Tíminn - 04.01.1949, Síða 8

Tíminn - 04.01.1949, Síða 8
StientafunÉr gerir #i- un um öryggismál íslands Lýsis* slg' fySgjandi samvinim við vestræmi þjóMrnar, en amlvígan erlendri hersetaa Stúdentafélag Reykjavíkur hélt félagsfund í Listamanna- skálanum á sunnudaginn var. Uinræöuefni var hlutleysi og hernaðssrbandalag og var Pálmi Hannesson rektor frum- mælandi. HúsiÖ var fullskipað áheyrendum allan tímann og r oru umræður hinar f jörugustu. Kristján Eldjárn þjóðminja vörður, sem er formaður félagsins, stjórnaði fundinum. Pálmi Hannesson rakti í framsöguræðu sinni mjög ít- arlega þá hættu, sem fylgdi dvöl erlends herliðs í landinu og taldi þjóðina því ekki get- að gengið í neitt bandalag, sem legði henni slíka kvöð á herðar. Hann taldi þjóðina eiga að leggja áherzlu á sam- vinnu við vestrænu þjóðirnar. Þjóðin ætti jafnframt að reyna að halda sér utan hern aðarátaka. Ef aðstæður neyddu hana til að hörfa frá þeirri stefnu um stund, ætti hún aö hverfa til fylgis við hana aftur, þegar henni væri það sjálfrátt. Gylfi Þ. Gíslason prófessor lýsti sig andvígan þátttöku í sérhverju bandalagi, ef því fylgdu þær kvaðir, að hér yrði erlendur her og herstöðvar. Hann taldi öryggi þjóðarinnar heldur ekki aukið, þótt hér væri erlendur her, nema hann væri þá svo fjölmenn- ur, að það stofnaði menningu og þjóðerni landsmanna í fyllstu tvísýnu. Hann lýsta yf ir fylgi sínu við málstað vest- rænu þjóðanna. Sigurður Ólason hæstarétt arlögmaður taldi hlutleysið orðið svo misnotað hugtak, að ekki væri hægt að byggja neina stefnu á því. Nefndi hann ýms dæmi þvi til sönn- unar, hvernig hlutleysið hefði verið túlkað á ólíka vegu af sömu aðilum allt eftir því, hvað bezt þótti henta 1 það og það skiptið. T. d. hefðu Bretar heitið Rússum að sigla um Suezskurðinn í rússneska- japanskastríðinu 1904—1905, því að þeir hefðu talið slíkt leyfi hlutleysisbrot. Árið 1935 leyfðu þeir hins vegar ítölum að sigla um skurðinn í Abes- síníustyrjöldinni, því að þá hafa þeir talið hlutleysisbrot að banna þeim það. Hlutleys- isstefnan væri þannig svo ó- ljós, að ekki væri hægt að fóta sig á henni. Heppilegast myndi sennilega vera að hafa samvinnu við vestrænu þjóð- irnar um öryggismálin, án þess að leyfa erlenda hersetu í landinu. Jónas Haralz deildi á stefnu Rússa og Bandaríkjanna I ut- anríkismálum og hvað gæta ýfirgangs hjá báðum. Guðmundur Thoroddsen prófessor taldi að einhliða á- róður hefði falizt í áramóta- ræðu forsætisráðherra og gerði hann því að tillögu sinni, að skorað yrði á út- varpsráð að leyfa umræður um þetta mál frá báðum hlið- um. | <• í Þá töluðu ennfremur séra Sigurbjörn Einarsson dósent, dr. Matthías Jónasson og nokkrir fleiri. Nokkru áður en fundi lauk voru eftirfarandi tillögur bornar undir at- kvæði: I. „Fundur haldinn í Stúd- entafélagi Reykjavíkur 2. jan 1949, telur, að ísland eigi í utanríkismálum að hafa nán asta samvinnu við hin Norð- urlöndin og önnur vestræn lýðræðisríki sökum sameigin legs menningararfs, sameig- inlegra viðskiptahagsmuna, skyldra stjórnarhátta og sam úðar með málstað lýðræðis og pólitísks frelsis. Hins vegar telur fundurinn ekki koma til mála a.ð víkja frá þeirri stefnu, sem mörkuð hefir ver ið af íslenzkum stjórnarvöld- um og fylgt hefir verið til þessa, að íslendingar geti af augljósum ástæðum aldrei orðið hernaðaraðili, og þess vegna álítur fundurinn, að fs land geti ekki á friðartímum tekið og eigi ekki að taka þátt í neinu hernaðarsamstarfi, þar sem það hefði það í för með sér, að hér yrðu erlendar herstöðvar og erlendur her.“ Flutningsmenn voru: Pálmi Hannesson, Gylfi Þ. Gíslason, Kristján Eldjárn. Þessi til- laga var samþykkt með 164 atkv. gegn engu. II. „Að gefnu tilefni í útvarps- ræðu forsætisráðherra nú um áramótin skorar Stúdentafél. Reykjavíkur á Ríkisútvarp- ið að taka upp umræður í útvarpinu með og móti þátt- töku íslands í Norður-Atlants hafsbanda!agi.“ Flutningsmaður var Guð- mundur Thoroddsen. Sam- þykkt samhljóða. Bretar oq Banda ríkjamennsenda Rússum orð- sendingu Bretar og Bandaríkja- menn hafa nú sent rúss- nesku ráðstjórninni sam- eiginlega orðsendingu. Seg ir þar, að vesturveldin hafi algerlega staðið við gerða samninga um heimsend- ingu þýzkra stríðsfanga, og séu engir slíkir fangar í þessum löndum. Spyrja þau jafnframt, hvernig á- statt sé i þessum efnum hjá Rússum. Niðurstöður ráöstefnunnar m Atlanzhafsbandalag I sjöveldanna Forsætisráðherra Hollands á förum til Indónesíu Hollendingar hafa nú lýst yfir, að vopnaviðskiptum á Jövu hafi lokið á gamlársdag eins og heitið hafi verið. Þó segja þeir, að Indónesíumenn hafi gert nokkrar gagnárásir síðustu daga í miðhluta lands ins. Frengir hafa borizt um það, að forsætisráðherra Hol- lands hafi í hyggju að fljúga til Indónesíu bráðlega. Bandaríkjaþing kom saman í gær Bandaríkjaþing kom saman í gær í fyrsta skipti eftir kosn ingarnar. Er þetta 81- þing Bandaríkjanna. í gær var kos ið í fastanefndir þingsins, en i dag mun Truman forseti á- varpa þinghejm. Mörg þýðingarmikil mál bíða nú afgreiðslu þingsins og má meðal þeirra nefna að ild Bandaríkjanna í Atlanz- hafsááttmálanum, hernaðar- iega hjálp til Kína og fjár- framlag til Marshaláætlunar innar á næsta ári. Breytingar á brezkn stjórninni í vændnm Uppkast að sanmingnsuii Inefir ekki verið gertenu Ráðstefnan, sem setið hefir á rökstólum undanfarið í Wash ington og fjallað um væntanlegan Norður-Atlanzhafssátt- mála, hefir nú skilað áliti og lagt það fyrir ríkisstjórnir þeirra sjö Ianda, sem hér eiga hlut að máli. Ekkert uppkast hefir enn verið gert að sáttmálanum ná heldur ákveðið, hvaða ríkjum öðrum verður boðin þátttaka, en gert er ráð fyrir, að það verði ákveðið í lok þessa mánaðar. Attlee forsætisráðherra Breta varð 66 ára í gær. Kom hann þá til London úr jóla- leyfi sínu, en í því hafði hann dvalið á búgarði sínum. í gær átti hann viðræður við Staff ord Cripps og boöað var til ráðuneytisfundar siður í vik- unni. Brezk blöð telja, bráð- lega megi vænta nokkurra breytinga innan brezku stjórn arinnar. Niðurstöður ráðstefnunnar, sem ríkisstjórnir sjöveld- anna, Bretlands, Bandaríkj- anna, Frakklands, Kanada, Hollands, Belgíu og Luxem- burg, hafa nú fengið til at- hugunar hafa ekki enn verið birtar né heldur neitt um önn ur störf ráðstefnunnar, en til kynnt hefir þó verið, að ekk- ert uppkast hafi enn verið gert af hinum væntanlega sáttmála. Ráðstefnan hefir aðallega unnið að því að kynna sér helztu gögn þessa máls og afstöðu þeirra ríkja, sem hér koma til greina. Ekki hefir heldur enn ver- ið ákveðið, hvaða ríkjum skuii Enn er barizt í Negeb-eyðimörkinni Arabar halda því fram að vopnaviðskipti eigi sér enn stað í Nebeb eyðimörkinni og að Gyðingar hafi sótt fram inn yfir landamæri Egypta- lands, þrátt fyrir andmæli þeirra. Segja þeir, að hersveit ir Gyðinga hafi farið rúma 30 km. inn i Egyptaland. boðin aðild að þessum sátt- mála, en gert er ráð fyrir, að fundur utanríkisráðherra sjö yeldanna, sem haldinn verð- ur í London síðla þessa mán- aðar, muni taka ákvörðun um það. Rafmagnslaust á Akureyri Krapastííla í Uaxá Akureyri var rafmagnslaus í gærkveldi. þegar blaðið átti tal við fréttaritara sinn þar. Stafaði rafmagnsleysið af krapastíflu í Laxá, og var áin nær þur neðan við Brúar- fossa. Slíkar krapastiflur eru alltíðar í Laxá, þegar stórhríð ar gerir. Mikið^frost var norð- anlands í gær, og þar sem veik in eru enn allmikil á Akur- eyri af völdum nænusóttarinn ar, en mörg hús þar eingöngu hituð með rafmagni, var á- standið allt annað en gott, og sagöi fréttamaðurinn, að þetta ylli hinum mestu örðug leikum í kaupstaðnum. Brezk rakettuflug- vél fer hraðar en hljóðið Brezk rakettuflugvél, sem nýlega var sett á loft í Bret landi flaug hraðar en hljóðið og með svipuðum hraða og amerísk flugvél, er hraðamet setti fyrir alllöngu- í flugvél- inni var komið fyrir mæli- tækjum er sýndu loftþrýsting mótstöðu og hraða og gera vís indamenn á þessu sviði sér vonir um, að mikil vitneskja hafi fengizt af þessu flugi. Queen Mary skemmist Brezka stórskipin, Queen Mary hefir seinkað í Bret- landi vegna viðgerðar og legg ur ekki af stað vestur um haf aftur fyrr en í kvöld, en átti að fara í gærkveldi. Lenti skipið í stórsjó á leið sinni aö vestan fyrir nokkrum dögum og tók niðri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.