Tíminn - 04.01.1949, Síða 1
33. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 4. janúar 1949.
1. bla?!
Guðni Guðjónsson
náttúrufræðingur
látinn
Reykjavfk, sem var fyrsta K. F. U. M. félagið hér á landi.
Aðalræðurnar á sunnudaginn héldu þeir dr. theol. Frið-
rik Friðriksson og séra Bjarni Jónsson vígslubiskpu, og var
ræðum þeirra útvarpað.
Óvenjulegur maður á ferð.
Fyrir um það bil fimmtíu
árum var óvenjulegur maður j
að hefja æskulýðssarfsemi í
Reykjavík, sem átti eftir að
marka timamót í sögu reyk-
vízk æskulýðs og raunar
æskulýðs í fleiri kaupstöðum
þessa lands síðar. Þessi mað-
ur var séra Friðrik Friðriks-
son, maður með eldlegan á-
huga og óvenjulega og ein-
stæða hæfileika til að um-
gangast unga menn og
stjórna þeim til fegurra og
betra lífs.
Starf séra Friðriks er svo
umfangsmikið og geysilega
mikið að ekki verður gerð
nein tilraun til að lýsa því
hér í örstuttri fréttagrein
enda er öllum þorra manna
hér á landi kunnugt um það
í stórum dráttum. Það orð heí
ir farið af séra Friðrik Frið-
rikssyni og það með réttu að
hann sé óvenjulegur maður,
gæddur einstökum hæfileik-
um til að þroska og ala upp
ungt fólk. Sannleikurinn er
líka sá að enginn maður hef-
ir orkað eins miklu í uppeld-
ismálum hér á landi, sem
hann og jafnvel þó víðar
væri leitað. Uppeldisáhrifa
hans gætir einnig hjá þúsund
um ungra manna í öðrum
löndum, sem hafa verið svo
lánsamir að kynnast honum,
þegar hann dvaldizt erlend-
is, sem stundum hefir verið
árum saman. Hver einasti
unglingur, sem átt hefir því
láni að fagna að kynnast
þessum mikilhæfa æskulýðs-
leiðtoga, býr að þvi alla ævi
sína og verður meiri og betri
maður, en hann annars hefði
orðið. Hann hefir með starfi
sínu í K.F.U.M. og K. náð til
þúsunda ungmenna í Reykja
vík, Akranesi, Hafnarfirði,
Vestmannaeykjum, Keflavík
og nú síðast á Akureyri. Á
þeim fimmtíu árum, sem
hann hefir starfað í K.F.U.M.
hefir hann alið upp tvær kyn
slóðir og þriðja kynslóðin er
nú að byrja að njóta tilsagn-
ar hans og handleiðslu til
fegurra og betra lífs.
Á afmælishátiðinni bárust
séra Friðriki og félaginu
fjölda margar heillaóskir, þar
á meðal frá forseta íslands. í
afmælisræðu sinni gat séra
-Ujarni Jónsson, sem tók þátt
Gy5ingar hafa nú lokiö byggingu nýs vegar milli Tel Aviv og Jerú-
salem, og hefir vegur þessi hlotiö nafnið „Vegur hugrekkisins". Hann
var víjöur og tekinn í nolkun fyrir skömmu, og sést hér flokkur heit-
trúarmenna ganga flyktu liði eftir hinum nýja vegi. í broddi fylkingar
gengur liðsforingi úr her ísraelsmanna.
í starfi K. F. U. M. sem ung-
ur drengur, þegar það var
stofnað, um það í sambandi
við séra Friðrik, að ekki væri
hollt að hæla ungum manni.
Þetta má iíka til sann vegar
færa, þvi þótt séra Friðrik
eigi mörg ár að baki og hárið
sé orðið hvítt er hann ennþá
ungur i anda og á vonandi
ólifaðan langan starfsdag til
hjálpar íslenzkum æskulýð.
Svo eigingjarnar eru óskir
manna á þessum merku tíma
mótum í lífi hans og félags-
ins. En islenzka þjóðin getur
þakkað guði fyrir séra Friðrik
og starf hans, því slíkir menn
fæðast ekki á hverri öld-
Væri ekki vel til fallið fyrir
hið opinbera, að minnast þess
loksins nú hvað séra Friðrik
hefir gert fyrir okkar litla og
fátæka þjóðfélag með óeigin
gjörnu ævistarfi sínu, með
því að veita honum og félags-
skapnum hans á þessum tíma
mótum viðurkenningu. sem
makleg er og munaö yrði
eftir.
íslenzka þjóðin öll óskar
‘séra Friðrik og K. F. U. M.
hamingju og heilla á þessum
timamótum og vænta þess að
æskulýður þessa lands eigi
enn um mörg ókornin ár eftir
að fá að njóta leiðsagnar
hans.
kömmtuntekin upp á smjör-
ii om áramótin |
Ýmssir aðrar breyíingar gerðar á skömmt-
aninnl, ©ai engin stórvæ^ileg réttarbót fyr-
Sr almeiming', svo að hann fál allt l»að sem
mlðarnir lofa _ __
Nú um áramótin fær fólk nýja skömmtunarseðla, prentaða
með rauðum lit á hvítan pappír. Eru seðlar þessir ekki alveg
eins mikið rúnalctur fyrir almenning, eins og fyrri seðlar,
þar sem nú er prentað heiti viðeigandi vörutegundar á sjálfa
skömmiunarmiðana. Er það lofsverð framför lijá skömmtun-
ar yfirvöldunum. ílelztu breytingarnar á sjálfri skömmtun-
inni eru þær, að gildi vefnaðarvörumiðanna breytist og tek-
in er upp skömmtun á smjörlíki cg afnumin skömmtun á
þeim búsáhöldum, sem yfirleitt eru fáanleg í landinu. Eng-
inn nýr skömmtunarmiði er gefinn út fyrir ytri fatnaði fólks.
Engar ráðstafanir virðast hafa verið gerðar til þess að
skömmtunin komi réttlátara niður en verið hefir og svo ýms-
ar skömmtunarvörur, sem til landsins koma lendi ekki í
höndum prangara, eða svartamarkaðshöndlara, en séu jafn-
framt ófáanlegar, á frjálsum markaði, eða því sem næst.
prófi í fræðigrein sinni. Hann
var hinn efnilegasti náttúru-
fræðingur og miklar vonir
tengdar við starf hans.
Guðni var kvæntur Álf-
heiði Kjartansdóttur, Ólafs-
sonar, bæjarfulltrúa í Hafn-
arf'rði. Minningagrein um
Guðna mun birtast hér i bíað
inu á morgun.
Skömmtun á smjörlíki.
Nú um áramótin er tekin
upp skömmtun á smjörlíki og
annarri feiti úr erlendum hrá
efnum. Skömmtunarmiða fyr
ir þessari nauðsynjavöru ber
að finna i gamalli skömmtun
arbók frá því í fyrra, sem fólk
er vonandi ekki búið að
lienda, því vera má, að eitt-
hvað af miðum hennar gildi
til aldamóta.
Er hverjum manni ætlað
samtals 1 kg. af smjörlíki
næstu þrjá mánuði. Helming
urinn af þessu fæst út á miða
merktum „Skammtur 9“ í
hinni gömlu bók en hinn
helminguripn út á miða
merktan „L 2—6“ í sömu bók.
Rýmkað um búsáhalda-
skömmtun.
Allmikið er rýmkað um bús
áhaldaskömmtunina um
þessi áramót og hún afnum-
in á búsáhöldum, öðrum en
úr gleri, leir eða postulíni, en
þau munu vera nær ófáan-
leg og hafa verið það um
langt skeið. Sérstaklega er til
finnanlegur skortur á bolla-
pörum og öðru'sem fólk þarf
helzt á að halda. Aftur á
móti fæst enn allmikið af
mörgum tegundum skraut-
vara á ýmsu verði. Verða þeir
áfram skammtaðir.
Engir nýir skömmtunarmið-
ar fyrir ytri fatnaði.
Á hinum nýa skömmtunar- !
seðli eru 400 litlir reitir, sem j
gilda fyrir vefnaðarvöru og
búsáhöldum úr gleri og postu
llni þrjá fyrstu mánuði árs- j
ins. Gildir hver miði fyrir 20
aurum miðað við smásölu-
verð, en samkvæmt einingar-
kerfi, þegar um innlenda
framleiðslu er að ræöa. Þarf
til dæmis 130 einingar fyrir
lcarlmannsskyrtu. Þó að vefn
aöarvöruseðlar þessir séu ætl
aðir fyrir 3 fyrstu mánuði
ársins halda þeir allir gildi
sínu til ársloka, samkvæmt
því sem tilkynnt er af
skömmtunaryfirvöldunum.
Enginn nýr stofnauki, er
gefinn út fyrir ytri fatnaði í
Norskt skip strand-
ar undan Mýrum
MassBsI»|örg varSS, eir.
skipIS mun ekki nást
át
Snemma á sunnudagsmorg-
uninn var strandaði norskt
flutningaskip skammt fr í
Bátaskerjum við Mýrar. Nefn
ist það Gygra og er frá Krist-
jánssund. Sendi það út neyð-
arkall og fékk Slysavarnar-
félagið Faxaborg frá Reykja-
vik og Sigurfara af Akranes;.
til þess að fara á strandstað-
inn.
Veður var gott og hægur
sjór, og gekk vel að flytja
mennina úr hinu strandaða
skipi yfir í Faxaborg og Sigui
fara, og komust strandmenn
þangað í skipsbát sínum. Voru
þeir fluttir til Reykjavíkur og
dvelja nú þar.
stað stofnauka nr. 13, sem
margir eru nú búnir aö nota,
þó litið hafi verið fáanlegt aí
fatnaði á frjálsum markaði,
fyrir þá sem ekki eiga aðgang
aö heildsölum. Þessi stofir-
auki fæst hins vegar fram-
lengdur fyrir þá sem eiga
hann í arf frá síðasta skömmt
unar ári.
Séra Friðrik Friðriksson hinn elskaði ®gj
dáði forcsstumaður æskulýðsius isylláur á
afmæll jfélagsius
Kristilegt félag ungra manna héít hátíðlegt hálfrar ald-
ar afmæli sitt á sunnudagskvöldið. En 2. janúar 1898 stofn-
aði séra Friðrik Friðriksson, Kristilegt félag ungra manna í
Guðni Guðjónsson náttúru
fræðinguf, for.stöðumaður
grasadeildar Náttúrugripa-
safnsins í Reykjavík lézt að
morgni 31. des- s. 1. Guðni var
aöeins liálffertugur að aldri
og var fyrir skömmu skipaður
forstöðumaður grasadeildar
Náttúrugripasafnsins. Hann
stundaði nám sitt í Kaup-
mannahöfn og lauk þaðan
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjöri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Ritstjórnarsimar:
4373 og 2353
AfgreiOslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiöjan Edda