Tíminn - 24.04.1949, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, sunnudaginn 24. apríl 1949.
81. blað
í clag:
Sólin kom upp kl. 5.25. Sólarlag
kl. 20.30. Árdegisflóð kl. 4,10. Sið-
degisflóð kl. 16,75.
Tungl fjærst jörðu. 4 dagur í
sumri. Snjór hylur allt landið.
Heigidagsvörzlu annast Úifur
Gunnarsson læknir Suðurgötu 14,
sími 81622.
í nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni i Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki, simi 1760. Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633.
L/ívarpið
T kvöld:
KI. 18.30 Barnatími (Sveinbjörn
Jónsson). 19.25 Veðurfregnir 19.30
Tónleikar. 19.45 Auglýsingar. 20.00
Préttir. 20.20 Samleikur á fiðlu og
píanó. 20.35 Erindi: Biblían og
mannfélagsmálin; fyrri hluti (Sig-
urbjörn Einarssöh dósent). 21.00
Auglýst síðar 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.05 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok.
Á morgun:
K!. 20.30 Útvarpshljómsveitin:
Norræn þjóðlög. 20.45 Um daginn
og veginn (Jón Sigurðsson bóndi í
Yzta-Fellt>. 21.05 Einsöngur (frú
Guðmunda Elíasdóttir). 21.20 Er-
indi: Biblían og mannfélagsmálin;
síðari hluti (Sigurbjörn Einarsson
dóseiit). 21.45 Lönd og lýðir:
Antárktlka (Ástvaldur Eydal licen-
siat). 22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Búnaðarþáttur: Gulrófur og
gulrófnafræ (Ragnar Ásgeirsson
ráðunautur). 22.30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Bvúarfoss fó r frá Amsterdam í
gær til Rotterdam. Dettifoss er í
Reykjavík. Fjallfoss er í Antwerp-
en, Gc'ðafoss er í NeW ‘Yorls.
Reykjafoss fór frá Leith 20/4. til
Sviþjóðar. Selfoss fór frá Kaup-
mannahöfn 21/4. til Reykjavikur.
Tröllafoss fór frá New York 14/4.
til Reykjavikur. Vatnajökull er í
Reykjavík. Hertha er á Eyjafjarö-
arhöfnum. Linda Dan fór frá
Reykjavik 21/4. til Leith. Laura
Dan er í Antwerpen.
Ríkisskip.
Esja er í Reykjavík. Hekla var
á Vestfjörðum í gær á norðurleið.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið var á Skaga
firði í gær á suöurjeið. Þyrill er
norðanlands.
Einarsson & Zoega.
Foldin kom til Reykjavíkur á
fimmtudagskvöld. Spaarnestroom
er í Reykjavík. Lingestroom fermir
i IIull á laugardag. Reykjanes er í
Amsterdam.
Laxfoss
fer til Akraness á morgun kl. 8
árd. og kl. 5 siðl.
Sambandið.
Hvassafell er á Akureyri í dag.
Flugfélag Islands.
Gullfaxi er í Reykjavík, en fer
til Prestvíkur og Kaupmannahafn-
ar n.k. þriðjudagsmorgun.
í gær var flokið til Keflavíkur.
Árnab heilla
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band ungfrú Óiöf Stefánsdóttir frá
Minni-Borg í Grimsnesi og Einar
Eiuarsson rafvirkjanemi frá Seyð-
isfirði.
Einnig Hrafnhildur Guðjónsdótt-
ir og Gunnar Gíslason starfsmaður
hjá Olíufélaginu.
Triilofanir.
Nýlega birtu lijúskaparheit sitt
ungfrú Hulda Guðmundsdóttir frá
BíldsfeUi og Sigurður Jónsson lög-
; regiuvarðstjóri á Keflavíkurflug-
velli
Einnig Ingibjörg El:asdóttir (Ey-
i jólfssonar kennara) Sólvallagötu 5
og Gunnar Runólfsson, rafvirkja-
ncmi að Baldursgötu 2, Rvík.
Úr ýmsum átPun
Mjólkin.
I dag verður mjólkin skömmtuð
hér í bænum, 3 desilítrar á mann.
Ástæðan fyrir því er sú að ekki
I er búist viö að öllu meiri mjólk
heldur en í þennan skammt verði
komin til bæjarins áður en mjólkur
búðum er lokað, en það er gert svo
siiemma da^s á sunnudögum. Önn
ur ástæðan er líka, að allmikið
af mjólkurílátum liggur á Hellis-
heiöi i bílunum, sem hafa hvilt
sig í sköflunum þar síðan um dag-
inn að verið var að brjótast yfir
heiðina. Það hefir því verið skortur
á í'átum að flytja í mjólkina að
austan undanfarna daga og verður
einnig í dag.
Ftugferðir
Loftleiðir.
Hekla og Geysir eru í Rvík. Kata
línuflúgbátuv n; r til Lofíleiða kom
írá Gunder í gærkvöldi.
í jgáer var flogið til Akureyrar,
Vestni.innaeyja og Keflavikur.
Söngskemmtun.
í dag kl. 14.30 heldur Karlakór
Reykjavíkur síðustu söngskemmt-
un sína að þessu sinni. Er þetta
fimmta söngskemmtunin og hafa
þær allar verið prýðilega sóttar. —
Undirtektir hafa verið mjög góðar.
Að söngnum í dag verða seldir
noltkrir aðgöngumiðar í Gamla Bíó
frá kl. 12.
Sjómannablaðið.
Víkingur, aprílheftið er nýlega
komið út. Flytur það m. a. Rétt-
lætismál, eftir Ásg. Eftir togara-
déiluna, skrifað af G. G. Eyjar á
Breiðafirði, eftir Odd Valentínus-
son. Hallveig Fróðadóttir og fylgir
fors.ðumynd af hinum nýja togara,
er ber þetta nafn landnámskon-
unnar. Aflaleysi Rannsóknir sjávar
botns, eftir Árna Friðriksson. Jón
Lárusson sjötugur. Baráttan við
óregluna, éftir Ásgéir Sigurðsson
o. m. fl. er í þessu fjölbreytta riti
sjómannanna.
Kanatia-styrkir.
Námsmenn, er léggja stund á
fræðigreinar, er hafa sérstaka þýð-
i’igu fyrir atvinnulíf á íslandi,
skulu að öðru jöfnu ganga fyrir um
styrkveitingu úr Kanadasjóönum.
í Lögbirtingablaðinu er auglýst
að umsóknir .um þennan styrk séu
komnar fyrir 1. júlí til forsætis-
ráðuneýtisins.
Að gefnum tilefnum.
Vegna gefinna tilefna vil ég taka
það fram, að ég einu ber ábyrgð á
því, sem ég skrifa undir fanga-
marki mínu eða fullu nafni hér í
fclaðið, meðan aðrir nota ekki þau
merki undir greinum sínum í Tím-
anum. V. G.
nnt:
::
::
LEIKFELAG REYKJAVIKUR sýnir
Draugaskipið
í kvöld kl. 8. — Miðasala frá kl. 2. — Sími 3191.
Síðasta sinn.
S. K.Ti
Nýju og gömlu dLMsarnlr 1 G. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl, 9. —•
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6,30.
iiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiimimiitiiiiMiiiiiiiimiiiiimiitiiiiiiiiiiiiiiiimiiimitiiiiaiiiiiiiiiititiiiuiiiimiiiai
S. G. T. Dansleikur
f að Röðli í kvöld kl. 9. (Nýju- og gömludansarnir). Slml i
I 5327.
rMIIIIIIMMIimillllUIIIIIIIMIMIIIimilllllMIIMMIIIIIIIIIIIIMIMIIIIMIMMIIIIIIUIIMIIIIIMIIIIIMIMMIMIIIIIIIIMMMIIIIIIIIia
Fáeinar stökur enn
Hólmfríður Jónsdóttir skrifa:
mér, vegna vísna Guðm. Friðjóns-
sonar síðast: „Þegar ég var ungl-
ingUr í Þingeyjarsýslu lærði ég
þessar vísur nýja raf nálinni,
þannig:
Furðu slæm var fluga send,
flutt um borð í Vestu o. s. frv.
Og svarvisu Guðmundar:
Ekki mynda eg orða seið
eða beygi fingur,
þó að skræki á skáldaleið
skottu-hagyrðingur".
Hérna er ein vísa frá 17. öldinni,
eftir Stcíán Ólafsson.
Vanöfarið er með vænan grip,
votta eg það með sanni:
Siðuga konu, sjálegt skip
og samvizkuna í manni.
Það er óneitanlega oft gott, sem
gamalt er og notalegt að rifja það
upp. Svo kvaö Jón S. Bergmann:
Tíminn vinnur ekki á
elztu kynningunni,
ellin finnur ylinn frá
æsku-minningunni.
Margir kunna þessa fallegu og
sígildu vísu Einars Benediktssonar:
Öl! sæla er gleði hins góða,
hún gerir að höll hvert kot,
án hennar er auður hismi
og hreysi hvert konungsslot.
Sagt er, að þessi visa sé eftir
roskna stúlku, sem aldrei giftist:
Æfin verður eins og snuð
eða svikin vara,
þeim, sem ekki góður guð
gefur meðhjálpara.
Guttormur J. Guttormsson segir:
Betra er að vera af guði ger
greindur bóndastauli,
heldur en vera hvar sem er
„hámenntaður" auli.
Mörgum virðist falla bezt að
rölta troðnar slóðir og jafnvel að
vera háðir og þrælbundnir öðrum,
er þeir mæna upp til sem ein-
hverra æðri vera. Um þessa tegund
manna kvað Þorst. Erl. einhvern
tíma:
Þrælslund aldrei þrýtur mann,
þar er að taka af nógu.
Hann gerði allt, sem hundur
kann,
hefði hann aðeins rófu.
Hjá öðrum er algerð gagnstæða.
Þeir elska írelsið, jafnvel framar
en flest eða allt annað. Þeir gefa
mikið fyrir að fá .að njóta þess,
jafnvel allt, sem þeir eiga. Her-
mann Jónasson hefir fellt vel í
stuðla hugsun þessara manna, er
I hann kveður:
Betra er að vera klakaklár
og krafsa snjó til heiða,
en lifa mýldur öll sín ár
undir hnakki og reiða.
V. G.
GLATT A HJALLA
KVÖLDSYNING
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. — Simi 2339.
Dansað til kl. 1.
--»««•«»*»«•♦«•*«♦«»»»♦•«»**»♦••♦♦»*»•«»»♦•*♦♦♦«»♦««♦*•**••«*»*««*»•»♦«»*«••»-«»*
. i!
Karlakór Reykjavíkur
Söngstjóri: Sigurður Þórðarson
ISAIViSÖNGU
•«
« í Gamla Bíó í dag kl. 14.30. Það, sem kann að verða
:: eftir af aðgöngumiðum, veröur selt í Gamla Bíó frá
::
::
kl. 12.00 í dag.
Síðasta sinn.
miiiiiiiiimmimmmiiimiiiimiiiimiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiimiiIiiiiimiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmimmmmiiiiimimmiiiiiiimiI
Rafstöð til sölu
6 hestafla dieselvél, reimtegnd við 3,5 kw. jafn- |
| straumsrafal 110 volt og með tilheyrandi töflu-útbún- |
1 aði. Stöðin er hentug til raflýsingar á sveitaheimili og I
1 sé raíalnum ,,kúplað“ frá, getur vélin drifið heyþurrk- |
i unartæki þann tíma ársins, sem rafmagns til ljósa |
| er ekki þörf. ' |
FJALAR H.F. Nýja Bíó-húsinu Ryekjavik, sími 6439. |
~>immiiiimmmimiiiimmmmmmmimimimmiiiiimmmmmimmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmimiimmmiiiIii
::
::
NÝKOMIÐ
Rennilokur i/j.”—3”
Ventilhanar %”
Eldhúsblöndungar
Baðblöndungar
Snittolía.
A. Jóhannsson & Smiíh h.f
Njálsgötu 112. — Sími 4616.