Tíminn - 04.01.1949, Qupperneq 4

Tíminn - 04.01.1949, Qupperneq 4
4 TÍMINN, þriðjudaginn 4. janúar 1949. 1. blað „Notadrýgsta gleðin í lífinu er vinnugleðin” „Megi lijóðin jfinua, sem sseesf af þeim verliifflceímn, seaia lífið Itef- ir seí§ lajéðss tiasifram gulBið, sem glóir stm of í augum ssimra.44 Á árinu, sem nú er að byrj a, rennur út kjörtímabil mitt sem forseta íslands. Þá eru liðin 8 ár síðan ég var fyrst kosinn ríkisstjóri og 5 ár síð- in ég var fyrst kosinn for- seti. Það gæti verið freistandi að minnast nú eitthvað á störf nín þessi 8 ár undanfarin. :Ég vil ekki þreyta hlustendur u því. En þó vil ég minnast lítilsháttar á sumt, sem kem- .ir í huga minn, er ég lít yfir pessi ár. Er ésg tók við ríkisstjóra- starfinu 17. júní 1941 lýsti ég m. a. þeirri ósk minni, að ein- huguí mætti ríkja með þjóð- inhi um lausn þeirra vanda- mála, sem þá voru framund- an. Ennfremur, að menn á peim alvörutímum, sem þá voru og steðjuöu að, létu eigi nugsunina um eigin hags- muni eða fallvaltan stumdar- hagnað sitja 1 fyrirrúmi fyr- :ir því, sem taliö væri þurfa cil lífsbjargar þjóðarheild- :mni. Þau ár, sem síðan eru lið- n, hafa verið óvenjulega við- ourðarík fyrir islenzku þjóð- :ma. Heimsstyrjöld geisaði, styrjöld, sem vér íslendingar drógumst inn í þrátt.fyrir ein íægan vilja vorn til að vera nlutlausir. Svo að segja fyr- irvaralaust urðum vér að velja Um varnarleysi eða her- /ernd stórveldis. Vér kusum nerverndina. Hér sat í mörg ár erlent setulið. í því sam- oandi komu upp ýms áður ó- þekkt vandamál. Á tímabil- :mu þurfti að ráða fram úr framtíðarstjórnskipulagi ís- iands, sem gert var með stofn un lýðveldisins 17. júní 1944, með svo að segja einróma já- kvæði allra kosningabærra manna hér á landi. Þar kom xram á ánægjulegan hátt ein hugurinn, er á reiö. ©ss ber aldrei að gleyma því, hve ó- metanlegt það var íslenzku þjöðlnni bæði inn á við og ekki síður út á við, að hún stóð þá sem einn maður. Ihugun þess mætti verða oss lærdómsrík á öðrum sviðum. Ef litið er á það, hvernig oss cókst að ráða fram úr þessum vandamálum, verður myndin tremur björt. Hinsvegar hafa vonir brugð ist á ýmsum öðrum sviðum. CJm innantandsmál hefir yf- xrleitt tekizt miður að skapa þann einhug, sem ég í bjart- sýni minni setti á óskaseðil- inn^er ég tók við ríkisstjóra- starfinu fyrir 8 árum. Sum- part vegna þess, hve miður þetta tókst, höfum vér átt, og eigum enn, við mikla verð- bólgu og dýrtíð að glíma, sem mikið veltur á um framtíð vora, hvernig rætist úr. Og nú, hálfu fimmta ári eftir stofn- un lýðveldisins’rofar ekki enn íyrir þeirri nýju stjórnarskrá, sem vér þurftum að fá sem fyrst og almennur áhugi var um hjá þjóðinni og stjórn- málaleiðtogunum, að sett yrði sem fyrst. í því efni búum vér því ennþá við bætta flík, ÍJtvm'psrte&a iorseta íslantls á nýávsdag . sem sniðin var upprunalega J í fyrir annað land, með öðrum : j viðhorfum, fyrir heilli öld. Er j ! lýðveldið var stofnað, var! þess gætt að breyta engu ‘ öðru í stjórnarskránni en því, sem óumflýjanlegt þótti! vegna breytingarinnar úr kon ] ungsríki í lýðveldi. Mikil þróun hefir orðið á síðustu öldinni með mjög breyttum I viðhorfum um margt. Von- j andi dregst eigi lengi úr þessu að setja nýja stjörnar- skrá. Því veröur tæpast neitað, að hugur flestra hefir beinzt talsvert að gróða og auknum tekjum hér á landi undanfar- in 8 ár, og ýmsar framkvæmd ir fengið svip af því. Þess var full þörf að bæta og jafna kjör manna hér á landi. Ó- væntar tekjur einstaklinga og þess opinbera sköpuöu góða aðstöðu til þessa, ef vel var á haldið. Tilraunir hafa verið gerðar í þessa átt og sumt hefir borið árangur. En því fer fjarri, að þetta hafi tekizt að öllu leyti eins vel og efni áttu að geta staöíð1 til. Fjármál og efnahagsmál' eru vandasöm meðferðar,! ekki sízt fyrir þjóð, sem hefir! svo litla æfingu í meðferð slíkra mála, sem vér höfum. I Það er erlent máltæki, sem lýsir því, að mönnum hætti við því að einblína svo á trén, að þeir taki ekki eftir skóg- inum sjálfum. Hefir ekki hent oss eitthvað þessu líkt? Höf- um vér ekki heillast svo af auknum gróöa, að vér höf- um einblínt um of á peninga og það, sem kaupa má fyrir peninga? Hefir einstakling- I um og stéttum ekki hætt við j því að leggja meiri áherzlu ( en skyldi á aukna fjáröflun? , Höfum vér ekki stundum j gleymt því, að maðurinn lif- (ir ekki á einu saman brauði, . að til eru önnur 'verðmæti, j sem einnig eru lífsnauðsyn? Mér finnst, að svo hafi verið. Vér erum ekki einir um ‘ þessháttar mistök. Þau hafa j líka komið fyrir hjá öðrum þjóðum. En vér megum ekki ! gleyma því, að margar þess- j ara þjóða misstu mikil verð- mæti á ófriðarárunum, ann- aðhvort fyrir beinar eyðilegg ingar hernaðarins, fyrir þaö, að vinnuaflið dróst frá arð- bærum framleiðslustörfum að eyðandi hernaði — eða af öðr 1 um ástæðum. Þessar þjóðir þurfa því að leggja mikið á sig til þess að byggja upp að nýju. Vér uröum aðeins að litlu leyti fyrir slíkum missi verðmæta, samanborið við ó- tal margar aðrar þjóðir. Sum- ir hér á landi virðast af þess- um ástæðum hafa tamið sér þá trú, að vér þyrftum lítið að oss að leggja, að minnsta kosti minna en margar aðr- j ar þjóðir. Að vér hefðum sér- I stöðu, sem væri betri en að- I staða annarra þjóða. Og að ósanngjarnt væri, að vér héld um -gkki öllu því, sem meira fjármagn en vér höfðum þekkt áður hafði fært oss af umbótum um alla aðbúö manna og lífsvenjur. Reynslan er óvægin og hún mun sýna oss, að engin þjóð getur haft slíka sérstöðu til frambúðar. Með bættum sam göngum og margskonar auk- inni tækni hefir samlíf þjóð- anna orðið allt annað og miklu nánara en áður. Þjóð- irnar eru nú háðari hver ann arri en áður. Einni þjóö í sambýlinu getur ekki vegnað vel til frambúðar, ef hinum vegnar ekki sæmilega. . ~ Af eðlilegum ástæðum, sem ég drap á, hefir viðleitni þjóðanna til endurreisnar snúizt mjög um endurreisn á fjárhagssviðinu. Af því leiðir m. a., að peningamælikvarð- inn vill verða nokkuð áber- andi hjá þjóðum, stéttum og einstaklingum, fleiri en oss íslendingum. En þess, eru merki, að á þessu sé að verða nokkur breyting. Að menn séu að komast að þeirri niðurstöðu, að ef menn halda áfram að einblína á trén, sjái þeir aldrei sjálfan skóginn. Er menn lesa erlend blöð, verður ekki komizt hjá því að taka eftir því, að fleiri og fleiri af þeim, sem um þau mál skrifa, vikja að því, að það sé ekki og verði aldrei einhlítt að beina öllum huga og allri orku að því einu að auka framleiðslu verðmæta með sem mestan hagnað fyr- ir augum, og að hugsa of mik ið um að afla sér þeirra lífs- þæginda, sem kaupa má fyrir peninga. Menn verði einnig að hugsa um tvennt annað: 1. Að skapa skilyrði til þess að varðveita frelsi þjóðanna fyrir ásókn utan að og varð- veita þau verðmæti, sem þeg- ar eru fyrir hendi. í því skyni hugsa þjóðirnar mikið um margskonar vígbúnað og ann að öryggi hernaðarlegs eðlis. 2. Að reyna að vinna einn- ig að því, sem gefur lífinu verðmæti, þótt ekki verði bein línis mælt á peningamæli- kvarða. Og að vinna að breyttum hugsunarhætti í þessu efni. Kuldalega heilsar áriS 1949. Um mikinn hluta landsins hefir verið bylur, hörkufrost og stormur. í Reykjavík hefir frostiö orðið yfir 10 stig og þykir okkur napurt, ef vindur fylgir því loftslagi, sem hér er og vindurinn hefir stundum fylgt meö, enda annaö algengara á Suðurnesjum en logn og kyrrö. Stundum er svo að heyra, sem blööin og útvarpið jafnvel líka hafi heldur lítil sambönd út fyrir Reykjavík. Það er að minnsta kosti ekki gott, þegar ríkisútvarpið vel- 1 ur sér dagskrárefni handa fslend- ingum erlendis, að þá sé lýst veöur ]fari í Reykjavík eins og það væri I hið einkennandi veöurfar fyrir handið allt siðustu dagana. Ég veit ’ þess dæmi. aö fólk úti um land, lét 'sér fátt um íinnast, þegar talsmaö ! ur útvarpsins hérna var í síðasta : mánuði að fræöa landa okkar er- ! lendis á því, aö hér á landi hefði nú verið sú einmunablíða, að elztu menn myndu naumast slíkt. Vel 'má vera, að sumum Reykvíkingum hafi þótt þetta skrítið, en hinum enn frekar, sem bjuggu þá viö snjó og frost og veöuroísa. Annars er ofríki Reykjavíkur í blöðunum varhugavert. Ég las í danska blaðinu Information kveðju ritstjórnarinnar til lesenda, sem vildu :|nda bréf til birtingar. Þeim var meðal annars sagt, að þar sem blaðið hefði lesendur um allt land væri ómögulegt að birta í því bréf um að færa til eitthvert götuljós í Kaupmannahöfn. Þetta er at- hyglisvei't fyrir okkur. Þetta sýnir, að þó að hin danska höfuðborg hafi fulla milljón íbúa, vill ekki blað, sem þar kemur út, gera les- endum sínum annars staðar þá ó- virðingu og leiðindi. að ræða mikið um sérmál höfuðstaðarbúa. Svo ekki meira urn það. I-að var fleh'a merkilegt í þessari dönsku grein. Lesendunum var sagt, að þegar þeir skrifuðu blað- inu, ættu þeir að vera stuttorðir og gagnorðir. Það væri ekki til fyrirmyndar hvernig fastir starfs- menn blaðsins skrifuðu stundum, en þeir hefðu þá afsökun, að þeir yrðu að vera búnir á tiltekinni stundu. Eftir hinum væri venju- lega ckki kallað. Hafi þér ekki tekizt að vera nógu gagnorður í dag, þá er sjaldnast nokkru spillt þó þú bíðir til morguns og afritir þá bréfið. Þó að blaðið beri þarna fram málsbætur fyrir starfsmenn sína, sem ekki vinna svo að til fyrir- myndar sé, vildi ég benda á liitt, sem er mergurinn málsins, að þar þykir það til fyrirmyndar, að vera stuttorður og gagnorður. Fáein orð ura fyrsta prentverk á íslandi, í tilefni af því, sem um þau efni var birt hér um daginn í skætingstón. Eins og flestir munu vita, var það Jón biskup Arason, sem fyrstur varð til að flytja prent smiðju hingaö til lands og fékk hingað jafnframt mann, sem kunni iðnina, séra Jón Matthíasson hinn sænska. Nú er ekki víst hvar prent verkiö var hinn fyrsta vetur hér á landi. Hitt er vist, að Jón sænski varð prestur á Breiðabólstað í Vest urhópi og þangaö var prentverkið flutt, og þar var það notað, þó að það hafi ef til vill verið hinn fyrsta vetur hér á landi að Hólum í Hjaltadal eða Núpufelli í Eyja- firöi. Sr. Jón sænski fékk presta- kall til að lifa af, þó að prentiðnin yrði aukastarf hans. Þá var ekki útgáfustarfsemin á landi hér um- fangsmeiri en það, en öll störf prentarastéttarinnar voru unnin, sem hjáverk eins manns. Annars vita menn lítið um þetta allt. Þær bækur, sem prentaðar voru um daga Jóns Arasonar eru týndar. Ef til vill er til úti i lönd- um eitt blað úr einni þeirra, en annað munu menn alls ekki vita um nú orðið. Talið hefir verið, að síðasta eintakið af guðspjallabók Jóns Arasonar hafi farið í gröflna með Brynjólfi biskupi Sveinssyni og svo mikið er víst, að engar sögur fara af þeirri bók síöan, þó að vel megi vera að hún hafi legiö á hillu einhvers sveitabæjar lengi síðan. En hvað sem um það má segja, þá er þetta brautryöjenda- starf týnt og að mestu gleymt. Meira að segja virðist þjóðin hafa verið komin nálægt því að gleyma því með öllu. En það var prent- verk Jóns Arasonar, sem Guð- brandur Þorláksson hafði á Hól- um, þó aö hann endurbætti það mjög. Svo eru örlitlar upplýsingar um Krýsuvíkurveginn og snjóinn á hon um um daginn. Ég held að öllum sé óhætt að trúa því, að þar hafi aldrei verið mikill snjór. Ýtan, sem skóf veginn meðfram Kleifarvatni, mun aldrei hafa verið lengur en hálftíma til klukkustund í yfirferð þar, og þar mun aldrei hafa verið nema ein ýta. Af skiljanlegum á- Istæðum þótti henta, að önnur ýta sópaði af Selvogsheiði, en af þeirrí ! þriðju hef ég aldrei frétt nema í . Morgunblaðinu. Hvað skyldi annars þurfa margar jarðýtur til að hreinsa allar missagnir og öfug- mæli þaðan? Ekki fara þau sjálf- ] krafa. ] Að endingu fáein orö til þeirra, sem eiga hjá mér bréf. Ég vænti að nú, þegar lífið er aftur fallið í sínar föstu og venjulegu skorður eftir hátíðarnar muni þau birtast jsmámsaman, þó að mér hafi þótt 1 sum þeirra ofviða jólaföstunni. Ég bið menn því að bíða rólega litla hríð enn þá. Starkaöur gamli Ég vil fara fáum orðum um þá starfsemi í þessa síðar- nefndu átt, sem þegar hefir verið skipulögð og er verið að skipuleggja á vegum Samein- uðu þjóðanna. Svo aö segja um leið og ófriðnum lauk, eða jafnvel fyrr, hófst þessi starfsemi. Ég hyygg, að blöö, útvarp og almenningur Ijái þessari starfsemi minni at- hygli en æskilegt væri. Þriggja mánaða ársþingi Sameinuðu þjóðanna er ný- lokið. Hverjar fréttir fékk all (Framhald á 5. siðuj Jarðarför mannsins míns, Guðna GufSjjóiissonar, náttúrufræðings, t sem andaðist 31. des. s.l., fer fram miðvikudaginn 5. þ. m. kl. 1.30 e. h. frá dómkirkjunni'. Athöfninni verður útvarpað. F. h. aðstandenda Álfheiður Kjartansdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hjálp við veikindi og andlát ásíkærrar dóttur okkar og systur, Jeusmu Laufeyjar Þorsíeiusdóttur Klafastöðum. Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Narfason og börn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.