Tíminn - 12.03.1949, Side 3

Tíminn - 12.03.1949, Side 3
55. blað TÍMINN, laugardaginn 12. marz 1349 3 mxtniin íslendingalDætúr Hundrað ára: Runólfur Runólfsson, Eystri-Sólheimum Árið 1849 byrjar með mikl- um snjógangi en frostlétt. Frá þvi með þorra og fram í miðja góu „var stiröasta veðr átta, oft stórviðri af ýmsum áttum á einum og sama 'degi og skiptust á frost og þíða, oft mörgum sinnum á sólar- hring.“ Þessi veðurfarslýsing gæti eins vel átt við árið, sem er að líða, fram að þessu, fram í miðja góu. Árið 1849 eru rúmlega sjö- tíu býli í Meðallandi og rúm- lega fjögur hundruð sálir í Langholtssókn eða sem næst 420 í sveitinni. Þetta ár búa á Klauf í Með- allandi, hjónin Sigríður Ólafs dóttir og Runólfur Sveinsson og mánudaginn 12. marz, fæðist þeim sonur, sem er nú að verða hundrað ára. Vatni ausinn, var hann nefndur Runólfur. Ólzt Runólfur upp með for- eldrum sínum á Klauf og síð- ar í Nýjabæ í sömu sveit, er þau fluttu þangað. Hann hef- ir víst tekið vexti og náð þroska og þreki fyrir eða um tvítugt, því að um það leyti er hann sjómaður í Mýrdal. Árið 1871 er hann sjómað- ur á „Dyrhóling“, skipi, sem fórst (ásamt öðrum) á góu- þrælinn í Dyrhólahöfn. Var Runólfur einn af þremur, á því skipi, er af komust, þann mikla manntapadag. Mun hann þá hafa verið „banda- maður“, en það starf er eng- um liðleskjum falið. Þá er Runólfur var á sex- tugsaldur kominn var ég á skipi með honum eina vertíð, fór hann þá „utan undir“, en þeir (tveir) eiga að verja skipi að falla á sjó, undan út- sogi og er kait verk og karl- mannlegt. Það starf hafði hann öll síðustu ár sjó- mennsku sinnar, eða fram á áttræðisaldur, þá mörg ár sjó maður hjá Guðbrandi vita- verði. Mörg störf fóru Runólfi vel úr hendi, en sennilega til engra betur fallinn en sjávar- verka, enda stundað þau, á vetrarvertíð, óslitið, meira en hálfa öld. Árið 1878 kvæntist Runólf- ur Guðrúnu Ólafsdóttur frá Ytri Sólheimum og að ég hygg afkomanda Eyjólfs Alexand- erssonar, er flúði hingað frá Skaftáreldum. Var hún ve] gefin, gerfileg, tápkona. Runólfur er prýðilega greindur maður, orðheppinn og oröhv£|ss, ef því var þörf að skipta. Frá því á unga aldri mun hann hafa verið betur skrifandi en margur lærður og skriftfær maður, fyrri og síðari tíma, skrifaði upp, meðal annars, almanök, árum saman, á öldinni sem leið. Forsöngvari var hann víst áratugum saman og tal- ínn góður söngmaður. Hann var í bezta lagi búhagur, var um langt skeið orðlagður íláta- og áhaldasmiður. Búskap byrjuðu þau hjón ný gift 1878 á hálflendu eða broti úr Nýjabæ, móti föður hans, en fengu alla jörðina síðar er Runólfur eldri brá búi. Um þetta leyti er jörðin metin 4,4 hundruð og er auð- búa þau svo fram á aldamót. Varð þeim ssx barna auðið, en misstu 4 í æsku. Gerðist barnaveikin þar vargur í véum. Árið 1901 flutti Runólfur frá Nýjabæ, alfarinn úr Með- allandi, að Dyrhólahjáleigu hér í sveit. Þar bjuggu þau hjón með dætrum sínum Guð rúnu og Sigrúnu í 20 ár og höfðu þá búið rúmlega Sjö- tíu ár (42) og farnast vel. Árið 1921 brá Runólfur búi, en við jörðinni tók tengda- sonur hans Sigurjón Runólfs son. Hjá honum og dóttur sinni Guðrúnu, konu hans, dvaldi Guðrún Ólafsdóttir til dauðadags, en hún dó 1925. Árið 1924 flyst Runólfur til Ólafs oddvita á Eystri-Sól- heimum og hefir dvalið þar síðan og talið sér mikilsvert að hafa komizt til þeirra hjóna, er þyngja tók fyrir fót og má þá minna á það að síðustu áratugina hefir hann verið fótarvana þar sem ann ar var í illri þörf, tekinn um áttrætt. Ég skrifa þessar línur þess vegna helzt, að ég er fæddur Meðallendingur og rennur blóð til skyldu. Skal ég áður en ég lýk máli, nefna þrjá J aðra Méðallendinga, til þess helzt að vekja athygli og hjálpa til að skilja aldurinn og meta til þakklætis, líkam- lega, en einkum andlega heilsu þessa háaldraða sókn- ar- og sveitarbróður og sam- ferðamanns foreldra okkar allra fjögra. Fyrir fáum dögum sagði út- varpið að Eyjólfur Eyjólfsson frá Botnum, nú hreppstjóri á Hnausum, væri sextugur. Þegar hann fæddist er Run- ólfur Runólfsson bóndi í Nýja bæ, fertugur að aldri. Fyrir nokkrum árum vissi öll þjóðin og ekki sízt Reykja- vík, hrifin af sextugsafmæli Jóhannesar Sveinssonar Kjarval. Þegar hann er í reif- um, í EfriEy. í Meðallandi, þá hefir Runólfur búið í Nýjabæ í 8 ár og er 36 ára. Og Jón Sveinsson fyrrum bóndi í Holti í Álftanesi, síðar yfirmatsmaður í Vestmanna- eyjum, nú í Reykjavík, kom- inn að áttræðu, er í vöggu tveggja mánaða gamall, dag- inn sem Runólfur Runólfsson slitnar — sér til lífs — af „Dyrhóling“ í brimgarðinum í Dyrhólahöfn, á góuþrælinn 1871. Framh. á 6. síðu Sitthvað úr Rangárþingi Það er liðinn aðeins einn og hálfur mánuður af þessu' ári og má segja, að þessi tími hafi verið óslitinn umhleyp- inga og úrkomutíð og algjör hagleysa og jarðbann, sem kallað er en það gjörir ekki svo mikið til, þetta er besti tími vetrarins að fá harðindi, og ég vil segja að það sé nauð synlegt að stundum komi svo lítið vetrarlag á tíðárfarið, því margt af fólki heldur að alltaf verði snjóa- og frost- leysi og jafnvel sumt eldra fólk, sem man þó vel eftir hörðum vetrum, óg þar af leiðandi hagleysi og jafnvel hordauða er á þeirri skoðun, en sem betur fer hefir það j þó ekki átt sér stað nú síð- ! ustu árin og við skulum vona' að hordraugurinn sé að fullu' niður kveðinn, hann var of lengi búinn að þj á og þj aka íslenzku þjóðina. Oft heyrir maður í útvarpi og blöðin, að lítið sé til af gjaldeyri, og verður sjálfsagt að trúa því að vissu takmarki. margt bendir þó til hí'ns gagn ’ stæða, svo sem það, meðal annars að alltaf er fólk að fara landa á milli, og við sveitakarlarnir höldum að til ’ þess þurfi einhvern gjaldeyri. Þá virðist ekki skorta við neglur sér, það sem þarf fyr- j ir tóbak og áfengi en það gef- j ur hvortveggja góðar tekjur í ríkissjóðinn, en þar er von- andi rúm fyrir tekjur bæði af því og öðru, eftir því sem um er rætt og ritað, en máske að ekki sé allt að marka, og virð- ist oft vera svo að frásagnirn ar gangi götuna fram með sannleikanum. Heldur virðist okkur sveita- fólkinu að betra væri að flytja inn minna af óþarfa og eitt urlyfjum heldur en verið hef- ir, en láta síður vanta margt sem er nauðsynlegt, svo sem vefnaðarvöru, tvinna, alla gler vöru og fl. Á öllu þessu er skortur og dettur manni í hug að annaðhvort er, að þeir sem innflutningi ráða eru meir en meðal aular, eða þá, að þeir meta meir eiturlyf og óþarfa. en það sem nauðsynlegt er. Varla get ég annað en minnst á útvarpið og ýmsa dagskrár liði þess, margt er sjálfsagt gott og gagnlegt, og sumt skemmtilegt en aftur á móti er ýmislegt sem er alveg frá- leitt. Má þar til nefna sum leikritin, þó eitt hafi að margra dómi verið alverst, og langt frá því að sæmilegt megi teljast, það var flutt í síðastliðnum janúar. Það var um morð og manndrápu. Ef það er holt fyrir hlustendur, og sérstaklega fyrir yngri kynslóðina þá er ekki vand farið með uppeldi æskunnar, ef slíkt hefir ekki spillingu í för með sér. Oft er þó talað um afbrot unglinga, og það sjálfsagt ekki að ástæðulausu, en getur nú. ekki verið, að sitt hvað af því, sem bæði útvarp, blöð og bækur flytja eigi að einhverju leyti þátt í sumu af því sem miður fer, þetta er jafnvel vert að athuga. Við þurfum eitthvað annað frem- ur til að hlusta á í útvarpinu en manndráp, morð og alls- konar níðingsverk. Gott væyi að fá létt og skemmtileg leikrit, svo sem: Seðlaskipti og ást. Með það held ég að allir hafi verið á- nægðir og óskuðu eftir að það yrði leikið oftar en varð, og mig minnir að það stæði til í fyrra, en af hverju það varð ekki læt ég ósagt, máske að það komi í vetur, það væri gott og gleddi marga, og það er einmitt sem við þurfum í fámenni sveitanna. En við getum vel sætfokk- ur við þó minna væri af alls- konar auglýsingar, bæði um skemmtanir og fleira, en það má sjálfsagt til að vera þó það sé ekki fyrir nema ein- hvern hluta þjóðarinnar, svo mun og með flest verða, að einum líkar vel en öðrum mið ur. í Tímanum var grein eftir Gísla Kristjánsson ritstjóra Freys. Greinin fjallaði um fólksleysi sveitanna og nauö- syn á að reyna og ráða bót á því, vildi hann láta flytja inn vrkafólk sérstaklega stúlkur, ég held það sé orð í tíma tal- að. Það sem mest þjáir sveita- irnar er fólksleysi, og þá sér- staklega skortur á stúlkum, ég veit um fleira en eitt heimili hér í sýslu, sem eng- inn kvenmaður er til dvalar árlangt, og fjölda heimila, þar sem ekkert er nema hús- móðin. Það hljóta allir að sjá að þetta er heldur slæmt, og ekki útlit fyrir að breytist á nálægum tíma. Ég er viss um áð fólkið heldur áfram að streyma til kaupstaðanna, og þaðan hverfa fáir aftur til sveitanna, sem er mjög eðli- legt af mörgum ástæðum. Væri þá ekki rétt að reyna að flytja inn nokkra tugi eöa hundruð af stúlkum, sem van ar eru að vinna landbúnaðar störf, og sjá hvernig fer, reyn- ist þær illa, þá er hægt að losna við þær aftur, emsé um hið gagnstæða að ræða, og þær reynist vel, þá er aðeins gott um það að segja, en ef ekkert er reynt að gjöra til þess að framleiðslan dragist ekki saman þá er bezt að láta arka að auðnu hvernig fer en sennilega vantar gjaldeyri fyrir eitthvað ef flytja verður inn kjöt og mjólk, og ennþá meir af kartöflum en verið hefir allt fram að þessu. Þó er hægt að framleiða hér nægilega miklar kartöflur handa öllu fólki í landinu flest öll ár, bara ef fólkið vill leggja hönd á plóginn, nóg er af landinu og víða ágæt skil- yrði til kartöfluræktunar en öll framleiðsla kostar fyrir- höfn, þol og þrautseigju ef vel á að fara. Hálfstirt hefir gengið með mj ólkurf lutninga síðan um áramót og hér að austan- verðu hefir verið alverst yfir Rangárvellina, þar eru nokk- uð langir kaflar, sem er ekki upphleyptur vegur, virðist þó óvíða hægara að leggja veg þar sem er mjög auðvelt, að ýta að veginum eða í hann frá báðum hliðum, margir eru þeirra skoðunar að það hefði verið þarfara verk, en að verja tugum þúsunda að búa til gjá í smáholt fyrir utan ytri-Rangá hjá Hellu. Satt er það að þar var athugaverð beygja á veginum, en ólíkt hefði verið hægara og kostn- aðarminna að ryðja úr holtinu við beygjuhornið, þá gat það orðið mun betra en það nú er, það væri fróðlegt að fá vissu um hver eða hverjir ráða þessu. Svona fór með sölu happdrættisbréfa. ríkissjóðs Þjóðin hafði ekki lyst á þeim öllum, ekki var það þó af því, að ekki væri skörulega með þeim mælt. Lögfræðingur skýr og skorinorður þuldi af mikilli mælsku í það minnsta tvisvar sinnum töluverða romsu í út- varpið, og var helst að heyra, að ekki þyrfti annað til full- kominnar sælu í þessu lífi en kaupa happdrættisbréfin sem sumir setja samt ó fyrir fram an, en hver heilvitamaður hlýtur að sjá að mjög fá núm er fá vinning þrátt fyrir allt gumið. Væri ekki gott fyrir ríkisjóðinn að kaupa í ein- hverju happdrætti nokkur hundruð eða þúsund bréf til að græða á, sagt er að honum veiti ekki af, og yrði afgang- ur af gróðanum væri þá ekki hægt að búa til eitt eða tvö ný embætti eða nýja nefnd, þær eru víst ekki svo margar, að ekki sé óhætt aö bæta við, og trúlegt þykir mér að ein- hverjir fengjust í þær stöð- ur fremur en að láta rikis- sjóð verða í vandræðum að eýða öllum sínum happdrætt- iságóða. Dalakarl. ■ ■■■llllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItlllllllIllltllllllllllllllllllllllIIIIIHIIIIIIIIIIHtlHlllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIfl | Eybi jörh með lax j og silungsveLbi I í Húnavatnssýslu til sölu, ef viðunandi tilboð fæst. — | 1 Upplýsingar á skrifstofunni frá 1—3 daglega næstu | 1 daga. — Tilboð óskast í síðasta lagi 18. marz næstk. | Múlflutitingsskrifstofa BERGS JÓJVSSOIVAR, | Laugaveg 65. — Sími 5833. | 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ATVINNA Nckkrar stúlkur vantar á saumaverkstæði vor. Upplýsingar hjá klæðskeranum Kirkjustræti 8B. GEFJUN — IDUNN : REYKJAVIK.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.