Tíminn - 18.11.1948, Page 5

Tíminn - 18.11.1948, Page 5
256. blað TÍMIXN, fimmturtaginn 18. nóv. 1948. 5 Fhnmtud. 18. ttóv. Um skáldsögurnar í Ófe’r Skipting innflutn- ingsins milli kaup- félaga og kaup- manna Það hefir verio mikið deilu- mál hvernig vörur og inn- flutningur ætti að skiptast milli kaupmanna og kaupfé- laga. Um það hefir verið háð stríð og að vonum hefir hvor aðilinn viljað gera hlut sinn sem mestan. Hinum opinberu aöilum, sem ráða slíkum mál- um til lykta, er því ærinn vandi á höndum. Þeim er örð- ugt að finna réttlátar reglur til að fara eftir við að leysa þau viðkvæmu og vandasömu mál. Sennilega yrðu engir fegn- ari en þeir embættismenn, sem settir hafa verið til að sjá um þessi skipti milli verzlan anna, ef fundin yrði önnur einfaldari leið. Og nú vill svo vel til, að á hana hefir verið bent og hún blasir við. Það er einungis eftir að taka þá á- kvörðun, að leiöin skuli farin. Frumvarp Framsóknar- manna um verzlunarmálin leysir þennan vanda, ef að lögum verður. Þá kemur það af sjálfu sér, að innflutnings- leyfin skiptast á milli verzl- ananna eins og fólkið vill. Þessi lausn er einföld og sjálfsögð. Neytandinn hefir innflutningsleyfið og hann afhendir það þeirri verzlun, Sem hann óskar að skipta við. Þar með eru niðurfallnar allar getsakir og þrætur um það, hvar menn vilji helzt kaupa vöruna. Þá hafa menn frjálst val og reynslan sker úr. Með þessu fyirrkomulagi hljóta allar ófrjóar og leið- inlegar deilur um þessi efni að hverfa. Og þá þarf heldur ekki að vera að brjóta heil- ann um og reikna út hvernig verzlunin skiptist fyrir stríð og hvernig hún ætti nú aö skiptast á þeim grundvelli. Það er heldur ekki hægt að trúa öðru en að allir hljóti aö sætta sig við þessa lausn. Annað væri blátt áfram of- beldishneigð og kúguhartil- raunir. Svo framarlega, sem viðurkennd er sú grundvall- arregla hins vestræna lýð- ræðis, að rikisvaldiö sé hjá þjóðinni, er ekki annað rök- í'étt en að viðurkenna frelsi og sjálfsákvörðunarrétt neyt- andans til að velja á milli verzlana. Það var sú tíðin, að stjórn- arvöld þjóðarinnar sögðu til um það, hvar hver og einn ætti að verzla. Það var á þeirri tíð, að Hólmfastur var hýddur við staur. Þjóðin á sína sögu og sínar minningar frá þeim tímum. Og hún bið- ur ekki um meira af slíku. Reynslan hefir staðfest, að það fer bezt á því að lofa fólkinu sjálfu að velja á milli verzlana og ráða því í hvaða kaupstað og hvaöa búð það sækir verzlun sína. Á þeirri reynslu er frum- varp Framsóknarmanna byggt. Þaö er að vísu hægt að í- mynda sér verzlun, sem telur sig hafa hag af því, að vilji almennings komi ekki í ljós (Framliáld aí 4. síðuJ. leitt til miklla óheilla fyrir þjóðina, og stofnað sjálfstæð- ismálinu i óþarfa hættu. En það er rétt að geta um það hér, af hvaða toga þessi áhugi Jónasar Jónssonar var spunninn 1941—1942. Hann vissi það vel, áður en hann hóf áróður sinn að ég sem stjórnarformaður, meiri hluti stjórnarinnar og ef til vill stjórnin öll var þeirrar skoð- unar, að sambandsslitin við Dani ættu að fara fram sam- kvæmt samningum. En ef flokksþing Framsóknar- manna, sem kallað var saman árið 1942 og mikill hluti þjóð- arinnar hefði fallizt á leið J. J., að slíta sambandinu þá þegar, hlaut afleiðingin m. a. að verða sú, að sú stjórn, sem var þessu mótfallin, fór frá völdum og við tók maðurinn, sem beitti hér fyrir hinni stefnunni. J. J: ætlaði að nota sér það, að aörir töldu sér skylt að fara varlega m. a. til þess að skaða ekki málstað íslendinga út á við. En til- raun hans mistókst. „Hrað- skilnaðarstefna“ J. J. varð undir á flokksþinginu og einn ig meðal þjóðarinnar. Þetta var þjóðargæfa. Af hendi J. J. var málið aldrei sjálfstæð- ismál, enda hafði hann lengst af áður verið tómlátur í þeim efnum. Deilur um þetta mál eru nú yfirleitt löngu þagnað ar og yfirleitt telur þjóðin að giftusamlega hafi til tekizt. En övild J. J. í garð þeirra manna, er hann telur sér trú um, að lagt hafi stein á framaveg hans, virðist ekki eiga sér nein endi. — VII. Ég ætla ekki að elta ólar við fleiri skáldsögur Ófeigs. Sé einhver þeirri ástríðu hald inn og gerir það að lífsstarfi sínu, að búa til og dreifa út sögum um aðra, er ekki unnt að eltast við slíkt. Ýmsir á- líta að hin meinlega óvild J. J. til flestra fyrri starfs- manna sinna valdi því, að hann geri sér ekki grein fyrir, hverjum hann þjónar nú í raun og veru. En hvað | sem því líður, er fyrri and- jstæðingum hans það vel Ijóst. Eitt af blöðum Akureyrar skýrði írá því, að formaður j Sjálfstæðisflokksins hefði jlagt að Júliusi Hafstein, að hætta við framboð sitt í Suð- h ur-Þingeyjarsýslu og þá far- izt orð eitthvað á þessa leið: „Skilurðu það ekki, maður, að við verður að hjálpa Jón- asi til að vinna kosningu, svo að hann geti skammað Her- mann og Eystein?" Vegna þessarar nauðsynjar lét sýslu maður sér segjast og tók aft- ur framboð sitt, en sneri sér í þess stað að stjórnarstörf- um hjá síldarverksmiöjum ríkisiris. — Hitt er svo annað mál, að þau not, er ráðamenn Sjálfstæðisflokksins hafa haft af starfsemi J. J., hafa valdið þeim miklum vonbrigð um. En ekki er þar J. J. urn að saka. Hann hefir gert það, sem hann gat. En maðurinn, sem áður skrifaði um „Jens- enssyni" á ekki hægt um vik að verða þeim að liði. En vissulega er það íhugavert, hvernig svona getur farið fyr ir manni, sem annars er að ýmsu leyti vel gefinn og lengi hefir verið áhrifamaöur í stjórnmálum. Menn virðast vera róttækir umbótamenn af ýmsum ástæðum. Sumir vegna hugsjóna meira eða minna rökstuddra. Sumir vegna nákvæmrar íhugunar, reynslu og raka, sem lífið fær ir þeim srnátt og smátt. Sum- ir, ef til vill vegna þess, að þeim sárnar, aö aðrir búa við betri lífskjör en þeir. Er þá hætt við að óvild knýi þá til athafna. Slíkum mönnurn hef ir rithöfundurinn Emil Lúð- vig lýst vel og viturlega í ævi- sögu eins af ráðamönnúm vorra tíma, — þegar þessir síðasttöldu menn fá lífsþæg- indi og telja sig ekki lengur afskipta við matborð líísins, hverfur áhuginn. Maðurinn gjörbreytist — verður annar maður. Ekki skal ég neinum getum að því leiða, hvað veldur þeim umskiptum, sem orðiö hafa á Jónasi Jónssyni. Hann skrifaði fyrr á árum mikið um „lúxusbíla“ og eigendur þeirra. Ekki getur hann gert það með góðu móti nú, eig- andi eins mesta „lúxusbíls“ á íslandi, maður sem skipt hef ir um bíla oftar en flestir aðr ir. Einu sinni skrifaði hann mikið um „lúxusvillur.“ En skyldi nú vera nokkur mað- ur á íslandi, sem býr ríkuleg- ar en Jónas Jónsson. Fyrrum átalaði hann menn fyrir „lúxusflakk.“ En hver halda menn að einna fyrstur hafi, að stríðinu loknu, lagt upp í „lúxusflakk“ til. útlanda með lúxusbíl — án nokkurs er- indis? Oft gerði hann sér tíö- rætt urn rnenn, sem tækju mikil laun fyrir litla v'nnu. Hann vinnur nú klukkutím.a á dag rúmlega hálft árið fyr- ir há laun, en hsfir auk þess ókeypi.s heiit hús til íbúðar á- samt Ijósi og hita. Auk þess á hann sjálíur ríkmannlegan sumarbústað í .sveit. Gcri aðr ir betur. Hugarfar J. J. virðist fyrr á tímum hafa borið keim af hinum tveim mismunandi hafstraumum, er að landi voru liggja. Þótt hinnar köldu kvíslar gætti oft til leiðinda, varð hinn hlýi straumur hug- sjónanna því valdandi, að samstarfsmenn hans þoldu nepjuna, enda má jafnan eitt hvað að öllum finna. — En árin hafa fariö þannig með þennan fyrrverandi forystu- mann, að hinn kaldi straum- ur hefir orðið alls ráðandi. og fólkið fái ekki að velja sjálft milli verzlana. Það er hægt að hugsa sér fyrirtæki, sem ekki treysta sér til bar- áttu og samkeppni, þar sem fólkið hefir frjálst val. Hér er þó engu af því tagi dróttað að neinum. En þó að ein- hverjir slíkir finndust, eru ' það ekki þeir, sem eiga að ráða. Fyrir því er ekki hægt að bera fram nein rök. Það hefir ekki verið gert og það mun ekki heldur verða gert. Það kemur ekki til greina nein hlutdrægni, þegar allir fá jöfn innflutningsleyfi og verzlanirnar fá svo sinn hlut eftir því, 'sem þeim er trúað fyrir leyfunum. Verzlunin þarf þá að vinna tiltrú fólks- ins og traust. Þar kemur ým- islegt til greina, en um þaö eiga viðskiptamennirnir sjálf ir að dæma, því að það er þeirra mál. En enginn réttur, ráð eða nefnd getur þá sagt: Þú skalt verzla þarna, því að þessari verzlun höfurn við út- hlutað réttinum til að flytja inn og selja, það sem þú þarft. Þess vegna geymir frum- varp Framsóknarmanna þá lausnina, sem er einföldust, f rj álslegust, réttlátust og friövænlegust. Því er þess líka vænzt, að sú lausn verði lögfest strax á þessu þingi, eða þá einhver önnur, sem nær sama tilgangi og full- nægir sömu réttlætiskröf- um. Af hálfu hinna flokk- anna hefir verið ótrúlega hljótt um þetta mál og þeir forðast að minnast einu orði á frv. Framsóknarmanna. En þeir munu reyna, aö þögnin kemur þeim ekki að haldi, heldur verða þeir að sýna í verki, hvort þeir unna mönnum verzlunarfrelsis eða ekki. Raddir nábáarma í forustugrein Alþýðublaðs- ins í gær, er rakin viðleitni kommúnista á Alþýðusam- j bandsþinginu til þess að halda þar völdum með of- beldi. Fyrst ætluöu þeir aö ógilda kosningu um 50 full- trúa. Lýðræðissinnar ve- fengdu þá kosningu um 70 kommúnista, en buðu jafn- framt upp á að láta allar deil ur um kjörbréf falla niður. Alþ.bl. heldur áfram: „Þar mcð var fyrsta varnar- lína kommúnista á AlþýSu- sambanlsþinginu rofin; en þá bjuggust þeir fyrir í þeirri næstu til að gera að engu sig- ur lýðræðissiiina í kosningun- um. Þeir buðust til þess að samþykkja málamiðlunartil- löguna og taka alla fulltrúana gilda, — ef því næst yrði kos- in bráðabirgðastjórn (!) fyrir sambandið með þátttöku kom- múnista og sambandsþinginu eftir það frestað (!) til næsta hausts, en löglegar (!) kosn- ingar þá Iátnar fara fram til sambandsþings!!! Vitanlega datt .engum lýð- ræðissinna í hug að ljá máls á slíkum aðförum til þess að ónýta úrslit nýafstaoinna, lög- legra kosninga til. Alþýðu- sambandsþings og þvi uröu kommúnistar nú að hörfa til þriðju og síðustu varnarlín- unnar. Þaðan átti að hindra það á síðustu stundu, með ger- ræði og ofbeldi hinnar kom- múnistisku fundarstjórnar á sambandsþingi. að miðlunar- tillaga Iýðræðissinna yrði yfir- leitt borin undir atkvæði full- trúanna; en einnig það mis- tókst. Forseti .sambandsins treystist ekki til að leggja út í slíkt ævintýri, og miðlunartil- lagan var samþykkt í fyrra- kvöld með þeim mikla meira- hluta, sem áður er frá skýrt.“ Þjóðviljinn skýrir ósigur kommúnista helzt með því, að þeir hafi látið undan hót- unum um lögregluárás! Varla verður þó Stalin sögð svo ó- karlmannleg afsökun. Sann- leikurinn er líka sá, að sein- asti leikur kommúnista mis- tókst vegna þess, að Hermann Guðmundsson neitaði að framkvæma íyrirskipun Bryn jólfs Bjarnasonar um að beita ofbeldi í fundarstjórninni. Atliygf isverður samanburðnr Málsháttur einn segir, að stundum ratist málóðum mannj satt á munn. Innan um allar blekkingarnar, sem Ólafur Thors flutti í Varðar- ræðu sinni fyrra mánudag, flaut líka eitt sannleikskorn. Ólafur ságði, að á undanförn um árum hefðu fjármálaráð- herrarnir misst í vaxandí mæli tökin á fjárstjórn rík- isins. Fjármálaráðherrarnir þyrftu því að starfa öðru vísi í framtíðinni en á undanförn um árum, ef ekki ætti illa að fara. Mbl. hefir réttilega fundið, að þetta er harður dómur fyrir Sjálfstæðisflokkinn, því að fjármálaráðherrarnir hafa verið úr hans hópi sein- ustu 10 árin. Til þess að draga athyglina frá þessum rétt- mæta dómi flokksformanns- ins, ræðst Valtýr Stefánsson með miklu offorsi á Eystein Jónsson í seinustu sunnudags pistlum sínum og segir, að fjármálastjórn hans á árun- j um 1935—’38 hafi verið fyr- ! ir neðan allt. Þó reynir Mbl. ekkert til að sýna fram á, að hún hafi batnað síðan Sjálfstæðismenn tóku við henni. Mbl. skal nú gerður sá greiði, að gerður sé nokkur samanburður á fjárstjórn Eysteins Jónssonar og fjár- málaráðherra Sjálfstæðis- flokksins, en jafnframt skal því lofaður enn rækilegri samanburður síðar: ÚTGJÖLD RÍKISINS: Árið 1938, sem var seinasta fjár- stjórnarár Eysteins Jónsson- ar, urðu rekstrarútgjöld rík- isins 17.6 milj. kr. Síðastl. ár urðu þau 255.2 milj. kr. Þau hafa með öðrum orðum 15- faldazt I fjárstjórnartíð Sjálf stæðisflokksins. SKATTAR OG TOLLAR: Árin 1935—38, sem E. J. var f jármálaráðherra, námu skattar og tollar 113 kr. á hvern landsmann til jafnað- ar á ári. Síðastl. ár námu skattar og tollar, sem runnu í ríkissjóð, 168 millj. kr. eða um 1250 kr. á hvern íbúa. Skattar og tollar hafa þannig ellefufaldazt í f jármála- stjórnartíð Sjálfstæðisflokks ins, enda hafa allir skattstig- ar og tollstigar stórhækkað síðan og nýjum tollum og sköttum verið bætt við. UMFRAMGREIÐSLUR: Árið 1938, sem var seinasta f jár- stjórnarár Eysteins Jónsson- ar, urðu umframgrciðslur rík isins 7.7% af öllum útgjöld- um fjárlaganna. Á síðastl. ári urðu þessar greiðslur 58.7 milj. kr. eða um 30%. Svipuð mun niðurstaðan á öðrum fjárstjórnarárum Sjálfstæð- flokksins. SKULDIR RÍKISSJÓÐS: í árslok 1938 voru skuldir rík issjóSs 46,3 milj. kr. og höfðu þær ekkj hækkað í ráðherra- tíð E. J., þegar frá voru tald- ar skuldir, sem var stofnað til vegna ríkisfyrirtækja og þau stóðu sjálf straum af. í seinustu árslok voru skuldir ríkissjóðs 130,1 milj. kr. og hækka enn verulega á þessu ári að sögn fjármálaráðherra. Óhætt mun því aö fullyrða, að skuldir rikissjóðs hafi fjór faldazt í fjárstjórnartíð Sjálf stæðisflokksins. Hér sést kannske gleggsta dæmið um (Framhald á 6. síöu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.