Tíminn - 30.01.1948, Side 2
TÍMINN, föstudaginn 30. jan. 1948
23 blað
^drd dc
ecýi
í dag:
Sólin kom upp kl. 9.22. Sólarlag
kl. 16.04. Árdegisflóð kl. 8.25 Síð-
degisflóð kl. 20.45.
í nótt:
Næturakstur annast B.S.R.,
sími 1720. Næturlæknir er í lækna-
varðstofunni í Austurbæjarskólan-
um, simi 5030. Næturvörður er i
Laugavegs apóteki, sími 1780.
Útvarpið í kvöld:
h Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
Útvarpssagan: „Töluð orð“
eftíc Johan Bojer, IV. (Helgi
fjjörvar). 21.00 Strokkvartett út-
varpsins: Ýmis sígild smálög. 21.15
Bækur og menn (Vilhjálmur Þ.
Sísláson. 21.35 Tónleikar (plötur)'
SÍ-4Ó Tónlistarþáttur (Jón Þórar-
insson). 22.00 Fréttir. 22.05 Sym-
ffóniutónleikar (plötur): a) Píanó-
konsert nr. 1 í e-moll eftir Chopin.
h)r. Symfónía nr. 5 í c-moll eftir
Beethóven. 23.00 Dagskrárlok.
Sliipafréttir:
r Brparfoss kom til London 26. jan.
frá Reykjavík. Lagarfoss kom til
Reykjavíkur 26. jan. frá Leith. Sel-
foss er á Siglufirði. Fjallfoss er á
STélúFirði. Reykjafoss fór erá New
Ýbrk 27. jan. til Reykjavíkur.
Salnion Knot íór frá Reykjavík 21.
ian.rtil Baltimore. True Knot er í
Reykjavík. Knob Knot er á Siglu-
íirði. Lyngaa fór frá Siglufirði í
gærmorgun 29. jan. til Kaup-
mamiahafnar. Horsa fór frá
Reykjavík 25. jan. til Amsterdam.
Varg fór frá Reykjavík 19. jan tii
New York.
Tröllafoss sóttur til Ameríku.
Umboðsmenn Eimskipafélagsins
hafa nú valið það Knot-skipanna,
aem Eimskipafélagið á að fá og
gefið verður nafnið Tröllafoss. Er
það statt í San Francisco, og verð-
ur íslenzk áhöfn send héðan flug-
ieiðis til að sækja það. Verður það
29 manna áhöfn, og áttu 21 þeirra
að_ fljúga í gær tii Bandaríkjanna
með flugvél frá ameríska Atlants-
hafsflugfélaginu, en hinir fara héð-
an vestur á morgun. Frá New York
værður síðan flogið áfram til San
Érancisco. Þar tekur skipshöfnin
við skipinu og siglir því í gegnum
Papamaskuröinn til New York og
þáðán hingað heim. Er gert ráð
fyrir, að ferðin taki um tvo mán-
uði. Skipstjóri á Tröllafossi heim
verður Bjarni Jónsson, en 1. vél-
stjóri verður Aðalsteinn Sveinsson.
Læknablaðið, 7. tbl. 32. árg.,
hefir borizt blaðinu. Er blaðið
eingöngu helgEið minningu próf-
essors Guðmundar Hannessonar.
Birtir það kvæði um hann eftir
P. V. G. Kolka og grein eftir Helga
' Tómasson.
- Sigurður Norðdahl kosinn
. fornjaður handknattleiksráðs.
Aðalfundur haiidknattleiksráðs
Reykjavíkur var haldinn í þessari
vik‘ú. Á fundinum var Sigurður
Norðciahl kosinn formaður ráðsins,
cii’1 fráfarandi formaður, Sigurður
Magnússon, baðst eindregið undan
endurkosningu. Aðrir í stjórn voru
kosnir Þórður Sig f'ðsson, Þórður
Þorkelsson, Ingvi Guðmundsson,
Hannes Arnórsson, Baldur Berg-
steinsson og Bragi Guðmundsson.
A fundinum var samþykkt áskorun
til Í.S.Í. um að heimila að leikar
í meistaraflokki standi í 50 mín-
útúr, eins og gert er ráð fyrir í
alþjöðalögum um handknattleik
karla í meistaraflokkum. Vonast
ráðíð eftir, að Í.S.Í. verði við þess-.
um; p.skum svo fljótt, að þær geti
komið til gr,Vfa á meistaramótinu
sem jþyrfti helzt að byrja i fyrstu
viku næsta mánaðar.
Áðalfundur
Iínattspyrnufélags Reykjavíkur
var haldinn á miðvikudagskvöld-
ið kl. 9 í Tjarnarcafé. Á fundinum
mættu stjórnin og fulltrúar hinna
ýmsu íþróttadeilda félagsins, auk
margra annarra félagsmanna.
Fundarstjóri var kosinn Sigurjón
Pétursson. Forstjóri og fundarrit-
ari Haraldur Gíslason framkv.-
stjóri.
Stjórn félagsins gaf framhalds-
skýrslu um s^arf og fjárhag félags-
ins frá síðasta aðalfundi. Einnig
var lögð fram fullnaðarteikning af
hinu væntanlega íþróttahúsi við
Melatorg, gerð af Gísla Halldórs-
syni arkitekt. Vakti teikningin
mikla ánægju fundarmanna. Hefir
félagið mikinn hug á að byrja á
húsbyggingun^ að vori komandi.
Þá fór £vam stjórnarkosning.
Formaður var endurkosinn í einu
hljóði Erlendur Pétursson. Með-
stjórnendur voru kosnir Einar Sæ-
mundsSon, varaformaður, Sigur-
laugur Þorkelsson, ritari, Björn
Björgvinsson gjaldkeri, Gísli Hall-
dórsson form., húsnefndar. Endur-
skoðendur voru kosnir Sigurjón
Pétursson og Eyjólfur Leós.
Að lokum voru ýms mál rædd,
þar á meðal 50 ára afmæli félags-
ins, sem er næsta ár. Að endingu
bað fundarstjóri fundarmenn að
hyila" gamla K.R. og hina nýju
síjorri’ þess með ferföldu húrra.
" Formerin iiinna ýmsu íþrótta-
deilda eru’ sém hér Segir: Fimleika-
deild: Guðmundur Guðjónsson.
Frjálsíþróttadeild: Brynjólfur Ing-
ólfsson. Glímudeild: Helgi Jónsson.
Handknattleiksdeild: Ásgeir Ein-
arsson. Hnefaleikadeild: Ingólfur
Ólafsson. Knattspyrriudeild: Har-
aldur Gíslason. Skíðadeild: Har-
aldur Björnsson. Sunddeild: Magn-
ús Thorvaldsen. ,
Y innustöð vunin
(Framliald af 1. síðu)
íarnir að sjá,, hve herfilega
þeir hafa hlaupið á sig með
þessum ráðstöfunum sínum.
Þeir reyna að afsaka sig með
því, aö þeir hafi leyft að
landa í þró hér í Reykjavík
og að bannið nái ekki nema
til síldarflutningaskipanna.
Öllu verri játningu en þetta
gátu þeir varla gert til að
auglýsa tilgang sinn með
löndunarbanninu. Hann virð
ist vera sá einn að fremja
skemmdarstarfsemi í sam-
bandi við síldarvertíðina.
Samkvæmt heimildum, sem
blaðið hefir frá Landssam-
bandi islenzkra útvegsmanna,
var ekki nefnt fyrr að heimilt
væri að landa í þró á landi.
Bannið var algert og undan-
þágulaust. Hitt sýnir svo um-
hyggju kommún.’sta á öllum
sviðum, fyrir bæði sildarver-
tíðinni og hag sjómanna só
sérstaklega, að reyna að
hvetja til þ^s að síld .sé sett
í þró hér, en banna að láta
hana í síldayflutningaskipin,
sem blða tóm. Með því er
verið að svipta sjómenn vís-
vitandi kr. 5.50 af hverju
máli.
Fundur í dag.
í dag kl. 2.30 verður hald-
inn fundur til að ræða þett?
mál. Munu þar mæta full-
trúar frá útgerðarmönnum
og sjómönnum og Dagsbrún
Félagslíf
Leikhúsið
Skálholt Kambans leikið í kvöld
kl. 8 í Iðnó.
Atomorkan. .
Sýning í Listamannaskálanum í
dag kl. 1—11.
Dýraverndunarfélag íslands.
Aðalfundur í kvöld í félagsheim-
ili V.R., byrjar kl. 8,30.
Guðspkifélagið.
Fundur í Reykjavíkurstúkunni í
kvöld. Sigurður Ólafsson talar.
Stúkan
Sóley heidur aukafund í G.T.-
húsinu í kvöld kl. 8.30.
Íþróttaíélögin
almennt fara , skíðaferðir annað
kvöld og sunnudaginn til Hellis-
heiðar.
Skátar.
Skátafélögin hafa grímudansleik
í Skátaheimilinu kl. 9 i kvöld.
Ódýrar auglýsingar
99-
Kunst stop
íí
(fataviðgerðir) Grenimel 7,
sími 1529.
Feröameim
sem eru gestir í Reykjavík, kaupa
máltíðir í Breiðfirðingabúð.
Matar
Það er þægiiegt að fá tilbú-
inn, góðan mat í Matarbúðinni
Ingólfsstræti 3, sími 1569.
Allt til a<$ aseka
ánægjeaiia:
Kommóðurnar og útvarpsborðin
komin aftur og alltaf eitthvað
nýtt.
VERZLUN INGÞÓRS
Selfossi, sími 27.
Eldri dansarnir i G. T.-húsinu
annað kvöld kl. 9. Húsinu lokaö
1 kl. 10.30. —
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
Á förnum vegi
Mér hafa að úridanförnu borizt
ailmörg bréf frá iesendum Tímans,
varðandi efni þessara pistla.
Öll þecsi bréf hafa verið lesin með
ánægju og athygli, þótt hingaö til
hafi ekki neitt verið birt úr þeim.
En nú ætla ég að bregða vana.
,Meðal þessara bréfa eru fjögur,
sem fjalla um bann dómsmála-
ráðherra gegn því, að skemmtan-
ir haldi lengur áfram en til klukk-
an eitt á nóttu. Öll eru þersi bréf
frá sveitafóiki — eitt úr Borgar-
firði, tvö austan úr sveitum, hið
fjórða get ég ekki ráðið, hvaðan er.
En úr sveit er það — það ber það
með sér.
Öllum þessum bréfriturum er það
sameiginlegt, að þeir furða sig á því
skilningsleysi og þekkingarleysi
dómsmálaráðherrans á lifi og hátt-
um sveitafólksins, er fram kom í
tilskipuninni. Sumir eru gramir —
aðrir henda gaman að.
Og nú ætlá ég að birta kafla úr
tvéim þessara bréfa. Bréfritári, sem
við skulum nefna G. H., segir:
„Ég get ekki látið vera að skrifa
yður og biðja yður aö koma á fram
færi fáeinum línum. Ég er í
skemmtinefnd ungmennafélagsins
hér, og mér fór eins og öðrum
. fleiri — ég gladdist, þegar Tíminn
benti á, hvílik firra væri að banna
samkomur og mannfagnaði til
i sveita eftir klukkan eitt á nóttu.
; Sveitafólk getur ekki kornið á
I skemmtanir fyrr en seint og síðar
meir. Það verður að annast störf-
in heima fyrir, ijúka gegningum og
mjöltum, og þegar það er búið,
tekur auðvitað sinn tírna að þvo
sér og hafa fataskipti. Síðan er
oft og oftast löng leið á samkomu-
staöinn, og verður tafsöm, jafn-
vel þeim, sem farið geta á bílum,
því að þá mun oft þurfa víöa við
að koma á leiðinni og taka íólk.
Og af því hljótast meiri og minni
tafir. Þetta jafngildir því samkomu
banni í sveitum. En við skiljum
hins vegar ekki, hvers vegna þarf
að slíta skemmtunum, sem ein-
ungis eru sóttar af innansveitar-
íóiki, klukkan eitt. Viö getum ekki
sætt okkur við, að það bitni á
okkur, þótt til séu einhvers staðar
skrílmenni, er hafa notað sekmmt-
anafrelsið til þess að gera upphlaup
og uppistand. Dómsmáiaráðherr- j
ann ætti aö vera svo réttvís að j
gera greinarmun á sekum og sak-
lausum.
Það er víða dauft í sveitum aö
vetrarlagi, ckki sízt þar sem einn
og einh ungiingur er á heimili
með rosknu fólki. Það er i lt og
ómaklegt að svipta þessa unglinga
þeim örfáu skemmtunum, sem sið-
ur mun vera að halda á vetri hverj-
um í flestum sveitum. En nú
standa til dæmis ungmennafélög
andspænis þeim vanda, hvort þau
eigi að feila algerlega niður skemmt
anir sínar eða hafa fyrirmæ'i
stjórnarvalda að engu. Við höfum
hingað til reynt að ástunda lög-
hlýðni, en nú þykir okkur hvorug-
ur kosturinn góður . . .“
Bréf Borgfirðings er í ijóðum.
„Mér datt í hug að flytja Bjarna
Ben. drápu,” segir hann, „l'kt og
Egill Skallagrímsson forðitra, þeg-
ar hann var meðal stórmenna. En
ég veit ekki, hversu þessi nútíma-
höfðingi myndi launa. . .“
Ein vísa Borgfirðingsins er
svona:
Það var gæfa, að þeir áttu hann,
er upphófst skömmtun ströng í
byggðum landsins.
Við dansi og ralli hann lagði
blákalt bann,
svo betur entust skórnir sveita-
mannsins.
í þessum anda eru bréfin um
bann dómsmálaráðherrans gegn
næturskemmtunum. En nú skulum
við staldra við. í gærkvöldi bár-
ust þau boð frá dómsmálaráðuneyt
inu, að tilhliðrun hefði verið gerð.
Lögreglurtjórum hefði verið veitt
vald til þess að leyfa, að skemmt-
arnir megi á laugardagskvöldum
standa til klukkan tvö á nóttu.
Þetta er strax nokkru skárra, en
eigi að síöur mun það ónógt víða
ti' sveitá, þar sem um langan og
seinfarinn veg er að sækja á sam-
konur. Það er annars undariegt
skilningsleysi, að viija ekki taka
tillit til staðhátta, þegar svcna til-
skipanir eru gerðar. En samt finnst
mér, að Borgíirðingurinn mætti
milda drápu sfna ofurlítið með
hliðsjón af þessari ti slökun.
Kannske dómsmá aráðherrannmýk
ist það svo við það, að hann taki
sanngjarnar óskir sveitafólksins
til nýrrar íhugunar.
J. H.
I. S. I.
G. R. R.
i
í. B. R. j
Skjaldarglíma Armanns
verður háð í Iðnó sunnudaginn 1. febr. kl. 2 e. h.
Keppendur eru 11 frá 4 íþróttafélögum. Mjög spenn- i
andi keppni. — Aðgöngumiðar eru seldir frá föstudegi j
í Bókaverzlun Lárusar Blöndal.
Glímufélagið Armann
í
MllllllllllllllllllllllllllllllllllllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllllllllllllllllllll*.’
I Árnesingafélcigið í Reykjavik.
\ x \
| Arnesingamót |
i verður haldið að Hótel Borg laugardaginn 31. þ. m. og 1
f hefst með borðhaldi kl. 6 síðdegis. |
| Fjölbreytt skemmtiskrá. f
Aðgöngumiðar fást í verzlun Guðjóns Jónssonar I
| Hverfisgötu 5.
iTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimntiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiI
ATOMORKAN I
Ð OG FRAMTIÐ
Sýningin í Lista-
mannaskálanum
opin daglega frá klukkan 1—11.
E£ þið viljiff fvlgjast með tímanum, þá verðið þið að.
kunna nokkur skil á mest umrædda vandamáli
nútímans,
Kvikmynd um byggingu efnisins og rafmagn og kvik-
mynd um atomsprengjuna verða sýndar kl. 2, kl. 4,]
kl. 6, 8,30 og 10.