Tíminn - 26.04.1949, Qupperneq 4
4
TÍMINN, þriðjudaginn 26. apríl 1949.
8fe. ulað'
,IU11
í Ii
■)f. i
Norðlenzkur snjóavetnr
fyrir 50 árura
Fjárrekstur yfir Holtavörðuheiði um suraarraálin 1899
Niðurlag.
TVEIR SLEÐAR voru undir
heyi, urðu menn að draga þá
því hestar allir voru komnir í
hagagöngu, sem fyrr segir,
enda þekktist ekki sleða-
akstur með hestum hér í þá
daga. Heldur fór að ganga bet
ur þegar upp á heiðina kom
og hægt var að láta féð fara
í sporaslóð. Segir ekki meira
af ferðinni þennan dag, en
komið var upp í svokallaða
„Dæld“, sem er norðarlega á
heiðinni, tæpa 8 km. frá
Grænumýrartungu, klukkan
eitt um nóttina. Var þá bú-
ið að fara tæpa 12 km. Voru
þá liðnir 20 klukkustundir frá
því að lagt var af stað um
morguninn. Gott veður var
þennan dag, hægur norðan
með töluverðu frosti, en sól-
skin oftast nær, því skýja-
slæður voru á lofti. Fór nokk
uð af fólkinu heim um kvöld j
ið, en aðrir þegar komið var!
í áfangastað um nóttina. Eft
ir urðu nokkrir menn. Var
það kaldsamt, því frostið
herti mikið um miðnættið.!
Mennirnir voru svitastorknir
og hálfuppgefnir eftir þenn-
an langa og erfiða dag, og
ekki hægt að skipta um fóta
búnað, því að allt var í glera-
gaddi. Kól þó engan. Var það
að þakka hlýjum og góðum
klæðnaði.
Lagt var upp snemma
morguninn eftir áleiðis suð- |
ur heiðina. Var þú búið að
gefa síðustu heytugguna. —j
Komu nú fram af þessu;
menn til hjálpar og allmarg-
ir, sem ekki voru fyrir dag-
inn áður, en fátt var nú um
friða kynið. Þó man ég eftir
einni, Katrínu Böðvarsdótt-
ur, röskleika kvenmanni, og
var hún með alla leið að
Hæðarsteini.
MENN VORU bjartsýnir,
því skafheiðríkt var og eng-
in veðurbreyting sjáanleg,
því allt var undir veðrinu
komið og vitað var, að skipti
Eftlr Jóm Marteinsson frá Fossl.
k\£
.vA
Dánarmiimiiig:
(Framhald af 3. síðu).
Guðmundur í Miðdal gæfu-
maður. Hann var vel af guði
gefinn og átti gott æsku-
heimili. Honum auðnaðist að
geta unnið að hugðarefnum
sínum langa æfi og koma
miklu í framkvæmd, og naut
trausts og álits samferða-
manna sinna. Hann eignaðist
ágæta konu og mörg og
myndarleg börn, sem studdu
hann af kostgæfni í starfi
hans eftir að upp komust. —
'Sveitungar hans og aðrir vin
ir fjær og nær kveðja hann
með þökk og virðingu og
geyma minninguna um góð-
an dreng og mikinn mann-
dómsmann.
Hann var jarðsunginn að
Saurbæ á Kjalarnesi 23. þ.m.
áð viðstöddu margmenni úr
Kjós, Kjalarnesi og Reykja-
vik.
Gísli Guðmundsson.
um færi við Hæðarstein, en
þangað er ura 5 km. leið frá
Dældinni. Þennan dag var
glatt sólskin með miklu
frosti, norðan stormur var,
en ékki það mikill, að skæfi
að mun. Komið var að Hæð-
arsteini um kl. 3. Töldu nú
allir, að þrautin væri unnin,
þótt alllangt væri til Forna-
hvamms, því hjarn var víð-
ast ofan dalinn. Voru nú
fylgdarmenn kvaddir með
þakklæti fyrir drengilega
hjálp, sem svo giftusamlega
hafði tekizt. Ærnar voru
ljúfar í rekstri ofan dalinn,
var sem blessaðar skepnurn-
ar fyndu á sér, að nú yrði
þess skammt að bíða, að þær
fengju haga til að næra sig
á, enda létu þær ekki bíða
að krafsa klakaskelina, er lá
yfir holtunum, er kom ofan
í dalinn, og ná í mosann. Var
komið að Fornahvammi eft-
ir nær 40 tíma frá því að
heiman var farið. Stanzað
var þar lítið eitt og þegin
hressing fyrir menn og skepn
ur. Þaðan var svo haldið á-
leiðis að Sveinatungu um
kvöldið. Komið var þangað
um miðja nótt, þvi stanzað
var á leiðinni til að láta féð
fylla sig, því nægur hagi var
þar. Var prýðilegt að gista
hjá Jóhanni bónda og Ingi-
björgu konu hans, og var
ekki farið þaðan fyrr en und
ir hádegi daginn eftir. Var
þá farið yfir Grjótháls og
staðið við á Kvíum í Þverár-
hlíð við ágætar móttökur.
Man ég sérstaklega eftir, að
Eggert bóndi, sem þar bjó
þá, kom með hvern töðumeis
inn af öðrum, ég man ekki
hvað marga, og gaf fénu eins
mikið og það vildi éta. Farið
var þaðan að Arnbjargarlæk
og gist hjá Þorsteini bónda,
föður Davíðs og Þorsteins
sýslumanns, og var þar sem
annarsstaðar ekkert til spar-
að til þess að mönnum og
skepnum gæti liðið sem bezt.
Var svo farið að Kaðalstöð-
um í Stafholtstungum og var
þá komið að leiðarenda, því
þar var féð haft, meðan það
var fyrir sunnan, hjá Ólafi
bónda, er þar bjó lengi. Voru
2 menn skildir eftir til þess
að gæta fjárins. Voru það
menn Fossbænda, Sigurður,
er fyrr getur, og sá, er þetta
ritar. Geldféð var látið
bjarga sér á haganum ein-
göngu, en 50 pund var ánum
gefið af töðu á hverjum
morgni og héldu þær sig vel
með það. Veðurlag var hið
ágætasta, logn og blíða hvern
dag. Féð var hýst í beitar-
húsum talsverða leið frá bæn
um og beitt á flóana þar í
kring.
TVÆR VIKUR var ver-
ið þarna um kyrt, og var svo
rekið norður 12. og 13. maí.
Ekki var að tala um mikla
borgun. Þó vissi ég til, að
Ólafur bóndi tók við tveimur
gemlingum hvítum og gráum,
og var hann látinn velja þá
sjálfur. Það vöru að visu all
þrifalegar gimbrar, en alls
ekki þær beztu, og eftir
þeirra tíma verðlagi hafa
þær báðar verið 18 kr. virði.
Haldið var áfram að reka
suður, af nokkrum bæjum úr
firðinum, alla vikuna, en bat
inn kom annan sunnudag í
sumri.
Prýðileg höld voru á því fé,
er rekið var suður, og lamba-
höld góð um vorið, en ekki
voru eins góð lambahöld hjá
þeim, er ráku út að sjó, þar
sem féð lifði á fjörubeit með
sáralítilli gjöf — og ef ‘ til
vill einhverjum hagasnöpum.
Bóndi sá, er fyrr getur, Ás-
björn Jónsson í Geithól, var,
byrjaður að lóga af fé sínu,'
en hætti við, er farið var með
fyrsta hópinn af stað. Ekki
er gott að segja, hve mörgu
hefir verið bjargað frá nið-
urskurði með þessu, en full-
víst er, að eitthvað hefir það
verið og ef til vill margt á
þeim bæjum, er rekið var frá.
ILL EFTIRKÖST höfðu
heildarferðirnar fyrir marga,
sem ekki höfðu snjógleraugu
eða aðrar hlífar fyrir aug-
unum, einkum sú fyrsta.
Menn fengu kvalir í augun
og urðu hálfblindir, og tveir
urðu aldrei jafngóðir meðan
þeir lifðu.
Ég ætla að geta eins í sam-
bandi við þennan fjárrekst-
ur, því það mun okkur öllum
mínnisstæðast, sem þarna
vorum. Það var þorstinn, sem
kvaldi okkur, einkum fyrri
daginn, því hvergi var hægt
að ná í vatn, en tveimur kon-
um, þeim Guðlaugu Jónsdótt
ur, konu Jóns Bjarnasonar,
og Sesselju Stefánsdóttur ljós
móður, Óspaksstöðum, hafði
hugkvæmst, að þorstinn
mundi þjá fólkið á heiðinni,
en af því enginn karlmaður
var þar heima, tók fyrrnefnd
Sesselja að sér að brjótast í
ófærðinni fram í Óspaks-
staðasel alllanga leið, til að
; fá mann þar með drykk upp
á heiði. Var það Jón Þórðar-
son, er nú býr á Broddanesi,
er það gerði. Fór hann með
eins mikið og hægt var fyr-
ir hann að komast með af
drykkjarföngum. Urðu menn
harla fegnir og var sem okk-
1 ur ykist kraftur um helming
við þessa góðu hressingu og
átti þetta sinn góða þátt í
1 því, að betur gekk síðasta
spölinn um nóttina.
j Þorsteinn sonur Jóns Þor-
steinssonar á Fossi, sem
(lengi bj ó í Hrútatungu á
seinni hluta 19. aldar, merk-
| ur maður á sinni tíð, var orð-
i inn gamall og hættur að búa,
er þetta var. Hann var oft
orðheppinn í tilsvörurm Því
var það, er sendimenn voru
í suðurferðinni og fólk fór að
lengja eftir þeim, og heima-
konur fóru að verða hrædd-
ar um þá, sérstaklega kona
Þorsteins yngra, þá átti
gamli maðurinn að hafa sagt
með sinni gömlu ró: „Þið
haldið þá svo alltaf, að guð
sé hvergi nema hjá ykkur“.
Hér kemur, síðari hluti af bréfi
Geirmundar heljarskinns:
„Maður er hættur að verða undr-
andi, þó ýmislegt skrítið heyrist
frá löggjafarsamkomu þjóðarinnar,
en þó virðist mér taka útyfir frum-
varp um þingfararkaup og eftirlaun
uppgjafa þingmanna, sem fram er
komið frá vini okkar Sigurði Krist-
jánssyni o. fl. Nú nægja ekki leng-
ur bitlingarnir og nefndastöríin,
sem sumir af þessum heiðursmönn-
um hafa látið í askinn sinn og
étið ófeimnir, þó að vinnubrögðin
hafi ekki verið þar eftir. Er hægt
að ganga öllu, lengra í óskamm-
feilni en þetta Er lítilsvirðing
þjóðarinnar almennt, ekki nægi-
lega mikil á löggjafarsamkomunni,
þó að þetta frumvarp yrði nú ekki
líka að lögum?
Hann Ólafur á Hellulandi, og
einhver annar maður (ég er búinn
að gleyma hvað hann heitir, það
er vist sá sami sem hefir svo vel
vit á rjúpunum) hafa skrifað í
Tímann um svartbakinn. Það er
illt satt mál að verja, Ólafur minn
á Hellulandi. En þú ættir að stinga
því að þessum andmælanda þínum,
sem virðist hafa svo gaman af að
stangast við staðreyndirnár, að
hann ætti að dvelja eitt vor vestur
í Breiöafjarðareyjum, því að eftir
það skil ég varla í öðru, en höfuð-
skelin á honum væri orðin nægilega
þunn til að það kæmist inn í hana,
að hann hefir minna en ekkert
vit á því, sem hann er að skrifa
um svartbak. Hann myndi ekki fá
einn einasta mann með reynslu
þekkingu til að fallast á skoðun
sína, um skaðleysi eða jafnvel gagn
semi svartbaka í æðarvarpi.
Að endingu ætla ég svo að minn-
ast á skoðun sem nafnkunn kona
hélt fram í útvarpinu ekki alls
fyrir löngu, nefnilega því, að það
væri jafnmikið óréttlæti, að láta
minnihlutann beygja sig fyrir
meirihlutanum eins og meirihlut-
ann fyrir minnihlutanum. Ósköp
finnst mér þetta austrænt og líkt
„neitunarvaldinu“, sem Rússar
komu inn í lög Sameinuðu þjóð-
anna. Það vantaði nú bara ekkert
annað, en við íslendingar færum
að tryggja þeim skemmdaröflum,
sem eru hér að verki, með lögum
„neitunarvald" í hverju máli.
Og nú á að fara að flytja inn
erlent verkafólk til landbúnaðar-
starfa. Er ekki nema gott eitt við
því að segja. En fyrir bændur, sem
ekki hafa nema sauðfjárafurðir
við að styðjast, er kaupgjald, sem
krafizt er og annar kostnaður, þeim
langt um ofviða".
Ég gæti trúað, að þetta bréf
leiddi af sér framhaldsumræður
þótt síðar verði.
En svo eru hérna þrjár visur eftir
K.
VerkföII
Það mundi alvarlegt áfall
aumingja lýðskrumurunum,
ef vitleysan gerði verkfall
í verkalýðsfélögunum.
Færi þó enn ver, ef ágirnd,
ofstopi, lævísi, gramúð,
öfund, hatur og illgirnd
gerðu allsherjarverkfall — af sam-
úð.
Heilræði
Heimtaðu allt af öðrum,
engu skalt sjálfur nenna.
Því ef þú gerir aldrei neitt,
er ekkert þér aö kenna.
Þá ræðum við ekki fleira í dag.
Starkaður gamli
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð við frá-
fall og jarðarför
Jóns J. ilafilinaiiii.
Börn og tengdabörn.
Sólar-kúafóður
Höfum fyrirliggjandi okkar ágæta SÓLAR-kúafóður,
SÓLAR-hestafóður, SÓLAR-hænsnafóður, ungafóður
og blandað korn. — Verðið lækkað.
SÓLAR-fóðurblöndur eru framleiddar hjá
Síldar- og F'LskimiöísverksmihjunnL h.f.
Hafnarstræti 10—12.
Auglýsingasími
Tímans er nú
81300
o
(I
O
o