Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 2
2 TÍMINN, föstudaginn 23. jan. 1948 17. blað m I dag: ' Sólin kom upp kl. 9.37. Sólarlag kl. 15.42. Árdegisflóð kl. 2.50. síð- degisflóð kl. 15.20. í nótt: Næturakstur annast bifreiða- stöðin Bifröst við Hverfisgötu, sími 1508. næturlæknir er í læknavarð- stofu iæknafélagsins í Austurbæj- arskólanum, sími 5030. Næturvörð- ur er í IngólfsApóteki. Útvarpið í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20.30 Útvarpssagan: „Töluð orð“ eftir Johan Bojer, III. (Helgi Hjörvar). 21.00 Tónskáldakvöld: 100 ára minning Helga Helgasonar tónskálds. Erindi og tónleikar: a) Lúðrasveit Reykjavíkur leikur (Albert Klahn stjórnar). b) Erindi (FYiðrik Bjarnason tónskáld). c). Útvarpshljómsveitin: Lagaflokkur. d) Dómkirkjukórinn syngur (Páll ísólfsson stjórnar). 22.00 Préttir. 22.05 Symfóníutónleikar (plötur): a) Petite — svíta eftir Debussy. b) Tablo.,Patteresques eftir Josef Jongen. 23.00 Dagskrárlok. Framsóknarvist : verður kl. 8.30 í kvöld í Mjólkur- st'öðvarsalnum. Jón Helgason blaða rpaður flytur þar erindi er hami nefnir: Heyrt og séð meðal Vestur- íslendinga. « Skipafréttir: Brúarfoss fór frá Reykjavík í gáer 21. jan. til London. Lagarfoss fór frá Gautaborg 17. jan. tll Leith. Selfoss var á Patreksfirðl í gær á lejð frá Siglufirði til Reykjavikur. Fjallfoss er í Reykjavlk. Reykja- fpss fór frá Reykjavík 8. jsin. til Njew York. Salmon Knot fór í gær- kvöld 21. jan. til Baltimore. True Knot er á Siglufirði. Knob Knot er á Sigiufirði. Lyngaa er á Akureyri. Horsa er í Reykjavík. Baltara fór frá Hull 19. des. til Amsterdam. Itnattspyrnunámskeið Í.S.t. Knattspyrnuþjálfari Í.S.Í., Axel Andrésson, sem ferðast hefir um landið undanfarin ár sem sendi- kennari íþróttasambandsins í knattspyrnu hefir nýlega lokið knattspyrnunámskeiði á Hvann- . eyri. Nemendur þar voru alls 38. í bessum mánuði heldur Axel íþróttanámskeið í Reykholtsskóla. „K^ri'j á Akranesi heiðraður. Knáttspyrnufélögin á Akranesi er'U'. tvö. Eldra félagið, sem er Kttátt’s’pyrnufélag Akraness, er nokkuð eldra en knattspyrnufélag- ið Kári, sem átti nýlega 25 ára af- mæli. Var það félag upphafl. stofn- að fyrir forgöngu æskulýðsleiðtog- ans "séra Friðriks Friðrikssonar. íþróttasamband íslands heiðraði Kára -á -afmæli þess, með því að sæmavþað veggskildi Í.S.Í. .JSÍtJLfélag í Í.S.Í. Ungmennasamband Norður- >ingayinga hefir nýlega gengið í ÚS-Í- Formaður Ungmennasam- báhdslná er Björn Þórarinsson í CJlákoti, en félagar í sambandinu eru 310. í Í.S.í. eru nú alls 231 sam- bandsfélög, og 211 héraðasambönd, með samtals um 23 þúsund félags- mönnum. 'S nnr* - Fjármunum frjálslynda safnaðarins ráðstafað. Í fyrra var ákveðið að leysa frjálslynda söfnuðinn upp, enda var prestur safnaðarins, séra Jón Auðuns, þá orðinn prestur við dómkirkjuna. Á seinasta safnaðar- fundinum var ákveðin eftirfarandi ráðstöfun á fjármunum safnaðar- ins"_ Gjöf til Barnaspitalasjóðs Hringsins 70.678.52 kr. og þar að auki vextir af verðbréfi kr. 2.620.00. Þessari gjöf fylgir sérstök skipu- lagsskrá þess efnis, að gjöfin verði sérstakur sjóður, er heiti Minn- ingarsjóður frjálslynda safnaðar- ins í Reykjavik. Þá var Sálarrann- sóknarfélaginu gefin peningagjöf að upphæð fimmtán þúsund krón- ur og Fríkirkjunni var gefin gjöf til minningar um afnot frjálslynda safnaðarins af kirkjunni. Þá gaf kvennadeild safnaðarins, sem einn- ig var lögð niður, 25 þúsund krónur til fyrirhugaðs blindraheimilis og kvennadeild safnaðarins ánafnaði fyrirhugaðri vöggustofu Thorvalds- ensfélagsins fjárhæö að upphæð kr. 17.247.65. Hefir öllum eignum safnaðarins með þessu verið ráð- stafað. íþróttanámskeið Ungmennafélags Reykjavíkur. Íþróttanámskeið verður haldið á vegum Ungmennafélags Reykja- víkur. Kennt verður: Frjálsar inn- anhússíþróttiív handbolti karla og kvenna, glímji og vikivakar, ef nóg þátttaka fæst í hverri grein. — Kennarar verða Baldur Kritjóns- son, Lárus Salomonsson og Oddur Guðjónsson. Nánari upplýsingar í síma 5740, kl. 8—9 e.h. Þátttakend- ur mæti í leikfimishúsi Mennta- skólans þriðjudaginn 27. þ. m. kl. 8.00 e. h. ^tundvíslega. Skálholt. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Skálholt eftir Guðmund Kamban í kvöld klukkan 8. Sýningum á Skálholti varð ekki alveg lokið fyrir jól, en þá var leikið 8 sinnum, alltaf við ágæta aðsókn. Áður var búið að sýna Skálholt 40 sinnum, svo að þetta er 49 sýning félagsins á leikiÁtinu. Nú verður aðeins sýi|: í örfá skipti og eingöngu á föstudögum. Á sunnudögum og miðvikudögum verða sýningar á „Einu sinni var“. Aðsókn að því hefir verið mjög mikil og er búið að sýna það 12 sinnum. Auglýsið í Tímanum. Mæða Kevins (Framhald af 8. síðu) kenningu annarra ríkja.. — Hann kvað það hafa verið rnjög hættulegan leik, er Júgóslavía, Búlgaría og Al- banía hefðu leikið fyrir Rússa, er þau höfðu að engu fyrir- mæli sameinuðu þjóðanna varðandi bann gegn aðstoð við gríska skæruliða. Síldin (Framhald af 1. síðu) Grindvíkingur 900, Þorsteinn A.K. 600, Hilmir og Reykja- röst 950, Ágúst Þórarinsson 1000, Böövar 750, Ármann 400. Öll þessi skip bíða löndun- ar, auk nokkurra fleiri báta. Mun nærri, að um 30 skip bíði alls löndunar nú. Verið er að ljúka við að lesta í Fjallfoss og Selfoss síld til norðurflutnings, og verður sennilega lokið við þá báða í dag. Fara þeir þá þeg- ar af stað norður. Eru þá engin flutningaskip fyrir hendi eins og er, en von er á Banan og Hvassafelli að norðan bráðlega. Þá er ann- að Knot-skipanna væntan- legt hingað frá Siglufirði firði næstu daga, en búast má við, að nokkurn tíma taki að búa það undir síldarflutn- inga að nýju. Félagslíf Frjálsíþróttamenn Armanns Munið að mæta allir á æfingunni í kvöld klukkan 9 í Íþróttahúsinu. — Eftir æfinguna verður fundur hjá flokknum í Tjarnarcafé upp klukkan 10. Ekberg mætir. Fjöl- mennið! Stjórnin. Ódýrar auglýsingar Framsóknarvist Framsóknarfélaganna byrjar kl. 8.30 í kvöld í Mjólkurstöðvarsalnum Leikhúsið. Skálholt Kambans leikið í kvöld klukkan 8. í Iðnó. Hljómleikar. Symfóníuhljómsveit Reykjavíkur verður á sunnudaginn kl. 3 e.h. í Austurbæjarbíó. K.R. Aðalfundur fimleikadeildarinnar í kvöld í V.R.-heimilinu kl. 8.30. | Stúkan I Verðandi heldur fund í kvöld kl. 8.30 í G.T.-húsinu. Spilað. Vonbrigði Þjófur einn i Gabriel í Kalí- forníu hefir orðið fyrir átakanleg- um vonbrigðum. Hann brauzt inn í lokaðan og mannlausan bíl og stal þaðan stórri pappaöskju. í öskjunni voru gleraugnaslöngur. Á förnum vegi Mér þætti ekki ótrúlegt, þótt skemmtanir yrðu vel sóttar fram að mánaðamótum, því að eftir þann tíma má engin skemmtun eða samkvæmi standa lengur en til klukkan eitt á nóttu. Þar er engin undantekning gerð, hvers konar mannfagnað, sem um er að ræða, né hvort heldur hann fer fram í opinberum skemmtistöðum, veit- ingahúsum eða félagsheimilum. Þetta nýja bann dómsmálaráð- herrans við næturskemmtunum er nú eitt helzta umræðuefni fólks í þessum bæ, og svo er sjálfsagt víð- ar. Eftir því, sem ég bezt veit, er álit þorra fólks mjög á einn veg: Það er ekkert nema gott um það að segj^, að bönnuð séu samkvæmi langt fram á nótt, þegar vinnu- dagur er að morgni, en það er ósanngjarnt að leyfa ekki, að skemmtunum sé haldið áfram lengur fram eftir, þegar helgidagar og áðrir frídagar fara i hönd. Á þessa sveif hallast ég líka. Hvers vegna ætti fólk ekki að mega dansa fram eftir á sunriudagsnóttum eða vaka við annan gleðskap? Ég sé enga skynsamlega ástæðu til þess að amast við því. Þetta, sem ég hefi hér sagt, á við bæina og kaupstaðina. En þetta bann við næturskemmtunum gildir fyrir allt landið, án þess að þar sé einu sinni gert ráð fyrir nokkurri undanþágu. En nú veit hver maður, sem eitthvað þekkir til í sveitum landsins, að þetta jafngildir fast að ; því samkornubanni þar. Það er ! hægt að segja við fólkið í kaup- stöðunum, að það geti byrjað skemmtanir sínar fyrr. En þar gegnir allt öðru máli en til sveita. Í fyrsta lrjgi.pT þar víða um langan veg að sækja á samkomu- og skemmtistaði. Í öðru lagi hygg ég, að mjög víða og sennilega víðast sé svo ástatt, að fólk geti alls ekki lagt af stað að heiman fyrr en gegningum öllum og mjöltum er lokið að kvöldi. Þegar þar bætist FerfSíameMM sem eru gestir í Reykjavík, kaupa máltíöir í Breiðfirðingabúð. Jeppi nýlegur og í góðu standi óskast til kaups. Á að notast við land- búnaðarstörf og má vera óyfir- byggður. Uppl. gefur GUÐNI ÞÓRÐARSON sími 2353. Kreingeraiingar Sími 5572. §tækkanleg borð Nú ef spyrðu, um nýtt hjá mér nægja þessi fáu orð: fyrsta sending ársins er aftur, „tvöföld-stofuborð" Verzlun Ingþórs Selfossi. Sími 27. Anglýslngasími Tímans er 2323. — Hringið 1 þann síma, ef þið viljið fá aug- lýsingu í blaðinu á morgun. LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR o SKÁLHOLT eftir GUömund Kamban Sýning í kvöld klukkan 8. Aðgöngumiöar frá kl. 2 i dag. I svo við löng ferð, geta allir heilvita menn séð, um hvaða skemmtun yrði að ræða. Það væri aðeins að koma og fara. Af þessum ástæðum, sem ég hefi greint, er það mjög algengt til sveita, að þær fáu skemmtanir, sem haldnar eru, standi meirihluta nætur og jafnvel næturlangt. Ég sé ekkert athugavert við það — finnst það meira að segja mjög eðlilegt, eins og aðstæðum er háttað. Eða setjum dæmið dálítið öðru vísi upp. Segjum, að vinsæll bóndi eða húsfreyja eigi sextíu ára af- mæli eða fjölskylda, sem lengi hafi búið á sömu jörð, sé að flytja burt. Sveitucgana langar til þess að sýna fólkinu hlýjuvott. Klukkan væri sennilega oröin tíu eða jafnvel meira, þegar allir gætu verið komnir. Er það svo brýn nauðsyn, að reka þetta fólk heim klukkan eitt, að rétt sé að gefa út um það reglugerð, þar sem ekki er gert ráð fyrir neinni undanþágu? Ein af hinum veigameiri ástæð- um til þess, að ungt fólk unir oft illa í sveitum landsins, er sú, hvað skemmtanalífinu er j/.r áfátt. Ungt fólk þráir skemmtanir sem eðlilegt er, og ungt fólk þarfnast skemmtana — þeir, sem eldri eru helzt líka. Það kemur því úr óvæntri átt, að dómsmálaráðherra skuli gefa út reglugerð, sem kring- umstæðnanna vegna jafngildir fast að því banni við skemmtunum til sveita. Raunar þykist ég vita, að þetta sé af vanþekkingu gert — af manni, sem lítiö veit um líf og störf fólks í sveitum landsins. — Nauðvörn sveitafólksins verður sennilega að hundsa þessi fyrir- mæli, ef dómsmálaráðherrann sér sig ekki um hönd og breytir þess- um fáránlegu fyrirmælum, að því er til sveitanna tekur. J. H. S. EK. T, Eldri dansamir í G.-T.-húsinu annað kvöld kl. 10. — Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5 e. h. — Sími 3355. | Salirnir opnir í kvöld | Breiðfirðingabúð | iHiimHiiiimmimimH»mmiiHmmmiii»mm»mmHmmnHimmiim»Hmimimmm»immnmmMiiiiiiiiimi»H V:S5Sí«555S55555Í5$5SSÍ«$Í*55S55555S55$5SSSÍ5SS5555SS5555ÍS55S5555$S5$SS: lendurtekur hljómleikana næstkomandi sunnudag kl. 3 í Austurbæjarbíó Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundson, Verzl. Bækur og ritföng, Austurstræti 1. og Ritfangaverzl. ísafoldar í Bankastræti. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ *♦ Gisíing fyrir ferðamenn l| <> " it ♦♦ ♦• Fólk, sem hyggst að selja ferðamönnum gistingu, með p eða án morgunverðar, á sumri komanda, er vinsamlega i| H beðið a ðsnúa sér til ferðaskrifstofu ríkisins, fyrir 1. U : ' I u ♦♦ h febrúar næstkomandi. :: Ferðaskrifstofa ríkisins, sími 1540. fjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjnjj,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.