Tíminn - 08.02.1949, Side 2
TIMINN, þriðjudaginn 8. febrúar 1949
28. blað
2
'Jrá kati til keiia
nótt.
!; Næturlæknir er í læknavarðstof-
ynni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Iðunnar
apóteki, sími .7911. Næturakstur
annast B. S. R., sími 1720.
Útvarpið
t kvöld.
. Kl. 18.30 Dönskukennsla. — 19.00
Ensjkukennsla. 19.25 Auglýsingar.
20.00 Préttir. 20.20 Tónleikar Tón-
lístarskólans. 20.55 Erindi: Loft-
iagsbreytingar á jörðinni; III. er-
indi: Frá síðasta jökulskeiði til
víkingaaldar (dr. Sigurður Þórar-
insson). 21.20 Unga fólkið: Erindi
og samtöl. 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.05 Enlurteknir tónleikar.
22.30 Dagskrárlok.
Hvar era skipin?
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Reykjavík 7.
þ. m. til Hamborgar. Dettifoss fór
frá Kaupmannahöfn 8. þ. m. til
Álasunds, Djúpavogs og Reykjavík-
ur. Fjallfoss fór frá Reykjavík 6.
þ. m. til Halifax. Goðafoss er í
Hafnarfirði. Lagarfoss er í Reykja-
vik. Reykjafoss fór frá Reykjavík
2. þ. m. til Antwerpen. Selfoss er
í Reykjavík. Tröllafoss kom til
Reýkjavíkur 5. þ. m. frá Halifax.
Horsa er í Álasundi. Vatnajökull
kom til Kaupmannahafnar 6. þ. m.
Kátla kom til Reykjavíkur 4. þ. m.
írá New York.
Bíkisskip.
Esja var á Akureyri í gær á
vesturleið. Hekla er í Álaborg.
Herðubreið fer frá Reykjavík í
kvöld austúr um land til Bakka-
fjarðar. Skjaldbreið er á Breiða-
firði. Súðin er á leið frá Reykja-
vík til Ítalíu. Þyrill var í Kefla-
vík síðdegis í gær. Hermóður fór
frá Hofsósi í gærmorgun á leið
til; Reykjavíkur.
Einarsson & Zoega.
. Foldin og LingeAroom eru í
Reykjavík. Reykjanes er á förum
frá Englandi til Grikklands.
Flugferðir
Loftleiðir.
Hekla fór kl. 8 árd. í dag til
Prestvíkur og Kaupmannahafnar
með 30 farþega. Geysir er hér
Ekkert flogið innanlands í gær.
Fiugfélag íslands.
,;.Gullfaxi fór til Stokkhólms í
fyrrakvöld með 5 farþaga. Lenti í
^ltokkhólmi kl. 5 árd. í gær.
;; Flogið var í gær til Akureyrar,
' /estmannaeyja, Hornafjarðar og
fafjarðar. Og voru allar flugvél-
Íiiar fullar af farþegum.
Ur ýmsum áttum
(jíjestir í bænum.
úíkristján Guðmundsson bóndi á
: írekku á Ingjaldssandi, Sigurður
tisson tilraunastjóri á Reykhól-
, Ólafur Ólafsson kaupfélags-
$ljÓri Króksfjarðarnesi, Guðmund-
lir Bernharðsson bóndi og kennari
Ártúni Ingjaldssaridi, Jóhannes
Öavíðsson bóndi í Hjarðarlal.
^íburður.
ji'^Týlega var sagt nokkuð frá hér
I:?!dálkunum innflutningi áburðar
áiíkomandi vori og að byrjað væri
flytja hann til landsins. Undan
jíin ár hefir verið tregða á að
íftúnnfluttan nægilegan áburð. En
itú; er gott útlit fyrir að úr þessu
rpptist og að nógur áburður verði
fjjjttur inn í tæka tíð fyrir vorið.
■■■Eru þetta gleðitíðindi mikil fyrir
alla þá, sem unna aukinni ræktun
landsins.
Frá utanríkisráðuneytinu.
Sendiráð íslands í París hefir
skipt um húsnæði og er heimilis-
fang þess nú:
124 Boulevard Haussmanna, sími
Laborde 8154.
Aðalfundur.
Glímuráðs Reykjavíkur verður
haldinn mánudaginn 21. febr. kl.
20 í Tjarnarkaffi.
Allir velkomnir.
Aðalfundur.
Slysavarnadeildin Ingólfur hélt
aðalfund sinn í fyrradag og var
hann fjölmennur. Framvegis eru í
stjórn deildarinnar: Séra Jakob
Jónsson (form.), Þorgrímur Sig-
urðsson, Henry Hálfdánarson, Ár-
sæll Jónasson og Jón Loftsson.
Ýmsar tillögur voru samþykktar
á fundinum, svo sem: Um róðrar
starfsemi, öryggi á vinnustöðum,
kaup á björgunarflugvél o. s. frv.
Happdrætti
Happdrætti Háskóla íslands.
Dregið verður í 2. flokki fimmtu-
dag 10. þ. m. Athygli skal vakin
á því, að þann dag verða engir
miðar afgreiddir:. Eru því i dag
og • á morgun síðustu forvöð að
kaupa miða og' endurnýja.
Ægismót.
Næstkomandi mánudag er í ráði
að Sundfélagið Ægir haldi sund-
mót. Hefir þátttaka í því nú þegar
verið tilkynnt óvenjulega mikil,
eða um 100 marins frá sex félögum.
Ráðgert er að þreyta á þessu móti
margskonar sund, jafnvel sund,
sem ekki hefir- verið keppt hér í
áður. • * '■'.
Ekki er að efa að fléiri vilja
sækja þetta mót heldur en að kom
ast, þar sem gleðilega mikill á-
hugi er nú fyrir sundíþróttinni.
Hunvetningamót.
Tíminn hefir verið (beðinn að
geta þess að Húnvetningamót verði
haldið að Hótel Borg 18. þ. m.
Samninganefnd.
Hinn 7. febrúar voru eftirtaldir
—— -
: menn skipaðir í samninganefnd
I til að semja um viðskipti milli
íslands og Bretlands árið 1949:
Stefán Þorvarðsson, sendiherra,
formaður, Haraldur Guðmundsson,
forstjóri, Kjartan Thors, fram-
kvæmdarstjóri, Ólafur Jónsson,
framkvæmdarstjóri, Óskar Norð-
mann, stórkaupmaður, Sveinn Bene
diktsson, framkvæmdarstjóri, Vil-
hjálmur Þór, forstjóri.
Dráttur
fór fram í happdrætti Félags-
heimilisins í Bolungavík 15. jan.
s.l. Upp komu þessi númer:
3293 sjálfvirkt olíukyndingartæki.
2658 rafmagnsþvottapottur. 1821
rafmagnseldavél. 3387 útvarpstæki.
2195 rafmagnsbökunarofn.
Úr Reykhólasveit.
■ Sigurður Elíasson tilraunastjóri
á Reykhólum leit inn í skrifstofu
Tímans í gær og var spurður frétta.
Fórust Sigurði orð á þessa leið:
Haglaust hefir verið að mestu þar
vestra síðan um áramót. Þegar ég
fór að vestan fyrir nokkrum dög-
um fór ég fyrst á hestum til Króks
fjarðarness — 5 kl.tíma ferð. Síðan
fór ég á mótorbáti út í Stykkis-
hólm. Þaðan með bil til Borgarness
og svo með Laxfoss hingað.
Skepnuhöld eru ágæt vestra og
nóg hey, að ég held og heilbrigði
manna með afbrigðum góð.
Að Reykhólum er i vetur starf-
andi unglingaskóladeild um miðj-
an veturinn í sambandi við barna
skólann. Og eru nemendur í henni
úr öllum sveitum A.-Barðastranda-
sýslu. Skólastjórinn er Jens Guð-
mundsson.
Við fjölgun fólks á Reykhólum
er að skapast meiri möguleikar til
félagslifs heldur en áður. Annars
hafa ekki jarðir farið í eýði í
Reykhóla- og Geiradalshreppum
síðan um aldamót, þótt fámennt
sé á ýmsum bæjum, einkum að
vetrinum.
íí LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sýnir
«
«
«
VOLPONE
H miövikudagskvöld kl. 8. Miða.s. í dag kl. 4—7. Sími 3191.
Börn fá ekki aðgang
::
H
:::::::::««:««:««««««:«t‘
::
í. R. ij
ARSHATIÐ
félagsins verður n. k. föstudag 11. febr. að Hótel Borg ♦♦
og hefst með borðhaldi kl. 6.30 (sérborð). — Fjölbreytt «
skemmtiskrá — Aðgöngumiðar fást í Bókaverzlun ísa- «
foldar og Ritfangaverzlun ísafoldar, til miðvikudags- «
kvölds. — Borð er hægt að fá tekin frá til sama tíma ♦♦
að Hótel Borg. — í. R.-ingar fjölmennið á beztu skemmt «
un ársins. Stjórn í. R.
«
«
Auglýsingasíini
TÍMAIVS
er 8130.
Austfirðingamótih
«
«
«
verður haldið að Hótel Borg laugardaginn 12. febrúar. H
♦♦
Fjölbreytt skemmtiskrá. |i
Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg (suðurdyr) «
■ ♦♦
n.k. miðvikudag og fimmtudag kl. 5—7 báða dagana. ♦♦
*♦
Félagsskírteini bæði fyrir nýja og eldri félaga, verða ii
afgreidd á sama tíma. — Þar sem búast má við mikilli ii
aðsókn verða miðar aðeins seldir félagsmönnum fyrri i|
daginn.
Stjórnin.
1
1
Vt
«««
| Höfum fengið
4 nýjar gerðir af STOFUSKÁPUM og
^ einnig HORNSKÁPA, útskorna, og
4 ýmsar gerðir af BÓKAHILLUM —
og margt fleira.
Húsgagnaverzlunin Húsmunir
Hverfisgötu 82. — Sími 3655.
►-*•
:'9
Gætu bankarnir ekki hýst
ríkissióðinn?
Mér hefir borizt bréf frá ABC,
sem þykir litillar hagsýni gæta við
skrifstofuhald hjá ríkinu og ríkis-
stofnunum, og húsnæðið ekki við
nögl skorið. ABC segir:
„Arnarhváll var mlkil bygging á
sinni tíð og bætti úr brýnni þörf,
því að þá var ríkið að kalla hús-
næðislaust. Á þremur síðustu ár-
um hefir svo Arnarhváll verið
stækkaður um helming. Þrátt fyr-
ir þetta rúmast ekki í byggingunni
nema brot af skrifstofubáknum rík-
isins. Nefndirnar og ráðin eru
dreifð um allt og leggja undir sig
ný hús og hæðir í stórhýsum.
í miðjum Arnarhváli er salur
mikilj á neðstu hæð, og er hann
ætlaður fyrir afgreiðslu ríkissjóðs.
Þar er fjöldi smiða búinn að vinna
um langa hríð. Miklar fjárhirzlur
eru múraöar inn í veggi hússins,
og sóun á húsnæði og öðru, sem
þessar ráðstafanir í Arnarhváli
hafa í för með sér?
Ferðamanni, sem þarna leit inn,
fannst miklu fé eytt og illa farið
með húsnæði í þessari skrifstofu-
byggingu. Bað hann mig að koma
á framfæri uppástungu, seiri lík-
leg væri til hagkvæmari laúsriar.
Ríkisbankarnir þrír hafa allir að-
setur í miðbænum, sagði þessi mað-
ur. Þeir hafa allir glæsileg húsa-
kynni. Eins og nú er háttað virð-
ist heldur kyrrstaða í bankastarf-
seminni. Mest af fé ríkissjóðs fer
hins vegar í gegnum bankana á
einhvern hátt. Hvers vegna ekki að
afgreiða greiðslur ríkissjóðs beint
þaðan? Væri það ekki meiri hag-
sýni að láta þessa starfsemi fara
þar fram, svo að komast mætti hjá
kostnaði við rándýrar innréttingar
og annað, sem þessar ráðstafanir
í Arnarhváli hafa í för með sér?
Það væri víst vandalaust fyrir
hvern liinna þriggja banka sem
væri að hola ríkissjóði niður hjá
sér. Og það væri þó hænufet í
sparnaöarátt, ef þessari umbót
væri komið á“.
Svo hljóðar bréf ABC. Og sann-
arlega er það alvarlegt mál, hví-
líkur kostnaður er lagður á þjóð-
ina vegna óhóflegs og iburðarmik-
ils húsnæðis, sem hver ríkisskrif-
stofa og deild ríkisfyrirtækja telur
sig þurfa á að halda. Sú braut
verður ekki gengin til lengdar eins
og nú .er ástatt. :■?.£:.<£? .
............X n. '
Fryst dilkalifur
Kaupið þessa kostafæðu
meðan hún fæst.
í heildsölu hjá
FRYSTIHÚSINU HERÐUBREIÐ
Sími 2678
Jarðir til sölu
i Jarðirnar BíirSarstaSir «?»' Árnastaðir
í Lóðinimdaríirði
eru til sölu og ábúðar í æstu fardögum.
- Semja ber við eiganda jarðarinnar
Eyjjóif Jonsson.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦«
i