynjar, er komu sér vel.
Björgun þeirra siðustu.
í gærdag var öílum bjargað,
er á klettastallinum voru, alla
leið upp á brún og síðan far-
ið meö þá til byggða. Kom-
ust þeir þangað seint í gær-
kvöldi og mun hafa liðið
sæmilega eftir ástæðum. En
að sjálfsögðu voru þeir all-
þjakaðir eftir svo marghátt-
aða hrakninga og vcsbúð.
Þá var eftir að bjarga beim
5, sem orðið höfðu að láta
fyrirberast í fjörunni sunnu-
dagsnóttina, ásamt íslending
unum, sem þar voru. Tókst
að bjarga þeim öllum upp á
efstu brúnina í gærkvöldi, en
er það var búið, var orðið svo
á’iðið, að ráðlegt þótti að bíða
morguns, heldur en halda til
fcyggða. Var því gist' í tjöld-
um á bjargbrúninni í nótt.
í morgun fóru þeir svo af
stað til byggða, og munu því
vera um það bil að kornast
aúa leið að Hvallátrum nú
eftir hádegið.
Óviðjafnanlegt afrek.
Björgunarafrek þetta er ó-
viðjafnanlegt. Um 30 manns
munu hafa unniö að björg-
uninni í næstum þrjá sólar-
hringa. Fyrir utan sjálft
björgunarstafið, sem unnið
var á slysstaðnum, ber l,ka
að minnast alls þess erfiðis,
er fjö’margir aðrir lögðu á
sig björgunarsveitinni til að-
stoðar. Eru það mikil c/ góð
laun, sem allir þeir er að
björguninni unnu, hafa h!ot-
ið með því, að hinir 12 brezku
skipsbrotsmenn eru nú allir
á lífi við sæmilega líðan. En
á slíku virtist svo lítill mögu-
leiki, fyrst er skip þeirra
strandaðij að næstum var
talið óhugsandi.
Á förnum vegi
Enn eru hetjur uppi á íslandi.
Bændur í afskektum byggðarlög-
um vestur í fjörðum hafa innt af
höndum afrek, sem varpa mun
'jóma á íósturjörð þeirra meðal
einnar voldugustu þjóðar heimsins
Með áræði, harðfylgi og seiglu hef-
ir þeim auðnazt að bjarga úr greip-
um dauðans tólf erlendum sjó-
mönnum, sem í sorta og dimmviöri
sig'du skipi sínu í strand á einum
beim óhugnanlegasta stað, sem
nauðstatt skip gat strandað á. í
vetrarmyi'kri, stormi og hríð brut-
ust þeir yfir fjöll og firnindi,
sigu niður ferlegt, svellað bjargið
með tæki sín og unnu sigur í bar-
áttu við æstar höfuðskepnurnar
um líf hinna- langhröktu útlend-
inga.
Það er kannske synd að segja það,
en mér dettur fyrst í hug saga,
sem við höfum öll verið látin lesa,
þegar við vorum börn — sagan
um manninn, sem stéð upp í bátn-
um, þegar öldur vatnsins ætluðu
að granda honum, og hastaði á
Vindinn, svo að þær lægði. Ef til
vill er það samt ranglátur saman-
burður, því að björgunarsv'eitin
vestra vann sinn sigur ekki með
svo auðveldum hætti, en krafta-
verk hefir hún eigi að síður unnið
— ki-aftaverk, sem engan óraði
fyiir að myndi gerast. Því að það
er bezt að segja það cins og það
er: það mun enginn hafa þoraö ‘
að gera sér vonir um, að björgun
myndi takast. Pregnirnar um þetta
afrek hafa líka þegar borizt langt
út í heim.
Það ætti hver maður að. geta j
gert sér í hugarlund, i hvílika I
hættu þeir hafa lagt sig, sem þarna
voru að starfi, og hvílíkt harðfylgi
hefir þurft til þess að gera bað,
sem þeir hafa gert. Og þó — ekki
nema að hálfu leyti. Aftur á móti.
er mér ofvaxið að renna grun í,
hvernig þeim muni innan brjósts,
er vita sig hafa bjargað lífi margra
manna, sem flestir eða al'ir töldu
dauðadæmda. Hitt veit ég, að ger-
völl þjóðin fagnar þessari hetju-
dáð
Eitt sinn var ungur maður að
búast í herferð. Honum fannst lítt
til um vopnabúnað sinn: „Sverðið
er stutt,“ sagði hann. „Gakktu þá
feti framar," var svarað. Björgun-
arsveitin var illa búin til móts við
höfuðskepnurnar. En hún gekk því
feti framar, er entist til sigurs.
Við höfum í nær þúsund ár dáð
afrek Grettis, er hann synti úr
Drangey að sækja eldinn, við höf-
um í anda séð Ilörð Grímkelsson
stökkva yfir mannhringinn með
vin sinn dauðan á bakinu, við
óöíum lesið með undrun frásögn-
!na um afrek Skarphéðins á Mark-
orfijóti, við þóttumst vera hinn
giæsti kappi, Gunnar á Hiíðarenda.
þegar við vorum litlir drengir. En
þessa dagana þarf enginn að rýna
langt inn í fortíöina. íslenzkur
hetjuandi lifir. Hetjurnar eru mitt
á meðal okkar í gervi yfirlætis-
lausra bænda og fiskimanna. Nöfn
Þórðar og Hafliða, Andrésar og
Bjarna eiga að lifa í sögunni við
hlið nafna hinna mestu frækn-
leiksmanna. Og sjálfsagt eru það
íleiri, sem minnast mætti, þótt
nöfn þeirra séu enn ókunn.
J. H.
fer héðan miðvikudaginn
17. þ. m. til Vestmannaeyja
og Austfjarða, Hull og Kaup-
mannahafnar.
Viðkomustaðir á Austfjörð-
um:
Djúpivogur
Stöðvarfjörður
Fáskrúðsf j örður
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Norðfjöröur
Seyðisfjörður.
H.F. Eimskipafélag íslands.!
Ódýrar auglýsingat
StEælaBídsBBigáfsi-
SBsekBnaar
fást hjá flestum bóksölum eða
beint frá forlaginu, Varðarhús-
inu uppi, sími 5898. (Hjá Ólafi
Þorsteinssyni).
©efið Baörnusium
Dýrheima og Nýja Dýrheima,
— hin unaðsfögru ævintýri
Kiplings.
Myrkur.
Hafið þér lesið Myrkur um
miðjan dag eftir snillinginn
Arthur Kostler?
Merk laék
er-mikil gjöf. Gefið því vinum
yðar Ferðabók Sveins Fálssonar.
I
Framsóknarfélag Reykjavíkur hefir kaffikvöld í Breið-
firðingabúð í KVÖLD, og hefst skemmtunin Kl. 8,30.
DAGSKRÁ:
1. Pálmi Hannesson s egir frá Heklugosinu og sýnir
skuggamyndir.
2. Vigfús Sigurgeirsson sýnir Ileklukvikmynd sína.
Félagsmenn mega taka með sér gesti.
Þátttöku þarf að tilkynna í síma 6066 fyrir kl. 5 'í
dag.
Skemmfiuefndin
Bíðir 7r.
Þann 16. desember: Þann 18. desember:
Prestwick Prestwick
Stavanger Haupmannahöfn
Haupmannahöfn Stokkhólmur.
Pantaðir farseðlar óskast sóttir sem allra fyrst.
Skrifstofan: Hafnarstræti 23, símar 6971 — 2469.
Þaulvanur bókhaldari, sem starfaö hefir hjá
samvinnufélögunum um árabil, óskar eftir
bókara- eða gjaldkerastarfi hjá kaupfélagi í
kaupstað utan 'Reykjavíkur. Tilboð, sem til-
greini launakjör sendist afgreiðslu Tímans
fyrir 15. janúar 1948, merkt „Janúar".