Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 5

Tíminn - 23.01.1948, Blaðsíða 5
17. blaff TÍMINN, föstudaginn 23. jan. 1948 5 ERLENT YFIRLIT: Tvískipting ÞýskaSands iSandanienn undirbúa stjjórnarmyndun fyrir Vestnr-I»ýzkalaied, en Rússar ætla að mynda leppstjórn fyrir allt Þýzkaland Föstud. 23. jan. Arfur óstjórnarinnar Daglega koma þeir nú í ljós, ávextirnir af störfum og stefnu fyrrverandi ríkis- stjórnar. Það er sama á livaða sviði er gripið niður. Alls staðar finna menn til á- hrifanna og víða all óþyrmi- lega, og mun þó verða í rík- ará mæli síðar. Það hafa verið skrifaðar margar greinar um gjaldeyr- ismái og fjölmargar ræður fluttar. Pramsóknarmenn hafa þar látlaust mælt varn- aðarorðum. Þeir hafa bent a það fyrirhyggjuleysi að sóa öllum gjaldeyrisforðanum í einni svipan. En þessu hefir verið svarað með því, að „nýsköpunin“ leysti allan j vandann. Það væri bara aft- urhald og ómerkileg bölsýni að sjá ekki og skilja, að það væri öllu óhætt þegar farið yrði að nota nýju tækin. Þetta er aö vissu leyti kjarninn úr fjármáladeilum síðustu ára. Gjaldeyrisskort- urinn nú og hallarekstur at- vinnutækjanna — líka hinna nýju — hafa fellt þann úr- skurð, sem ekki verður vé- fengdur. Til viðbótar kemur svo það, að nýsköpunin hefir ekki orðið nema brot af því, sem hún gat orðið, ef vel hefði verið á málunum hald- ið, heldur hefir hún verið notuð til þess að breiða yfir og leiða athyglina frá ýmis- konar óreiðu og eyðslu, gá- lausum glingurkaupum, for- sj árlausu flakki og ýmsu af því tagi. Það kemur nú meðal ann- ars í ijós, að sumar þær þjóð- ir, sem styrjöldin lék sárast, eru miklu fljótari en við, að koma góðu skipulagi á at- vinnumál sín. Það er að ýmsu leyti auðveldara að fá fólkið frá harðbýli og skorti hernámslandanna beint inn í lifandi uppbyggingarstört heldur en að sækja það inn í skrifstofur alls konar milli- liðastarfa og umboðs- mennsku, þar sem það hefir búið sér notaleg hreiður á stríðsgróðaárunum. Kaup- sýslumennirnir, sem hafa vanizt góðum tekjum fyrir létt störf og þrifaleg við mik- ið frjálsræði, hlaupa ekki frá þeirri aðstöðu til að biðja úm skiprúm á nýja flotanum, þó að þeir sjái skipin koma að landi. Það eru líka dæmi deginum Ijósari um ýmsar slæmar venjur, sem fjármálastjórn og fjármálaþróun undanfar- inna ára rótfesti með ýmsum hætti. Ríki'sbúskapurinn hefir sína sögu að segja. Fjárlög ríkis- ins þurfa helzt að vera að ó- breyttum ástæðum töluvert yfir 200 milljónir króna, eða ef til vill fyllilega tveir þriðju móts við útflutnings- tekjurnar. Þessu veröur ekki um þokáð að óbreyttum á- stæðum. Útgjöldin eru bund- in af rekstrarvenjum síðustu ára, löggjöf frá tíma fyrr- verðandi stjórnar, lausaskuld um og vísitölu þeirrar verð- bólgu, sem þá var munduð. Tekjur ríkisins af sjáflu sér, Svo þegar innflutningurinn minnkar, minnka líka toll- bólgu, sem þá var mynduð. Það má nú tefja nokkurn veginn víst, að ÞýzkaTánd heldur áfram að vera klofið milli hernámsaðil- anna um langá'.liríð enn. Að vísu hafa þeir allir' góð orð um, að þeir vilji sameinii Þýzkaland aftur undir eina stjórn, þótt þeir séu hins vegar ósarfifhála um, hvernig tilhögun hennaf '. skuli háttað. — Frakkar og Bailöaríkjamenn vilja slcipta landinu í 'faokkur fylki með víðtækri sjálfstjófn og hafa aðal- stjórn landsins Váldalitla, en Rúss- ar eru andvígir fylkjatilhögun- inni og vilja "hafa aöalstjórn- ina valdamikla. Frakkar halda því einkum ffam, að það fyrirkomulag, sérri Rússar beita sér fyrir, muni skáþá hernaðarstefn- unni betri aðstöðu til að ná aftur yfirráðum í Þýzkalandi. Það er þó ekki á þessum ágreiningi, sem frið- arsamningarnir ”'' við Þjóðverja stranda fyrst óg' fremst, heldur á hinum miklu " skaðabótakröfum Rússa, sem Baridámenn telja Þjóð- verja ekki geta fisið undir, og svo ágreiningnum úin austurlanda- mæri Þýzkalands, en Bandamenn vilja ekki taka eíns mikið land af Þjóðverjum og Rússar og Pólverjar gera kröfu til. Bizonía. Endalok utanrikisráðherrafund- arins í London í desembermánuði þykja yfirleitt rriérki þess, að ó samkomulagið úm friðarsamning- ana við Þjóðverjá' muni vara lengi enn, og á meðari vérður Þýzkaland tvískipt land. Rúínur þriðjungur þess mun heyra1 úndir Rússa, en tæpur % hlutar úSdir vesturveldin. Margt bendir':;tfl þess, að her- námsstjórnirnar 'háfi gert ráð fyrir því um nokkurt skeið, að tví- skipting Þýzkalands myndi haldast um ófyrirsjáanlegán tíma. Þannig voru brezku og aínerískú hernáms- svæðin sameinúð’’í eina efnahags- lega heild á síð’as’tL sumri. Jafn- framt hlutu herfiámssvæðin þá sameiginlega nafri,' Bizonia, í dag- legu tali, þótt óþíhberlega hafi það ekki verið staðfést énn. Fljótlega eftir áð utanríkisráð- herrafundinum i London lauk, kölluðu hernáriissíjörnir Breta og Bandaríkjanna, ’ Brian Roberts og Lucius D. CÍaý, saman full- trúafund Þjóðverjá til þess að ræða um aukná 'hlutdeild þeirra í stjórn hernámssvæðanna. Báðir hernámsstjórarnir' tóku það að vísu fram, aö það væri ekki mark- mið ríkisstjórna’ þeirra að gera Vestur-Þýskaland'áð sérstöku ríki, heldur væri markmið þeirra sam- eining alls Þýzkalands. Meðan hins vegar væfi ékki hægt að framkvæma saméiriinguna, yrði að koma upp fullkomnara stjórnar- ... kerfi fyrir herriámssvæðin, svo að hægt væri að tryggja aukinn og vaxandi áhrif Þjóðverja sjálfra. Niðurstaða ráðStéfnunnar var því sú, að komið skyldl á sameiginlegu og einkum þö, þegar þess er gætt, að fyrst'þarf að spara óþarfa kaup; sém skiluðu há- um tolli. Auk þess vona allir heiðarlegir menn að nautn áfengis og tóbaks minnki heldur en vaxi og minkar það tekjur ríkissjóðsins í bili. Það er augljóst mál, að ein- mitt í sambandi við ríkisbú- skapinn eiga áhrif fyrrver- andi stjórnar eftir að minna á sig, svo að flestum þyki þingi fyrir hernámssvæðin, sameig- inlegri landsstjórn og sameiginleg- um hæstarétti. Með þessu virðast því lögð frumdrög að nýju ríki, ef ekki skyldi verða úr sameiningu Þýzkalands áður en langir tímar líða. Enn er ekki fullvíst, hvort j Frakkar ætla að láta hernáms- svæði sitt sameinast Bizoníu. Þeir hafa verið tregir til þess og byggt það á andstöðu sinni gegn sam- einingu Þýzkalands í allsherjar- ríki, án fylkjafyrirkomulagsins Sú saga gengur, að þegar Dulles var í París í haust, hafi honum tekist a'ð fá bæði stjórniria og de Gaulle til að fallast á, að franska hernámssvæðið sameinaðist Biz- ! oníu, ef fullnægt yrði óskum Frakka um vissa hlutdeild í Ruhr- kolunum. Áform Rússa. Það skortir ekki heldur, að Rúss- ar hafi haft viðbúnað til þess að gera hernámssvæði sitt að stjórn- arfarslegri heild eða réttara sagt ríki. Eitt merki þess er það, að Rússar hafa að undanförnu unniö markvisst að því að koma kristi- lega lýðræðisflokknum þar fyrir kattarnef, en áður var búið að stöðva starfsemi jafnaðarmanna- flokksins þar. Raunverulega er nú ekki starfandi þar nema einn flokkur, kommúnistaflokkurinn, sem gengur undir nafninu samein- ingarflokkur alþýðu. Rússar virðast ekki aðeins hafa það í huga, að gera hernámssvæði sitt að ríkisheild, heldur setja sér annað markmið, er gefi þeim öfl- ugri áróðursafstöðu. Þann 6.—7. desember var sett á rússneska her- námssvæðinu í Berlín allsherjar- þing Þjóðverja, sem var talið hafa það markmið að vinna að samein- ingu Þýzkalands og réttlátum frið- arsamningum. Þing þetta hefir enn ekki lokiö störfum, en ýmsir telja, að það sé markmið Rússa að láta það setja stjórnarskrá fyrir allt Þýzkaland, efna síðan til kosninga og koma fótum undir ríkisstjórn, er verði talin stjórn fyrir allt Þýzkaland, þótt hún nái fyrst um sinn aðeins til rússneska hernáms- svæðisins. Þessari stjórn verði leyft að koma upp þýzkum her, sem verður þó undir stjórn Rússa og kommúnista, og þegar hann sé orð- inn nógu öflugur, muni Rússar draga setulið sitt burtu. Banda- mönnum verði síðan kennt um, að þeir hindri sameiningu Þýzkalands og hafi setulið í landinu eftir að Rússar hafi dregið sitt lið burtu. Hættan sem fylgir tvískiptingunni. Það liggur í augum uppi, að það muni valda þýzku þjóðinni miklum erfiðleikum og sárindum, ef landi hennar verður áfram tvi- nóg um. En þaS er þó vitan- lega ekki nema í samræmi við annað, og væri enda létt- bært, ef ekki væri sundur- grafinn grunnurinn undir öllu atvinnulífi og heilbrigðu fjármálalífi í landinu. Þetta verður þjóðin að skilja, því að engar útgöngu- dyr mun hún finna úr því öngþveiti, sem henni er nú búið, nema hún gangi fram opnum augum og vitandi vits. Clay hershöfðingi. fylgir lika mikil hætta fyrir heims- friðinn, þar sem búast má við, að stórveldin fari að keppast um fylgi Þjóðverja og margt illt geti leitt af þeirri samkeppni. A. m. k. er engin von um friðsamlega sambúð milli þeirra meðan þau eiga í þeirri tog- streitu um Þýzkaland, er af tví- skiptingunni mun leiða. Vegna þess uggs, sem menn bera í brjósti af þessum ástæðum, hafa komið fram ýmsar tillögur um i lausn þessa máls á öðrum grund- ! velli en þeim, að Þýzkaland verði tvískipt. Ákveðnustu tillögurnar hafa komið frá Byrnes fyrrv. ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún er á þann veg, að kölluð sé saman ráðstefna þjóðanna til að ganga frá friðarsamningum við Þjóðverja og þeirri niðurstöðu, sem þar fæst, verði fylgt fram með valdi. Neiti Rússar þátttöku í ráð- stefnunni eða að hlýðnast ákvörð- un hennar, verði vopnin að skera úr. Þeir, sem styðja tillögu Byrnes, segja að núverandi skipan Þýzka- landsmálanna geti vart leitt til annars en styrjaldar fyrr eða síðar og þvi sé bezt að knýja úrslit fram með góðu eða illu sem allra fyrst. Raddir nábúanna í Vísi 20. þ. m. skrifar borg- ari um hitaveituna á þessa leið: „Þið hafið tekið eftir því, að þcgar frost cr og snjóföl á jörðu, þá er á mörgum götun- um hér í bænum auður slóði eftir endilangri götunni, og þegar rigningar ganga og blautt er um, þá er þurrast á þessum hluta götunnar. Þarna undir liggja pípurnar með heita vatn- inu, og það er hitinn, sem upp af þeim leggur, sem bræðir snjóinn og þurrkar götuna. Þegar þið greiðið hitareikn- inginn um mánaðamótin, þá ættuð þið að hugleiða, hvað mikill hluti kostnaðarins hefir farið í það að liita upp íbúðina ykkar og hváð mikið þið greidd- uð til þess að hita upp lieiminn. Þegar hitaveitan var lögð, var mjög eindregið varað við því, að Ioft kæmist í vatnið, afleiðingar þess yrðu skemmdir á ofnum og leiðslum. f skýrslu þeirra manna, sem falið var aö rann- saka þetta mál, var bent á þetta sama — og það var á árinu 1946. Forráðamenn bæjarins telja sig hafa fundið púðrið. Þeir segja: Vegna þess að loft kemst i vatnið, myndast súrefni, sem svo eyðileggur leiðslur og ofna. Og þeir ætla að láta eitthvert efni í vatnið, til þess að eyða súrefninu. En væri nú ekki betra að byrja á byrjuninni, og fyrir- byggja að loft komizt að vatn- inu. Þá vita þeir, hvað þeir eru að gera. Og þá vitum við Reyk- vikingar, að vatnið er ómengað, sem rennur inn í íbúðir okkar. Og svo þarf að athuga ein- (Fr&mhald á 6. siðu) Framkvæmdir ríkisins Undanfarna daga hafa dag ! blöðin verið að birta skýrslu | frá húsameistara ríkisins um opinberar byggingarfram*- kvæmdir á síðastliðnu ári. — Skýrslan ber það með sér, að þessar framkvæmdir hafa verið geysilega miklar. Það er vissulega margt gott um það að segja, að opinberar fram- kvæmdir séu miklar. Það er margt, sem okkur vantar og vanhagar um, vegir og hafn- ir, spítalar, skólahús, em- bættismannabústaðir o.s.frv. En það er líka fleira sem þarf að framkvæma í land- inu. — Atvinnuvegunum þarf að halda vel starfandi, því að án þeirra fá opinberu framkvæmdirnar skjótan endir. Og þegar á þetta er lit- ið, verður ekki komizt hjá þeirri niðurstöðu, að opin- beru framkvæmdirnar hafi verið meiri á undanförnum árum en góðu hófi gegnir. Þær hafa dregið til sín vinnu- afl, sem í mörgum tilfellum hefði verið betur komið ann- ars staðar. Þær hafa átt sinn mikla þátt í því að skapa hér þá verðbólgu og verkafólkseklu, sem fjármála óreiðan og versnandi vinnu- afköst rekja rætur sínar til. Á síðari árum hefir þeirri stefni vaxið fylgi víða erlendr is, að ríkið eigi að draga úr þeim framkvæmdum sínum, er þola bið vegna atvinnu- lífsins, þegar atvinnuvegun- um vegnar vel og þeir eru einfærir um að veita næga atvinnu. Ríkið eigi m. ö. o. ekki að efna til samkeppni við atvirinuvegina og skapa þannjig ofþennslu og verð- bólgu. Hins vegar eigi ríkið að safna sjóðum, þegar þannig árar, og nota þá sfð- an til aukinna framkvæmda, þegar harðara er í ári hjá atvinnuvegunum. — Þannig stuðlar ríkið að jafnri og stöðugri atvinnu og fyrir- byggir bæði ofþennslu og at- vinnuleysi. Það var fyrir þessari stefnu, sem Framsóknarmenn börð- ust á stríðsárunum. Illu heilli var það hin stefnan, sem sigraði. Ríkið átti því sinn ríka þátt í því að skapa verð- bólguna og ofþennsluna, sem áður er lýst. Og vegna þessa á ríkið enga sjóði eftir allt góðærið, til þess að halda uppi nægum framkvæmdum, þegar harðnar í ári. Enn getur verið nokkurt tækifæri til að ráða örlitla bót á þessu. Allar horfur eru nú á því, að atvinnuvegirnir geti tryggt næga atvinnu á þessu ári, án stórfelldra op- inberra framkvæmda. Þess vegna ætti þingið við af- greiðslu fjárlaganna nú, að stilla opinberum framkvæmd um í hóf, en reyna heldur að safna sjóðum til fram- kvæmda síðar. Með þessu er hins vegar ekki verið að leggja til, að framlög til op- inberra framkvæmda verði lækkuð, svo að hægt sé að haída áfram óhófseyðslunni, heldur að þau verði ekki öll notuð strax. En það kemur vitanlega ekki til greina að lækka framlög til opinberra framkvæmda, nema hliðstæð lækkun sé þá gerð á öðrum útgjaldaliðum. X+Y. skipt, eins og nú á sér stað. En því

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.