Tíminn - 15.12.1947, Síða 8

Tíminn - 15.12.1947, Síða 8
Reykjavík 15. desember 1947 233. blað Hér strandaði Dhoon Togarastrandib víð Látrabiarg: Tólf mönnum bjargað fyrir ein- stakan fræknleik og hugprýði Um ‘MS síEjaiaEas saíBíEís a ð Is;fÖB*gunmÍÍi á jsrsðjsf sóIarhrSng Eitthvert stórfelldasta björgunarafrek, semfflggur fara af við strendur Íslands, átti sér stað, er 12 sJcifföfötsnlönnicm var bjarr/að nú úrh helgina úr brezka togaranum, er strand- aði aðfaranótt föstudags fram undan Geldingsskorardal nó- lœgt Látrabjargi. Tveir síldveiðibátar stranda við Katanes JL«?ki ©r komimt Siáðiim hátunuuB, en Æ«|ia* freistar að stá Ííelsít á fiot í ílajS í gær strönduðu tveir síldveiðibátar í Hvalfirði. Menn lentu ekki í lífsháslta, en leki er kominn að báðum bátun- um. Varöskipið Ægir fór inn í fjörð í gær og vinnur að því að ná bátunum á flot, og eru líkur til, að það takist í dag, Pf veður spillist ekki frá því sem er. Voru að veiðum, er þeir strönduðu. í gærmorgun strönduðu síldveiðibátarnir Skjöldur frá Siglufirði og ísbjörn frá ísa- firði, er þeir voru að veiðum í Hvalfirði. Veður var hvasst og dimmt yfir, en bátar þess- ir voru þó að veiðum, eins og mörg önnur skip í firðin- um. Ánnar bátanna var búinn að kasta og var að háfa kast- ið, þegar hann kenndi grunns. Höfðu þeir kastað mjög nærri landi. Hinn bát- urinn mun einnig hafa verið að veiðum. Þar sem bátarnir ráku á land, skammt frá Katanesi á Hvalfjarðarströnd, er strönd- in sendin, en smásteinótt, þannig að bátunum er tals- verð hætta búinn í ókyrr- um sjó. Leki kemur að báðum bátunum. Þegar fréttist um strandið, var báturinn Fax%borg send- ur til aðstoðar bátunum, en veður var þá mjög vont, og var ekkert hægt að aðhafast. Leki var þá þegar kominn að Skildi, en skipverjar á ís- birni töldu, að hann gæti sjálfur koi^jzt á í'lot með næsía flóði. Þetta reyndist þó ekki rétt, því að innan stundar var einnig kominn leki að ísbirni. Ægir sendur á vettvang. Skipaútgerð ríkisins sendi þá varðskipið Ægi inn Pfjörö bátunum til aðsto^ar og kom Ægir á strandstaðinn sigdeg- is í gær, en vegna þess að veður fór versnandi, var ekki hægt að fást við neinar björgunaraðgerðir í gær. Ekki var talið hættulaust, að áhafnir skipanna væru um borð í þeim í nótt, og fóru þær því yfir í Ægi í gærkvöldi, en í morgun var byrjað aftur á björgunartil- raunum. Veður er ekki hag- stætt, og því ekki hægt að segja, hvaða árangur björg- unartilraunir Ægis bera í aag. Samkvæmt viðtali, er blað- ið átti við Pálma Loftsson forstjóra skipaútgerðar rík- isins, skömmu áður en blað- ið fór i prentun um hádegið, var Ægir að gera björgunar- tilraunir við annan bátinn. Aðstaða er erfið, þar sem. bát- arnir eru báðir hátt uppi, annar jafnvel að mest,u á þurru. Molotov heimtar 250 milj. pund frá Þjóðverjum Iliiiir B*íi?SIieri*aiPíiir á feiiBdÍBBiim ©rei jj&vi Maóífallaalr Þriðja vika utanríkisráð- herrafundarins er að hefjast í London. Undanfarið hefir veríð rætt um íriðarsamn- inga við Þýzkaland. Enn er ekki um neitt samkomulag að ræða. Það, sem sérstaklega hefir strandað á, er þrákelkni Molotovs í sambandi við skaoabótagreiðslur Þjóðverja. Heirnjtar hann 250 milljón punda skaðabótagreiðslu frá Þjóðverjum, en hinir ráð- herrarnir hafa látiö. það í ljós, að ekki komi til mála að Þjóðverjar greiði slíka upphæð, þar sem það myndi að þeirra áliti lama svo þýzka þjóðfélagið að endurreisnin myndi taka margfalt lengri tma en ef þessum kröfum Fréttir af þessari merki- 'egu björgun hafa verið að berast annað slagið síðan togarinn strandaði, en vegna bess, hversu strandstaöurinn er einangraður, hefir ekki verið hægt að fá nákvæmar frásagnir jafnóðum og atvik- in hafa- átt sér stað. Tíminn átti tal við sýslumannin á Patreksfirði í morgun, og gat hann látiö í té hinar fyrstu heildarupplýsingar um björg- unina, sem til þessa hafa fengizt. Voru 7 skipsbrotsmenn þeg- ar komnir til byggða, en 5 eru nú á leiðinni, eftir aö hafa verið í tjaldi á bjarg- brúninni frá því í gærkvöldi. Skipsins leitað og björgun undirbúin. Það var ekki fyrr en á laug- ardagsmorgun, að björgunar- starfið gat hafizt. Allan föstu daginn var Jlaksins af skip- inu leitað og fannst það ekki fyrr en komið var fast að myrkri, svo að ekki var unnt að hefja björgunarstarfið þá. Það voru menn frá Hvallátr- um, þeir Hafliði Halldórsson og Þórður Jónsson, ásamt fleiri mönnum, sem fyrstir fundu togarann. Brugðu þeir við skjótt og söfnuðu að sér liði frá næstu bæjum við strandstaðinn, en hann er langt frá öllum manna- bygggum. Höfðu þeir komizt á strandstaðinn með nauð- synlegustu björgunartæki snemma á laugardagsmorg- uninn. Björgunin hefst. Þar sem skipið strandaði, eru sæbrattir hamrar um 200 metra háir. Á miðri leið niður í fjöru er klettastallur. Urðu björgunarmennirnir að nota handvað til að lcomast niður á stallinn, en þaðan urðu þeir að síga um 80 metra niður í fjöruna. Fjórir menn fóru alla leið niður í fjöru. Voru bað þeir Hafliði I-Ialldórsson og Þórður Jóns- Sigurbjörnsson í Hænuvík son á Hvallátrum, Bjarni og Andrés Karlsson í Kolls- vík. Ilöfðu þeir með sér línu, línubyssu og björgunarstól. Tókst þeim strax að skjóta línu út í togarann, en hann er skorðaður á réttum ki!i milli tveggja hleina, um það bil eina skipslengd frá fjöru- borðinu. Vindur var hvass af suðri og rigning, ásamt stór- sjó, sem braut yfir skipið öðru hverju og í kring um það. Þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður tókst að bjarga 12 mönnum úr skipinu á tiltölu- lega skömmum tíma, en þrír skipverj ar höfgu drukknað, er skipið strandáði. Voru það skipstjóri, stýrimáður og einn háseti. Komizt upp á b.jargið. Þótt mennirnir væru komnir upp í íjöruna, var erfiðasti þáttur. björgunar- innar eftir — að koma þeim upp á bjargið. Voru þeir að sjáifsögðu þjakaöir eftir dvölina á skipinu um meira en sólarhrings bil frá því það strandaöi, auk þess, sem þeir voru með öllu óvanir björg- um. Varð að draga þá einn og einn í einu með handafli upp á bjargsylluna, -sem fyrr er getið,en síðan að hjálpa þeim með aðstoð handvaðs af Syll- unni og alla leið upp, en sú leið er mjög torfarin, m. a. vegna svellalaga, sem þar eru. Varð auðvitað maður að fylgja þeim. Var þetta allt hin mesta karlmennskuraun. Sjö komust upp á laugardag. Alls voru á bjargsyllunni níu menn, sem unnu að því að draga skipbrotsmennina upp þahgað. Tókst þeim að ná sjö skipverjum upp á stallinn á laugardaginn, meðan enn var svo ljóst af degi, að unnt var að at-hafna sig við björgunina. Um nótt- ina urðu þeir að láta fyrirber ast á stallinum allir saman, en 5 skipbrotsmenn og þrír íslendingar urðu að dvelja í fjörunni. Höfðu þeir ekkert afdrep þar, en eitthvað höfðu þeir fengið af þurrum fötum og matvæium. Mun vistin þar hafa verið þeim öllum heldur daufleg, þótt skipsbrotsmenn irnir væru sloppnir úr bráð- ásta lífsháskanum. _______ Hjálparleiðangrar villast. Á laugardaginn lögðu af stað frá Rauðasandi og Pat- (Framhald , á. 2. síðuj Smásagnasafn eftir Ingólf Kristjánsson biaðamann komið út í dag kemur út á vegum ísafoldarprentsmiðju smá- sagnasafn eftir íslenzkan blaðamann, Ingólf Kristjáns son-. Nefnist það Títuprjónar og eldspýtur. — Eftir Ingólf hefir áður komið út ljóða- bók, Dagmál. — Tólf sögur eru í hinni nýju bók. Starf blaðamanna er eril- samt og tómstundir oftast fáar og stopular. En eigi aö síður hefir þessum unga manni unnizt tími til þess að semja sögur, sem fylla alistóra bók. Gleymum ekki útlendu mönnunum á TSIIaga sés*a SIgiBrls|«irns Á. C5íslas©aiar inai Séra Sigurbjörn Á. Gíslason hefir komið að máli við Tím- ann og þakkaði blaðinu stuðning þess við málefni sjómanna- stofunnar í ReykjaVík. En hann er formaður sjómanna- stofunefndarinnar, sem starfað hefir hér í bænum um langt árabil. Hefir séra Sigurbjörn látið blaðinu í té greinargerð um starfsemi nefndarinnar. „íslenzkir farmenn, sem dvalið hafa um jólin í erlend- um höfnum, kannast við, að gestir við jólasamkomur í sjómannaheimilum fá allir dálitla jólagjafir: trefla, vetlinga, peysur, bækur eða eitthvað annað smávegis, og venjulega vinsamlegar línur frá gefandanum um leið. Hvernig lízt lesendunum á að taka upp þann sið nú? Um jólin verða hér í bæ fjöldi aðkomu sjómanna, bæði er- lendra og innlendra. Sjó- mannastofan mun reyna að ná til þeirra svo margra, sem unnt er. Vilja menn senda henni slíka böggla til jóla- gjafa? Komi þeir margir, þá er það sýnt, að það eru fleiri en bæjarstjórn og ríkisstjórn, sem gleðja vilja sjómennina um jólin.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.