Tíminn - 02.02.1948, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur l Edduhúsinu
Ritstjórnarsimar:
4373 og 2353
AfgreiSsla og auglýsínga-
slmi 2323
Prentsmiðjan Edda
32. árg.
Reykjavík, mánudaginn 2. febr. 1948
25. blað'
338 bændur hýstu jarðir
sinar árið 1947
Eiui algerlega ófnllnægjamli Imsakosíui' á
þi'iðja hver jum sveitafoæ
Á síðasía ári, var gert fyrsta verulega átakið I bygginga-
málum sveitanna, með aðstoð hins opinbera frá því að styrj-
öldin hófst. Var sú aðstoð veitt samkvæmt heimild í lögum
um landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum.
Tiðindamaður blaðsins hefir átt viðtal við Pálma Einars-
son Iandnámsstjóra og innt hann eftir gangi þessara mála
og hversu nú horfir um byggingamál sveitanna almennt.
Þetta eru stríðsmenn úr liði kommúnista í Kína. Einni crrustunni
er lokið og liðsmenn Chiang Kai-sheks eru að telja þá, sem þeir hafa
tekið til fanga, og skipa þeim í fylkíngar áður cn lagt er af stað
.með hersinguna til fangabúðanna.
arnr vi
veena
Af völdum óveðurs í nótt og gasrdag hafa orðið allmiklar
símabilanir. Meðal annars íauk ýmislegt járnarusl á síma-
línuna hjá Brúarlandi í Mosfellssveit, svo aö rafmagn komst
að línunni. Varð af þeirri ástæöu lífshættulegt að vera á
verði við stöðina þar um stund.
Mestu bilanirnar urðu á
Suðurlandslínunni austur um.
Er gersamlega sambandslau,st
við’ Höfn í Hörnafirði og all-
ar aðrar stöðvar á Austur-
landi. Hefir símalínan slitn-
að norður á stórum kafla fyr-
ir austan Brunnhól í Austur-
Skaftafelissýslu. Eru síma-
staurar brotnir þar á tals-
vert löngu svæði, og telja
verkfræðingar símans, að
þessar bilanir stafi af óvenju
lega miklum vatnavöxtum,
en ár og fljót þar hafa hlaup
ið fram vegna leysinga, er
voru samfara stórviðrinu að
undanförnu.
Til Norðurlands var einnig
Verður samningun-
um um áhættuþókn-
um sagt upp
Síðustu daga hafa viðræð-
vr átt sér stað milli fulltrúa
Sjómannafélags Reykjavíkur
og togaraeigenda.
Viðræður þessar hafa aðal-
lega verið um það, hvort á-
hættuþóknunin, sem tekin
.var upp sem þáttur í kaup-
greiðslu þeirra, er sigldu með
íslenzkan fisk til Eriglands á
striðsárunum, skuli nú íelld
niður. i gær var fundur hjá
sáttanefnd ríkisins um þetta
mál, en samkomulag náðist
ekki. Mun verða annar fund-
ur í dag af hálfu sö'mu aðila
um málið, en horfur um sam-
komulag eru engan veginn
sem skyldi.
sambandslaust i morgun. —
Hafði siminn bilað vegna
storms, fyrir ofan Kollafjörð.
Símastjórnin lætur vinna að
viðgerðum eftir því, sem við
verður komið. og má vænta
þess, að samband komizt á
aftur við stöðvar á Norður-
og Austurlandi á hverri
stundu.
• Þrjár flngvélar
farast
Ovenjulega mikið hefir ver-
ið um tjón á flugvélum að
undanförnu. Snemma i s.l.
viku tapaðist flugvél, er var
á leið frá Múnchen til Trieste
með farþega. Voru mjög
rnargar flugvélar sendar til að
leita hennar. Á föstud. fannst
flakið af vélinni í frönsku
Ölpunum. Sáu flugmennirnir
ekkert kvikt við flakið.
í þessari leit tapaðist eitt
fljúgandi virki. Fórst það
einnig í Ölpunum. Einn maður
af áhöfninni komst lifs af, en
níu fórust.
Þá hefir brezk farþegaflug-
vél af Túdorgerð farizt á leið-
inni til Bermuda. Átti hún
eftir um tveggja klukku-
stunda flug, er síðast heyrðist
til hennar, og var þá allt í
lagi. Síðan hefir ekkert til
vélarinnar spurzt. Hefir ver-
ið leitað mjög mikið að vél-
inni, en án árangurs. í flug-
vél þessari voru 28 mans.
Meðal farþeganna var Sir
Arthur Cunningham, sem
Hin nýju lög og framkvæmd
þeirra.
— Með lögum um landnám,
nýbyggðir og endurbyggihgar
í sveitum, segir Pálmi, er sam-
þykkt voru á Alþingi 1948, var
sú breyting gerð á stuðningi
hins opinbera til endurbygg-
inga í sveitum, að beinar
styrkgreiðslur til endurbygg-
inga eiga sér ekki stað til
bygginga, sem gerðar eru eftir
árslok 1946. Jafnframt var
,fyrirkomulagi lánastarfsemi
| til endurbygginga breytt
þannig, ?ið veitt eru vaxtalág
lán til byggingafram-
kvæmda. Lánstími getur orð-
ið allt að 42 ár og vextir 2%.
Unnið að húsabótum á
338 jöröum.
Þeir, sem byrjað höfðu bygg-
ingar sínar á árunum 1946
eða fyrr, höfðu rétt til styrks
og lána samkvæmt lögum um
byggingar og landnámssjóö
frá 1941, en eftir þeim var
styrkur allt að kr. 5000,00 og
4,5% lán, allt að kr. 9.000,00,
veitt til endurbygginga á býli
í sveitum.
Á árinu 1947 hafa 338 bænd
ur unnið að hýsingu jarða
sinna með stuðningi sam-
kvæmt heimild bráðabirgða-
ákvæðis hinna nýj u laga, eftir
lögunum frá 1941.
Endurbyggingarstyrkur var
greiddur á árinu til 145 býla,
samtals kr. 300.400,00. Á 156
býlum er verið að ljúka fram-
kvæmdum og hefir nýbýla-
stjórn veitt til þeirra síðari
hluta styrks, sem enn er ó-
greiddur, kr. 239.850,00, en á-
kvörðun um fullnaðarstyrk til
37 býla hefir ekki verið tek-
in ennþá.
Til bygginga í sveitum hefir
Byggingarsjóður í Búnaðar-
banka íslands lánað sam-
kvæmt ákvæðum nýju lag-
anna frá 1946, til íbúðarhúsa-
bygginga á 139 jörðum, sam-
tals um 4.8 milljónir króna.
Af því er endurbygging á 171
jörð og 28 nýbýli, sem hafa
jverið í byggingu á árinu.
Lán til endurbygginga námu
;kr. 4.135.000,00, en lán til ný-
býla kr. 638.009,00.
Styrkur samkvœmt eldri
lögunum.
| Nýbýli, sem' notið hafa
| stuðnings samkvæmt eldri
j lögum um styrk, eru 38. Veitt-
! ur styrkur til þeirra hefir orð-
i iö samtals kr. 123.800,00.
j Lán samkvæmt eldri lögun-
! um hafa 14 nýbýli fengið,
alls kr. 73.200,00, eru það
fulnaðargreiðslur lána, sem
áður höfðu veitt verið.
Byggingarþörf í sveitum er
mikil, þó nokkuð hafi miðað
í áttina hin síðustu ár. Sam-
kvæmt álitsgerð til skipu-
lagsnefndar um byggingar-
mál, 1944, er gerð var af Arn-
óri Sigurjónssyni ,er upplýst,
að íbúöarhús í sveitum, er
geta talizt fullnægja að mestu
afeifl Mi,
mr
■■KH
í :
. ■'v>
Bátur frá Skaga-
strönd lendir í
hrakningum á Faxa-
m
Pálæi Einarsson
landnámsstjóri
almennum kröfum um mann-
sæmandi íbúðir, séu á 2091
jörð. Sæmileg íbúðarhús,
stæðileg, en þó ekki fullnægj-
andi íbúðir á 1755 jörðum og
íbúðarhús, sem ekki teljast í-
búðarhæf, á 2086 jörðum. Má
gamkvæmt því telja, að fullur
þriðjungur bænda í landinu
búi við óviðunandi húsakynni.
: Þó eru hin óleystu verkefni
j um peningshúsabyggingar
i enn meiri.
Lögunum um landnám, ný-
byggðir og endurbyggingar í
sveitum, og ræktunarsjóðs-
lögunum er ætlað það hlut-
verk að styðja að umbótum í
byggingarmálum sveitamia.
Til þess að þær stofnanir, er
framkvæmd laga þessara eiga
að annast, geti leyst það hlpí-
íverk, þurfa þær áreiðanlega
að fá til umráða það fjáv-
mágn, er framannefnd lög
gera ráö fyrir.
HjálparskipiS Faxa-
foorg fór honuin iil
aðstoðar í inorgun
Yfirleitt munu bátar frá
verstöövum við Faxaflóa
ekki hafa verið á sjó i gær,
er ofviðrið skall á. Þó er vit-
að um einn bát, sem gerður er
út á þorskveiðar frá Kefla-
vík, sem varð fyrir hrakning-
um í rokinu. í morgun kom
hjálparskipið Faxaborg hon-
um til aðstoöar, en bátinn
hafði þá hrakið 20 mílur
norðvestur af Reykiariesi.
Bátur þessi heitir Eiríkur,
og er norðan af Skagaströnd.
Hann var búinn að draga lóð-
irnar um klukkan 4 í gær, og
bjuggust skipverjar við að
koma að landi um kl. 10 i gær-
kvöldi. Þegar báturinn var
e’kki kominn til Keflav&ur
eftir. miðnætti í nótt, var far-
ið að óttast um hann. Slysa-
varnafélagið gerði þá ráðstaí-
anir til þess, að Faxaborg færi-
að leita bátsins. Var leitað
árangurslaust þar til í morg-
un, en þá heyrðu menn á
Faxaborg til talstöðvarinnar í
Eiriki, sem reyndist vera með
bilaða vél. Gátu þeir félagar
aðeins látið heyrast í talstöð-
inni stutta stund, vegna þess,
að hún bilaði um leiö og vél-
in, og komst aldrei í gott lag
aftur.
Faxaborg mun hafa komið
Eiríki til aðstoðar í dag fyrir
hádegi og dregur bátinn til
Keflavíkur.
Kona slasasí
Siðdegis i gær varð það
slys á Hafnarfjarðarvegi, að
kona varð fyrir bifreið og
meiddist mikð. Viöbeinsbrotn
! aði og fékk snert af heila-
[ hristingi. Var hún fiutt í
! sjúkrahús.
J Konan ætlaði hlaupa yfir
veginn er bifreið rann á hana.
Talsímasamband
við Þýzkaland
Póst- og símamálastjórnin
hefir tilkynnt, að talsamband
við brezka og bandaríska her-
námssvæoið í Þýzkalandi var
opnað þann 31. janúar.
Samtöl frá íslandi eru leyfö
við alla símanotendur, bæði
þýzka og aðra á þessum svæð-
um,,en þó ekki við Þjóðverja
í Berlín.
Samtöl frá Þýzkalandi eru
takmörkuð við brezka og
bandariska setuliðið þar, þar
á meöal óbreytta borgara á
vegum setuliðanna, enn frem-
ur við umboðsmenn fyrir-
tækja, sem ekki eru þýzkir,
! svo og viss þýzk fyrirtæki, sem
ivinna að fjárhagslegri við-
'reisn Þýzkalands.
Talsambandið er opið á
sömu tímum og talsamband-
ið við Danmörku, kl. 12,00 til
j 16,30 ísl. tími. Afgreiðsian
fer fram um Kaupmannahöfn.