Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 6
t’i'i'í .fiBÍ .c? rtnij',:!>:< i .V ÍMIT ftBld .ti TÍMINN, föstudaginn 23. jan. 1948 17. blaS GAMLA BIÓ NÝJA BlÓ StsBlkaibariiifS Ævintýraómar Ditte (Song of Scherazade) (Dítte Menneskebarn) Hin mikilfenglega litmynd með JÓönsk úrvalskvikmynd, gerð eftir skáldsögu Martin Andersen músík eftir Rimsky-Korsakoff, verður sýnd eftir ósk margra Nexö. kl. 9. Sýnd kl. 7 og 9. Börn innan 16 ára fá ekki Hamingjaii ber aJS aðgang. dyrimi Höldion syngjaiiífi lieim Ein af hinum góðu gömlu og skemmtilegu myndum með: Shirley Temple Sýning kl. 5 og 7 Sýnd kl. 5 og 7. TRIPOU-BIO Dæmdur eftir líkiim (The Man who dared) Afar spennandi amerísk saka- málamynd. > Aðalhlutverk: Leslie Brooks George MacKeady Forrest Tucker Sýnd kl. S, 7 og 9. J [ | I Bönnuð innan 16 ára. !!;; — sími 1182. — TJARNARBIO .... Loginn á ströndinni (Flame of Barbary Coast) ■Spennandi kvikmynd um ástir og fjárhœttuspil. !:!; Aðalhlutverk: John Wayne Ann Dvorak. I|l> Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta sinn. nAman (Hungry Hill) Stórfengleg ensk mynd eftir frægri skáldsögu „Hungry Hill“ eftir Daphne du Maurier (höf- und Rebekku, Máfsins o. fl.). Margaret Lockwood Dennis Price Dermot Waish Sýning kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. Vinir Ur Hafið þið athugað hvað góðir menn vinna oft mikið við kynningu? En blöð? Lánið kunningjúm ykkar Tímann, þegar þið hafið lesið hann sjálfir. i > llelgi Ilelgason - &r - (Framhald. af 3. stöu) Iist Helga Helgasonar hafi hvílt í viðjum byrjunarörðug- leika, hafði hún samt í sér fólgna skýringu og leiðsögn, huggun og opinberun. Öll list er ekki aðeins gædd fegurðar gildi, heldur einnig siðgæðis- gildi. Hún er skyld guðshugs- un og eilífðarþrá trúarbragð- ahna. Þetta hefir Helga Helga syni líka undir niðri verið Ijóst, er hann samdi bæði ljóð og lag, sem lýsa betur en allt annað hver vartilgangurhans með göfugu tómstundastarfi, og þannig mun hann standa oss fyrir hugskotssjónum um framtíð alla sem sá maður, sem af einlægri ást og bjarg- fastri trú á mátt hugsjónar- innar hefir bent á þá leið, sem kynslóðirnar hafa geng- ið í þúsund ár og munu ganga svo lengi sem sannleikur og kærleikur ráða völdum í heimi hér: Þá sönglist ég heyri og svanfögur hljóð. mér sorgirnar renna frá hjarta, með hugmynd um englanna l helgustu ljóð við'Kásæti guðdómsins bjarta. 23./1. 1948 Hallgrímur Helgason. ÍSaddir nábiiaima (Framhald af 5. síðu) angTun Ieiðslnnnar, því að liílu haldi kemur okkur hitaveitan, ef vatnið er orðið kalt, þegar það kemur í ofnana.“ Hvaða vitnisburð skyldi borgari fá í Mbl. fyrir þessa grein slna. Vafalaust verður hann stimplaður fjandmað- ur Reykjavíkur og jafnvel eitthvað enn verra. Fyrstu hljómleikar (Framhald af 4. síðu) Urbantsihitsch er öruggur og látlaus stjórnari. Efnisskráin var eftir Beet- hoven og Haydn. Hvert sæti í húsinu var skipað og hrifning áheyrenda geysileg. Sérstaklega hylltu menn hljómsveitarstjórann og einleikarann. Það fer að vonum að menn gleddust. Slík Symfóníuhljóm sveit er mikill fengur tón- listarlífi bæjarins og lands- ins ails. Megi hún vaxa að stærð og snilli og gjörast voldugur boðberi fegurðar og göfgi. Re. Úr dæmisögum Kriloffs „Bóndi nokkur kvartaði yfir því, að kind hefði stolið tveim hænum frá honum. Málið var lagt fyrir dómstól. Tófan var dómari. Bóndinn skýrði frá því, að hann hefði séð það árla morg- uns aö hænurnar voru dauð- ar. Ekkert var eftir af þeim, nema beinin og fjaðrirnar, og eina dýrið sem hafði verið hjá þeim í húsagarðinum vár kindin. Kindin varði sig með því að segja, að hún hefði sofið alla nóttina, og hún kallaði alla nábúana til vitnis um, að hún hefði aldrei gert iig seka í slíkum þjófnaði eða ill- virki. Auk þess hefði hún aldrei nokkurn tíma borðað kjöt. Tófan hlustaði og kvað síð- an upp dóminn: Við getum ekki tekið af- sakanir kindarinnar til greina. Allir þorparar eru leiknir í að leyna illverkum sínum. Kindin var þarna hjá hænunum þessa ákveðnu nótt. Allir vita hvað hænur eru góðar á bragðið og kind- in gat ekki staðizt freisting- una. Ég dæmi kindina til dauða. Dómstóllinn á að fá skrokkinn af henni og bónd- inn húðina.“ Þessa dæmisögu birti Þjóð- viljinn á síðastliðnu sumri og lagði ekkert út af. Það er heldur ekki ætlunin að fara langt á þeirri leið hér. Þetta ef saga um opinber réttar- höld og dómsniðurstöðu, austræn dæmisaga um, rétt- arfar. Sagan er mjög stuttorð.Hún hefði getað sagt frá því, með hverjum hætti hænurnar ar hurfu. En lesandanum er ætlað að skilja það af eöli málsins og fyrirfram þekk- ingu á persónum sögunnar. Svo dásamlega slungin er tófan í stjórnvizku sinni, að fyrst gerir hún sér gott af hænunum og lætur bóndann kæra kindina fyrir þaö ó- dæði að hafa grandað fugl- unum og dæmir svo sjálfri sér alla átuna af kindinni, en „eigandinn“ fær gæruna í skaðabætur fyrir hænurnar. — Það er sér á blaði, þó að þýðandi Þjóðviljans hafi ekki munað, að þegar húð er fleg- in af kind, heitir hún gæra á íslenzku máli. — Þessi dæmisaga er orðin nokkuð gömul, enda er hún að vissu leyti úrelt. Það vant- ar í hana allar aðferðir og kúnstir til að knýja fram játningu kindarinnar, og svo er heldur ekkert um að herða þyrfti refsinguna til að aug- lýsa óháð sjálfstæði sitt gagnvart einhverjum, sem geta ekki komið dómsniður- stöðunni heim við réttarhug- myndir sínar. Þetta er að vísu galli frá sjónarmiði líðandi dags. En kjarninn úr sög- unni er í fullu gildi enn þann dag í dag: Slóttugur og ófyr- irleitinn bragðarefur hefir náð dómsvaldinu undir sig. Hann þrýtur lög og fremur ó- dæði, svo að öðrum verði kennt um, fær. hann sóttan til sakar og dæmir hann síð- an sér í hag við opinber rétt- arhöld. Þetta er dæmisaga um skopstælingu af því, sem vest rænar menningarþjóðir kalla réttarríki. A. J. Cronin: Þegar ungur ég var Þegar út kom, sá ég undir eins, að honum svall móður. Amma hafði auðvitað borið hann þungum sökum fyrir frá- livarf mitt. En þetta átti líka aðra orsök. Amma hafði vakað íram eftir kvöldið áður og beðið heimkomu okkar, og það hafði ekki farið framhjá henni, í hvers konar ásigkomulagi Murdoch var, og talið það skyldu sína að færa það í tal við pabba um morguninn. Afi forðaðist pabba alltaf, því aö hann vissi, hve innilega tengdasonurinn fyrirleit hann. Ég minntist þess ekki, að þeir Jiefðu ræðzt við, nema einu sinni. Þá hafði pabbi af göfug- mennsku sinni sýnt okkur afa hinar nýju frárennslisæðar Levenfordbæjar — mest fyrir áeggjan mömmu. Og jafnvel það hafði endað með ósköpum. Pabbi hafði verið mjög hreykinn af hreinsistöðinni, þar sem óhreint og mengað afrennslisvatnið var síað og seytt og breytt í hreint og heil- næmt drykkjarvatn að nýju. Hann fyllti glas af þessu endur- hreinsaða vatni og rétti mér. „Bragðaðu bara á þvi — þá geturðu sannfært þig um, hvort það er ekki rétt, sem ég segi,“ sagði hann. Mér var um og ó — þetta var óþverri úr skolpleiðslum bæjarins. „Ég held, að ég sé ekki þyrstur,“ stamaði ég. Pabbi rétti þá glasið aö afa, sem hlustað hafði á skýringar hans með ískyggilegu brosi. „Ég hefi aldrei verið sólginn í vatn,“ sagði afi hógværlega. „Og þaðan af síður langar mig í þetta groms.“ „Trúirðu mér ekki?“ hrópaði pabbi. „Jú-jú,“ svaraði afi. „Ekki sízt, ef þú vildir drekka þetta sjálfur." Pabbi þeytti glasinu í gólfið og skálmaði burt. Venjulega höfðu þeir enga ástæðu til þess að hittast eða íæðast við. Vegir þeirra lágu ekki saman. Vildi svo til, að afi kæmi auga á heilbrigðisfulltrúann einhvers staðar á förnum vegi, þá var segin saga, að hann tók á sig stóran krók, svo að fundum þeirra bæri ekki saman. En nú höfðu þau tíðindi gerzt, að ekki varð hjá árekstri komizt. Uppá- tæki Murdochs, sem okkur hafði virzt svo ofur-skiljanlegt’ daginn áður, fékk á sig alvarlegri blæ í birtu nýs dags. Pabbi var strangur bindindismaður — „drykkjuskapur" var honum viðurstyggð — og að hugsa sér alla þá eyðslu, sem slíku l'ylgdi! Hann var auðvitað bálvondur yfir því, að Murdoch skyldi hafa orðið fótaskortur á prófinu, og þegar þetta bættist ofan á, mátti guð vita, hvaða refsingu hann legði á hinn ógæiusama mann, sem leitt hafði son hans á glap- ftigu. Afi hægði á sér, þegar við vorum komnir nógu langt frá húsinu, og sneri sér að mér. „Við eigum sem betur fer í fleiri hús að venda, Robbi,“ sagði hann. „Einhvers staðar eru kannske vinir, sem ekki myndu telja eftir sér að gefa okkur matarbita ef við bæðum þá um það. Nú förum við í heim- sókn til Antonelli-fólksins.“ Ég nam staðar og fór allur hjá m.ér. „Æ-nei, afi,“ stamaði ég. „Við getum það ekki.“ „Hvers vegna ekki?“ „Af því....“ Ég þagnaði. En.ég varð samt að segja honum sannleikann. Ég gat ekki látið hann þoia þá niðurlægingu, að hurðinni yrði skellt í lás við nefið á honum. Hann steinþagði — þó að honum þætti gaman að masa, gat hann að minnsta kosti þagað, þegar hann var rangind- um beittur. En þetta var þungt áfall. Ég sá, að andlit hans varð dumbrauðara en það átti að sér. Ég hélt fyrst, að hann hefði nú hugsað sér að liitta söðla- smiðinn og Pétur Dickie. En brátt sá ég, að svo var ekki. Hann h£lt áfram eftir AÖalstræti síðan yfir hæðina og suður úr bænum. Við vorum komnir á slóðir, þar sem ég hafði aldrei fyrr stigið fæti mínum. „Hvert ertu að fara, afi?“ „Niður að sjó.“ Ég vissi ekki, hvort hann meinti það, sem hann sagði — að blessuð hafrænan í Ardfillan hefði vakið löngun hans til þess að bregða sér niðyfr að sjónum. Ef til vill hefir hann aðeins langað til þess að komast sem lengst burt frá öílu, sem lá á honum eins og þrúgandi farg. Innan skamms vorum við komnir gegnum lystigarðinn á hæðinni, niður að ströndinni, þ^r sem áin rann í sjóinn. Þarna var þó ekki neinn mjúkur fjörusandur, heldur aðeins grátt og staksteinótt flæðarmálið, klettatrjónur og klappir með þanghrúgum og þara hér og þar. Það var tekið að falla út, og sjórinn var'skolgrár. Reykhá^,r verksmiðjanna, er bar við himin, hamarshöggin í skipasmíðastöðinni og fjarlægur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.