Tíminn - 19.02.1948, Síða 3

Tíminn - 19.02.1948, Síða 3
59. blað TÍMINN, fimmtudaginn 19. febr. 1948 miimiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiil iiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiniiii!iiiiiiiniiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimniniiiimiiiiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiui!miimiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii' GUR ÆSKUNNAR i-r ■ ;■.■■■ ‘,!ö ; ■■ . ■.. .,. ; ; '■■: . i;: auJ - MÁLGAGN SAMISAMÐS UMGffiA FRAMSÓKNARBIANNA - KITSTJ. JÓAT IIJALTASON — *iiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiii|iiiiJÍiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii<iiiiiii“iii*<*«<**i***'***»****'iiiii'ii"i"i'ii,**»,,,,'Hii,i,,,‘i,,i,i,i,i*,,iiiiii,,,iiiiiiiiiiiii*i,i*liii*iii,i,i,i,*iiiii,,i",i|iiiiiiiiinii,iiiinii,i,i'iii‘n**iiiiiiniimiiiiiiiiiiiiiiiiHininiiiiiiiiiimini Um ve NlYNSPÆilJLEG iWSMÆÐRAEFNI Þessi mynd er frá húsmæöraskóla Borgfiröinga að Varmalantli. Stúlkurnar standa þarna hjá nokkrum þeirra muna, er þær hafa saumað og cfið um veturinn til þess að prýða tilvonandi heimili sín. Víða á landinu cr ungt fólk að búa sig undir það með ýmsum hætti að stofna heimili. (Ljósm.: Guðni Þórðarson). Skem mti sa m kom u r F. U. F. ' Eitt af stefnuatriðum nú- verandi ríkisstjórnar var, eins og kunnugt er, endurbætt verðlagseftirlit, enda er efling þess óhjákvæmilegur þáttur í þeim geröum ríkisstjórnar- innar að lækka dýrtíðina í landinu. Það orkar varla tvímælis. ef eftirlit með verðlagi í land inu á að ná tilgangi sinum, þá verður fyrirkomulag þess og framkvæmd að breytast til batnaðar frá því sem nú er./ Á undanförnum árum og jafnvel enn er kaupgeta þjóð félagsþegnanna svo mikil, að vörúr eru keyptar svo að segja hvað sem þær kosta, og margir hafa ekki fyrir því að spyrja um verð vörunnar áður en þeir festa kaup á henni. Það fer ekki hjá því, að þetta ástand orkar í þá átt, að efla tilhneigingp margra verzlunarfyrirtækja til þess að selja vöru sína dýr ari en léyfilegt er samkvæmt gildandi verðlagsákvæðum. Það fer heldur ekki dult, að verzlunarstéttin hefir fundið margar leiðir til þess að fara í kring um verðlegsákvæöin, enda hefir þeim verið slæ- lega framfylgt. Þaö eru-vafalaust mörg at- riði í framkvæmd verðlags- eftirlitsins, sem þurfa lagfær ingar við, sérstaklega mun þar skorta skipulagningu í vinnubrögöum. En það er út af fyrir sig ekki nægilegt að eftirlítið sjálft sé framkvæmt af röggsemi, og eftirlitsmenn irnir komist að svo og svo möi'gum brotum á verðlags- ákvæðunum, ef ekki er hægt að fá lagðan dóm á þau brot og viöurlögum er ekki beitt, eða ef málshöfðun á sér stað, að það taki eitt til tvö ár að ljúka málinu, sem oft hlýtur að verða til þess, að ýms sönn unargögn fara forgörðum. Það er augljóst, að ákvæði verðlagslaganna ná ekki, fremur en ákvæði annarra laga, tilgangi sínum, ef þeim viðurlögum, sem sett eru við brotum gegn þeim, er ekki framfylgt. Það er brýn nauðsyn að ráðin sé bót á því ófremdar- ástandi, sem nú ríkir í verð- lagsmálum að þessu leyti. Verður ekki séð, að það yrði gert á hagkvæmari hátt en þann, að settur yrði á stofn sérstakur dómstóll, er rann- saka skyldi og dæma mál, er rísa út af verðlagsákvæðun- um, hvar sem er á landinu, og að rannsókn þeirra gengi án ástæðulausrar tafar. Ætti með þessu móti að fást stór- um meira öryggi og festa í þessum málum en nú er. Til álita gæti einnig komiö að fela þessum dómstóli með- ferð mála út af brotum á skömmtunarreglunum. Sumum kann nú að virðast, að ekki sé bætandi á þann embættismannafjölda, sem nú er, og skal það sjónarmiö fúslega viðurkennt hér. En þar með er ekki sagt að ekki megi breyta til um embætt- ismannaskipunina í landinu. Það er til embætti sem heit- ir skattdómaraembætti og embættismaðurinn, sem gegn ir því embætti, framkvæmir eitt embættisverk á ári, en það er að fara í bankann og taka út emhættislaun, 30 þús.. kr. fyrir árið. Mætti ekki af- i nema þetta embætti og nota! þá fjárhæð sem fíkið hefir leikið sér að greiða vegna þess, til þess að launa sér- stakan verölagsdómstól? J. Sínk skömmtiinar- yfirvöld Víða í sveitum landsins, þar sem unga fólkið verður að sækja um. langvegu til skemmtistaöa sinna, er ferðin erfið og þreytandi. Það er því nauðsynlegt að hafa góðar veitingar á samkomu- stöðunum. Nú er þó sá hæng- ur á aðskömmtunaryfirvöldin hafa verið mjög naum við sveitafólkiö í þessum efnum. í reglugerð mun svo fyrir mælt, að sækja 'þurfi um all- an .slíkan aukaskammt til Skömmtunarskrifstofu rikis- ins í Reykjavík. Þó munu sumir oddvitar hafa veitt slík an skammt í smáum stií, þótt vafi geti leikið á, að þeim sé það fullkomlega leyfilegt. En margir oddvitar hafa talið sér þetta óheimilt og tafsamt er aö sækja um . aukaskammt- inn til Reykjavíkur, einkum úr þeim landshlutum þar sem póstsamgöngur eru með þeim hætti nú yfir veturinn, að póstur er mánuð að komast á áfangastað, eins og t. d. á Avtsturlandi um þessar mund ir. Skammturinn, sem fæst, er líka oftast svo naumur að undrun sætir og fullnægir hvergi nærri þörfinni. Er þaö hart, að skömmtunaryfirvöld in skuli vera svona naum við unga fólkið í sveitunum, sem er að reýna að skemmta sér við erfið skilyrði, meðan í engu er þrengt að veitinga- húsunum hér í Reykjavík. Það er hart, að unga fólkið, sem sótt hefir um langan veg og erfiðan til samkomu, skuli ekki geta átt það víst, að fá góða hressingu á samkomu- staðnum, vegna þess að ekki hefir fengizt aukaskammtur í því skyni. Hér í Reykjavík fá allir starfshópar, þar sem tíu eða fleiri vinna saman í stofnun, aukaskammt af kaffi og sykri til þess að geta haft sameiginlega kaffi- drykkju í vinnutímanum. Eklci skal það lastað,enþá má ekki minna vera, en unga fólkið í sveitum landsins fái sæmilegan aukaskammt til veitinga á þeim fáu skemmti- samkomum, er þaö reynir að halda. Viniiið ötullega að iitbreiðsln Tímans. Öllum er kunnug fólks- fæðin í byggðum landsins, og hve erfitt er víða um alla skemmtana- og félagsstarf- cemi. Menn í sveitum lands- ins eiga varla heimangengt frá búverkum, og samgöngu- erfiðleikar eru miklir, eink- um í snjóavetrum. í flestum byggðarlögum reynir unga fólkið þó að halda uppi ein- hverri félagsstarfsemi og koma saman til mannfunda öðru hverju. Jeppinn er nú sem stendur handhægasta samgöngutækið til þeirra hluta. En með benzínskömmt uninni hefir þessi ■ möguleiki verið svo mjög takmarkaður, að segja má, að sá ,,munaður“ sé úr sögunni. Hundrað lítra benzínskammtur á mánuði dugir ekki einu sinni til brýn ustu ferða — sums staðar ekki nema til einnar kaup- staðarferðar — hvað þá held ur til þess að unga fólkið geti létt sér upp og skotizt á sam- komu. Ungmennafélögin vinna mikið og merkilegt starf fyr- ir unga fólkiö og eru víða eini aðilinn, sem safnar fólki til gleðimóta. Þó eru víða önn ur félög, sem leggja þar hönd að. Síöan félög ungra Fram- sóknarmanna voru stofnuð víða um land fyrir um það bil tug ára, hafa þau starfaö nokkuö að skemmtanalífi unga fólksins þó með mismun andi hætti og dugnaöi. Er það alkunna, hve illa gengur aö láta pólitísk félög starfa af miklu fjöri utan sinna stjórnmálalegu vefkefna. Mörg félög ungra Fram- sóknarmanna hafa þó starf- að af miklum dugnaði, efnt til skemmtana, farið í ferða- lög og starfað að málfrmd- um. Utan Reykjavíkur má t. d. nefna félagið Dagsbrún í Árnessýslu, F. U. F. vestan Rangár og F. U. F. í Fljóts- hlíð. Þessi félög hafa öll starf að af miklu fjöri í vetur og undanfarin ár, og staðið fyr- ir margvíslegri félagsstarf- semi. Ýmis fleiri félög mætti nefna, svo sem F. U. F. á Akureyri, þar sem vel hefir verið unnið. Það ætti að vera kappsmál allra félaga S. U. F. að efna til að minnsta kosti einnar skemmtisamkomu á ári, hvort sem valinn er tími að sumri eða vetri. Ætti þetta að vera fært, jafnvel þar sem erfið- astar eru kringumstæöur til skemmtanahalds. Flokksskrifstofan í Reykja vík vill létta undir með félög unum í þessu efni, svo sem kostur er. T. d. hefir flokkur- inn góða kvikmyndasýning- arvél, sem stendur til boöa jafnt yn'gri sem eldri félög- um. Hefir Þráinn Valdemars son sýnt kvikmyndir viða á skemmtunum Framsóknar- manna á ferðum sínum um landið á vegum flokksins. Þetta ættu félögin að nota sér ef hægt er og senda flokks skriístofunni beiðni um þetta, ef þau kæra sig um þetta skemmtiatriði, á samkomum sínum. Yrði þeirri beiðni þá fullnægt, ef þess er nokkur kostur. Anglýslð í Tímaimm. Lítt lærir veröid Þegar rómversku keisarávn ir höfðu sigrað óvini ríkisinr héldu þeir veglega sigurhá tíð í borginni og reistu stytt- ur miklar og minnismerki ti'. að fagna sigri. Var þetta ták: s yfirburða hervalds Rómarík»; is, tákn niðurlægingar og vanmáttar hins sigraða. Enn ríkir áþekkt hugarfav með stórveldum. Hróki sigur- vegarans er samur og fyv:r,-: tvéim árþúsundum. í Róm var minnismerk: reist innan múrá borgarinn- ar. Nú er sigurmerkið reist.i landi hinna unnu óvina. Rússar reisa stríðsminni varða í hjarta Berlinar, höf - uðborgar sigruðu fjand v mannanna. Skammt, frr' Brandenburg Tov gnæfir íiú rússneskur hermaður á marr arafótstalli miklum. Þannig á að byrja að aír; þýzku þjóðina upp. Þannig f að útrýma hernaðaranöa;. hennar. Það á að afmá löng un hennar til að neyta hern- aðarafla, með því að reirr; henni minnismerki um eigif' ósigur og niðurlægingu í hei: ustu véum hennar. Sagan hefir sýnt, að þetta er enginn gæfuvegur, sem ' leiði til friðar og farsælda' Saurgaðir helgidómar undir- okaðra þjóða leiða af sér ha ur og hefnigirni. Meöan herrr, þjóð breytir þannig við sigr- aða, verður aldrei friðvænleg í heiminum. Meðan svo c fram haldið stefnunni, getr. aldrei myndazt tryggðir c vinátta milli þessara ríkja Hernaðarandi veröur aldrr bældur niður með valdi,- þv: að hver þjóð, sem beitir aðrr. valdi, elur hernaðaranda meo sjálfri sér og kveikir hann með þeirri, sem hún undir- okar. J. Hj. Tímaritið Dagskrá Undanfarið hefir orðio nokkur dráttur á útkomu: Dagskfár tímarits S. U. F. Liggja til þess ýmsar ástæö- ur, svo sem pappírsskortur og prentsmiðjuannir. Nú er þó síðasta hefti 2. árgang’ (1947) nýkomið út. Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli hefir nú tekið við ritstjórn ritsins ásamt Jóhannesi Elí- assyni. Þetta síðasta hefti er allstórt, eða um 80 síður, og fjölbreytt að efni. Er hið helzta þetta: Siðferðislegur grundvöllur, eftir Halldór Kristj ánsson, Trúin og stjórn málin eftir séra Svein Víking! Störf Alþingis 1946 eftir Pál Þorsteinsson alþingismann. Hvað má læra af Kínverjum eftir séra Jóhann Hannesson. Þýðingarmikið dagskrármál eftir Baldvin Þ. Kristjánsson, Vegur.sjálfstæðrar þjóðar eft ir H. K. kafli úr óprentaðri (Framhald á 6. siðu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.